Skessuhorn - 21.09.2000, Blaðsíða 3
dkUSUIÍUi. I
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
3
Reykjagarður kemur í Borgames
Umræður um ann-
að hrein kjaftasaga
- segir Bjami Asgeir Jónsson framkvæmdastjóri
“Þessi kjaftasaga er búin að
ganga lengi fyrir austan og ég var
búin að frétta að hún væri komin í
Borgarnes,” segir Bjarni Asgeir
Jónsson framkvæmdastjóri Reykja-
garðs, aðspurður um hvort íyrir-
tæki hans væri hætt við að flytja
kjúklingaslátrun sína frá Hellu í
Borgames. “Við förum okkur að
vísu hægar en upphaflega stóð til
enda er engin pressa á okkur. Það
er mikil spenna á vinnumarkaðnum
og erfitt að fá iðnaðarmenn til að
gera það sem þarf í húsnæðinu og
því tökum við þessu rólega. Við
emm komnir með öll tilboð í tæki
þannig að það er ekki eftir neinu
að bíða nema mannskapnum. Við
emm ekki búnir að setja niður nýja
tímasetningu en upphaflega var
Bjami Asgeir Jónsson
verið að tala um áramót. Það er
samt sem áður allavega ömggt að
við komum,” segir Bjarni.
Hervar áfram formaður
Verkalýðsfélags Akraness
Vantrauststillagan
dregin til baka
Búist hafði verið við miklum á-
tökum á aðalfundi verkalýðsfé-
lags Akraness sem haldinn var
síðastliðinn fimmtudag. Boðað
hafði verið að fram kæmi van-
trauststillaga á formanninn,
Hervar Gunnarsson. Frétta-
mönnum var meinuð aðganga að
fundinum en samkvæmt heim-
ildum Skessuhorns urðu þar
snarpar umræður um störf fé-
lagsins og kom meðal annars
fram gagnrýni á störf formanns
og fjarveru hans vegna starfa á
vettvangi Verkamannasam-
bandsins.
Fram kom vantrauststillaga á
formanninn Hervar Gunnarsson
eftir að hann hafði verið endurkjör-
inn. Vantrauststillagan var síðan
dregin til baka og Sigurður H Ein-
arsson flumingsmaður tillögunnar
segir það hafa verið niðurstöðuna
að allir stæðu saman að því að rífa
félagið upp úr þeim doða sem það
hafi verið í, í stað þess að skapa
úlfúð og klofhing innan þess. Segir
hann að því hafi verið ákveðið að
Hervar Gunnarsson
draga tillöguna til baka.
Hervar Gunnarsson segir að
fundurinn hafi verið gagnlegur og
að félagið standi sterkara á eítir.
„Eg vona að þessi átök hafi þau á-
hrif á félagið að það verði virkara
og að menn fari að skiptast á skoð-
unum innan þess,“ segir Hervar.
Hann segir alla gagnrýni eiga rétt á
sér svo fremi hún sé sett fram á
málefnalegan hátt.
GE
Stækkun leikskóla
Bæjarstjóm Akraness lagði firam
þá tillögu á fundi sínum fyrir
skömmu að samþykkt yrði að bæjar-
stjóra, leikskólafúlltrúa og bygginga-
fulftrúa yrði falið að skoða hvort
hagkvæmara væri að stækka leikskól-
anni Vallarsel eða leikskólann Garða-
sel. Stefna átti að því að athuguninni
yrðij lokið það tímanlega að hægt
væriiað taka tillit til þessara mála við
gerð fjárhagsáætlunar.
Míkil þörf er fyrir aukið leikskóla-
pláss á Akranesi og eins og fram kom
í Skessuhomi fyrir skömmu bíða nú
26 böm efdr plássi. Ljóst þykir að
biðlistar eigi efdr að lengjast ffekar
en hitt og því þykir bæjarstjórn
nauðsynlegt að taka ákvörðun um
næstu skref í fjölgun leikskólaplássa
á Akranesi sem fyrst.
Tillögunni var vísað til umfjöll-
unar í bæjarráði og á bæjarráðsfundi
þann 14. september síðastliðinn var
komist að þeirri niðurstöðu að ekki
væri tímabært að skoða valkostina í
þessum efnum þar sem ekki er gert
ráð fyrir ffamkvæmdum til að auka
rými á leikskólum í þriggja ára áæd-
un bæjarsjóðs. Auk þess mun fjár-
hagsgeta bæjarsjóðs ekki leyfa fram-
kvæmdir í leikskólamálum á næsta
ári vegna þeirra framkvæmda sem
nú standa yfir vegna einsetningar
grunnskólanna á Akranesi. Bæjar-
stjóra var þó falið að leggja ffam
upplýsingar um lóðastærðir og regl-
ur um lóðastærð við leikskólana
Garðasel og Vallarsel.
Bæjarráð lagði þess utan til við
bæjarstjóm að fyrir gerð næstu fjár-
hagsáædunar yrðu mótaðar tillögur
að reglum um niðurgreiðslu á kostn-
aði við vistun bama, eldri en tveggja
ára, líkt og þekkist hjá sveitarfélög-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Kjúklingar
tilboðsveró kr.
Kleinur kr. 298-
tilboðsverð kr.
Samlokubrauð gróf kr. 2
tilboðsverð kr.
Pizzubotn kr. 226,-
tilboðsverð kr.
Melónur, gular kr. 149,-
tilboðsverð kr«
Kínakál kr. 298,-
Kellogg's Special K 500 gr. + 50% extra
kaupir I pakka - úr frítt með!
kaupir 2 pakka - vekjaraklukka frítt með!
kaupir 3 pakka - bolti frítt með!
Verið velkomin!
Sími 430 5533