Skessuhorn - 30.11.2000, Blaðsíða 23
SHSSifHi/iLíj
FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 2000
23
IA aftur upp í fyrstu deild
Bikarkeppnin í sundi var haldin
í Sundhöll Reykjavíkur síðastliðna
helgi. IA keppti þar í annarri
deild, en þangað féll liðið naum-
lega í fyrra. Það er skemmst frá
því að segja að Skagamenn sigr-
uðu og er IA því aftur komið upp
í fyrstu deildina í sundi eftir
skamma fjarveru. Að sögn Eyleifs
Jóhannessonar, sundþjálfara, var
liðið nokkuð jafnt og góður andi
var í hópnum, þar sem flestir voru
að synda ágætlega, þrátt fyrir tölu-
verð veikindi síðustu vikurnar fyr-
ir mótið, en það kom ekki að sök.
„Um stigakeppni milli félaga er að
ræða þar sem keppt er í tíu karla-
greinum og tíu kvengreinum auk
boðsunda. Hvert lið sendir tvo
sundmenn í hverja grein og eina
sveit í hvert boðsund, en hver og
einn má ekki keppa í meira en
þremur einskaklingsgreinum. Lið
IA er mjög ungt að árum meðal-
aldur aðeins um 15 ár, þannig að
framtíðin er mjög björt á Skagan-
um. Til marks um það má geta
þess að kvennalið okkar var stiga-
hæst á mótinu." Lokastigaúrslit
urðu þau að IA var eins og áður
sagði í fyrsta sæti með 21.963 stig
og Njarðvík í öðru sæti með
21.646 stig. Þessi tvö lið komast
upp í fyrstu deild en Breiðablik og
Armann falla niður. Lið IA og lið
Njarðvíkur stóðu sig áberandi best
á bikarmótinu en karlalið IA lenti
einmitt í öðru sæti á eftir Njarð-
vík.
SÓK
Guígeir Gudmundsson sundmaður
Afleitt gengi
Skagamanna
Á föstudaginn tapaði lið Skaga-
manna í 1. deild í körfuknattleik
stórt á heimavelli sínum gegn
Breiðablik og var þetta fjórði tap-
leikur liðsins í röð. Andleysi ein-
kenndi leik Skagamanna í þessum
leik. Gestirnir gengu fljótt á lag-
ið og náðu öruggu forskoti með
því að gera 16 stig í röð undir lok
fyrri hálfleiks og staðan í hálfleik
var 27 - 52. Breiðabliksliðið hélt
síðan áfram að auka forskot sitt
jaftit og þétt á meðan Skagamenn
léku afleitlega og töpuðu boltan-
um klaufalega hvað eftir annað.
Svo virðist sem sjálfstraust þeirra
sé í algjöru lágmarki og til marks
um það má geta þess að þeir hittu
einungis úr 6 af 19 vítaskotum
sínum. Lokatölur leiksins urðu
59-107 og ljóst er að liðið verður
að taka sig saman í andlitinu ætli
það sér einhverja hluti í vetur.
Stigahæstir Skagamanna í leikn-
um voru Trausti Jónsson með 13
stig og Halldór Jóhannesson með
12 stig.
SÓK
Vilja aukn-
íþróttafulltrúi Akraness, Stef-
án Már Guðmundsson, kynnti á
síðasta fundi íþróttanefndar bréf
sem hann hefur sent bæjarráði
þar sem tekinn er ffam kostnað-
ur vegna viðhalds íþróttamann-
virkja á Akranesi á næsta ári.
Kostnaður við slíkt viðhald er
töluverður og íþróttanefhd hef-
ur hvatt bæjarráð til þess að auka
fjárveitingar til viðhalds og
reksturs íþróttamannvirkja á
komandi ári. SOK
-------------I-
•S'.QSAéXU
' SÍSJHES: I
Frd mdirritun samnmgsins
Samið við efiiilega
knattspymumenn
Stjórn knattspymufélágs ÍA boð-
aði til blaðamannafundar síðastlið-
ið þriðj udagskvöld. Tifefnið var
undirritun KFIA við fjóra af efni-
legusttu yngri leikmönnum Akra-
ness. Leikmennirnir eru: Garðar
Bergmann Gunnlaugsson, 17 ára
miðju- og sóknarmaður, JCristján
Hagalín Guðjónsson, 16 ára miðju-
maður, Þorsteinn Gíslason, Í6 ára
varnarmaður, og Elínbergur
Sveinsson, 18 ára varnarmaður. All-
ir em drengirnir ættaðir af Mtra-
nesi fyrir utan Elínberg sem kernur
frá Olafsvík. Samningurinn við El-
ínberg er áframhald þeirrar vinnu
hjá KFIÁ er iýtur að því að gefa
tingum og efniiegum leikmönnum
frá rninni félögum tækifæri til að
taka frantförum við bestu aðstæður
sem völ er á á Islandi. Nægir í því
sambandi að nefna nöfn þeirra
Grétars Steinssonar, Baldurs Aðal-
steinssonar, Hálfdáns Gíslasonar
og Guðjóns Sveinssonar sem allír
komu til félagsins á sömu forsend-
um og Elínbergur,
Smári Guðjónsson formaður
Knattspymufélags LA sagði í sam-
tali við Skessuhorn að með þessum
samningum vildj stjórn KFÍA
leggja áherslu á þá stefnu sína að
hlúa beri að yngri leikmönnum fé-
lagsins “enda sé öflugt unglinga-
starf forsenda fyrir framgangi og
samkeppnishæfni þess i keppni
þeirra bestu á Island.” Þrír af þess-
um fjórum leikmörinum eiga
drengjalandsleiki að baki, þeir
Garðar, Kristján og Þorsteinn. Fvrr
í vetur höfðu þeir Almar Viðarsson,
Helgi Valur Kristinsson og Páll
Gísli Jónsson gert viðlíka samninga
við félagið.
HH
Siggi hættiir
Sigurður Jónsson,
knattspyrnumaður
hjá IA, hefur rift
samningi sínum við
félagið eftir að hafa
spilað með Skaga-
mönnum síðan í
sumar. Samningur-
inn var upphaflega
gerður til tveggja
ára. Sigurður segist
þó ekki vita hvað
hann ætli að taka sér
fyrir hendur: “Eg er
nú ekki enn búinn að
ákveða hvað ég geri
eða hvar ég verð. Eg
er reyndar byrjaður
að æfa aðeins aftur
en það er óvíst hvað
ég geri á næsta ári.
Eg fékk tilboð frá
Keflavík um stöðu
þjálfara en þar slitn- Sigurður Jójtsson
aði upp úr samn-
ingaviðræðum svo þjálfarastarf er Iegt að knattspymufélagið sé að
ekki inni í myndinni eins og er.”
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum vom samningsslitin við
IA gerð í mesta bróðemi. “Eg er
að flytja til Reykjavíkur þar sem ég
er búinn að kaupa mér hús. Mér
finnst einfaldlega ekki réttlætan-
borga mér laun þegar ástandið er
eins og það er. Eins og komið hef-
ur fram þá er fjárhagsstaðan ekki
nógu góð hjá þeim og hér er mik-
ið af ungum strákum sem bíða eft-
ir að fá að spreyta sig.”
SÓK
VQtu vinna milljón?
Stöð 2 er að hefja upptökur á
einstaklega spennandi spurninga-
þættí í desember sem heitir “Viltu
vinna milljón?" Nú er verið að velja
þátttakendur í fyrstu tvo þættína,
sem teknir verða upp í Reykjavík
14. desember. Það er gert með því
að fólk hringir í síma 907 2121 og
svarar einni einfaldri spurningu.
Svo sér tölva um að velja úr nöfh-
um þeirra sem svara rétt og sex
einstaklingar komast í hvern þátt.
Stöð2 leggur mikla áherslu á að fá
fólk hvaðanæva að af landinu í
þáttinn og greiðir farareyri þeirra
sem búa utan höfuðborgarsvæðis-
ins ef það er valið í þáttinn.
„Eg vil kannski orða það þannig,
að þetta sé landsleikur” segir
stjórnandi þáttarins, Þorsteinn J.
„Það er ekkert sjónvarp án áhorf-
enda og spurningaleikur verður
ekki til án keppenda. Það er þess
vegna mikilvægt að fá sem flesta
til að hringja í 907 2121, til að
tryggja að sem fjölbreyttastur
hópur fólks taki þátt í þessum
spennandi spumingaleik.”
Þátturinn er gerður að fyrirmynd
spurningaþáttarins „Who wants to
be a millionaire," sem hóf göngu
sína í bresku sjónvarpi fyrir rúrnurn
tveimur ámm. Þátturinn náði því-
líkum vinsældum að hann hefur nú
verið staðfærður í 38 löndum að Is-
landi meðtöldu.
Fyrsti þátturinn er á dagskrá
Stöðvar2 á öðmm degi jóla, klukk-
an 20.00. Hann verður svo viku-
lega á dagskrá á nýju ári, á sunnu-
dagskvöldum klukkan 20.00.
Það er rétt að vekja athygli á því
að hvert símatal kostar 199 krónur
og þátttakendur þurfa að hafa náð
16 ára aldri.
(Fréttatilkynning)
Kaffihús unga
fólksins
Nú í haust réð FAG, Félag at-
vinnulífsins í Gmndarfirði til sín
nýjan starfsmann. Nýi starfs-
maðurinn er 21 árs stúlka Dögg
Mósesdóttir. Og eins oft er sagt
fy-igja nýir siðir nýjum herrurn,
eða dömum sem ekki á síður við.
Félag atvinnulífsins í Grundarfirði
hefur látíð sig varða flest í velferð
Grandarfjarðar og nú er kotnið að
unga fólkinu. Hinn nýi starfs-
maður hefur unnið að |iví að koma
á fót kaffihúsi fyrir ungt fólk í
bænum. Nú hefur veriö samið
við Hótel Framnes unt að hótelið
láni FAG sal undir þessa starfsemi.
Hótelið mun sjá um rekstur
húsnæðisins og veitingar en starfs-
maður FAG hefur umsjón tneð
starfseminni. Kaffihúsið verður
opnað á morgun 1. desentber.
Gert er ráð fyrir að kaffihiisið
verði opið öll kvöld frá kiukkan
20:00 - 24:00 og að aldurstakmark
verði 14 ár. Á þessu kaffihúsi
uttga fólksins verður öll meðferð
áfengis og tóbaks bönnuð. “Eg
vil bara minna ungt fólk á að þetta
kaffihús er tileinkað okkur unga
fólkinu og gengi þess er gjörsam-
lega háð okkar framtaki. Það er
því mjög mikilvægt að sem flestir
sýni viljann í verki tii aö halda
þessu gangandi frá fy'rsta degi,”
sagði Dögg Mósesdóttir bjartsýn á
verkefnið og þakklát þeim velvilja
sem gerir þetta mögulegt.
IH