Skessuhorn - 07.09.2000, Page 11
32ESS|íii©2M
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000
11
Olver í faðmi fjalla
í Ölveri í Melasveit eru reknar sumarbúðir
fyrir böm á vegum KFUM&K. I ár fagna
sumarbúðirnar 60 ára starfsafmæli.
Saga sumarbúðanna
Saga sumarbúðanna hófst á þann veg að
ung kona að nafni Kristrún Ólafsdóttir fékk
köllun, eftir að hafa kynnst starfi sr. Friðriks
Friðrikssonar í drengjasumarbúðunum í
Vatnaskógi. Htín byrjaði starf fyrir stúlkur
með sömu markmið í huga. Sumarið 1940,
þegar Kristrún var 34 ára gömul setti hún á
stofh sumarbúðir í Skátafelli undir Akrafjalli
og fékk aðstoð eiginmanns síns við það. Þar
vom sumarbúðirnar reknar í fimm ár.
Kristrún missti mann sinn snemma. Hún var
barnslaus og helgaði líf sitt sumarbúðastarf-
inu. Kristrún starfaði með sumarbúðir sínar á
fleiri stöðum en í Skátafelli á næstu ámm.
Allan þann tíma leitaði hún að framtíðarstað
fyrir starfið. Tólf áram seinna, árið 1952,
fannst sá staður, þegar Kristrún tók hús á
leigu ffá Sjálfstæðismönnum á Akranesi og
hús þetta var í Ölveri í Melasveit. Arið eftir
keypti hún Ölver og þar hafa sumarbúðirnar,
fyrir Guðs náð og blessun, verið reknar síðan.
Bættar aðstæður
og heitur pottur
Á þeim áram sem sumarbúðirnar hafa ver-
ið starfræktar í Ölveri hafa vitanlega verið
gerðar ýmsar breytingar, bæði utandyra og á
húsakynnum sjálfum til þess að bæði börn og
starfsfólk geti unað þar vel við leik og störf.
Leikföng eins og rólur, dúkkukofar og trönu-
borgir hafa verið sett upp, skálinn stækkaður
oftar en einu sinni og síðast en ekki síst kom
árið 1993 hitaveita í Ölver sem auðveldaði
starfsfólkinu mikið störf sín og bætti stúlkun-
um dvölina. I kjölfarið var gerður heimr pott-
ur í Ölveri árið 1995 og hefur hann verið ein
helsta afþreying Ölversmeyja síðan og mikið
aðdráttarafl.
Sumarstarf
Kristrún Ólafsdóttir hóf sumarbúðastarf
sitt vegna köllunar. Hún trúði því að Guð
vildi sjá hana fræða ungar stúlkur um Jesú
Krist og kenna þeim að fylgja honum í leik og
starfi og biðja til hans. Ekki skemmdi fyrir að
rækta samfélagið við Krist í fallegu umhverfi
og góðum félagsskap.
Áherslurnar í starfi Ölvers hafa ekkert
breyst í tímans rás og tilgangur starfsins er
enn að breiða út orð Guðs meðal barna.
Sömuleiðis hefur starfið byggst upp á svipað-
an hátt frá upphafi. Dagurinn skiptist í bibl-
íulestra, íþróttir, gönguferðir, inni- og útileiki
í umsjá starfsmanna. Á kvöldin er endað með
skemmtilegri kvöldvöku sem krakkarnir sjá
gjaman um sjálfir og hugleiðingu um Guðs
orð. Að sjálfsögðu er dagskráin sveigjanleg og
miðast við starfshóp hverju sinni, veður og
aldur barnanna.
I sumar voru níu dvalarflokkar í Ölveri.
Átta flokkar fyrir 8-11 ára stelpur og einn
unglingaflokkur fyrir 12-15 ára stelpur.
Stelpurnar vora samtals rúmlega 350 og hef-
ur sumarið sem er að líða verið eitt hið besta
í sögu Ölvers hvað varðar aðsókn.
Vetrarstarf
Vetrarstarf Ölvers er töluvert og hefur ver-
ið stöðugt að aukast síðustu árin og þá sér-
staklega eftir að hitaveitan kom. Vetrarstarfið
er þó einfalt í sniðum og felst aðallega í
íeigu á skálanum til ýmissa hópa og þá aðal-
lega hópa sem byggja á trúarlegum grand-
velli. Að sjálfsögðu er líka eitthvað um leigu
til íþróttafélaga, skáta, ungmennahreyfinga
hverskonar og annarra sem vilja njóta þess
sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Hefur þá
stjórn Ölvers, með aðstoð velunnara séð um
þrif og þvotta og viðhald og annað sem huga
þarf að fyrir komu hópanna.
Mæðgnahelgi
Mæðgnahelgi skipar nú fastan sess í starfi
Ölvers. Hún er gjarnan á haustin og verður
nú í ár dagana 29. september til 1. október.
Þar gefst mæðgum tækifæri á að koma saman
eina helgi og eiga gott samfélag í ffíi frá
amstri hversdagsleikans. Þetta hefur verið
kærkomið tækifæri fyrir litlar Ölversmeyjar
að sýna mæðram sínum staðinn og kynna
þeim starfsemina en að sjálfsögðu er öllum
mæðgum velkomið að koma og njóta sam-
vista hver við aðra.
Mikill fjöldi stúlkna hefur dvalið í Ölveri
og tekið með sér góðar minningar heim og
veganesti fyrir allt lífið. Sumar þeirra koma ár
eftir ár en aðrar bara einu sinni en allar era
þær Ölversmeyjar.
Gleði í hjarta,
Guðs náð og frið.
Gæfuvon bjarta
hlaut ég krossinn við.
Ölver ég dái
af því ég fann
yndi og líf
í trú á ffelsarann.
Asta Sóllilja Sigurbjömsdóttir
varaformaóur Olvers
Hópur keppist við klukkuna að kheða sig íflotgallanna.
Björgunarleikar
Björgunarsveit Hafnarfjarðar var
við æfingar á Gufuskálum um síð-
ustu helgi. Björgunarsveitin sem er
ein sú stærsta og öflugasta í landinu
varð til með sameiningu Hjálpar-
sveitar skáta í Hafharfirði og Björg-
unarsveitar Fiskakletts s.l. vemr. I
byrjun september ár hvert koma
björgunarsveitimar saman og hefja
sitt vetrarstarf. Þá er gjarnan farið
yfir helstu atriðin í leit og björgun.
Hafhfirðingamir hafa nokkuð annan
hátt á sinni upprifjun er flestir aðrir.
Þeir efna til björgunarleika þar sem
sveitinni er skipt upp í nokkra hópa
sem reyna með sér í hinum ýmsu
verkefnum. Þessi aðferð hefur
reynst vel og skilar félögum kapps-
fullum í upphafi vetrarstarfsins. Á
Gufuskálum vora að þessu sinni
milli 40 og 50 félagar og var keppni
hörð. Allt var mælt og vegið. Allt
ffá tímatöku á því hve lengi menn
vora að klæða sig í flotbúninga og
synda milli bryggja í Rifshöfn til
mjög krefjandi leitarverkefna. Þátt-
takendur lofuðu mjög aðstöðuna á
Gufuskálum og góða hjálp heima-
manna úr björgunarsveitinni Björgu
á Hellissandi. Forsvarsmenn hóps-
ins töldu leika af þessu tagi henta
björgunarsveitum vel og voru ekki í
vafa um að fleiri björgunarsveitir
ættu eftir að nýta sér aðstöðuna á
Gufuskálum til æfinga í líkingu við
þessa. IH
FLOKKSSTJÓRI
BORGARNESI
Staða fiokksstjóra hjá Vegagerðinni í Borgarnesi
er laus til umsóknar. Laun skv. kjarasamningum
VMSÍ.
Starfssvið:
CL
D
u
h-1
<
a
• Flokksstjórn í ýmsum verkefnum þjónustu-
svæðis í sumar- og vetrarþjónustu.
• Verkefni í viðhaldi og endurbyggingu
vega, viðhaldi umferðarmerkja,
ristarhliða, ræsa og fl.
• Upplýsingagjöf og eftirlit.
• Skráning vinnuskýrslna o.fl.
vegna verka sem heyra undirflokksstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Réttindi til að stjórna vinnuvélum.
• Góðir samstarfshæfileikar.
Nánari upplýsingar veita
Bjarni H. Johansen í síma 437 1320 og
Jón Birgir Guðmundsson í síma 461 4440.
Vinsamlegast sendið umsóknir
til Ráðgarðs á Akureyri eða í
Reykjavík fyrir 14. september n.k. merktar:
„Vegagerðin - flokksstjóri Borgarnesi"
''/vm
Sar
VEGAGERÐIN