Skessuhorn - 07.09.2000, Síða 3
SSSlSSSIHötíRI
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000
3
s Nýr Grunnskóli í Dölunum
Akvörðun sem
kemur á óvart
segir Sigurður Rúnar Friðjónsson
oddviti Dalabyggðar
“Ég get í sjálfu sér ekkert sagt
annað en þessi afstaða sveitar-
stjómar Saurbæjarhrepps kom
mér mjög á óvart,” segir Sigurður
Rúnar Friðjónsson oddviti Dala-
byggðar um stofimn nýs skóla í
Saurbæj arhreppi.
Sigurður Rúnar Frið/ónsson oddviti
Dalabyggðar.
“Eitt af gnmdvallarsjónarmiðum
okkar þegar ákveðið var að hætta
þátttöku í rekstri Laugaskóla var
hagræðing og að gera góðan skóla
enn betri. Við gerðum hreppsnefhd
Saurbæjarhrepps mjög aðgengilegt
tilboð um að senda börnin í Grunn-
skólann í Búðardal. í ljósi þess og
miðað við fýrri yfirlýsingar oddvita
Saurbæjarhrepps um að yfir 80% af
tekjum hreppsins fari í skólamál þá
þykir mér gæta þama þversagnar. Þá
hafna ég algjörlega þeim rökum að
vegalengdir þurfi að koma í veg fyr-
ir að bömunum sé ekið í Búðardal.
Það er mjög algengt víða um land að
eknir séu meira en 36 kílómetrar að
grunnskóla og þetta er vegur með
fimm daga þjónustu. Ég óska þeim
engu að síður til hamingju með sinn
nýja skóla og vona að það gangi allt
saman vel,” segir Sigurður.
Ahrif á sameiningu?
Sem kunnugt er hafa Saurbæjar-
hreppur og Dalabyggð hafið viðræð-
ur um sameiningu sveitarfélaganna.
Aðspurður kveðst Sigurður Rúnar
vona að hin umdeilda ákvörðun
hreppsnefndar Saurbæjarhrepps hafi
sem minnst áhrif á þær viðræður.
“Auðvitað hafa hugmyndir manna
um sameiningu fengið ákveðið högg
á sig. Sameining er gríðarlegt hags-
munamál fyrir héraðið í heild og
auðvitað vonar maður að þetta muni
ekki hafa áhrif til lengri tíma,” segir
Sigurður. GE
Erfitt starf framundan
Guðjón Torfi Sigurðsson er
nýráðinn skólastjóri í nýjasta
grunnskóla landsins, Grunnskólan-
um í Tjamarlundi. Guðjón segir að
starfsfólks og nemenda skólans bíði
erfitt starf og að verkefiiið sé krefj-
andi. “Við eram bjartsýn en vitum
að þetta verður erfitt fýrst í stað
a.m.k. Það kemur hinsvegar til með
að hjálpa okkur mikið hve góð
samstaða er um þennan skóla innan
sveitarfélagsins og það er dýrmætur
bakhjarl.
Guðjón telur að fámennið eigi
ekki að þurfa að koma niður á gæð-
um skólastarfsins. “Það gerir það
að verkum að hver nemandi fær
hlutfallslega meiri þjónustu og per-
sónulegri og í fámennum bekkjum
er að sjálfsögðu minni hætta á að
nemendur verði útundan,” segir
skólastjóri Grunnskólans í Tjarnar-
lundi. GE
Guðjón Torfi Sigurðsson
Sex kindur í einu höggi
Ekið var á sex kindur í Norðurár-
dal í Borgarfirði í síðustu viku. Að
sögn lögreglunnar í Borgamesi
var folksbiíreið ekið inn í kinda-
hóp við vegamótin að Bröttu-
brekku. Ekld urðu slys á fólki en
tvær ær og þrjú Iömb drápust í á-
rekstrinum og fjórða lambið
fánnst daginn effir illa lemstrað.
Bifreiðin er illa farin.
Búfjárslys hafa verið mikið vanda-
mál í Borgarfjarðarhéraði á síðustu
árum. A síðasta ári var ekið á um 150
ldndur í umdæmi Borgarneslögreglu
og hefúr vegagerðin í Borgamesi í
samvinnu við lögreglu gripið til sér-
stakra aðgerða tíl að stemma stigu
við þessu vandamáli. Ráðinn hefur
verið smali sem fer með þjóðvegi 1
og helstu stofhvegum í Borgaríjarð-
ar og Mýrasýslu einu sinni í viku
samhliða hefúr vegagerðin unnið að
endurbótum á girðingum.
A þessum tíma árs er fé farið að
sækja af fjalli og er því full ástæða til
að vara ökumenn við hættum sem
geta stafað af búfé á þjóðvegum
landsins. GE
Ganenamannatilboð
Kindagúllas kr/kg.l 193,-
tilboðsverð kr. «99,-
Brauðsalöt frá Eðalfiski kr 204,-
tilbo&sveréf kr. 159,-
Heimabrauð kr. 200.- _0
tilboðsverð kr. 13r.y 11
Rúkonubrauð og Rúgbrauð í pk_kr. 239,-
tilboðsverð kr. 167,-
Lu Prince 2 pk. kr.l 89,-
tilboðsverð kr. I o9,-
H Kókómjólk 1/4 I. kr.5l,-
tilboðsverð kr. 45,-
Coke I I. kr. 146,-
tilboðsverð kr. » 1
EpU-Rauð kr. I 98,- . -0
tilboðsverð kr. 129,-
Glófa útivistarsokkar^t. 36^7 kr. 995,
Glófa lopasokkar st. 39'47^oZ^S’
tilboðsverð kr. 580,-
Glófa Húfur kr. 725,-
tilboð
Glófa Vettl
tilbo