Skessuhorn - 10.08.2000, Page 7
*ÍÉSSUiiöí2H
FIMMTUDAGUR 10. AGUST 2000
7
Hjánin á Stekkjarvöllum framan við mjólkurhúsið á bœnum. A myndinni sést hvemig
mjaltakerfið er tengt beint við haugsuguna með slöngu.
Mjólk dreift á mela
A Stekkjarvöllum í Staðarsveit
búa Sveinn Guðjónsson og Ragn-
heiður Þorsteinsdóttir. A bænum
eru 24-25 mjólkandi kýr en búið á
um 80.000 lítra greiðslumark í
mjólk. Mjólkin frá Stekkjarvöllum
er lögð inn hjá Mjólkursamsölunni
í Reykjavík en Sveinn og Ragnhild-
ur hafa nú þegar lagt inn ríflega
sinn kvóta. Þau ákváðu því að losa
sig við umframmjólk með því að
bera hana á landareignina með
haugsugu.
„Miðað við þær upplýsingar sem
ég aflaði mér um stöðu mála er
möguleiki á að ég fái greitt fullt
verð fyrir umffammjólk allt að 4%
í viðbót við mitt greiðslumark. Ef
ég hins vegar legg inn umffarn það
fæ ég líklega ekki nema 2 krónur á
lítrann. Eg hef nú þegar ffamleitt
ríflega upp í okkar greiðslumark og
ftnnst ekki taka því að leggja inn
meira,” sagði Sveinn bóndi á
Stekkjarvöllum í samtali við blaða-
mann á dögunum.
„Við dreifum mjólkinni með
haugsugu hér stutt ffá bænum aðal-
lega á mela og ógróið land.” Að
sögn Sveins er þetta fyrst og fremst
hugsað sem leið til að losna við
mjólkina þó að einnig séu einhver
áburðarefni í mjólkinni þó þau séu
ekki veruleg miðað við það magn af
mjólk sem um ræðir. „Við sleppum
líka við að þrífa mjólkurtankinn
með þessu móti því við mjólkum
beint í haugsuguna,” bættu þau
hjón við.
EA
Kvótamál í mjólk
Verðlagsárið í mjólkuriðnaði-
num hér á landi hefst fyrsta
september og líður að því að
núverandi verðlagsári ljúki.
Ekki verður ljóst fyrr en í sept-
ember hver nýting greiðslu-
marks í mjólk verður þetta árið
og ekki heldur hversu mikið
verður hægt að greiða fyrir um-
frammjólk, Blaðamaður
Skessuhoms kynnti sér hvemig
þessi mál horfa við Vestlend-
ingum.
I bréfi sem Samtök afurðastöðva
í mjólkuriðnaði sendi mjólkur-
bændum í júH síðasdiðnum kom
ffam að áæda megi að ffamleiddir
verði 2-3 millj. h'tra af umffam-
mjólk á þessu verðlagsári í landinu.
Samkvæmt gildandi reglugerð um
greiðslumark mjólkurffamleiðslu
eiga bændur á hverju svæði sem
lagt hafa inn umffammjólk forgang
að vannýttu greiðslumarki svæðis-
ins. Hver framleiðandi hefur þó
ekld forgang að nema 4% viðbót
við sitt greiðslumark. Ef eitthvað
er þá eftír af ónýttu greiðslumarld á
viðkomandi svæði verður því jafn-
að út milli ffamleiðenda á lands-
vísu. I fyrmefitdu bréfi SAM kem-
ur ffam að ekki er gert ráð fýrir að
ffamleiðendur fai nema 2 krónur á
lítrann fýrir mjólk umfram 4%
ffamleiðsluaukningu. I bréfinu
kemur jafnffamt fram að það liggi
ljóst fýrir að sú ffamleiðsla rúmist
ekki á innanlandsmarkaði og muni
því öll fara til útflutnings. I samtali
við Jón K. Baldursson, sem starfar
hjá Samtökum afurðastöðva í
mjólkuriðnaði, kom ffam að þessi
mál verði þó ekld endanlega ljós
fýrr en um miðjan september. „Eg
hef ekki forsendur til að spá neinu
frekar um þessi mál að svo stöddu,”
sagði Jón.
Bændur sem búa á svæðinu ffá
Kjós allt tíl sunnanverðs Snæfells-
ness leggja mjólk sína inn hjá
Mjólkursamsölunni í Reykjavík.
Bændur á norðanverðu Snæfells-
nesi vestur til Patreksfjarðar leggja
hins vegar sína mjólk inn í Búðar-
dal þar sem Mjólkusamsalan rekur
einnig mjólkurbú. A Vesturlandi
eru því tvö samlagssvæði. Sam-
kvæmt tölum ffá Mjólkursamsöl-
unni í Reykjavík var búið að nýta
95,11% greiðslumarks á fýrr-
nefnda svæðinu í júlílok en
92,33% á því síðamefhda. Þetta er
nokkuð verri nýting en á sama
tíma í fýrra en í júlílok á síðasta ári
var búið að nýta 101,35% á fýrr-
nefhda svæðinu en 95,87% á því
síðamefnda. Ef þessar tölur era
bomar saman er því ljóst að í ár er
hlutfallslega meira eftir af
greiðslumarki ársins fýrir síðasta
mánuð verðlagsársins.
EA
Bændaháskólinn á Hvanneyri
Undirbúningur að
komast á fullt skrið
Að sögn Bjama Guðmundsson-
ar aðstoðarrektors Landbúnað-
arháskólans á Hvanneyri er
undirbúningur skólastarfs
næsta vetur að komast á fullt
skrið. Aðsókn í Búvísindadeild
er svipuð og verið hefur en öllu
meiri í Bændadeild en undan-
farin ár.
Teknir verða inn 15 nýir nem-
endur í Búvísindadeild í haust en
nemendur við hana verða í allt um
30 í vetur. „Við átmrn von á öllu
fleiri umsóknum í Búvísindadeild-
ina sérstaklega vegna aukins náms-
framboðs. Við höfðum hugsað
okkur að bjóða upp á þrjár
námslínur í vetur á háskólastíginu
þ.e. hefðbundna búfræði, landnýt-
ingu og umhverfisskipulag. Að-
sókn var mest í hefðbundnu bú-
fræðina og einnig nokkur í land-
nýtingu en óvíst er hvort við höf-
um nægilegan nemendafjölda tíl
að við getum keyrt línu í umhverf-
isskipulagi,” sagði Bjarni þegar
hann var inntur eftir aðsókn í Bú-
vísindadeild.
Um 20 nýir nemendur hefja
nám í Bændadeild Landbúnaðar-
háskólans og er þetta nokkuð betri
aðsókn en verið hefur undanfarið.
„Alls verða um 40 manns við nám
í bændadeild í vetur auk um 25
manns sem munu stunda fjamám.
Mér virðist sem nemendur séu
seinni að ganga frá umsóknum
sínum nú en áður. Okkur era enn
þessa dagana að berast umsóknir,”
bætti Bjarni við að lokum. Land-
búnaðarháskólinn á Hvanneyri
verður settur með formlegum
hætti þann 4. september en
kennsla í Búvísindadeild hefst 28.
ágúst.
EA
Kór í Stykldshólmi
í kvöld, fimmtudaginn 10. ágúst
kl. 20:30 verða tónleikar í röðinni
“Sumartónleikar í Stykldshólms-
kirkju“. Þá kemur fram kraftmikill
40 manna kór frá Bandaríkjunum
sem heitir Long Island Symponic
Coral Association. LISCA hefur
haldið tónleika í helstu hljóm-
leikahúsum á Long Island og New
York. Viðfangsefhi kórsins spann-
ar tónlistarsöguna frá endurreisn-
artímabilinu og fram á þennan
dag.
Kórinn hefur ffumflutt mörg
verk samtímatónskálda. Fimm
hljóðritanir hafa komið út með
söng kórsins. Kórinn hefur ferðast
til Finnlands, Spánar, Austurríkis,
Ungvarjalands, Tékklands, Frakk-
lands og Englands.
Nýlega flutti kórinn óratoríu
Mendelsohn “Elía” ásamt Ibex
kammersveitinni í New York.
Aður hefur hann flutt “Sálumessu”
efrir Brahms, “Lofsöngur til fæð-
ingarinnar” efrir Respighi og “Isr-
ael í Egyptalandi” eftír Handel.
Stjómandinn Gregg Smith er
heimskunnur kórstjóri og tón-
skáld. Hann stjómar kór atvinnu-
manna sem nefnist “The Gregg
Smith Singers” sem hefur starfað í
nær 43 ár og hefur unnið til nokk-
urra Grammy-verðlauna. Nýjasta
tónsmíð hans er “Sálumessa jarð-
ar”, samin fýrir Washinghton
National Cathedral Chorus.
MM
Flæsk og firikacleller
Undirbúningur Danskra daga í fullum gangi
Dagana 17.-20. ágúst næstkom-
andi verða haldnir Danskir dagar
í Stykkishólmi. Þetta er í 7.
skipti sem hátíð er haldin í
Hólminum undir þessari yfir-
skrifit og má því segja að hefð
hafi skapast. Undirbúningur
Danskra daga stendur nú sem
hæst en dagskráin verður að
venju fjölbreytt.
Að sögn Jóhönnu Guðmunds-
dóttur framkvæmdastjóra Eflingar
Stykkishólms hefur nú verið unnið
að undirbúningi Danskra daga um
nokkurt skeið. Þriggja manna
nefnd stýrir verkinu auk Jóhönnu
og er í mörg hom að líta. „Við
leggjum áherslu á að hér sé um fjöl-
skylduhátíð að ræða þar sem eitt-
hvað verði í boði fýrir alla aldurs-
hópa. Einnig mun gæsla verða efld
frá í fýrra og metnaður lagður í að
standa vel að þeim málum,” sagði
Jóhanna þegar blaða-
maður Skessuhorns
heimsótti hana í
Stykkishólm í síðustu
viku.
Af hverju
þessi nafhgift?
En af hverju skyldi
árvissum sumarhátíð-
arhöldum í Stykkis-
hólmi vera valin þessi
nafngift? „Hér í denn
var Stykkishólmur
undir mjög sterkum
dönskum áhrifum.
Hér voru danskir
embættismenn og
kaupmenn og sagt er
að Hólmarar hafi talað
dönsku á sunnudögum
og á öðrum tillidög-
um. Nafngiftina á
þessum hátíðarhöldum
okkar í dag má rekja til
þessa, þ.e. við höldum
hér hátíð og vísum um
leið í þessa gömlu tíma. Einnig
leggjum við áherslu á danska mat-
argerð meðan á Dönskum dögum
stendur”
Mest heimafengið efiii
Að sögn Jóhönnu verður dagskrá
Danskra daga að mestu byggð á
heimafengnu efni. „Það sem verð-
ur meðal annars nýtt hjá okkur að
þessu sinni er endurkoma eldri
hljómsveita úr Stykkishólmi. Á
laugardaginn mun t.d. koma fram
Táningahljómsveit íslands sem
vann hljómsveitakeppni á Húsa-
fellshátíð 1971. Annað sem nefha
mætti er myndlistarsýning ungra
Hólmara sem haldin verður í fé-
lagsmiðstöðinni, götuleikhús,
bryggjuball, tónleikar og svona
mætti lengi telja”.
EA
Danski fáninn í Stykkishólmi sl. ár.
As í nýju
húsnæði
Hjónin Magnús Ingólfsson og
Hlíf Bjömsdóttir hafa nú flutt
Myndbandaleiguna As í nýtt hús-
næði að Stekkjarholti 10. Endur-
bætur á húsnæðinu hafa staðið yfir
í nokkum tíma og hafa þær tekist
vel. Vöraúrvalið hefur verið aukið
töluvert frá því sem fýrir var, en nú
er hægt að kaupa pylsur, ís úr vél
og sælgæri í myndbandaleigunni
svo nokkuð sé nefnt. Opnað var
laugardaginn 22. júlí og að sögn
Magnúsar var nóg að gera þann
daginn enda margvísleg tilboð í
gangi. Skessuhom óskar þeim
hjónum tíl hamingju með nýtt og
glæsilegt húsnæði. SOK
Góða ferð
undir íjörðinn!
Spölur hf hefur í samvinnu við
Umferðarráð og Vegagerðina gef-
ið út bækhng mn akstur og öryggi
í Hvalfjarðargöngunum. I bæk-
lingnum er að finna margskonar
upplýsingar um umferðaröryggi í
göngunum og ráðleggingar til
ökumanna um hvemig bregðast
sktdi við slysum og bruna. Vegfar-
endur era m.a. hvattír tíl að virða
hámarkshraða sem er 70 ktlómetr-
ar á klukkustund og halda sig í
minnst 50 metra fjarlægð frá næsta
bíl. KK
Kindur í kaupstað
Nokkuð hefur borið á því að
kindur séu innan bæjarmarkanna á
Akranesi og hafa nokkrir íbúar
m.a. haft samband við Skessuhom
vegna þessa. Hrafnkell Proppé,
garðyrkjustjóri Akraness, var í
sumarleyfi en að sögn Agústar S.
Harðarsonar er verið að vinna að
því að girða svæðið í kringum
Berjadalsá. “Það hefur verið verk-
taki í þessu en hann er ekki búinn
að þessu ennþá. Menn liggja ein-
faldlega ekki á lausu þessa dagana.
Við höfum reynt að smala
nokkmm sinnnum en það er hæg-
ara sagt en gert því kindumar elta
okkur bara aftur til baka.”
SÓK
Pylsuvagnar
á Akranesi
Sigþrúður G. Sigfúsdóttir sótti
á dögunum um stöðtdeyfi fýrir
pylsuvagn við Akratorg, hjá Breið-
inni og við Fjölbrautaskóla Vest-
urlands. Bæjarráð samþykktí er-
indið fýrir sitt leyti og verður stað-
seming vagnsins í samráði við
bygginga- og skipulagsfulltrúa.
Margir hafa eflaust þegar veitt
vagninum athygli enda lífgar hann
óneitanlega upp á umhverfið.
SÓK
Starfsmannabílar
hjá Norðuráli
Norðurál hefur nú tvo bíla í
ferðum milli Borgarness og
Grandartanga. Annars vegar er
um að ræða bíl sem starfsmemi '
sem vinna á vökmm nota og hins
vegar bíl fýrir starfsfólk í fastri
dagvinnu. Fyrri bifreiðin hefiir
verið í notkun í u.þ.b. ár en hin
síðari var tekin í gagnið nú í maí.
Þar er um að ræða 14 manna bíl
sem ekki er fullnýttur, en hins veg-
ar er horft tíl þess að í framtíðinni
muni starfsmönnum Norðuráls
búsettum í Borgamesi fjölga, og
þá sérstaklega í sambandi við
stækkun álversins. MM