Skessuhorn - 07.09.2000, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000
Snæfellsbær
Mikil framför
í garðrækt
Snæfellingar hafa nýtt vel gott garða. Snyrtimennska er nú orðin
sumar, bæirnir hafa tekið stakka- almennari og aðeins eru örfáir sem
skiptum bæði hvað varðar viðhald skera sig úr hvað þetta varðar.
húsa og umhirðu og uppbygginu Undanfarin ár hafa garðeigendur í
Olafsvík unnið
stórvirki í uppbygg-
ingu garða. Að
rækta garð er ekki
áhlaupsverk það er
framtíðarverkefni
sem skilar garðeig-
andanum notalegu
umhverfi á
nokkrum árum.
Sú mikla plöntun
sem átt hefur sér
stað í Olafsvík mun
á næstu árum setja
mikin svip á bæinn
og verða íbúum og
gestum þeirra til
Úr fögrum garði í Ólafsvík.
gleði og yndisauka. Snæfellsbær
hefur ekki látið sitt eftir liggja í
þessari grænu byltingu. Bærinn
gerðist aðili að Félagi skógarbænda
á Vesturlandi og fyrirhugað er að
planta trjám í nokkra hektara lands
í Snæfellsbæ á næstu árum. Aðal
skógræktarsvæðin verða í hlíðunum
ofan Ólafsvíkur og ofan Sveinsstaða
fyrir utan Enni. I sumar var plantað
um 1000 öspum og um 700 öðrum
plöntum, aðalega sitgagreni, víðs-
vegar í bæjarlandinu. En þessu á-
taki er ekki lokið í ár því í haust á-
forma félagasamtök í Ólafsvík að
planta um 1000 plöntum í nágrenni
bæjarins. Flafsteinn Flafliðason
garðyrkjustjóri Snæfellsbæjar er á-
kaflega ánægður með hversu vel
hefur til tekist og segir áhuga á
garðrækt greinilega vaxandi. Þá
vildi hann vekja athygli á því að
starfandi er deild Snæfellinga og
Dalamanna innan Garðyrkjufélags
Islands og að á vegum deildarinn-
ar væri fyrirhuguð ýmis ráðgjöf og
námskeið. Þeir sem vildu kynna
sér þetta nánar er bent á að hafa
samband við Hafstein.
IH
Þeir sem unnu að uppsetnmgu sýningarinnar. Frá vinstri: Vignir Jáhannsson, Þorvaldur Bragason og Svavar Berg Pálsson.
Kortasyning í Kirkjuhvoli
Föstudaginn 1. september var
opnuð í Listasetrinu Kirkjuhvoli á
Akranesi, sýning á fornkortum og
gömlum ljósmyndum í eigu Land-
mælinga Islands. Um er að ræða 50
kort ffá árunum 1547-1901 og ljós-
myndir sem danskir landmælinga-
menn tóku hér á landi á ferðum
sínum á tímabilinu 1900-1910.
Myndirnar voru teknar víða um
landið og eru merkar heimildir um
mannlíf og aðstæður til sjávar og
sveita á þeim tíma. Jafnframt eru á
sýningunni nokkur myndverk effir
Vigni Jóhannsson myndlistarmann,
byggð á loftmyndum.
Sýningin er haldin í tengslum við
menningarárið á Akranesi, í tilefni
af því að á þessu ári eru hundrað ár
liðin frá þeim tímamótum sem
mörkuðu upphafið að starfsemi
Landmælinga Islands. Um þessar
mundir er í byggingu nýtt safnahús
við Byggðasafnið að Görðum á
Akranesi sem mun hýsa þrjú sér-
söfh, þar á meðal vérður safh muna
og gagna úr starfsemi stofhunar-
innar. Stór hluti þess efhis sem er á
sýningunni „Vörðuð leið“ mun
verða hluti af hinu nýja safni. Sýn-
ingin stendur yfir á tímabilinu 1. -
17. september og er opin frá kl. 15-
18, alla daga nema mánudaga.
IA - Keflavík
Akranesvöllur
Landssímadeild
sunnudaginn
10. september kl. 1
Síðasti heimaleikur sun
Frá vinstri: Jóhannes Dagsson og Ólafitr Sveinsson.
Síðasdiðinn laugardag var opnuð myndlistarsýning í Listasafni Borgar-
ness sem beryfirskríftina Innanstokksmyndir. Þar sýna þeir Ólafur Sveins-
son og Jóhannes Dagsson akríl og ólíumyndir sem fjalla um manngert um-
hverfi sem tíminn og minnið hafa leildð um áður en skrásetning á sér stað.
Með þessari nýju framsetningu koma þau öfl sem á fyrirmyndina hafa
yetkað fram og verða jafh áþreifanleg og hlutirnir sjálfir.
Embla Guðmundsdóttir formaður Umf Reykdœla og Ingibjörg Haraldsdóttir skáldkona.
Mynd: GE
Ljóðaverðlaun og
menningarverðlaun
Ljóðaverðlaun Guðmundar
Böðvarssonar og Borgfirsk menn-
ingarverðlaun voru veitt í þriðja
sinn síðastliðið föstudagskvöld í
Logalandi í Reykholtsdal. Það er
minningarsjóður Guðmundar
Böðvarssonar skálds og bónda á
Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurðar-
dóttur konu hans sem veitir þessi
verðlaun á þriggja ára fresti. Að
þessu sinni komu ljóðaverðlaunin í
hlut Ingibjargar Haraldsdóttur
skáldkonu. Borgfirsku menningar-
verðlaunin skiptust á milli leik-
deildar Umf Reykdæla og Leik-
deildar Umf Dagrenningar fyrir
framlag til leiklistar í héraðinu.
Verðlaunahafar fengu hver um sig
myndarlega fjárupphæð. Að minn-
ingarsjóðnum standa erfingjar
hjónanna frá Kirkjubóli, Rithöf-
undasamband Islands, Ungmenna-
samband Borgarfjarðar, Samband
borfirskra kvenna og Búnaðarsam-
band Borgarfjarðar.
GE