Skessuhorn - 26.10.2000, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi:
Akranesi:
Borgarbraut 49
Kirkjubraut 3
Sími: (Botgornes og Akrones) 430 2200
Fax: (Borgornes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: íslensk upplýsingatækni 430 2200
Frarakv.stjóri: Magnús Magnússon 894 8998
Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 892 4098
Internetþjónusta: Bjarki Mór Karlsson 899 2298
Blaðamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 13)0
Ingi Hans Jónss., Snæfellsn. 895 6811
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 430 2200
Prófarkalestur: Asthildur Magnúsdóttir og fleiri
Umbrot: Jölvert
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja hf
islensk@islensk.is
ritstjori@skessuhorn.is
internet@islensk.is
sigrun@skessuhorn.is
ingihans@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 250 kr.
430 2200
Kvenna-
fiídagur
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
; Fjölmiðlar lifa ekki ;á fréttunum einum saman. Einfaldlega
vegna þess að það er aldréi nóg framboð af þeim, Af þeim sökum
var sá siður tekinn upp að halda upp á affnæli einstakra rétfa. Því
er það ekki aðeins frétt þegar einhver atburður á sér stað, heldur
í hvert skipti sem ákveðinn árafjöldi er liðinn þaðan í frá.
Þannig varð það til að bjarga annars ömurlegum þriðjudegi
þegar einhver mundi eftir því að þá voru liðin akkúrat nákvæm-
lega slétt tuttugu og fimm ár ffá því kvennaffídagurinn var firnd-
inn upp á Islandi. Þar með gátu allir fjölfniðláHaridsins éytt deg-
inum í að rifja upp tuttugu og fimm ára sögu kvennafrídaga á ís-
landi og auðvitað voru allar konur sem hægt var að ná í spurðar
hvað þær voru að gera á þessum degi fyrir tuttugu og fimm árum.
Glöggir fréttamenn hefðu að vísu átt að geta getið sér til um
svarið því að sjálfsögðu voru þær allar í ffíi.
Þetta var yndisleg tilbreyting ffá tveggja mánaða samfelldum
fféttafluningi af forsetakosriingunum í Bandaríkjahreppi þar sem
boðið er upp á tvo kandídata sem báðir eru það litlausir karakt-
erar að þeir myndu ekki ná að lífga upp á kirkjugarð.
Nú kann einhver í fljótfærni að ætla mér þá mannvonsku að
fara að agnúast út í kvennaffídaga en slíkt myndi aldrei hverfla að
mér. Mér finnst konum ekki of gott að eiga eins og einn ffídag á
ári. Það er ekki nema sjálfsögð kurteysi að sleppa þeim annað
slagið út úr eldhúsinu. Hinsvegar ber að varast að ganga of langt
í þeim efrium.
Mín revnsla af konum segir mér að því meir sem maður gefur
eftir, því frekari, óforskammaðri og latari verða þær. Ef maður
réttir þeim litla putta þá éta þær vettlinginn.
Sögulegar staðreyndir tala líka sínu máli. íslenskar konur voru
ekki fyrr komnar með kosningarétt en þær heimtuðu að láta kjósa
sig líka, þær heimta laun, völd og áskriff að Séð og heyrt og það
eru í raun engin takmörk fyrir hvað þeim dettur í hug að fara
ffam á.
Það verður því einhversstaðar að setja mörkin og það eru alla-
vega tvær manneskur í landinu sem nú þegar hafa gert sér grein
fyrir því. Annarsvegar ég sjálfur og hinsvegar hæstvirtur dóms-
málaráðherra. Hennar kvenlega innsæi segir henni að það verði
að takmarka völd kvenna í ljósi þess að þær eru í eðli sínu tak-
markaðar. Því bar hún gæfu til þess að setja kynsystrum sínum
stófinn fyrir dymar á dómssalnum, það er að segja að finna slark-
færan karl í staðirm. Konur eru með öðrum orðum ekki dóffibær-
ar. .,f ■ , , * .
Frú Dómhildur veit sem er að maður ræður ekki konu í störf
sem karlar nenna að sinna. Því ber að fagna því að enginn karl
skuli sína embætti dómsmálaráðherra áhuga. Eg er nefriilega
þeirrar skoðunar að það eina sem réttlætir að konu sé hleypt út
úr eldhúsinu sé að hún sé gerð að dómsmálaráðherra. Þar nýtdst
húsmóðureðlið, nýtnin og sparsemin í almannaþágu. Það verður
með öðrum orðum að viðurkennast að aldrei hefði nokkrum
karlmanni dottið það snjallræði í hug að mæta niðurskurði í lög-
gæslu með því að klippa út dúkkulísur.
Gísli Einarsson, femínisti.
Rannsókn á áhrifum Suðurlandsskjálfta
Borgnesingar
til viðmiðunar
íris Böðvarsdóttir, nemi í sálffæði
við háskólann í Aarhus í Danmörku
hefur valið það sem lokaverkefni að
gera athugun á sálrænum afleiðing-
um Suðurlandsskjálftanna í sumar.
Sem samanburðarhóp hefur hún
valið Borgarnes. “Fyrir þremur vik-
um lagði ég spurningalista fyrir
böm ffá 10 til 16 ára í Grunnskólan-
um í Borgarnesi og síðan voru 150
spurningalistar sendir út til fólks, 16
ára og eldri í Borgarnesi. Svörin
verða síðan notuð sem viðmið við
svör Simnlendinga,” segir íris. Hún
hvetur þá sem hafa fengið spuming-
arlista tdl að senda inn svör því ann-
ars verði rannsóknin ekki marktæk.
GE
Borgarbyggð
greiði bætur
Héraðsdómur Vesturlands hefur
dæmt sveitarfélagið Borgarbyggð
til að greiða Auði Hrólfsdóttur
tólfhundruð þúsund krónur í
skaða auk dráttarvaxta og máls-
kostnaðar vegna þess að fiam hjá
henni var gengið við ráðningu
aðstoðarskólastjóra Grunnskóla
Borgamess í júní 1997.
í janúar 1999 var Borgarbyggð
gert að greiða Auði Hrólfsdóttur
300.000 krónur í miskabætur á
gmndvelli jafnréttislaga auk máls-
kostnaðar og miskabóta. Auður
höfðaði síðan mál í annað sinn á
hendur Borgarbyggð og krafðist
rúmlega 9 og hálfrar milljónar
króna í skaðabætur vegna launa-
missis.
Dófnurinn komst að þeirri nið-
urstöðu að hæfilegar bætur væm
krónur 1200.000 með vöxtum og
auk þess sem Borgarbyggð væri
gert að greiða málskostnað.
Akranesbær segir
upp leigusamningum
Akranesbær hefur sagt upp leigu-
samningum á ellefu íbúðum í eigu
bæjarins sem allar era í blokkinni að
Höfðabraut 14 - 16 á Akranesi.
Blokkin var byggð í félagslega íbúða-
kerfinu laust upp úr 1960 en Akra-
nesbær hefur leyst til sín 11 af þrett-
án íbúðum sem þar era og leigir þær
út. Nú hefur öllum leigjendum verið
sagt upp samningum og gert að rýma
húsnæðið innan 6-12 mánaða.
Gísli Gíslason bæjarstjóri segir það
hafa verið vilja bæjaryfirvalda að selja
íbúðimar í núverandi ástandi og að
Akranesbær og íbúðalánasjóður
skipm með sér afföllunum. Á það
hafi ekki verið fallist af hendi ríkisins
og lítill vilji þar á bæ til að taka þátt í
endurbótum á húsnæðinu. “Það
virðist vera stefrian hjá ríkisvaldinu
varðandi félagslega íbúðakerfið að
skella skuldinni alfarið á sveitarfélög-
in,” segir Gísli.
GísU segir að þótt öllum leigu-
samningunum hafi verið sagt upp nú
sé ekki þar með sagt að fólk þurfi að
flytja út um leið og fresturinn renni
út. “Með þessu er verið að losa um
Gísli Gíslason bæjarstjóri.
samninga og samræma uppsagnar-
ffest sem er ýmist sex eða tólf mán-
uðir. Það var tafið nauðsynlegt til að
allir samningar geti verið lausir á
sama tífna þegar að endurbótunum
kemur,” segir Gísli. Hann kvaðst
ekki geta sagt um hvenær ráðist yrði
í lagfæringar á blokkinni, það væri
vissulega orðið aðkallandi en það
þyrfti að nást einhver niðurstaða í
deilunum milli sveitarfélagsins og
Ibúðarlánasjóðs. GE
Með bilað spil
Helga María AK-16 kom til
Hafriarfjarðar á mánudag með bil-
að togspil. Að sögn Sveins Stur-
laugssonar, útgerðarstjóra HB hf er
bilunin ekki talin alvarleg en skipið
tefst frá veiðum einhverja daga.
Gert er ráð fyrir að viðgerð ljúki í
vikunni. Helga María var búin að
vera viku á veiðum og hafði aflað á-
gætlega, var komin með aflaverð-
mæti upp á 13 til 14 milljónir.
K.K.
Banaslys
Banaslys varð á sunnanverðu
Snæfellsnesi um hádegisbil s.l.
sunnudag. Stúlka um tvítugt
lést er bíll hennar valt á Hrauns-
múlavegí skammt ffá Kaldármel-
um. Hin látna hét Elín Þóra
Helgadóttir og var til heimilis á
Hraunsmúla. Tildrög slyssins
eru ókunn og er málið í rann-
sókn.
III
Sigurður
hættir
Sigurður Olafsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúss Akra-
ness, hefur sagt upp störfum.
Sigurður hefur starfað á sjúkra-
húsinu í 35 ár en hann kemur til
með að sinna starfi sínu áffam til
áramóta.
SÓK
Ríkið
sýknað
Hæstiréttur sýknaði í síðustu
viku ríkið af kröfrim Sigurðar
Gizurarsonar, fyrrverandi sýslu-
manns á Akranesi. Forsaga máls-
ins er sú að dómsmálaráðherra
veitti Sigurði áminningu sem
hann taldi ekki vera réttmæta.
SÓK
Sviðsstjóri
Bæjarráð Akraness hefur falið
bæjarstjóra að auglýsa starf sviðs-
stjóra fyrirtækjasviðs laust til
umsóknar. Drög að starfslýsingu
hafa verið gerð.
SÓK
ÞÞÞ greiði
15 milljónir
Hæstiréttur hefrir samþykkt
kröfrir þrotabús Þórðar Þórðar-
sonar um að rifta ráðstöfun eigna
bíffeiðastöðvar Þórðar og eigin-
konu hans til fyrirtækis undir
stjóm sona þeirra og var bif-
reiðastöðinni gert að greiða
þrotabúinu 15 milljónir króna í
bætur. Héraðsdömur Vestur-
lands hafði áður sýknað bifreiða-
stöðina af kröfum þrotabúsins.
SÓK
Ofsaakstur
Akraneslögreglan stöðvaði um
helgina ökumann sem ók á 154
km/klst. Maðurinn var staddur á
þjóðvegi eitt til móts við félags-
heimilið Fannahlíð. Hann slapp
naumlega við að vera sviptur
ökuleyfi á staðnum, en til þess
hefði hann þurft að fara yfir 161
km/klst. Okuleyfið kemur hann
þó til með að missa í tvo mánuði
auk þess sem hann hlaut háa
sekt.
SÓK
Kynningar-
átak
Næsta tölublaði Skessuhoms
verður dreift í öll hús á Vestur-
landi ásamt ítarlegu kynningar-
riti um starfsemi Islenskrar Upp-
lýsingatækni ehf.
GE