Skessuhorn - 07.09.2000, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000
^siaiunu^:.
Dulin búseta
í Borgarfirði
Tvöföldun yfir sumarmánuðina
Að beiðni bæjarstjóra Borgar-
byggðar hefur Atvinnuráðgjöf
Vesturlands unnið áfangaskýrslu
um svokallaða “dulda búsetu” í
Borgarfirði. Kveikjan að þessari
vinnu var fundur um löggæslu-
og heUsugæslumál með fulltrú-
um Borgarbyggðar, Borgarfjarð-
arsveitar, löggæsluaðila og
heilsugæsluaðila í Borgaríirði í
júlí sl.
Markmiðið með skýrslunni er að
meta fjölda þeirra sem dvelja í um-
dæmum lögreglu og heilsugæslu í
Borgarfirði, einkum yfir sumarið.
Megin niðurstaðan er sú að meðal-
tali dveljist um 3.800 manns í um-
dæmi Borgameslögreglu yfir sum-
armánuðina (maí til ágúst) umfram
þá sem þar eiga lögheimili. Liggur
nærri að þetta sé tvöföldun á íbúa-
fjölda m.v. fasta búsetu. Sambæri-
legar tölur fyrir heilsugæsluum-
dæmið eru um 3.300 manns. Fram
kemur í skýrslunni að umferðar-
þungi um Hafnarfjall hafi aukist
um 50% á árunum 1995 til 1999,
og væntanlega hefur hann aukist
enn ffekar í sumar.
Akvörðun fjárveitinga til ofan-
greindra embætta hafa að mestu
tekið mið af fjölda íbúa með fasta
búsetu. Skýrslan gefur til kynna
að í raun sé verið að þjónusta um
helmingi fleiri einstaklinga yfir
sumarmánuðina en sem þar eiga
fast heimili. Eðlilegt er að fjárveit-
ingavaldið taki tillit til þess þegar á-
kvarða á umfang heilsugæslu- og
löggæsluþjónustu í Borgarfirði.
Dráttur á viðgerð á
götum í Borgamesi
- verktaki stendur ekki við tímaáætlun -
Eins og þeir sem hafa ekið um
götur Borgarness í sumar hafa orð-
ið varir við er nokkuð um skemmd-
ir í götunum. Sérstaklega á það
við Borgarbraut og Hrafaaklett.
Vegagerðin sér um viðhald á
Borgarbraut, sem er þjóðvegur í
þéttbýli, en Borgarbyggð um við-
hald á Hrafaakletti.
S.l. vor samdi Borgarbyggð við
verktaka um að taka að sér að leggja
nýtt slitlag á báðar þessar götur.
Hann hefar ekki enn komið til að
vinna verkið þrátt fyrir samkomu-
lag um að því lyki í júní.“ segir
Stefán Kalmansson bæjarstjóri.
„Fyrir nokkru óskaði verktakinn
eftir að hreinsað væri upp úr götun-
um (ffæsað) þar sem hann ætlaði að
byrja verkið daginn eftir en sú áædun
stóðst ekki ffekar en aðrar tímasem-
ingar hans.“ Að sögn bæjarstjóra
hefur ekki enn tekist að fá annan að-
ila til að taka að sér verkið þar sem
mikil verkefai eru hjá þeim sem sinna
slíkum viðgerðum. GE
Laugar í Sælingsdal:
Mannvirkjunum ráðstafað
Unnið er að því að finna skóla-
mannvirkjunum á Laugum í Sæl-
ingasdal nýtt hlutverk að sögn Sig-
urðar Rúnars Friðjónssonar odd-
vita Dalabyggðar. Sem kunnugt er
var eldri hluti skólans tekinn undir
glæsilegt heilsárshótel síðastliðið
vor. Að sögn Sigurðar er ekki ljóst
hvernig hinn hlutinn verður nýttur
en væntir þess að það lægi fýrir í
byrjun næsta mánaðar.
GE
t
Astkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
JÓN SIGVALDASON,
I Ausu, Andakflshreppi
5 lést á Sjúkrahúsi Akraness, mánudaginn 4. september.
S Utför hans verður frá Hvanneyrarkirkju laugardaginn 9. september kl. 14:00
5
*
| Auður Pétursdóttir
» Pétur Jónsson
| Sigvaldi Jónsson
3 Unnsteinn Einar Jónsson Anna Lilja Sævarsdóttir
Steinunn Jónsdóttir Karl Sigurðsson
Ragnhildur Helga Jónsdóttir
og barnabörn
Tap á starfsemi íslenska
jámblendifélagsins
Rekstrartekjur íslenska járn-
blendifélagsins á fyrri helmingi árs-
ins 2000 námu 1.943 milljónum
króna og er það aukning um rúm-
lega 800 milljónir frá því á síðasta
ári. Þó varð tap af starfsemi félags-
ins á fyrstu sex mánuðum ársins er
nam 275 milljónum króna. Heild-
areignir félagsins námu 8.342 millj-
ónum króna í lok júní en skuldir
námu 4.120 milljónum. Eiginfjár-
hlutfall hefur lækkað um 3,5% ffá
því í fýrra. I júní lauk hlutafjárút-
boði á vegum jámblendifélagsins,
en boðnar vom út 350 milljónir
króna að nafaverði á genginu 1,5
og seldust allir hlutirnir. Tilgang-
urinn með hlutafjárútboðinu var að
styrkja eiginfjárstöðu félagsins og
verja það gegn brotum á skilmálum
í langtímalánum vegna stækkunar
verksmiðjunnar.
Þessi niðurstaða þykir áhyggju-
efai en eftirspurn effir kísiljárni er
þó góð og hefur verksmiðjan verið
rekin á fullum afköstum. Heims-
markaðsverð er hins vegar afar lágt.
Aðalástæðan virðist vera afaám
undirboðstolla á innflutning á járn-
blendi til Bandaríkjanna frá lönd-
um í Suður-Ameríku, Asíu og Aust-
antjaldslöndunum og framboð á
efai á Bandaríkjamarkaði í kjölfar-
ið.
Haustið 1999 var þriðji ofainn
gangsettur hjá Járnblendifélaginu
og er árið 2000 því fyrsta árið sem
þar er rekin þriggja ofaa verk-
smiðja. Þau tæknivandamál sem fór
að bera á í upphafi reksturs em nú
að mestu leyst. Undir lok síðasta
árs fór svo að bera á vandamálum í
rekstri rafskauta í bræðsluofaum
félagsins en það mál hefar verið
leyst farsællega. Skuldir félagsins,
sem stafa af stækkun verksmiðjunn-
ar og vegna byggingar á útsteyp-
ingarbúnaði fyrir málminn ffá nýja
ofninum, eru að meirihluta í
bandaríkjadölum og hafa gengis-
breytingar því haff neikvæð áhrif á
rekstur og efaahag félagsins á fýrri
hluta ársins.
SÓK
Eitt órækasta merki þess að haustið sé í nánd erþegar böm og unglingar fara að hópa sig saman, ekki ósvipað því er farfuglamir hóp-
ast saman á haustin og búa sig undir langt flug til suðurs. Fréttamaður Skessuhoms rakst á þessa glaðlegu drengi í Olafsvík á dög-
unum. Hvort gleðin var vegna minninga sumarsins eða tilhlökkunar vegna komandi skólaárs skal ósagt látið. Drengimir voru vel
búnir með fótbolta, á hjólaskautum og hlaupahjóli og auðvitað með farsíma. Blaðamaður fékk að prófii hlaupahjólið en láðist að læra
á bremsumar. Einn strákurinn sagði að ha?m hefði hlaupið á sig. Það gerist vonatidi ekki oft en getur komiðfyrir. Mynd: IH
Hin árlega “busavígsla” fór fram íFjölbrautaskóla Vesturlands síðastliðinn fóstudag. Mikil umræða hefur fariðfram um ágæti þeirra
og í upphafi þessarar amiar fór fratn kosning í skólanum um hvortfella ætti þær niður. Sií tillaga varfelld með miklum tneirihluta at-
kvæða, en sú nýbreytni var þó í ár að nýnemum varfijálst að mæta ekki án þess að eiga á hættu að verða harðlega refsaðfyrir það síðar.
Alltfórþó mjög velfram og ekki var amiað að sjá en að flestir nýnemamir hefðu séð sérfært að koma til þess að láta vígja sig inn í
hmn nýja skóla. Mynd: SÓK