Skessuhorn - 14.09.2000, Side 5
§SESSIÍH©EÍS
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
5
Ég var í útlöndum um daginn og rann upp
íyrir mér einsog ævinlega þegar það gerist hvað
íslenskur veruleiki er undra fljótur að hverfa úr
vitund manns - það voru ekki liðnir margir
klukkutímar í brakandi þerri suðrá Krít þegar öll
mál íslensk voru því sem næst hætt að skipta
máli. Sem er með einhverjum hætti tómur hroki,
án þess ég fari nánar út í þá sálma.
En nema hvað, á endanum kom ég til baka og
fór að fylgjast með fjölmiðlum á nýjan leik hér
heima. Sem betur fer virtist ekkert stórkostlegt
hafa gerst meðan ég brá mér af bæ en rétt í þann
mund að ég tyllti tá hér á ný upphófst mikill
hamagangur í flestum blöðum og á ljósvakabylgj-
um flestum sem ég rakst á - málið snerist með
einhverjum hætti um internet-tengingu skóla í
Reykjavík sem borgin hafði ákveðið að fela fyrir-
tæki sem kallast Lina.net, en stjómarandstaðan í
borginni - sem vill segja Sjálfstæðisflokkurinn -
rak upp ramakvein yfir því að þær framkvæmdir
sem þessu fylgdu skyldu ekki hafa verið boðnar út
og fleiram en Linu.net gefinn kostur á að bjóða í.
Það mun hafa þýtt í raun og veru að kvartað var
yfir því að Landsímanum væri ekki kleift að bjóða
í verkið - því önnur fyrirtæki munu ekki hafa
komið til greina, og reyndar ekki alveg ljóst hvort
Landsíminn væri einu sinni í stakk búinn til að
taka þetta að sér.
Sennilega hef ég misst af upphafi málsins, að
minnsta kosti náði ég engum tökum á því, en
mátti samt sem áður silja undir stöðugum frétt-
um af eijum Reykjavíkurlistans og Sjálfstæðis-
flokksins um málið og gengu harðorð skeyti á
milli, eins og það heitir. Ég reyndi lítið til að setja
mig inní þetta, þarsem ég skildi fátt af þessu
karpi um kórréttan framgangsmáta við útboð og
þessháttar, og svo þótti mér fljótlega að allt skipti
þetta svo óskaplega litiu máli. Aldrei - eða nánast
aldrei - var fjallað um skólanetið sjálft eða hvaða
möguleika það byði uppá fyrir börnin í skólum
borgarinnar - og síðan vonandi út um landið ef
um einhveijar stórkostlegar framfarir er að ræða.
En allir fjölmiðlar eltust glaðir 1 bragði við sér-
livert hnjóðsyrði sem deiluaðilum hraut af munni
í karpinu og kannski voru fjölmiðlamir orðnir
langþreyttir á agúrkutíð sumarsins, þegar lítt er
deilt um sljómmál, úr því að þeir lögðu svo gífur-
lega áherslu á þetta eina mál - og þá aðeins þær
hliðar þess sem skiptu minnstu máli. Nema menn
séu þeirrar skoðunar að sljómmál séu ekki annað
en hnútukast stjórnmálamanna.
Þarna virtist vera á sveimi sannkölluð frétt -
raunveralegt framfaramál, ef það er rétt skilið að
umrædd netvæðing skólanna verði til jafh mikilla
heilla og af er látið en aldrei útskýrt. En fjölmiðl-
arnir sinntu bara eijum deiluaðila og með áhuga
sínum hafa þeir áreiðanlega magnað upp þær eij-
ur - stjómmálamennimir voru fljótir að renna á
blóðlyktina - þarna vom komnar deilur sem fjöl-
miðlamir sinntu af þvílíkri samviskusemi og þá
var um að gera að hafa eitthvað um málið að segja
- ekki reyndar um málið sjálft, það er að segja net-
væðinguna, heldur um það síðasta sem andstæð-
ingurinn hafði sagt, svara því, segjast ekki skilja
hvað andstæðingurinn var eiginlega að fara, bla-
blabla.
Þetta var leiðinlegt mál að fylgjast með, til-
gangslaust, og töluverð skömm fyrir íslenska
blaðamenn. Af hveiju vom þeir að taka þátt í
þessu - að láta alvöra mál fara að snúast um póli-
tískt smáatriðakarp? Eltast við tuð í Guðlaugi Þór
eða slá Alfreð Þorsteinssyni upp hvað eftir annað?
Var ekki einfalt mál að komast að því hvort það
væri rétt hjá Reykjavíkurborg að Lína.net væri
eina fyrirtækið sem gæti séð um þetta verkefni -
gátu fjölmiðlamir ekki fengið einhveija sjálfstæða
aðila til að meta það, fremur en fylla hvem frétta-
tímann af öðmm af mótsagnakenndum fullyrð-
ingum pólitískra smákónga?
Þetta mál er merki um metnaðarleysi ís-
lenskra fjölmiðla. Þau em því miður fleiri. Ég
rakst nýlega á grein eftir Ara Sigvaldason sem til
skamms tíma var fréttamaður á Ríkisútvarpinu
en er nú orðinn kynningarfulltrúi hjá einhveiju
fyrirtæki sem ég kann ekki að nefna. Hann segir
frá því að eftir að hann gerðist „sjoppukall“ hafi
það gerst oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að
þegar hann hringi í blaðamenn til þess að bjóða
þeim einhveijar fréttir af fyrirtækinu sem hann
vinnur nú hjá, þá spyiji blaðamaðurinn: „Og fylg-
ir þessu auglýsing?" Og þegar hann neitar, blað
eða Ijölmiðill viðkomandi blaðamanns fái ekki
sjálfkrafa auglýsingu í skiptum fyrir fréttina af
fyrirtækinu, þá neiti blaðamaðurinn að birta frétt-
ina.
Athugið að þarna er átt við blaðamenn - ekki
auglýsingastjóra á ljölmiðlunum, en þeim myndi
fyrirgefast viðbrögð af þessu tagi. Það era almenn-
ir blaðamenn sem em orðnir svo vel uppaldir í
markaðsfræðum fjölmiðlanna að þeir taka það
upp hjá sjálfum sér að heimta auglýsingar í skipt-
um fyrir fréttir. Þó ég sé nú ekki orðinn að ráði
gráhærður, þá get ég þó fullyrt að svona hefði ekki
einn einasti blaðamaður hagað sér um það leyti
sem ég var að byija í faginu. Ekki einn einasti. En
svo er nú komið fyrir blaðamannastéttinni að
þessar fullyrðingar - segjum bara „ásakanir" Ara
Sigvaldasonar - þær vekja ekki einu sinni athygli,
hvað þá að Blaðamannafélagið skerist harkalega 1
leikinn og krefjist þess af sínum félagsmönnum
að þeir leggi af vinnubrögð af þessu tagi.
Af eðlislægri bjartsýni reyni ég jafnan að halda
í þá trú að hlutirnir fari svona heldur skánandi yf-
irleitt. En íslensk blaðamennska er samkvæmt
þessum dæmum á hraðri niðurleið. Og endar
máske alla leið niðri hjá Húsavíkur-Jóni.
Illugi Jökulsson
BIKARURSLIT
sunnudaginn 24. september
ÍA - ÍBV
Forsala hefst föstudaginn
15. september kl. 12:00
Miðar eru seldir í Olís-nesti,
Akranesi og Olís við Skúlagötu,
Reykjavík
- .vy-' .. '
Miðaverð í forsöl...
Fullorðnir kr. 1.300,-
Börn kr. 500,-
Við Laugardalsvöll:
Fullorðnir kr. 1.500,
Börn kr. 500,-
Internetþjónusta
Leiðandi fyrirtœki á J[ Jsviói niargnúðlunar
íslensk upplýsingatækni
Borgarbraut 49 - IS 310 Borgarnesi - Sími 430 2200
Fax 430 2201 - islensk@islensk.is - www.islensk.is
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi
iðnaðarsvæðis á Grundartanga, Borgarfirði
Hreppsnefndir Hvalfjarðarstrandarhrepps og Skilmannahrepps auglýsa hér með
tillögu að beytingu á aðalskipulagi iðnaðarsvæðis á Grundartanga 1997 - 2017
samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Breytingin felst í því að nú er allt svæðið neðan þjóðvegar skilgreint sem hafnarsvæði,
lóð Islenska járnblendifélagsins hefur stækkað, viðlegukantur færður inn samkvæmt
samþykktu deiliskipulagi og staðsetning sjódælustöðvar Norðuráls hf færð inn á
skipulagskortið.
Breytingartillagan verðurtil sýnis á Hreppsskrifstofunum annars vegar að Hagamel
16, Skilmannahreppi og hins vegar að Hlöðum Hvalfjarðarströnd á skrifstofutímum
og einnig á Teiknistofu Magnúsar H. Ólafssonar arkitekts, Merkigerði 18, Akranesi
alla virka daga frá kl. 10:00 -16:00 frá 13. september 2000 til og með 10. október
2000.
i Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera
| athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn skriflegum
1 athugasemdum er til kl 16:00 þriðjudaginn 24. október 2000 og skal skila þeim
| til Hreppsskrifstofu Skilmannahrepps, Hagamel 16, Skilmannahreppi, 301 Akranes.
| Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingatillöguna fyrir tilskilinn frest telst
samþykkur henni.