Skessuhorn - 25.05.2000, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 25. MAI 2000
Sveitastelpan faflegust
Rætt við Elínu Málmfríði Magnúsdóttur fegurðardrottningu Islands
Elín Málmfríður ásamt foreldrum sínum þeim Magnúsi 1 Hannessyni og Agústu S Bjirmsdóttur.
Eins og flestum ætti nú að vera
orðið kunnugt var fegurðardrottn-
ing Vesturlands, Elín Málmfríður
Magnúsdóttir, kjörin ungfrú ísland
árið 2000 á Broadway laugardaginn
19. maí. Þetta er því annað árið í
röð sem ungfrú Vesturland ber sig-
ur úr býtum í keppninni og verður
það að teljast hreint ffábær árangur
sem Vestlendingar geta verið stoltir
af. Þess má geta að áður en Katrín
Rós Baldursdóttir hlaut þennan eft-
irsótta titdl í fyrra var þriðja sætið
besti árangur Vestlendinga.
Tuttugu og fjórar stúlkur af öllu
landinu keppm til úrslita og var
kvöldið allt hið glæsilegasta. Stúlk-
urnar byrjuðu á því að koma fram í
fötum frá versluninni Blues í
Kringlunni, því næst í baðfötum frá
Elle og loks í síðkjólum sem þær
höfðu sjálfar valið. Nýlunda var að
auk þessa þurftu þær að halda stutta
tölu um sjálfa sig og sagði Elín þar
m.a. að hún væri sveitastelpa sem
dreymdi um að eignast myndarlega
fjölskyldu.
I beinni á Skjá einum
Mikil spenna ríkti í salnum þegar
komið var að úrslitastundinni. Níu
fyrstu titlarnir komu allir í hlut
stúlkna sem voru af höfúðborgar-
svæðinu og var því enn meira gam-
an að fýrsta sætið skyldi koma í hlut
stúlku af Vesturlandi. Vafalaust hef-
ur Katrínu Rós heldur ekki þótt
verra að afhenda Elínu kórónuna
því þær stöllur eru góðar vinkonur.
Blaðamaður Skessuhorns sló á
þráðinn til Elínar á sunnudeginum
eftir keppnina til þess að heyra í
henni hljóðið.
Góðar líkur
tölfiræðilega séð
“Þetta er búið að vera rosalega
gaman og framhaldið leggst mjög
vel í mig”, svarar Elín að bragði
þegar hún er spurð að því hvemig
henni lítist á að vera nýkrýnd ung-
frú Island. Blaðamaður má einnig
til með að spyrja hinnar sígildu
spurningar sem allar fegurðar-
drottningar ættu að kannast við:
Attirðu von á þessu? “Já, alveg
eins”, segir Elín og hlær. ”Eg meina
líkumar vom auðvitað 1 á móti 24
og það er nú ekkert svo lélegt.”
Gull og grænir skógar
Elín segir verðlaunin hafa verið
mjög vegleg og meðal þeirra var
sólarlandaferð í tvær vikur. “Við
vomm þrjár sem fengum svona ferð
í verðlaun og líklega fömm við all-
ar saman. Þá yrðu myndatökur og
svoleiðis í viku og svo hefðum við
seinni vikuna bara út af fyrir okkur.
Reyndar er ekki víst
hvenær eða hvort af
þessu verður þar sem
upphaflega hugmyndin
var að fara um mánaða-
mótin júní-júlí en þá
verð ég úti í Beirút”.
Elín fékk einnig
30.000 króna gjafabréf
ffá versluninni Natama
sem stendur til að opna
á Laugaveginum í byrj-
un júní. Einnig fékk
hún árskort í ljós hjá
Sólbaðsstofu Grafar-
vogs og líkamsrækt hjá
World Class, 50.000
króna úttekt í verslun-
inni Blues, 15.000
króna úttekt í verslun-
inni Valmiki, Sagem
MC 950 gsm síma og
5.000 króna inneign ffá
Símanum GSM, Strata
tíma ffá Heilsu og feg-
urð, Orublu sokkabux-
ur, nærbuxur og bol ffá
Islensk-austurlenska, handsnyrti-
sett, Karin Herzog gjafapakka,
snyrtivörur frá Face, náttkjól, tösku
og náttslopp frá Elle og mód-
elskartgripi.
Fer til Beirút
Fyrsta opinbera verkefhi Elínar
sem ungfrú Island verður að fara út
til Líbanon að keppa um titilinn
ungffú Evrópa. “Nú verður maður
bara að halda áfram að vera dugleg-
ur að halda sér í formi. Eg fer til
Beirút í Líbanon í lok júní. Elín
Gestsdóttir framkvæmdastjóri Is-
landskeppninnar og Silja Allans-
dóttir sem sér um ungfrú Vestur-
land koma með mér út. Eg fer
reyndar á undan en svo koma þær
og við verðum samferða heim. Mér
ftnnst það mjög gott mál. Konurn-
ar í Heilsu og fegurð sem sáu um að
greiða okkur fyrir keppnina ætla
svo að kenna mér að setja upp á mér
hárið áður en ég fer út.” Það verð-
ur þó ekki fyrsta verkefni Elínar því
hún hefur nú þegar nóg að gera. “I
dag fór ég í myndatöku fyrir
Heimsmynd og Elle af því að ég var
kosin Elle stúlkan hér í Vesturland-
skeppninni. Eg og Þorbjörg Sif,
sem var kosin Elle stúlka Islands-
keppninnar, vorum saman í því.
Einnig verðum við líklega í opnun-
arhófi verslunarinnar Natama, en
þar fást vörurnar ffá Elle.”
Mjög gott að
eiga Katrínu að
Elín segist ekki vera í minnsta
vafa um að henni verði mikil hjálp í
Katrínu vinkonu sirmi sem hefur
nýlokið sínu hlutverki sem ungfrú
ísland. “Ég kem tvímælalaust til
með að leita ráða hjá henni ef ég er
í vandræðum með eitthvað. Hún og
Anna Þóra, sem varð í öðru sæti í
Vesturlandskeppninni í fyrra, hafa
nú þegar reynst mér mjög hjálpleg-
ar bæði fyrir Vesturlands- og Is-
landskeppnina”. En skyldi Elín ekki
þurfa að breyta ráðstöfunum sínum
varðandi sumarið nú þegar hún þarf
að gegna þessu veigamikla hlutverki
og meðal annars fara til útlanda um
tíma. “Jú, ég er búin að fá vinnu í
íslandsbanka í sumar en ég á eftir
að tala við stjómendur þar og því
allt óráðið í þessu sambandi. Eg veit
ekkert um hvernig þetta á eftir að
ganga en ég var auðvitað ráðin
þarna í sumarafleysingar og því hálf
öfugsnúið að það þurfi svo að fá
einhvern til að leysa mig af, ég skil
mjög vel ef það gengur ekki upp.”
Góður andi í hópnum
Elín segir það hafa verið erfitt að
vita af því að hún var í beinni út-
sendingu á Skjá einum, og sérstak-
lega fannst henni erfitt að þurfa að
kynna sig. “Þetta var rosalega
stressandi en maður reyndi auðvit-
að bara að gera sitt besta. Mikil á-
hersla hafði verið lögð á að við töl-
uðum hátt og skýrt svo vel heyrð-
ist í okkur og maður var að hafa á-
hyggjur af því að röddin myndi
bresta og því um líkt en þetta gekk
allt saman vel. Mér fannst þetta þó
það erfiðasta af öllu sem við gerð-
um.” En hvað var þá skemmtileg-
ast? “Mér fannst skemmtilegast
bara að taka þátt í þessu og kynnast
öllum stelpunum. Við fómm líka í
óvissuferð allar saman og svo var
auðvitað líka mjög skemmtilegt að
vinna! Við erum ákveðnar í því
stelpurnar sem tókum þátt í keppn-
inni að halda hópinn og hittast ann-
að slagið. Andinn í hópnum var
mjög góður og við urðum allar fín-
ar vinkonur. Við erum með á
stefhuskránni núna að taka á leigu
sumarbústað bráðlega og vera þar
yfir eina helgi eða svo.”
Fékk sér pizzu um nóttína
Elín segist aldrei hafa verið í
nokkmm vafa um hvað yrði það
fyrsta sem hún myndi taka sér fyrir
hendur eftir keppnina. “Eg fór
beinustu leið upp á hótelherbergi
og pantaði mér pizzu um nóttina”,
segir hún og hlær. “Það fyrsta sem
ég gerði daginn eftir var svo að fara
til þeirra sem em með Elle umboð-
ið og máta föt fyrir myndatökuna
sem ég fór í áðan.”
Það er því greinilega nóg að gera
hjá Elínu Málmfríði og óskar
Skessuhorn henni innilega til
hamingju með þennan glæsilega ár-
angur.
Texti og myndir: SOK
Katrín Rós óskar arftaka sínum til hamingju með titilinn.
Drottningar af Vesturlandi - Elín Málmfríður, Katrín Rós og Silja Allansdóttir framkvæmdastjóri
fegurðarsamkeppni Vesturlands.