Skessuhorn


Skessuhorn - 10.08.2000, Side 11

Skessuhorn - 10.08.2000, Side 11
32ESSUIÍÖBI FIMMTUDAGUR 10. AGUST 2000 11 Isverksmiðja í Grundarfirði Starfsemi hefst fyrsta september Nú er risin mikil bygging á bryggjunni á Grundarfirði sem hýsa á ísverksmiðju. Það er fé- lagið Snæís hf. sem stendur að verksmiðj- unni en norska verk- takafyrirtækið Finsam í Noregi hefur haft yfir- umsjón með bygginga- framkvæmdum með að- stoð innlendra undir- verktaka. Ætlunin er að starfsemi verksmiðjunn- ar hefjist fyrsta septem- ber næstkomandi. Verk- smiðjan. verður full- komlega sjálfvirk og er ætlunin að viðskiptavin- imir afgreiði sig sjálfir. Framleiðslugeta verk- smiðjunnar verður 60 tonn af ís á sólarhring en gert er ráð fyrir geymslurými fýrir 200 tonn af ís. EA |i***S8S Þessa dagana er veriö aö leggja síðustu hönd á byggingu ísverksmiöjunnar. Engúin “sorphræringur” í Borgarbyggð Að undanfömu hefur mikið ver- ið rætt og ritað um sorpmál á Vest- urlandi og ekki síst um flokkun á sorpi Skagamanna sem er síðan “hrært” saman aftur og urðað að Fíflholtum. Skessuhorn kannaði hvernig sorpmálum væri háttað í Borgarbyggð. Samkvæmt uppplýsingum Sig- urðar Páls Flarðarsonar bæjarverk- fræðings í Borgarbyggð eru sorp- mál bæjarins í mjög ákveðnum skorðum. Hann segir skilagjald hafa verið að hækka því stöðugt meiri kostnaður fylgi sorpinu. “Þetta er að verða umtalsverður kostnaður fyrir sveitarfélögin og það er dýrt að flytja sorp um lang- an veg. Bylgjupappi er ekki flokk- aður sér hérna hjá okkur en dag- blaðapappír og tómar fernur flytj- um við suður til endurvinnslu. A gámasvæði okkar er sorp flokkað á ýmsa vegu en óflokkað sorp er urð- að. Á svæðinu höfum við gáma fýr- ir múrbrot sem er nýtt til landfyll- ingar og allt brotajárn sem fellur til er flutt suður. Timbur er kurlað af verktaka á gömlu haugunum og við erum einnig með gám fýrir föt og spilliefnum er safnað saman og eytt eins og skylt er. Vísir að flokkun á lífrænu sorpi er hér til staðar og fengu 24 heimili safnkassa til reynslu,” sagði Sigurður Páll. KK Segja matarfíkn stríð á hendur O.A. samtökin, Overeaters Anonymous eru samtök fólks sem þjáist af matarfíkn. Þau hafa verið starfrækt á Islandi frá því 1982 en á mánudaginn kemur hefur fýrsta deildin á Vesturlandi göngu sína í Bogarnesi. Fyrsti fundurinn verð- ur haldinn í húsnæði Rauða kross- ins í Brákarey á mánudag kl. 20. Overaeaters Anonymous er fé- lagsskapur karla og kvenna af öll- um sviðum þjóðfélagsins sem hitt- ast til að finna lausn á sameiginleg- um vanda - hömlulausu ofáti. Eina skilyrðið fýrir þátttöku er löngun til að hætta því. Uppbygging og starfshættir samtakanna byggjast á 12 spora kerfi AA samtakanna. Eini munur- inn er að í stað orðanna áfengi og alkóhólisti setur OA orðin matur og hömlulaust ofát. O.A. er ekki megrunarklúbbur og setur engin skilyrði um þyngd- artap. Hugmyndaffæðin á bak við fráhald er grundvöllur kerfis O.A. til bata. Með því að viðurkenna vanmátt okkar gagnvart mat og að kasta ffá sér þeirri hugsun að mað- ur þurfi á „viljastyrk“ að halda til að stjórna áti sínu, verður maður fær um að halda sig ffá ofáti - einn dag í einu. O.A. félagar styðja hvern annan í að fást við líkamleg og tilfinningaleg einkenni hömlu- lauss ofáts og mæla með tilfinn- ingalegum, andlegum og líkamleg- um bata með iðkun 12-spora kerf- isins. O.A. félagar benda á að félags- kapur þeirra sé ekki „enn einn megrunarklúbburinn“. Þeir segja að aukakílóin séu afleiðing þess sjúkdóms sem matarfíknin er. O.A leggur því áherslu á að vinna á or- sökum vandans, matarfíkninni, fremur en afleiðingum hans, þyngdinni. Nýjustu upplýsingar um starf- andi O.A. deildir er að finna á heimasíðu O.A. www.oa.is og í svarhólfi samtakanna 878 1178. Nýliðum er velkomið að koma beint á fund, það þarf enginn að boða komu sína eða skrá sig. Þeir sem óska ffekari upplýsinga geta sent tölvupóst á þjónustunetfang samtakanna; oa@oa.is. (Fréttatilkynning) BBla.. Spumingarnar sem ín niðurstöðu um * 1. Boröí 2. Heldi >. Finmn 4. boröaö ein(n 6. Skipuleggurþ 7. . 8. 9. 10. Gremstþérþað aö hcetta aö 11. Ertu mn farið í megrun. 12. Firmur þú sterka löngun til i sólarhringsins sem < 13. Boröarþú til aöflýja áhyggjur og vandraði? 14. Hefurþú leitaðmeðferðar vegna ofá‘- -------J......— 15. Valda átsiðir þínir þér eöa óðrum óh , , , Reynslan sýnir að hver sá sem svarar þremur spurningum eða fleirum játandi hefur beina tilhneigingu til ofáts og á jafiivel nú þegar við alvar- lega matarfíkn að stríða. Akraneskaupstaður Iþróttanefnd Gönguferð milli útilistaverka á Akranesi Sunnudaginn 13. ágúst nk. kl. 14 verður gönguferð milli útilistaverkanna við Leyni, Langasand og Elínarhöfða. Leiðsögumadur: Helgi Hannesson Hittumst kl. 14 við Leyni íþróttanefnd Akraneskaupstaðar ©SláturfélagVesturlands * BráKarey • 310 Borgarnes • 5Tmi 430 5700 • fax 430 5701 • ÚTBOÐ r Oskað er tilboða í söltun gæra hjá Sláturfélagi Vesturlands h.f. í Borgamesi. Um er að ræða söltun ca. 35.000 dilka- og ærgæra á tímabilinu ffá 11. september til 31. október2000. r Utboðsgagna má vitja á skrifstofu SV í Brákarey ffá 11. ágúst, n.k. Sláturfélag Vesturlands h.f Brákarey Golfklúbburinn Coca cola golfmót verður haldið á Bárarvelli Grundarfirði laugardaginn 12. ágúst n.k. kl:10 18 holur með og án forgjafar í karlaflokki og með forgjöf í kvennaflokki. Vegleg verðlaun í boði. Skráning hjá Guðlaugi s:8643639 og Golfskála s:4386510 Þátttökugjald kr: 1500. Akraneskaupstaður Menningar- og skólafulltrúi Grunnskólakennarar Brekkubæj arskóli Grunnskólakennara vantar til starfa næsta skólaár. Um er að ræða almenna bekkjarkennslu á yngsta stigi. Upplýsingar veita: Ingi Steinar Gunnlaugsson skólastjóri og Ingvar Ingvarsson aðstoðarskólastjóri í símum431 1938, 895 2180, 431 1193 og 431 3090. Umsóknarfrestur til 12. ágúst nk. Menningar- og skólafulltrúi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.