Skessuhorn - 07.09.2000, Page 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 36. tbl. 3. árg. 7. september 2000 Kr. 250 í lausasölu
Islensk upplýsingatækni ehf
Leiáancli á
sviái margfmiálunar
Sími: 430 2200
www.islensk.is
Nýr grunnskóli í Tjamarlundi í Saurbæ
Akvörðun tekin daginn fyrir skólasetningu
Sæmundur Kristjánsson oddviti Saurbæjarhrepps tekur við blómumfrá nemendum og kennurum.
“Þetta er vissulega dýrari kostur í
krónum talið en ef þetta er það
sem þarf til að treysta búsetu í
byggðarlaginu þá er erfitt að meta
það til fjár,” segir Sæmundur
Kristjánsson oddviti Saurbæjar-
hrepps tnn þá ákvörðun hrepps-
nefhdar að stofiia nýjan grunn-
skóla í sveitarfélaginu.
Sem kunnugt er ákvað hrepps-
nefnd Dalabyggðar snemma í sumar
að hætta þátttöku í skólahaldi á
Laugum í Sælingsdal og eftír það leit
út fyrir að böm úr sveitarfélaginu
myndu sækja nám í Grunnskólanum
í Búðardal í vetur. Akvörðun um að
stofna nýjan skóla í Tjamarlundi í
Saurbæjarhreppi var tekin síðasdiðin
sunnudag og var skólinn settur dag-
inn eftir. “Undirbúningur hefur
staðið í hálfan mánuð en upphaflega
var hugmyndin sú að stofna skólasel
frá Grunnskólanum í Búðardal. Um
það náðist ekki samstaða og því var
þessi ákvörðun tekin. Hér hafa nem-
endur, kennarar og aðrir íbúar í
sveitarfélaginu lagt nótt við dag í
sjálfboðavinnu til að breyta niður-
níddu félagsheimili í þokkalegt
skólahúsnæði og með samstilltu á-
taki tókst okkur að setja skólann á
tilsettum tíma,” segir Sæmundur.
Auk bama úr Saurbæ verða í
Grunnskólanum í Tjarnarlundi
nemendur af Skarðsströnd. Nem-
endtu verða tuttugu og tveir en tíu
kennarar koma að kennslu í skólan-
um í vetur. Nemendum áttunda, ní-
unda og tíunda bekkjar verður kennt
að hluta í fjarkennslu ffá Hólmavík,
Varmalandi og Búðardal en fjar-
fundabúnaður til þeirra nota verður
væntanlega settur upp í næstu viku.
Skólastjóri Grunnskólans í Tjamar-
lundi er Guðjón 'Iorfi Sigurðsson ffá
Fagradal. GE
Fjórði flokkur íslandsmeistarar
Fjórði flokkur ÍA í knattspymu. Mynd: SOK
Philippe vinnur fyrstu verðlaun
Nú stendur yfir sýning í Ráðhúsi Reykja-
víkur sem ber heitið “Nytjalist úr náttúr-
unni”. Akumesingurinn Philippe Ricart er
einn þeirra 25 handverks- og listiðnaðar-
manna sem taka þátt í sýningunni og einn
af þeim þremur sem hlutu verðlaun við
opnun hennar. Verk Philippes, sem er úr
flóka og ber heitið “Vamsberar”, þótti vera
besta hugmyndin og fékk hann að launum
200.000 krónur. Einnig vom veitt verðlaun
fyrir besm hönnun á nytjahlut og áhuga-
Philippe Ricart verðusm efnistökin. SOK
Skagamenn rnætm FH-ingum í
úrslitaleik Islandsmóts 4. flokks
karla sem ffam fór á Valbjamarvelli
þann 31. ágúst síðasdiðinn. Leikur-
inn var æsispennandi og að loknum
venjulegum leiktíma var staðan 1-1.
Framlengingin var markalaus og
greinilegt að drengimir vom farnir
að þreytast. Vítaspyrnukeppni var
því óumflýjanleg og sigraðu Skaga-
menn hana með því að skora þrjú
mörk á meðan FH-ingar skomðu
aðeins eitt mark. Mörk Skagamanna
í vítaspymukeppninni skoraðu þeir
Jón Vilhelm Akason, Agúst Orlygur
Magnússon og Stefán H. Jónsson.
Þetta . er sannarlega glæsilegur ár-
angur hjá strákunum og þjálfara
þeirra Þorláki Amasyni.
Agúst Orlygur, fýrirliði hðsins, var
að vonum ánægður með sigurinn og
sagði að tilfinningin hefði verið
“glæsileg”. “Við áttum alveg eins
von á að vinna þennan leik og verða
Islandsmeistarar enda erum við bún-
ir að leggja mjög mikið á okkur í
sumar og líka í vetur” segir Agúst. “-
Þetta var frekar erfiður leikur. Við
byrjuðum mjög vel, en duttum svo
niður. Við vorum líka góðir í ffam-
lengingunni, náðum reyndar ekki að
skora, en bættum úr því í vítaspymu-
keppninni.” SÓK
Rallýkeppni veldur tjóni
Reykjavíkurrallið fór ffam um síðustu helgi og teygði anga sína á Vestur-
land. Meðal sérleiða var Uxahryggjaleið. Sá vegur var endurbættur síðasdið-
ið haust og í vor og hefur umferð á honum aukist tíl muna. I Ijósi þess era
margir óánægðir með að vegurinn væri tekinn undir rallýkeppni og telja að
hann hafi stórspillst þar sem mikið magn af fínefhi hafi rokið úr honum.
“Þama fjúka fleiri hundrað tonn af rándýra efni út í veður og vind,” seg-
ir Bjarni Johansen hjá Vegagerðinni í Borgarnesi. “Það er að mínu matí ó-
eðlilegt að leyfa þetta með tilliti til veganna enda veldur þetta miklu tjóni,
ekki síst þegar vegirnir era svo þurrir sem raun ber vimi nú. Þá veldur þetta
gífurlegri umhverfismengun og mér er spum hvað Náttúraverndarráð seg-
ir við þessu.”
Bjarni segir að áður fyrr hafi verið haff samráð við vegagerðina þegar
rallýmót vora skipulögð en það sé ekki gert lengur. GE
Bjöm hættur
Bjöm S. Lárasson, markaðs- og atvinnufull-
trúi Akranesbæjar, hefur sagt starfi sínu lausu. I
samtali við Skessuhorn sagðist Björn sem
minnst vilja tjá sig um málið, en sagði þó að sér
þætti afskaplega fínt að vinna hjá Akraneskaup-
stað og hefði þar af leiðandi ekkert út á vinnu-
veitandann að setja. Björn sagðist ekki vita hvað
hann hyggðist taka sér fyrir hendur.
Uppsögn Björns kemur nokkuð á óvart með tilliti til þess að einungis
era nokkrir mánuðir síðan hann dró sína fyrstu uppsögn til baka. Að því
loknu fór hann í þriggja mánaða leyfi, sem nú er um það bil að ljúka. Að
sögn Gísla Gíslasonar, bæjarstjóra Akraness, hefur ekki verið tekin á-
kvörðun um framhaldið en hann segist búast við því að það verði gert á
næstunni. “Við munum hafa samráð við ýmsa aðila um það hvernig starf-
ið verður mótað í ffamhaldi af þessu. Meðal annars atvinnumálanefnd, að-
ila í atvinnulífinu svo sem í verslun og þjónustu.” SÓK
Bjöm S. Lánisson