Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2000, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 26.10.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 26. OKTOBER 2000 §21SSljiÍíí£K! Mjólkurskólinn á Hvanneyri og Hvítárvöllum - hundrað ára minning Nú er ein öld liðin síðan danski mjólkurfræðingurinn Hans J. Grönfeldt hóf fyrstur manna kennslu í mjólkurfræðum hérlend- is því þann fyrsta nóvember árið 1900 tók Mjólkurskólinn á Hvann- eyri til starfa. Það var Búnaðarfé- lag Islands sem stofnaði skólann og rak hann. Mjólkurskólinn átti eftir að starfa um árabil og hafa mikil á- hrif á framvindu mjólkurvinnslu í landinu, bæði með ráðgjafarstarfi Grönfeldts skólastjóra og rjóma- bústýrunum sem hann menntaði og réðust til starfa hjá rjómabúum víða um land. Rjómabúin voru drjúgur tekjugjafi margra sveita á fyrstu árum 20. aldarinnar og brautryðjendur mjólkuriðnaðar nútímans. Stofnun Mjólkurskólans var einn fyrsti liðurinn í nýsköpun mjólkur- vinnslu hér á landi, jafnframt því að vera einn fyrsti áfanginn í starfsmenntun kvenna á Islandi. Mjólkurskólinn starfaði í þrjú ár á Hvanneyri en haustið 1903 brann hús hans til grunna. Þá var skólinn fluttur til Reykjavíkur, í kjallarann að Aðalstræti 18, en mjaltaæfingar fóru fram í fjósi Þórhallar biskups Bjarnarsonar í Laufási. I Reykjavík átti Mjólkurskólinn aðeins fáa starfsmánuði því hann var fluttur að Hvítárvöllum árið 1904. Þar var hann rekinn allt til 1918 að hann lagðist af í kjölfar dvínandi aðsókn- ar og breytinga á smjörmarkaði. Nær 200 stúlkur stunduðu nám við Mjólkurskólann á starfstíma hans. Mjólkurskólinn er einn af þeim mörgu skólum sem starfað hafa í Borgarfirði. Saga skólans er því gildur þáttur í menningarsögu hér- aðsins. Brautryðjendastarf Grön- feldts skólastjóra leiddi síðar og með sínum hætti til þess að iðn- vædd stóriðja í mjólkurvinnslu komst á í héraðinu, síðast með Mjólkursamlagi Borgfirðinga. I tilefni aldarminningar Mjólk- urskólans heldur Bjarni Guð- mundsson prófessor við Land- búnaðarháskólann á Hvanneyri fyrirlestur um skólann miðviku- daginn 1. nóvember nk. I fyrir- lestrinum verður fjallað um að- draganda stofnunar Mjólkurskól- ans, starfið í skólanum og helstu áhrif hans. Fyrirlesturinn verður haldinn í Matsal Landbúnaðarhá- skólans og hefst kl. 20.30. Ollum er heimill ókeypis aðgangur með- an húsrúm leyfir og boðið verður upp á kaffisopa. Lagopus mutus islandorum Heilir og sælir lesendur góðir til sjávar og sveita! Þessa dagana er íslenska fjallrjúpan talsvert á milli tannana á fólki sökum þess hve ofsótt hún er af kvölurum sínum og kemur hún, á- samt framhaldsskólanemum og Palestínuþjóðinni, sterklega til greina sem fórnarlamb mánaðarins. Rjúpan kann veþyið sjg í köldu loftslggi. Búnihgur hennar ræðst af árstíð, móbrúnn áð sumri en hvítur um vetur. Þetta eru að öllu jöfnu tilvaldir felubúningar en koma sér illá eins og nú þegar jörð er alauð svo fuglinn glampar eins og. endurskinsmerki í auðninni einmitt meðan hálf þjóðin er farin vopnavædd til fjalla á skytterí. Rjúpan er fremur klunnalegur fugl, þungur til flugs og lítt fær um að verjast hinum fjölmörgu óvinum sínum. Til að stofninn verði ekki aldauða fyrir aldur frain hefur verið reynt að vernda hann með því að banna veiðar drjúgan hluta árs og á afmörkuðum svæðurn allt árið. En kl. 12 á miðnætti aðfararnaEtui‘ hins 15. október ár hvert verður rjúpan sekur skógarfugl, óalandi og óferjandi, réttdræp hverjum þeim sem til hennar nær. V/. V'' "■ ‘ ■' ;> - • 'r~ - Þessa nótt - nótt hinna hvössu hagla - skrfðá skótveiðimenn lands- ins úr jeppum sínum. Kappar þessir eru búnir eftir nýjustu tísku úr Veiðimanninum og Nanoq. Þeir eru í sérhönnuðum felubúningum sem Rambó hefði verið stoltur af, með bankaræningjahettu og í miðstöðvarhituðum kuldaskóm. Þeir eru karlmenni í húð og hár, þjóð sinni til sóma, hetjur heiðanna og síðast en ekki síst; þeir eru margir. Fyrri hluta nætur verja þeir í jeppunum akandi fram og aftur, áfram og afturábak og aftur fram; ekki í leit að bráð, heldur bílastæði. Þeg- ar stæðið er fundið er byssan gerð klár, miðunarkíkirinn með inn- rauða hitaskynjaranum settur á og bílastæðið merkt sem punktur á GPS tækið. Þá fyrst er hinn djarfi veiðimaður reiðubúinn að ganga á hólm við andstæðing sinn, fugl dauðans, rjúpuna. Veiðimaður gengur djarfur út í myrkrið. Hann skráir punktana jafn- óðum í GPS tækið svo hann rati til baka (ný útfærsla á gamalli Hans og Grétu tækni). Hann þykist verða einhvers var, leggst niður og tekur mið. Innrauði kíkirinn staðfestir gruninn - um er að ræða ó- svikið fjallahænsn. Skot ríður af og rjúpan fellur. Kveður þá skyndi- lega hundsgá við. Sérþjálfarður enskur setter, grár fyrir skoltum, ræðst að bráðinni og meinar hverjum manni aðgang uns eigandi hundsins mætir á svæðið og lýsir eignarrétti sínum á bráðinni. Þarna eru líka komnir fjórir ef ekki fimm veiðimenn aðrir sem allir þykj- ast hafa fellt rjúpuna og gera til hennar kall. Heyrist þá kveða við I ropi í nánd svo djúpur og fagur að kliður fer um mannskapinn. Við nánari eftirgrennslan kemur í ljós að ropinn kemur ekki úr rjúpu- hálsi, heldur frá fyrrnefndri hundsómynd sem nú hefur bæði sporð- I rennt og ropað bráðinni umdeildu. Okkar maður bölvar fjölmenninu og heldur lengra burt frá bílnum á fáfarnari slóðir. I náttmyrkrinu sér hann ljósa þúst og greinir með berum augum snjóhvítan karra dilla sér í kjarrinu ropandi og fret- andi eins og merkikerti. Veiðimaður þrífur fram haglarann og lætur vaða á helvítið, en helvítið reynist þá ekki vera karri, heldur óæðri ® endinn á annarri skyttu sem gengið hafði til álfreka í lundinum. Verður þeim skotna hverft við og kallar ókvæðisorð heldur ljót á eft- ir okkar manni, enda hafði hann hugsað sér að stanga högl úr tönn- um þessi jól en ekki úr rasskinnum. Kemst okkar maður undan á halupum, flýr lengra til fjalla og týnir á leiðinni GPS tækinu. Þegar birtir af morgni er auðn á alla vegu, skotfærin búin, nestið líka, hríð skollin á og GSM síminn utan þjónustusvæðis. Magnþrota af svefn- leysi og hlaupum tekur hetja heiðanna upp álpoka og skríður í hann í skjóllítilli klettaskoru. I vosbúðinni dreymir hrakinn hálandahöfð- ingja Ora fiskibollur og heitir því að eta aldrei annað á jólum það sem ólifað er, svo fremi að hann bara komist lífs af. I sömu klettaskoru stingur syfðjuð rjúpa höfði undir væng og safn- ar kröftum fyrir aðra átakanótt á vígvellinum. Verið kært kvödd á öðrum Þórsdegi í rjúpu, Bjarki Már Kaiisson sjálfskipaður þjóðháttajrœðingur FneygflrösnornK Tarmlæknir Maður og kona hittust á bar sem endaði með því að þau fóru heim til hennar. Nokkrum drykkjum seínna fer maðurinn úr skyrtunni og þvær sér síðan um hendurnar, fer síðan úr buxunum og þvær sér um hendurnar. Konan sér þetta og segir „Þú hlýtur að vera tannlæknir" Maðurinn frekar undrandi ,Já hvemig vissirðu það“ „Því þú þværð þér svo oft um hendurnar“ svaraði konan. Svo fóru þau uppí rúm og gerðu do do og dú dú. Eftirá sagði konan „Þú ert greinílega mjög góður tannlæknir“ ,Já ég er nú talinn mjög góð- ur tannlæknir en hvemig veist þú það ??“ Jú“ sagði konan „ég fann ekld fyrir neinu ...“ Dómari Saksóknari: Drapstu mann- inn?? Sakbomingur: Nei það gerði ég ekld.. Saksóknari: Veistu hvað dóm þú getur fengið fyrir að ljúga fyrir rétti?? Sakbomingur: Já það veit ég, og það er sko töluvert minna en fyrir morð! Slökkvilið Frú Sigríður hringdi í slökkviliðið: ,Já er þetta hjá slökkviliðinu ? Frú Sigríður heití ég, Gmndargerði 56. Eg var að enda við að gróðursetja sumarblómin í garðinn hjá mér....“ „Er kviknað í hjá þér ?“ „... suin þeirra sérpöntuð að utan. Og svo er það auðvitað limgerðið mitt, sem ég var að enda við að láta klippa....“ „Frú Sigríður, þetta er á slökkvistöðinni, ekki garð- yrkjufélaginu !“ ,Já ég veit, það er neínilega kviknað í hérna í næsta húsi og ég ætla að biðja ykkur að láta það ógert að vaða yfir garðinn minn þeg- ar þið komið að slökkva eldinn.“

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.