Skessuhorn - 14.09.2000, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
^ssunu^
Búnaðarbankinn á Akranesi
Sérfræðiþjónusta
á sviði verðbréfa
Kjartan Kjartansson, rekstrar-
fræðingur frá Samvinnuháskólan-
um á Bifröst, heíur verið ráðinn
sem sérfræðingur á sviði verðbréfa
við útibú Búnaðarbankans á Akra-
nesi. Kjartan hefur verið deildar-
stjóri í bankanum frá árinu 1993
og auk þess að starfa sem sérfræð-
ingur á sviði verðbréfa kemur
hann til með að sinna málefnum
íyrirtækja.
Helstu þjónustuþættir sem boð-
ið er upp á eru ráðgjöf á sviði verð-
bréfaviðskipta, eignastýring, fjár-
varsla, lífeyrisspamaður og fjár-
festingar í fjölmörgum sjóðum
Búnaðarbankans verðbréfa, bæði
innlendum og erlendum, auk
miðlunar innlendra og erlendra
hlutabréfa.
Sérstök áhersla verður lögð á
eignastýringu sem hentar þeim
sem vilja ná hámarksávöxtun fjár-
muna sinna og spara bæði tíma og
fyrirhöfn með því að láta sérfræð-
inga á fjármálamarkaði sjá um
daglega stjómun eigna sinna og
breyta henni í samræmi við þróun
fjármálamarkaða á hverjum tíma.
Kjartan Kjartansson
Fyrir þá sem vilja sjálfir taka
þátt í fjárfestingunum býður bank-
inn svokallaða fjárvörslu. Þá taka
viðskiptavinirnir sjálfir ákvarðanir
við kaup og sölu verðbréfa en
Búnaðarbankinn sér um fram-
kvæmd og heldur utan um við-
skiptin.
I tilefni þessara tímamóta verða
sérstakir verðbréfadagar í útibúi
Búnaðarbankans á Akranesi
fimmtudaginn 14. september og
föstudaginn 15. september.
Beggi á Tóftum í Olafrvíkurhöfn. f Mynd: IH
Nýr bátur til Olafsvíkur
Bervík ehf keypti nú á dögun-
um vélbátinn Begga á Tóftum frá
Höfn í Hornafirði. Beggi á
Tóftum var smíðaður í Noregi
1964 og er um 200 lestir. Bátur-
inn er búinn til veiða á dragnót,
botnvörpu og net. Kristján
Kristjánsson framkvæmdastjóri
fyrirtækisins vonast til að bátur-
inn fari á veiðar með dragnót á
næstu dögum. Skipstjóri á bátn-
um verður Margeir Jóhannesson.
Fyrir á fyrirtækið vélbátinn
Bervík SH 343.
IH
Bifreið fauk
í Staðarsveit
Skömmu fyrir hádegi föstudaginn 8 september s.l. fékk lögregla í Olafs-
vík tilkynningu um að bifreið hefði oltið við Olafsvíkurveg milli bæjanna
Bláfeldarog Böðvarsholts. Talsvert hvassviðri var á slysstað. Bíllinsem
er af gerðinn Volkswagen Transport hafði fengi á sig vindkviðu og fokið
útaf veginum, oltið eina veltu og stöðvast á hægri hlið ofan í skurði. Öku-
maður var lítt meiddur og ekki talin þörf á lækni á slysstað. Hann var
fluttur á heilsugæsluna í Ólafsvík þar sem gert vað að sárum hans. Bif-
reiðin er mikið skemmd.
HVAÐ
ER
TITT?
Lumar þú á frétt?
Hafbu þá samband vib þinn
fréttamann
Akranes og nágrenni:
Sigrún Ósk s: 862 1 310
Snæfellsnes:
Ingi Hans s: 895 6811
Borgarfjörður og Dalir:
Gísli s: 892 4098
Alltaf, allsstaöar
Uppgripsverslun
í Borgames
Á morgun verður í Borgamesi
formlega opnuð tuttugasta Upp-
gripsverslun Olís á landinu. Stöðin
í Borgamesi hefur farið fram úr
björtustu vonum stjómenda Olís
og salan þar hefur verið mun meiri
en þeir gerðu sér grein fyrir í upp-
hafi. Þess vegna var ákveðið að
opna Uppgripsverslun í viðbót við
ÓB. I stöðinni verður mikið um að
vera í tilefni opnunarinnar og mörg
tilboð verða í gangi. Meðal annars
er fimm krónu afsláttur af bensíni
og gasolíu í ÓB. SÓK
Ljósleiðari
að
Hvanneyri
I haust verður lagður ljósleið-
arastrengur á vegum Landssím-
ans frá Borgamesi að Hvann-
eyri. Að sögn Arelíusar Emils-
sonar hjá Landssímanum í Borg-
arnesi er tilgangurinn sá að
styrkja dreifikerfið í uppsveitum
Borgarfjarðar en einnig að mæta
aukinni þörf stofnana á Hvann-
eyri fyrir flumingsgetu símalína.
“Við eram með lélegan streng
að Hvanneyri en góðar tenging-
ar þaðan í símstöðvarnar í sveit-
unum,” segir Arelíus.
Ljósleiðarinn verður lagður í
röri með Borgarfjarðarbrúnni að
Seleyri en þaðan verður hann
plægður niður stystu leið að
Hvanneyri. GE
Nýr staðarhaldari á Gufuskálum
Guðrún Halla Elísdóttir á Hell-
issandi hefur verið ráðin í starf
staðarhaldara á Gufuskálum.
Guðrún hefur starfað með Björg-
unarsveitinni Björg á Hellissandi
og hefur verið annar af tveimur
umsjónarmönnum með unglinga-
starfi sveitarinnar. Guðrún starf-
aði á Gufuskálum í sumar við Uti-
vistarskóla Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Guðrún mun ann-
ast rekstur staðarins, gestamót-
töku, eldamennsku og þrif.
Framkvæmdastjórn verður í hönd-
um Þorsteins Þorkelssonar for-
stöðumanns björgunarsviðs. Þor-
steinn sem staddur var á Gufuskál-
um á dögunum sagði að talsverð
notkun hefði verið á búðunum í
vetur og í sumar og mörg nám-
skeið væru fyrirhuguð í haust.
Þorsteinn sagði að áherslur um
rekstur búðanna væra nokkuð að
skýrast og framundan væri undir-
búningur að uppbyggingu rústa-
björgunaraðstöðu. IH
Þorsteinn Þorkelsson og Guðrún Halla staöarhaldari.
Mynd: IH