Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2000, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 14.09.2000, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 37. tbl. 3. árg. 14. september 2000 Kr. 250 í lausasölu Islensk upplýsingatækni ehf Leiðancli á sviái margfmiálunar Sími: 430 2200 www.islensk.is Fer hanní þriðja sinn? Þegar nýr vegur var byggður fyrir Búlandshöfða á Snæfellsnesi þurfti að byggja tengingu við gamla veginn fyrir bæina sem þar standa. A byggingartímanum fiaut þessi vegtenging í burtu og svo aftur í vetur. I vor komu svo verktakar til að endurgera þennan spotta. Nú sjá menn þess merki að ekki sé langt að bíða þess að vegurinn fljóti í burtu í þriðja sinn. Verulegt sig er komið í veginn og stór bunga í brekkunni neðan veg- ar. Menn kunnugir vegagerð segja að það sé alveg sama hve oft sama drullan sé notuð í veg - hún komi aldrei til með að halda. Bœndur úr Hálsasveit og Reykholtsdal rekafe' sitt í elstu hlöðnu rétt landsins sem enn er í notkun; Fljótstungurétt. Mynd: MM S Olæti á dansleik Söngvari fékk glas í augað Það varð uppi fótur og fit á skemmtistaðn- um Bárunni á Akranesi síðastliðið laugar- dagskvöld þegar hljómsveitin Skítamórall, Markús rekinn Þau stórtíðindi gerðust í ensku knatt- spymunni á mánudagskvöld að knattspymu- stjóri hins ástsæla en ógæfusama smáHðs Halifax Town, Markús Liljuson (Mark Lill- is) var brottrækur ger úr Kaldadalssldri (Chaterdaleshire). Uppsögn Markúsar kem- ur í kjölfar hörmulegrar byrjunar Hðsins í ensku 3. deildinni í ár en liðið hefur aðeins unnið einn leik og var það óviljaverk. Ekki hefur verið tilkynnt um eftirmann Liljuson- ar en ýmis nöfn, öll óþekkt með öllu, hafa verið nefnd. GE sem lék fyrir dansi, tilkynnti skyndilega að þeir væm hættir að spila. Astæðan, að sögn meðlims í hljómsveitinni, var sú að söngvari hljómsveitarinnar hafði fengið glas í augað með þeim afleiðingum að augað sprakk. Söngvarinn var fluttur á sjúkrahús í skyndi á meðan áheyrendur gerðu sitt besta til þess að komast að því hvaða ódæðismaður hefði kastað glasinu. Þeir hljómsveitarmeðlimir sem eftir vom vom ósparir á yfirlýsingarnar og sögðu meðal annars að sökudólgurinn væri réttdræpur og að þeir myndu “stúta honum þótt síðar yrði.” Samkvæmt fréttatilkynningu frá hljóm- sveitinni hefur verknaðurinn verið kærður. Þar segir enn ffemur. “Mál þetta er litið mjög alvarlegum augum hjá íslenskum tónlistar- mönnum sem margir hafa haft samband við okkur og lýst áhyggjum sínum af verknaði sem þessum, og er það til skammar hvernig einn einstaklingur getur jafnvel orðið til þess að eyðileggja áframhaldandi dansleikjahald í heilu byggðarlagi.” Nýtt hús Sýslumanns Smefellinga Mynd: IH Sýslumaður flytur Þessa dagana er starfsfólk sýslumanns- skrifstofiinnar í Stykkishólmi að koma sé fyrir í nýju húsi. Nýja húsið hýsir alla starfsemi embættisins í Stykkishólmi, skrifstofur og Iögreglustöð. Fram- kvæmdir við bygginguna hófust í júní í fyrra og aflienti verktaki embættinu bygg- inguna nú um mánaðamótin. Húsið, sem er allt hið glæsilegasta, er hannað af Teiknistofu Gísla Guðmundsonar. Byggingaverktaki var Trésmiðja Pálmars ehf í Grundarfirði. Ólafiir K Ólafsson sýslumaður er ákaflega ánægður með hina nýju byggingu og segir hana algjöra byltingu í starfsemi embættisins, ekki aðeins fyrir starfsfólldð heldur ekki síður fyrir þá Snæfellinga sem þurfa á þjónustu þess að halda. Við ákvörðun um merkingu hússins kom það sjónarmið upp að rétt væri að taka upp hið foma embættisheiti “Sýslumaður Snæfellinga” í staðinn fyrir “Sýslumaðurinn í Stykkis- hólmi”. Hið síðamefhda hefur verið notað frá árinu 1992. Ólafúr telur hið foma emb- ættisheiti lýsa betur þjónustusvæði embættisins sem er Snæfells- og Hnappadalssýsla. IH

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.