Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2000, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 30.11.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 30. NÓVMEMBER 2000 «a£»unu>~ Landeigendur í Svínadal mótmæla nýrri Sultartangalínu Herra S Island Nýburar Keppnin um titilinn Herra Island fór fram síðastliðið fimmtudagskvöld. Keppend- ur af Vesturlandi voru þrír en enginn þeirra náði verð- launasæti að þessu sinni þrátt fyrir að þeir hefðu allir staðið sig með stakri prýði. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Skjá einum og fullt var út úr dyrum á Hót- el Islandi þar sem keppnin fór fram. Reykvíkingurinn Björn Már Sveinbjörnsson sigraði í keppnínni að þessu sinni. SÓK Leifnr Jónsson, Horra Vesturland árið 2000 ásamt karustn sinni, Rut Sigurmmisdótmr, sem flaug til Is- lands alla leiófrá Madrid til þess áð jylgjast með keppninni. Nýfæddir Vesdendingar eru boðnir veJkomnir í heiminn um leið og nýbökuðum foreldrum eru færðar hamingjuóskir. 21. nóveinberkl 23:)4-Sveinbam- Pyngd:í940-Lengd:51 cm. Foreldrar: Hrefiia Sif Heiöarsdóttir og Ingólfiir G. Amarson, Mosfellsbce. Ljósmóöir: Lóa Kristinsdóttir. 22. nóvember kl ll:40-Sveinbam- Þyngd:2945-Lengd:41 cm. Foreldrar: Hafdis Osk Jónsdóttir og Halldór Vil- berg Torfason, Borgamesi. Ljósmóðir: Soffía G. Þórðardóttir. 27. nóvember kl 13:36-Sveinbam- Þyngd:4160-Lengd:54 cm. Foreldrar: Ingunn Benedikta Þórisdóttir og Gunnar Ragnarsson, Grundatfirði. Ljósmóðir: Anna E. Jónsdóttir. 14. nóvember kl 16:46-Sveinbam- Þyngd:4390-Lengd:54 cm. Foreldrar: Hrefna Bjömsdóttir og Andri Þór Theodórsson, Kópavogi. Ljósmóðir: Anna E. Jónsdóttir. Fyrirhuguð stækkun álversins á Grundartanga hefur kallað fram hörð viðbrögð hjá umhverfis- verndarsinnum og íbúum í ná- grenni við umrætt athafnasvæði. Það er hinsvegar ekki aðeins verk- smiðjan sjálf sem málið snýst um. Enda eru margir á þeirri skoðun að það sé lítið við henni að gera íyrst hún sé komin og það breyti kannski ekki öllu hversu stór hún er. Bændur og aðrir landeigendur í Svínadal hafa meiri áhyggjur af nýrri háspennulínu sem væntanleg er til að sjá álverinu fyrir nægjan- HPesflendingur pikuniuir Guðgeir Guðmundsson, 18 ára sundkappi frá Akra- nesi, er Vestlendingur þessarar viku. Hann var einn af þeim sundmönnum frá Sundfélagi Akraness sem kom, sá og sigraði á bikarmóti sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur um síðustu helgi. Guðgeir keppti í 100 metra og 200 metra flugsundi og 1500 metra skrið- sundi og sigraði að vanda í öllum sínum greinum, en að eigin sögn er flugsundið hans besta grein. “Þetta gekk bara nokkuð vel hjá okkur og við unnum í annari deild” segir Guðgeir en honum hefur gengið ágætlega í sundinu í sumar. “Eg var nú samt aðallega í því að bæta mig. A síðasta ári náði ég lágmörkunum í ung- lingalandsliðið og ég var í því síðasta vetur. Það varð í síðasta skipti því ég er orðinn of gamall til þess núna. Svo fór ég líka með Sundfélagi Akraness í æfingabúð- ir til Frakklands í hálfan mánuð.” Það er ekki heiglum hent að stunda íþrótt eins og sundið og að baki góð- um árangri sundmanna standa iðulega þrotlausar æf- ingar til margra ára. Þar er Guðgeir engin undantekn- ing. “Eg byrjaði að æfa sund þegar ég var sjö ára og hef æft síðan með smáhléum sem eru kannski tvö ár í heildina. Núna eru æfingar hjá okkur átta sinnum í viku en við fáum alltaf frí á sunnudögum. Við æfúm alla virka daga og á laugardagsmorgnum og svo eru alltaf tvær morgunæfingar í viku.” Morgunæfingarnar byrja klukkan hálfsex að morgni eins og nafn þeirra gefúr tdl kynna, en Guðgeir segir það ekkert vandamál að rífa sig á lappir fyrir allar aldir þrátt fyrir að flestir á hans reki sofi rótt fram að hádegi í kennaraverkfall- inu. En hvað finnst honum um verkfallið? “Það leggst nú bara ágætlega í mig! Eg er búinn að vera að vinna aðeins í garðyrkjudeildinni þar sem ég hef unnið síð- ustu tvö sumur en þar er enga vinnu að hafa þessa dag- ana svo ég fer bara á æfingar og hangi þess á milli.” Guðgeir segir aðspurður að sundæfingarnar hafi lítið bitnað á sumarvinnunni þrátt fyrir að þær væru átta sinnum í viku þar sem Akranesbær borgaði honum laun fyrir að synda frá átta til níu, en æfingarnar voru frá klukkan sjö til níu. Guðgeir er í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem hann leggur stund á rafeindavirkjun og rafvirkjun. “Eg Guðgeir Guðmundsson veit ekki alveg hvenær ég útskrifast en ég stefni á að fara í Iðnskólann á næstu haustönn en þar er boðið upp á þriggja anna nám í rafeindavirkjun.” Einhverjir myndu halda að ekki væri pláss fyrir áhugamál f lífi þessa unga manns, en því er öðru nær. “Tónlist er mitt aðaláhugamál” segir Guðgeir sem heldur einna mest upp á rokktónlist. “Eg á mér þó enga uppáhaldshljóm- sveit en ég get nefút Botnleðju og Deftones. Utivist og íþróttir almennt vekja líka áhuga minn. Ég á vélsleða sem mér finnst gaman að fara á og þegar ég hef tíma til fer ég upp á Snæfellsjökul á honum. Einnig finnst mér skemmtilegt að fara á skíði.” Markmið Guðgeirs eru háleit og það helsta er að komast á Ólympíuleikana í Aþenu árið 2004. “Eg reyndi nú ekki að komast núna og var svolítið langt ffá lágmörkunum. Eg er samt ákveðinn í að hætta ekki fyrr en ég hef keppt á Ólympíuleikum.” SÓK Búist er við að Sultartangalína 3 liggi utan í Skarðsheiði og þvertyfir Svínadalinn. legri raforku í framtíðinni, svokall- aðri Sultartangalínu 3. Endanleg staðsetning línunnar liggur ekki fyrir en miklar líkur eru á að hún liggi utan í Skarðsheiðinni og yfir Svínadalinn þveran. Aform Lands- virkjunar varðandi lagningu lín- unnar hafa ekki verið kynnt fyrir landeigendum né sveitarstjórn en margir hafa lýst áhyggjum sínum yfir væntanlegum framkvæmdum. Málið var meðal annars tekið fyrir á aðalfundi félags sumarbústaða- eigenda í Svínadal í sumar. “Þar var einróma samþykkt að mótmæla kröftuglega þessum áformum,” segir Halldór Kolbeinsson for- maður félagsins. “Það dylst engum að háspennulína af þessari stærð- argráðu sem borin er uppi af allt að þrjátíu metra háum möstrum er gríðarlegt lýti fyrir landið og stór- skemmir þessa náttúruperlu sem Svínadalurinn og Hvalfjörðurinn vissulega er. Lögfræðingur Land- sambands sumarbústaðaeigenda tók við ályktun aðalfundarins og sendi til Landsvirkjunar og hreppsnefndar Hvalfjarðarstrand- arhrepps. Við fengum jákvætt svar frá Hreppsnefnd þar sem okkur var tjáð að þessu máli yrði fylgt eftir en við höfúm ekki heyrt orð frá Landsvirkjun,” segir Halldór. I félagi sumarhúsaeigenda í Svínadal eru um 70 aðilar sem all- ir eru eigendur sumarbústaðalóða. Auk þess eru um 300 sumarbústað- ir í sveitinni á leigulóðum. Halldór segir að þar sem líklegast sé að lín- an muni liggja um sé vinsælasta útivistarsvæði sveitarinnar. “Það var hér háspennulína fyrir þegar byrjað var að reisa hér sumarhús og við því var ekkert að gera. Við höfúm hinsvegar lítinn áhuga á að láta girða okkur algjörlega af með slíkum mannvirkjum. Það er okkar krafa að skoðað verði hvort ekki sé möguleik að grafa þetta í jörð þar sem farið er í gegnum byggð eða að minnsta kosti verði farið með þetta eins fjarri byggðinni og hægt er,” segir Halldór að lokum. GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.