Skessuhorn - 30.11.2000, Qupperneq 14
14
FIMMTUDAGUR 30. NÓVMEMBER 2000
asíssuinu^]
Fregnir írá
Hörpuútgáfunni
Hörpuútgáfan á Akranesi er að
gefa út nokkrar nýjar bækur um
þessar mundir.
Lífsgleði
Lífsgleði - minningar og frásagn-
ir sem Þórir S. Guðbergsson
skráði. I bókinni rifja fimm þekktir
Islendingar upp liðnar stundir og
lífsreynslu.
Séra Birgir Snæbjörnsson er
þekktur fyrir frásagnargleði og
skemmtileg stílbrögð. Hér rifjar
hann upp nokkrar eftirminnilegar
sögur ffá æskuslóðum á Akureyri,
bernskubrekum, sögulegri flugferð
og atvik úr farsælu prestsstarfi.
Einnig segir hann frá kynnum sín-
um af blindum, einstökum bónda í
Bólstaðarhlíðarhreppi.
Jón Guðmundsson, bóndi og fv.
oddviti á Reykjum í Mosfellsbæ, er
löngu þekktur fyrir störf sín, einnig
sérstæðar og skemmtilegar ffásagn-
ir. Asamt æskuminningum sínum
segir hann á efdrminnilegan hátt
frá samferðamanni sínum og efrir-
minnilegum sveitunga, Stefáni
Þorlákssyni í Reykjahlíð, sem Hall-
dór Laxness minnist á í Innansveit-
arkróníku.
Margrét Thoroddsen, húsmóðir
og viðskiptafræðingur, rifjar upp
æskuminningar úr Reykjavík á fyrri
hluta aldarinnar. Hún segir frá eft-
irminnilegum árum í Bandaríkjun-
um og Mexíkó og háskólaárunum
efrir að hún settist á skólabekk 57
ára. Þekkmst er Margrét fyrir störf
sín hjá Tryggingastofhun og Félagi
eldri borgara.
Páll Gíslason, yfirlæknir er löngu
landsþekktur fyrir störf sín sem
læknir, skátahöfðingi, borgarfull-
trúi í Reykjavík og formaður í Fé-
lagi eldri borgara. Páll rifjar upp
einstakar minningar frá læknis-
störfum á Patreksfirði og Norðfirði
um miðja öldina, þegar aðstæður í
heilbrigðismálum voru frumstæðar
og heilbrigðismálin í mótun.
Ragnheiður Þórðardóttir, hús-
móðir á Akranesi, ekkja Jóns Arna-
sonar alþingismanns, segir frá
bernskuárum á Skaganum og eftir-
minnilegu fólki sem hún kynntist á
þeim tíma. Þá rifjar hún upp að-
draganda og stofnun Kvenskátafé-
lagsins á Akranesi, lýsir ævintýra-
legum ferðum þeirra stallsystra og
ógleymanlegum útilegum.
Hver er sinnar
gæfu smiður
Hörpuútgáfan hefur sent ffá sér
nýja bók efrir höfundinn vinsæla
Bodil Forsberg. I bókarkynningu seg-
ir: Ótrúlega spennandi og hrífandi
saga tveggja hjóna og dætra þeirra,
sem fæddust sama daginn á sömu
fæðingarstofu, atburðarás sem varð
kveikjan að meiri erfiðleikum og verri
ógöngum en nokkum hafði órað fyr-
ir. A fyrsta skóladegi lidu dóttur sinn-
ar fær Nína skyndilega hugboð um að
bamið hennar og Lennarts, mannsins
hennar, sé ekki þeirra bam. Þau höfðu
vafið litlu stúlkuna ást og umhyggju í
sjö ár, en þá vaknar grunur um að ekki
sé allt með felldu. Karen og Harrý
hafa í raun alið upp hið rétta bam
þeirra Nínu og Lennarts, því að á
fæðingardeildinni höfðu orðið dapur-
leg mistök. Og svo birtist Karen
tískuhönnuður og krefst fallega fyrir-
myndarbarnsins síns og vill skila
„ljóta andarunganum“ sem hún og
Harrý maður hennar höfðu ffarn að
því alið upp í misgripum sem sitt
bam.
Háskaflug
Komin er út hjá Hörpuútgáfunni á
Akranesi ný bók eftir metsöluhöfund-
inn Jack Higgins. I bókarkynningu
segir: Háskaflug er sannkölluð tlug-
hetjusaga með öllum þeint ógnum og
skelfingaraugnablikum, sem herflug-
menn einir upplifa. Höfundurinn
þekkir flug og aðstæður herflug-
manna af eigin reynslu. Bókin segir
ffá bandarísku tvíburabræðunum
Harry og Max Kelso sem vora að-
skildir í æsku. Þeir vora um tvítugs-
aldur í byrjun síðusm heimsstyrjaldar
og báðir flugmenn, Max í flugher
Þjóðverja og Harry í flugher Breta.
Þar lenda þeir bræður í flugorrastum
í návígi. Annar fær það verkefhi að
myrða Eisenhower, hinn að drepa
Hitler. Hvoragur gat séð fyrir þær
djöfullegu aðstæður sem biðu þeirra
um það bil sem innrás herja Banda-
manna í Normandí vofði yfir. Þeir at-
burðir urðu kveikjan að svívirðilegu
ráðabruggi og háskalegum fyriræd-
tmum sem virrn engin siðalögmál.
Hljóðbækur
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
fimm nýjar hljóðbækur undir heit-
inu „Hljóðbækur Hörpuútgáfunn-
ar“. Flytjendur og sögumenn: Heið-
dís Norðfjörð og Bessi Bjamason.
Fyrir síðusm jól sendi Hörpuútgáf-
an ffá sér þrjár hljóðbækur í þessum
flokki: Sögur fyrir svefhinn, Þjóð-
sögur og ævintýri og Jólasögur. I
hverri öskju era tvær snældur (Lest-
ur 3 klst). Lögð er áhersla á vandað-
ar þýðingar og flutning. Nýju hljóð-
bækumar eru: Emil í Kattholti, Æv-
intýri HC Andersen 1-2, Ævintýri
HC Andersen 3-4, Ævintýrin okkar
1 -2 efrir Heiðdísi Norðfjörð og Æv-
intýri frá annarri stjörnu 1-2 eftír
sama höfund.
Hljóðleikar
Ljóðabók Jóhanns Hjálmarssonar,
Marh'ðendur (1998) vakti mikla at-
hygli og fékk góða dóma gagn-
rýnenda. Bókin hefur að hluta eða í
heild verið þýdd á mörg tungumál og
er væntanleg á spænsku. Hún hefur
verið kynnt víða um heim, m.a. í
Bandaríkjunum, á alþjóðlegri ráð-
stefhu í Venezuela og á Bókastefn-
unni í Gautaborg.
Hljóðleikar er sextánda ljóðabók
Jóhanns Hjálmarssonar. Eins og bók
hans Marlíðendur, sækir hún efni í
Eyrbyggju og aðrar íslenskar fomsög-
ur og eddukvæði. Þannig má segja að
hún sé eins konar ffamhald Marlíð-
enda. Einnig er ort um landafundi Is-
lendinga og Vínland. Flest ljóðaima
eru þó úr eigin umhverfi skáldsins og
sum afar persónuleg. Jafhframt því
sem ljóðin endurspegla tímann, ferð-
ir og hugmyndir er leitað til upp-
runans og dregnar upp myndir úr for-
tíð.
Máttur bænarinnar
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
endurútgefið bókina Mátmr bænar-
innar eftír hinn þekkta kennimann
Norman Vmcent Peale. Llann varð
fyrst kunnur hér á landi þegar bók
hans „Vörðuð leið til lífshamingju"
kom út árið 1965. Bænimar í bókinni
gáfu Peale kjark og kraft til að takast á
við lífið. Sömu reynslu hafa hinir fjöl-
mörgu lesendur hans upplifað. Allir
geta fundið hér bænir tíl að nota í
gleði og sorg. Að auki geymir bókin
leiðbeiningar um bænaiðkun og um-
fjöllun um gildi bænarinnar í daglegu
lífi okkar. Þær eru komnar á prent
til að vera öðram til sama gagns.
Þessi ágæta bók hefur verið ófáan-
leg um nokkurt skeið.
Arlegir aðventutánleikar Tónlistarfélags Borgarfjarðar, Bm-grirfjarðaiprófastscLrmis og Reykholtskirkju veröa haldnir laugardaghm 2. desember
nœstkomandi og hefjast klukkan 16.00. Aðþessusirmi erþaS Kammerkór Vestmiands sem kemurfram á tórdeikunum. Kórimi var stofiuiðut '
árið 1999 meðal annars íþví augiiumiði að veita tónlistarmenntuðu fólki í héraðinu tœkifeeri til aðfást við metmðarfull verkefin á sviði
sönglistar. StjórnmuB kársbis er Dagrún Hjartardóttir en hún er Borgfirðingtim að góðu kunn fyrir störfað tónlistarkenmlu og kórstjóm.
A rfnisskrá tónleikamia eru m.a. mótcttur eftir Meudelssohn, Brahms og Vivaldi og tveirþættir úr óratoríunni Messías eftir Hándpl. Þáflytur
kórínn eimiig hefðbundna og þekkta aðventutónlist, íslenska og erienda. Undirleikarar ent þau Etva Tosik Warscmiak, fiðla, Zbigniew Dubik,
fiðla, Asgeir Steingrímssm, tivmpet ogjacek Tosik Warstrwiak, oigel. Einsöngvarar kama úr röðum kórsins.
SamstarfTónlistarfélagsJjorgatfiarðq^ pvfastscLemisins og Reykholtskirkju um tónleikaer fastur liðiir imamingarUfi hér í héraði, áaðyentu, og^
hefurávattt notið góðra undirtekta hemuvmanna. A myndinni erKammerkór Vesturlands.
Frá Sögufélagi
Borgarfjarðar
Ut er komið 11. bindi af Borg-
firskum æviskrám, sem Sögufélag
Borgarfjarðar gefur út og hefur að
geyma stuttorðar æviskrár íbúa
Borgarfjarðarhéraðs frá upphafi
átjándu aldar og til þessa tíma.
Upphafsmenn og fyrstu höf-
undar æviskránna vom þrír mætir
fræðimenn, borgfirskrar ættar,
Aðalsteinn Halldórsson, Ari
Gíslason og Guðmundur Illuga-
son. Þeir era nú allir látnir og
stendur Sögufélagið og borgfirsk
ættfræði í stórri þakkarskuld við
þá fyrir mikið og óeiginlegt starf.
Fyrir nokkrum árum tók Dr. Þur-
íður J. Kristjánsdóttir fyrmm pró-
fessor við Kennaraháskóla Islands
við ritstjórn verksins og hefur
jafhframt unnið að rimn æviskráa
ásamt Sveinbjörgu Guðmunds-
dóttur, er tók við verki föður síns,
Guðmundar Illugasonar, er hann
féll frá.
Gert er ráð fyrir að með næsta
bindi verði hægt að ljúka útgáfu
meginmáls ritsins, en síðan er
þess að vænta að gefið verði út
viðbótarbindi með viðbótum og
leiðréttingum.
I æviskránum er að finna miklar
upplýsingar um ættir og æviferil
þess fólks sem lifað hefur og starf-
að í héraðinu og þar er um að
ræða heimildir sem á ókomnum
árum munu gagnast öllum sem
fást við ættfræði og persónusögu
Borgfirðinga.
(Fréttatilkynning)
Ut er komin bókin,
Olafur biskup, æviþættir
Ólafur Skúlason biskup hefur
notið vinsælda og virðingar í
störfum sínum. Hann var prestur
í Norður-Dakota í Bandaríkjun-
um og Bústaðasókn, varð fyrsti
æskulýðsfulltrúi kirkjunnar og
mótaði það starf. Þá var hann
kjörinn til fjölmargra trúnaðar-
starfa. Hann var t.a.m. formaður
Prestafélags íslands,
dómprófastur í
Reykjavík og vígslu-
biskup í Skálholtí áður
en hann varð biskup
íslands 1989.
I bókinni lítur Ólaf-
ur yfir farinn veg.
Hann greinir frá fjöl-
skyldu sinni og upp-
vexti, lýsir kynnum af
fjölmörgu fólki og
fjallar af hreinskilni
um menn og málefni.
Hann lýsir hér ó-
venjulegu lífshlaupi
sínu á þann líflega hátt
sem honum er sérstak-
lega lagið og dregur
ekki fjöður yfir ýmiss
konar átök sem áttu
sér stað innan kirkj-
unnar á starfstíma
hans.
Bókina skráði
Bjöm Jónsson
Ólafur biskup, æviþættir, er 400
blaðsíður. Prentsmiðjan Oddi ehf.
annaðist prentun og bókband.
Útgefandi er Almenna útgáfan.
Æskan ehf. dreifir bókinni.
Njr geisladiskur:
-1 f)arlægð
Ut er kominn geisladiskur með
Theodóru Þorsteinsdóttur
sópransöngkonu og Ingibjörgu
Þorsteinsdóttur píanóleikara.
Diskurinn nefnist I fjarlægð og
hefur að geyma íslensk sönglög
eftir þjóðþekkt tónskáld. Auk þess
eru lög eftir tvo Bor’gnesinga sem
ekki hafa v.erið hljóðrituð áður.
DÍskurinn var’ h'ljóðritáður* í
Stykkishólmskirkju í apríl 2000
og sá Sigurður Rúnar Jónsson um
hljóðupptöku.
Á þessum diski eru hrífimdi
1 söngperlur 'í falléghm flutn'ingi
þéírra Thepdóra 'óg Ingibjargar,
en þær eru Véstlendingum. að
góðu kunnar fyrir ötullt starf í
tónlistarmálum. Þær eru ' báðar
mjög virkar í tónlistarflutníngi og
kennslu, Theodóra er skólástjóri
,og sQpgkennayi við.Tónlistarsk61a_
Borgarfjarðar og Ingibjörg er
skólastjóri, píanókennari og með-
leikari við Tónlistarskóla Stykkis-
hólms.
Theodóra stundaði: söngnám
við Söngskólann í Reykjavík og
einnig í Vínarborg. Ingibjörg
stundaði tónlistarnám við Tón-
-listars'kplanti; í ;Reykjavík og í
Lohdon. Þær sfollur hafa starfað
saman frá árinu 1982 og komið
frahi víða sainan bæði hérlendis
óg erlendis, ýmísf með kórum eða
tvæf saman, haldið nokkra tón-
leiká sainaii og komið'saman fram
í útvarpi og sjónvarpi,
Þessi diskur ér órifissandi fyrir
sanria unnéndiir ísleriskra söng-
lagá. Utgéfaridi.er: Fjölritunar-og
útgáfuþjónustari Borgarnesi.
. (Frittatilkynning)