Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2000, Page 2

Skessuhorn - 14.09.2000, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Akranesi: Borgarbraut 49 Kirkjubraut 3 Sími: (Borgarnes og Akrones) 430 2200 Fax: (Borgornes) 430 2201 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-17 ALLA VIRKA DAGA islensk@islensk.is ritstjori@skessuhorn.is internet@islensk.is sigrun@skessuhorn.is ingihons@skessuhorn.is ougl@skessuhorn.is bokhold@skessuhorn.is Útgefondi: Islensk upplýsingotækni 430 2200 Fromkv.stjóri: Mognús Mognússon 894 8998 Ritstjóri og óbm: Gisli Einorsson 892 4098 Internelþjónusto: Bjarki Mór Korlsson 899 2298 Bloðomenn: Sigrún Kristjónsd., Akronesi 862 1310 Ingi Hons Jónss., Snæfellsn. 895 681 1 Auglýsingor: Hjörtur Hjortorson 864 3228 Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 431 4222 Prófarkolestur: Ásthildur Mognúsdóttir og fleiri Umbrot: Tölvert Prentun: ísofoldorprentsmiðjo hf Skessuhom kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 250 kr. 430 2200 Leikritíð Vitíaust númer Gísli Einarsson, ritstjóri. Hann: Varst þú að hringja í mig. Eg: Ha. (geispi), nei, það held ég ekki. Hann: Jú, þú hlýtur að hafa verið að hringja í mig. Eg: Ha, (annar geispi) nei andskotinn (ræsking) allavega hringdi síminn hjá mér svo að þú hlýtur að hafa hringt í mig! Hann: Nei, ég meina áðan. Eg: (fýlulega) Það veit ég ekkert um. Eg veit ekkert hvert ég hringdi áðan (með vaxandi gremju). Eg veit ekki einu sinni hver þú ert. Hvernig í ósköpunum á ég þá að vita hvort ég hef hringt í þig, hvorki fýrr né síðar? Hann: Er þetta ekki 892 4098? Eg: Jú, (snúðugt) annars ættir þú að vita best um það. Það varst þú sem hringdir í þetta númer. Hann: (þrjóskulega) Þá hlýtur þú að hafa hringt í mig. Eg: (afar önugur) Því segirðu það? Hann: (sigri hrósandi) Eg sá númerið þitt á númerabirtinum hjá mér. Eg: (kveiki á perunni - enn þurrkuntulegur) Jú, það getur svo sem vel verið að ég hafi hringt í vitlaust númer einhverntíma í gær. Hann: (móðgaður) Meinarðu að ég sé með vitlaust númer? Ég: (snarillur) Ég veit ekkert um það. Ég veit bara að þetta er afskaplega vitlaust samtal um hánótt. Hann: Hvað meinarðu? Ég: (á suðupunkti) Veistu hvað klukkan er? Hann: (brugðið) Ha? Nei. Ég: (alveg brjálaður) Ekki ég heldur, enda kemur það málinu ekkert við, farðu til andskotans og vertu blessaður! Endir Eftinnáli: Ég komst aldrei að því hver maðurinn var. Mig rennir hinsvegar í grun um að það hafi verið konan hans sem ítrekað sendi mér SMS skilaboð á tímabili. Fyrst um það að hana hlakkaði til að fara með mér í útileguna, síðan að ég ætti að muna eftir föðurlandinu og flíspeys- unni. Þá til að minna mig á grillkolin og klofstígvélin og lokst til að láta mig vita að henni seinkaði um hálftíma. Hún er hinsvegar ekki komin enn. Þetta var leikgerð á smásögunni “Símtal”, sem byggð er á sannsögu- legum atburðum úr mínu næturlífi. Bókmenntafræðileg túlkun á verkinu er sú að þótt opinbert markmið með tæknilegum framförum á sviði fjarskipta (SMS skilaboð, núm- erabirtar, Imeilar o.s.fv.) sé sú að auðvelda og bæta samskipti fólks þá er það hrein tímasóun. Þær verða ekki til annars en að stuðla að því að flestir sem maður hefur samskipti við er fólk sem maður ætlaði sér alls ekki að tala við. Gísli Einarsson, stmsvari Haraldur Böðvarsson hf 60 milljóna króna hagnaður fyrri hluta ársins í tilkynningu frá Haraldi Böðv- arssyni hf kemur fram að hagn- aður af reglulegri starfsemi fyrstu sex mánuði ársins 2000 varð 60 milljónir kr. A fyrri hluta ársins 1999 varð hagnaður af reglulegri starfsemi 68 milljónir kr. Hagnaður fyrir afskrifrir varð 506 milljónir kr. eða 21,2% af tekjum en á sama tímabili í fyrra varð hagnaður fyrir afskriftír 330 milljónir kr. eða 16,2% af tekj- um. Hagnaður fyrir afskrifrir jókst því um 53% á milU tíma- bila. Veltufé frá rekstri nam 358 millj- ónum kr. á fyrri hluta ársins 2000, samanborið við 221 milljón kr. á sama tímabili 1999, sem er 62% aukning á milli tímabila. Rekstrartekjur útgerðar jukust um 403 milljónir kr. en samdráttur varð í rekstrartekjum fiskvinnslu um 197 milljónir kr. Þessi breyting er sögð skýrast fyrst og fremst af því að hlutfall sjófrystingar hefur aukist á rnilli tímabilanna, auk þess sem endurbætur stóðu yfir í frysti- húsinu í upphafi ársins. Ahrif að- gerða sem gripið var til í júnílok í hagræðingarskini hafa eðli málsins samkvæmt ekki komið fram á fyrri hluta ársins. Alls var aflamagn skipa fyrirtæk- isins 98.424 tonn á tímabilinu, samanborið við 76.410 tonna afla sama tímabil 1999. Hráefni til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni var 58.000 tonn, sem er svipað magn og sama tímabil í fyrra. I tilkynningu fyrirtækisins segir að með fyrirvara um óvissu um veiðar og vinnslu og þróun á gjald- eyris- og afurðamörkuðum eru horfur á að afkoma fyrirtækisins af reglulegri starfsemi seinni hluta ársins 2000 verði í jafnvægi. K.K. Frá aðalfundi SSV1998 Aðalfundur SSV Akveðið hefur verið að halda að- alfund Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi að Laugum í Sælings- dal föstudaginn 27. október næst- komandi. Aðaleíni fundarins verð- ur framtíðarskipan SSV en sem kunnugt er var ákveðið á síðasta aðalfundi að fram færi endurskoð- un á hlutverki samtakanna í ljósi nýrrar kjördæmaskipanar. Stjórn SSV hefur sent öllum aðildarsveit- arfélögunum tillögur að framtíðar- skipan samtakanna og hafa þau frest til 15. september til að skila inn athugasemdum. GE Nýr umdæmisstjóri Magnús Valur Jóhannsson hefur verið ráðinn umdæmisstjóri Vega- gerðar ríkisins á Vesturlandi ffá og með 1. október næstkomandi. Hann tekur þá við af Birgi Guð- mundssyni sem tekur við starfi um- dæmisstjóra Vegagerðarinnar á Norðurlandi eystra á sama tíma. Magnús Valur hefur unnið hjá Vegagerð Ríkisins í Reykjavík um árabil og haft umsjón með rekstrar- deild stofnunarinnar. Að undan- förnu hefur hann starfað hjá sam- gönguráðuneytinu. Sex umsækj- endur voru um stöðuna. GE Þrjú búíjárslys í Norðurárdal Um síðustu helgi urðu þrjú umferðaróhöpp af völdum búfjár í Norðurárdal. Síðastliðinn laug- ardag var ekið á Iamb við Forna- hvamm. Sama dag var ekið á kind við Klettstíu og var bifreið- in óökufær á eftir. A sunnudags- kvöld var síðan ekið á tvær kind- ur við Hvamm og þar varð einnig umtalsvert tjón á biffeið- inni. Ekki urðu slys á fólki í þess- um umferðaróhöppum. GE Björgunarsveit- ir kallaðar út Mikið hvassviðri og úrhellis- rigning gekk yfir Snæfellsnes sl. mánudag. Björgunarsveitin Sæ- björg í Olafsvík var kölluð út kl. 19,30 til að bjarga 11 kindum sem voru að flæða skammt frá bænum Mávahlíð. Björgunar- sveitarmenn fóru með bát með sér en er að var komið þótti hæg- ara að vaða eftir fénu. Um svip- að leyti var Björgunarsveitin Björg á Hellissandi kölluð út til að hefta fok á þakplötum af gömlu húsi á staðnum. Vantar veghefil Nokkur seinkun hefur orðið á framkvæmdum við fyrri hluta nýs Vatnshamravegar í Borgar- firði, frá Hvanneyri að Hnakkatjarnarlæk. Þann tuttug- asta ágúst s.l. átti að vera komið bundið slitlag á kaflann frá Hnakkatjarnarlæk að Götuási samkvæmt verksamningi. Verk- takinn fékk síðan tíu daga við- bótarfrest vegna tafa sem hann réði ekki við en verkinu er enn ekki lokið. Samkvæmt upplýs- ingum frá Vegagerðinni í Borg- arnesi er skýringín sú að ekfeí hefur fengist sérstakur tölvu- stýrður veghefill til að jafna und- irlagið undir malbikið. GE Löndunarskýli á Faxabryggju Hafharstjóm Akraness hefur heimilað Haraldi Böðvarssyni hf. að setja upp löndunarskýli á Faxabryggju auk þess sem sam- þykktar voru aðgerðir til þess að hægt yrði að afhenda raímagn á 10-15 ffystigáma. Haínarstjóra AkranesSj Gísla Gíslasyni, og yf- irhafnarverði, Þorvaldi Guð- mundssyní, hefur verið falin nánari útfærsla málsins í sam- ræmi við hafnarreglugerð. SÓK Brotíst inn í bústað Síðastliðinn föstudag var til- kynnt um innbrot í sumarbústað í landi Dagverðamess í Skorra- dal. Ymislegt smálegt hafði horf- ið úr bústaðnum en litlar skemmdir voru unnar á húsinu. Fyrr í síðustu viku var brotist inn í sumarbústað í Botnsdal en litlu stolið að sögn lögreglu. GE

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.