Skessuhorn - 14.09.2000, Síða 15
únúsunu..
15
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
BILAR / VAGNAR / KERRUR
Bflar til sölu (12.9.2000)
Til sölu Toyota Corolla, árg. ’85 í
góðu ástandi. Verðhugmynd: 70-
90 þús. A sama stað Subaru 1800,
árgerð ’88. Verðhugmynd 170
þús. Uplýsingar í síma 867 0742.
M-Benz og Toyota (11.9.2000)
Til sölu 230-E mótor úr M-Bens
84, gangviss og góður mótor í finu
standi. A sama stað til sölu Toyota
Corolla 1600 árg. 84 til niðurrifs
eða samsemingar (vantar mótor).
Uppl. í síma 898 7504.
Hestakerra óskast (9.9.2000)
Oska eftir að kaupa hestakerru.
Upplýsingar í síma 431 1168.
Lada til sölu (9.9.2000)
Til sölu Lada station árgerð 1991,
rauð að lit. Ekin aðeins um 60
þúsund km. Góður bíll, einn eig-
andi. Verð 100 þúsund. Uppl. í
síma 894 8998.
Bflar til sölu (7.9.2000)
Eftirfarandi bflar seljast ódýrt í
pörtum eða til niðurrifs: Scout ’74
(honum fylgja tvennar hurðir, vel
með famar), BMW 318 ’78 (með
sjálfskiptingu), Lancer 86 og Ch-
evrolet Citaition 80. Sími 43 5
6616.
Galant 91 (7.9.2000)
Galant GLXi 2000 árgerð '91 til
sölu. Dekurbfll, ekinn 105 þús.
Tveir eigendur. Upplýsingar í
símum 437 1850 og 897 5051.
Honda GTI (6.9.2000)
Árg. '88 keyrður 198 þús álfelgur,
sumar/vetrardekk, geislaspilari og
það fýlgir með einn bjór og sígar-
ettupakki. Verð aðeins kr 150 þús.
Upplýsingar í sima 437 1192.
WV Transporter (5.9.2000)
Til sölu er eðalfínn VW Tran-
sporter árgerð 1993, ekinn 170
þús. km. Tekur 8 farþega. Mikið
farangursrými, fjölnota bifreið,
Verð 937.500. Uppl. í síma 869
9611.
Fjárvagn (5.9.2000)
Oska eftir fjárvagni. Upplýsingar í
síma 435 1189 á kvöldin.
Óska eftir dráttarvél. (5.9.2000)
Ódýr en sæmilega gangfær Ford
dráttarvél, 30-40 hestafla, óskast.
Nánari upplýsingar í síma 435
6659.
Bfll til sölu (5.9.2000)
Nissan Sunny ’94 fæst með mjög
góðum staðgreiðsluafslætti. Einnig
kemur til greina að taka bíl uppí á
100-150 þúsund. Bíll í toppstandi,
skoðaður ’Ol. Sími 437 1522.
Ærtilsölu (12.9.2000)
Til sölu 120 fallegustu veturgömlu
gimbrarnar í Borgarfirði. Upplýs-
ingar hjá Benna á Stað í síma 437
1793.
Kvígur til sölu (12.9.2000)
Til sölu kvígur, burðartími októ-
ber til desember, uppaldar á bás-
um. Sími 435 0030.
Hjálp!! (5.9.2000)
Við emm 3 átta vikna kettlingar.
Við emm allaveganna á litinn.
Okkur vantar gott heimili þar sem
okkur líður vel. Ef einhvem langar
að eignast einn okkar eða fleiri
hafið þá samband í síma 437-1834.
Kvígur til sölu. (5.9.2000)
Tvær kvígur til sölu. Burðartími
sept- okt. 2000. Einnig á sama
stað rúlluhey síðan ’99. Sími 435
1448.
Hvolpur og tík (4.9.2000)
Sex mánaða gamall hvolpur og
eins og hálfs árs gömul tík fást
gefins. Upplýsingar í síma 437
0054.
Gefins kettlingar (1.9.2000)
Þrír kettlingar bjóðast til að flytja
heim til valinna dýravina. Geta
sjálfir séð um músaveiðar og ann-
að tilfallandi heimilishald. Upplýs-
HUSBUNAÐUR / HEIMILI
ingar í síma 435 1505 á kvöldin.
Beikihúsgögn f. krakka (11.9.’00)
Til sölu fallegt beikirúm með 2
útdregnum skúffum (2m x 80) og
beiki skrifborð fýrir krakka. Upp-
lýsingar í síma 894 7628.
Sófasett í sumarbústaðinn?
(6.9.2000)
Til sölu fumsófasett 3+1+1, áklæði
þarfhast viðgerðar, (tilvalið í sum-
arbústað). Sími 435 1198.
Tilleigu (11.9.2000)
LEIGUMARKAÐUR
225 fermetra iðnaðarhúsnæði til
leigu. Uppl. í síma 892 3463.
Til leigu (11.9.2000)
Til leigu íbúð plús atvinnuhús-
næði. Laust strax. Uppl. í síma
892 3463.
Forstofuherbergi (6.9.2000)
Óska eftir að taka á leigu forstofu-
herbergi í Borgarnesi. Uppl. í
síma 435 1198.
Herbergi til leigu (6.9.2000)
Vantar meðleigjanda í rúmgóða
íbúð, allt nýtt í henni. Ahugasamir
hafi samband í síma 431 3504.
Til Ieigu (5.9.2000)
114 m2 hús ásamt 3ha landi
skammt frá Borgarnesi. Upplýs-
ingar í síma 421 7119.
OSKAST KEYPT
Teikniborð (11.9.2000)
Óska eftir teikniborði. Upplýsing-
ar í síma 866 5635 eftir kl 14.
TIL SOLU
Standlampi (12.9.2000)
Vegna þrengsla er mjög sérstæður
og fallegur, gamall standlampi og
ljósakróna til sölu. Upplýsingar í
síma 437 1148.
Glæsileg 3 herb. íbúð til sölu
(30.8.2000)
Glæsileg 3 herb. íbúð til sölu á 3.
hæð í blokk, Kveldúlfsgötu 26 í
Borgarnesi. Ný eldhúsinnrétting,
nýlegt bað, fataskápar í herbergj-
um. Stórglæsilegur garður og
sameign. Upplýsingar í síma 437
2130 og 863 7357.
TOLVUR / HLJOMTÆKI
100W gítarmagnari (11.9.2000)
Til sölu Marshall Valvstate 100V
gítarstæða, nýyfirfarinn og hreins-
aður, lítur út sem nýr. Topphljóm-
ur, toppkraftur. Uppl í síma 898
7504.
Ódýr hljómtæki. (3.9.2000)
Til sölu mjög góð Panasonic
hljómtækjasamstæða með fimm
diska spilara og fleiru. Eins árs
gömul. Kostar ný 42.000 krónur,
selst á 20.000. Uppl. í síma 862-
1310.
Vestlendingur vikunnar:
Besta hugmyndin
Philippe Ricart í vinnustofu sinni.
Mynd: SOK
Handverks- og listamaðurinn
Philippe Ricart vann það afrek á
dögunum að vera valinn úr stórum
hópi listamanna til þess að taka þátt
í sýningu sem nú stendur yfir í Ráð-
húsi Reykjavíkur og ber heitið
“Nytjalist úr náttúrunni”. Auk þess
gerði hann sér lítið fyrir og hlaut
verðlaun fyrir bestu hugmyndina.
Philippe er fæddur árið 1952 í
Alsír. Atta árum síðar flutti hann til
Frakklands þar sem hann bjó til
ársins 1979. Þá tók hann sig til og
flutti alla leið til Islands og hefur
verið búsettur þar síðan. Philippe
er Akurnesingum að góðu kunnur.
Hann var bæjarlistamaður Akraness
árið 1996 auk þess sem hann á tvö
útilistaverk í bænum; verkið
“Hnöttur” við leikskólann Teigasel
og “Veiðar” á Elínarhöfða sem sett
var upp nú í sumar í tengslum við
verkefnið “Sjávarlist”. Philippe er
giftur Jóhönnu Hálfdánardóttur,
kennara í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands, og eiga þau eina dóttur.
Philippe segist vera að mestu
leyti sjálfmenntaður. Hann hefur
þó sótt fjölda námskeiða auk þess
sem hann vann við vefnað í þrjú ár
á ísafirði hjá Guðrúnu Vigfúsdótt-
ur. En hvernig kom það til að Phil-
ippe tók þátt í sýningunni í Ráðhús-
inu? “Eg er búinn að vera í hand-
verki í mörg ár og Handverk og
hönnun hafði samband við nokkra
handverksmenn og bauð þeim að
taka þátt í þessu verkefni. Maður
átti að senda inn kynningu á sjálfum
sér og úr þeim hópi voru valdir
nokkrir einstaklingar. Að því loknu
fengum við þema til að vinna eftir,
vatn, og við áttum að hanna nytja-
hlut tengdan því á einhvern hátt.
Ur þeim var svo valið á sýninguna.”
Verk Philippes ber heitið “Vatns-
berar” og er úr ullarflóka. “Eg bý til
flóka utan um hálfs líters gosflösk-
ur. Ullin einangrar mjög vel og mig
langaði að reyna að koma í veg fyr-
ir að fólk henti flöskunum út um
allt. Flöskurnar eru hugsaðar jafnt
fýrir fólk í bæjarferð sem og göngu-
fólk.” En hvernig fær maður svona
góða hugmynd? “Til að byrja með
er þetta tengt þemanu, vatni. Þetta
er eiginlega þróað út ffá gamalli
hugmynd. I gamla daga þegar fólk
var að vinna á engjum var þeim fært
kaffi í sokk. Grunnhugmyndin er
komin þaðan.”
SÓK
ptóOiÍPOCOCO
Snæfellsnes. Fimmtudag 14. september:
Skyggnilýsingafundur kl 20:30 í Sal Tónlistarskóla Stykkishólms
Skólastíg 11. Þórhallur Guðmundsson miðill. Sálarrannsóknarfélag
Stykkishólms.
Borgarfjörður. Fimmtudag 14. september:
Kvöldganga UMSB í Borgarbyggð frestast. Síðustu kvöldgöngu
UMSB um perlur Borgarfjarðar hefur verið frestað vegna slæmrar veð-
urspár. Tímasetning auglýst síðar.
Akranes. Fimmtudag 14. september:
Upplestur kl 21 á Café 15 Akranesi. Elísabet Jökulsdóttir les úr verk-
um sínum.
Snæfellsnes. Fös. - mán. 15. sept - 18.sept:
Þórhallur Guðmundsson miðill í Húsi andanna að Skólastíg 14 Stykk-
ishólmi. Þórhallur verður með einkafundi 15.-18. september. Sálar-
rannsóknarfélag Stykkishólms
Utan Vesturlands. Laugardag 16. september:
Fylkir - IA kl 14:00 á Fylkisvelli. Landssímadeild karla.
Þríþætt rekstrarráðgjöf
Atvinnuráðgjöf Vesturlands býð-
ur í haust smærri fýrirtækjum upp á
það sem kallað er þríþætt rekstrar-
ráðgjöf.
Með þríþættri ráðgjöf er átt við
ráðgjöf sem hefst á kynningu verk-
efnisins. I kjölfar þess er boðið
upp á námskeið sem lýkur með ráð-
gjöf-
A námskeiðinu verður farið í af-
mörkuð viðfangsefni þar sem
kennsluefnið er útskýrt með hag-
nýtum dæmum og geta þátttakend-
ur valið að fara af stað með verkefni
sem eru í beinum tengslum við
þeirra fýrirtæki.
I kjölfar námskeiðsins verður
boðið upp á áffamhaldandi aðstoð
við þau verkefni sem hver og einn
þátttakandi er að fást við.
Svipmyndir úr
Flj ótstungurétt
kr. á l+r.