Skessuhorn - 07.09.2000, Blaðsíða 5
§ggSSUH©i£]i l
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000
5
Pistlari er á stað þar sem er mjög heitt
og allt virðist standa í ljósum logum
daglangt. Ekki svo að skilja að skrifað sé
að handan - og þó. Farið var í ío klukku-
stundir með flugvél 1 svonefndan stór-
baug, að því er sagt er til að stytta leiðina,
og hér verður að klípa sig í handlegginn
margoft á dag til að fullvissa sig um að
maður sé lífs en ekki liðinn. Sólin skín
nærri lóðrétt ofan á sköllóttan kollinn og
kaldir drykkir eru þarfaþing til að þola
vistina. Sem sagt, Paradís og Víti í hæfi-
legri blöndu.
Þegar menn af norðurhveli sækja suð-
ur á bóginn og glasið á hitamælinum fer
að fylla þriðja tuginn þá er heitt. Nokkr-
ar gráður til eða frá skipta ekki máli hér
þó þær geti gert muninn á mildum og
svölum degi á íslandi, hér er bara heitt.
Innfæddir ganga þó um fullklæddir og
þótt svitinn bogi af hvítingjum, sem rétt
halda ærunni með tilliti til klæðnaðar, þá
vottar varla fyrir perlu á ennum inn-
fæddra. Eilitlu neðar á andliti þeirra
brosa tvö augu og skeifan aðeins neðar
snýr rétt, þ.e. lokuð að neðan. Hér vinna
þeir fyrir launum sem þyrfti að safna ó-
skertum í 8 mánuði til að greiða fyrir ferð
sem meðallaunamaður á íslandi borgar
með þrem íjórðu af mánaðarlaunum sín-
um. Hér er allt innifalið, matur, drykkur,
sól, seglbretti, húðkeipar úr plasti,
skemmtun á kvöldin og frítt á barinn. Ef
laumað er að þernunni lítilræði þakkar
hún fyrir sig með fallegri blómum
prýddri styttu úr hnýttu handklæði.
Pistlari kímdi með sjálfum sér um
daginn þegar starfsmaður kom og fyllti á
smábarinn, minnugur þess hvernig
skammtað er úr hnefa á íslenskum hótel-
herbergjum og sama hnefa að mæta ef
ekki er borgað. Þriggja pela viskíflaskan
var næstum tóm og hún tekin úr höld-
unni og full sett í staðinn. Gjörðu svo vel,
amigo!
Kynding húsa er með þeim ósköpum
gerð hér að hún verkar öfugt og nefnist
víst air-conditioning. Svölu lofti er blás-
ið í híbýli manna og sama á við um bif-
reiðar enda varla líft á hvorugum staðn-
um án þess arna.
Daniel, leigubílstjóri, er ágætlega ak-
andi á Mitsubishi kassabíl, ágætlega
loftkældum og búnum svakalegum stuð-
aragrindum að framan og aftan, að sögn
til að hafa betur ef út af ber, en skijóð-
arnir sem annars eru hér á götum og
vegum eru eins lítt líklegir til að vera
ökufærir og hugsast getur. Samt spana
þeir um á þessu, dóminíkanar, og þykj-
ast eiga heiminn enda akandi og flautan
greinilega í góðu lagi. Skellinöðrur og
mótorhjól, sem á sitja einn, tveir, þrír og
jafnvel fjórir í einu eru algeng sjón en
aldrei er hjálmur á höfði nokkurs, hvorki
stjórnanda, né farþega. Akreinar eru
þrjár til fimm á tvíbreiðum vegi. Helsta
orsök slysa virðist samt vera sprungnir
hjólbarðar enda vegir sums staðar illa
farnir og hjólbarðarnir ekki betri. í einni
ferðinni sáum við vörubíl sem hafði gefið
upp öndina og eigandinn eða bílstjórinn
hafði skilið hann eftir um stundarsakir.
Við olíugeyminn sat lítill berrassaður
drengur með brúsa og slöngu og var að
stela dísilolíunni af tanknum. Hann hef-
ur þá ekki soltið þann daginn og auk
þess kann hann greinilega ágæt skil á
notkun heverts.
Raunaleg saga þessa lands,
Dóminíska lýðveldisins, sem hefur ein-
kennst af þrælahaldi fyrr á öldum og
grimmdarlegum einræðisherrum nær
tíma okkar, ber þess glöggt vitni að þótt
mannréttindi hafi verið fótum troðin svo
áratugum skiptir þá reisa góðir menn
lönd sín við á ný og almúginn lagar sig að
nýjum aðstæðum.
Lars H. Andersen
nmmhhi m
Vefsíðugerð
Gagnvirkni - virkir vefir
Vistun léna
Fyrirtækjaþjónusta
Vefþósthús
Vefverslanir
Pjónustuaðili fyrir m.a.
Vesturlandsvefinn, Skessuhomsvefinn
og ýmis sveitarfélög
íslensk upplýsingatækni
Borgarbraut 49 - IS 310 Borgarnesi - Sími 430 2200
Fax 430 2201 - islensk@isiensk.is - www.islensk.is
’
Aðalfundur
Vinstri hreyfingarínnar
- græns framboðs
á Vesturíandi
Hr
■; ,'v
I-O: f X 7: "
;
af . : I ..: I « ' AT
veróur haldinn að
|| H / " III - | | f | . f .
Motel Venus, Hafnarskogi
sunnudaginn 10. september
kl. 14:00
Gestirfundarins verða
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður flokksins
Svanhildur Kaaber,
framkvæmdastjóri
og Jón Bjarnason,
alþingismaður
Allir velkomnir
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
GUÐJÓNS MAGNÚSSONAR,
frá Hrútsholti,
Fyrir hönd bama okkar og fjölskyldna þeirra
Erla Hulda Valdimarsdóttir