Skessuhorn - 30.11.2000, Side 15
i>a£»UHuk. J
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
15
Ferðamálasamtök Vesturlands
Pakkhítsið í Olafsvík
Minjagripir
fyrir Snæfellsbæ
í Ólafsvík er starfrækt verslun-
ar- og verksháttasafn í “Pakkhús-
inu”, gömlu verslunarhúsi sem
reist var árið 1844 og stendur í
hjarta bæjarins. Þar er líka starf-
rækt upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn yfir sumartímann.
Stjórn safasins hefur nú ákveðið
að efna til hugmyndasamkeppni
um gerð minjagripa. Stjórnin
óskar efrir hugmyndum að gerð
gripa sem er hagkvæmt að fjölda-
framleiða og fela í sér íslenskt
handverk.
Gripirnir verða að minna á
sögu, menningu, landslag, Jökul-
inn, staði eða náttúru Snæfellsbæj-
ar. Gripirnir þurfa að henta sem
minjagripir fyrir ferðafólk og til
tækifærisgjafa. Tillögum skal
skilað fullunnum. Með tillögun-
um skal fylgja skrifleg lýsing á
framleiðslu, frumgerð, tillaga að
umbúðum og skrifleg tillaga að
markaðssetningu. Boðin eru
verðlaun fyrir þrjár bestu hug-
myndirnar. Skilafrestur á
tillögum er til 15. janúar næst-
komandi. Frekari upplýsingar
um samkeppnina fást hjá skrif-
stofu Snæfellsbæjar.
IH
Jólaljós
Það var ekki laust við að Skaga-
menn ræki í rogastans í síðustu viku
þegar þeim barst dreifibréf með
þeim upplýsingum að gjald fýrir
lýsingu á leiðum í kirkjugarðinum á
Akranesi myndi hækka um ríflega
helming. Astæðan fyrir þessari
miklu hækkun er sú að nýr aðili
kemur til með að sjá um lýsinguna í
stað þeirra Braga Þórs Sigurdórs-
sonar og Hjálms Geirs Hjálmsson-
ar sem hafa annast hana í áraraðir.
Fjölmargir bæjarbúar höfðu sam-
band við Skessuhorn og fóru fram á
að athugað yrði af hverju hækkunin
stafaði. Það vakri einnig forvitni
manna hvers vegna þeir félagarnir
hefðu ákveðið að hætta.
Bragi Þór sagðist ekkert vilja tjá
sig um ástæður þess að þeir hefðu
ákveðið að hætta.
“Þeir Bragi og Hjálmur skrif-
uðu bréf til sóknarnefndar fyrir ári
í kirkjugarðinum
Nýir verktakar
Nytjalist úr náttárunni
í Norskahúsinu í Stykkishólmi
stendur nú yfir sýningin “Nytjalist
úr náttúrunni”. Markmið sýning-
arinnar er að sýna það besta af
nytjalist samtímans. Hlutirnir
voru allir sérhannaðir fyrir þessa
sýningu. Lögð er áhersla á að
samtvinna góða hönnun, hugvit og
gott handverk. Þema sýningar-
innar er vatn. Sýningin er fram-
lag “Handverks og hönnunar” til
dagskrár Reykjavíkur menningar-
borgar Evrópu árið 2000. Þegar
sýningin var upphaflega opnuð í
Ráðhúsi Reykjavíkur voru veitt
þrenn verðlaun, fyrir besta hönn-
un á nytjahlut, Helga Kristín Unn-
arsdóttir, frrir tvöfalada skál sem
hún kallaði “I klakaböndum”.
Besta hugmyndin var “Vatnsberar“
úr flóka unnið af Philippe Ricart.
Og ftTÍr áhugaverðustu efnistökin
hlaut Georg Hollander verðlaun
fyrir “Vatnskassann” sem er gulla-
stokkur úr rekaviði. Fjölmargir
aðrir hugvits- og listamenn eiga
verk á sýningunni.
Sýningin er opin alla daga frá
16.00 til 18.00 og stendur til 3.
desember. Sýningin er styrkt af
Reykjavík menningarborg Evrópu
árið 2000.
IH
síðan og tilkynntu að þeir myndu
ekki verða áffam með lýsingu í
garðinum. Þetta var bara ákvörðun
sem þeir tóku og ég get ekkert sagt
til um ástæður hennar.” sagði Ind-
riði Valdimarsson form. sóknar-
nefndar. “Lýsingin í kirkjugarðin-
um hefur verið í höndum einkaað-
ila frá upphafi og verður það áfram.
Þrjár auglýsingar voru birtar í vor
og í sumar þar sem óskað var efrir
aðilum til að taka verkefnið að sér.
Það endaði nú þannig að þar sem
enginn aðili héðan virtist hafa á-
huga á þessu verkefni var gengið til
samninga við aðila í Reykjavík sem
hefur meðal annars annast lýsing-
una í Grafarvogskirkjugarðinum.
Sama gjald verður fyrir lýsinguna
hér og í höfuðborginni sem er
5.900 krónur og er virðisaukaskatt-
ur innifalinn í verðinu. Við sendum
út bækling ril að kynna þessa breyt-
ingu fyrir fólki. Þetta er það sem
því stendur til boða og það er í valdi
hvers og eins að ákveða hvort hann
hefúr áhuga á því að taka þessu til-
boði eða ekki.
Lionsklúbbur Akraness sér um
að innheimta gjaldið og tengja jóla-
ljósin auk þess sem þeir munu fylgj-
ast með ástandi þeirra og sjá um
nauðsynlegt viðhald yfir jólin. Þetta
er algjörlega nýr og öruggur bún-
aður og það kostar að sjálfsögðu
heilmikið að setja hann upp.
Leiðslurnar eru lagðar um allan
garðinn og í vor verða þær grafnar
»íjöxðu þannig.að þær kQma.ekkLtjl..-
með að sjást” sagði Indriði Valdi-
marsson að lokum. SOK
Eitt
styður
annað
Um land allt hefur verið mikill
vöxmr í tónlistarlífinu og eru
tónlistarskólar víðast orðnir stór-
ir og öflugir. Affaksmr þessa
starfs tónlistarskólanna er mikil
fjölgun tónlistaratburða. I Snæ-
fellsbæ starfar lúðrasveitin Snær
undir stjóm Ian Wilkinson. Ian
er óþreytandi við að kenna böm-
unum og stöðugt bætast nýir
hljóðfæraleikarar í hópinn.
Þann 1. desember n.k. mun
hljómsveitin halda sína árlegu
jólatónleika í félagsheimilinu
Klifi. Þar verður einnig hin ein-
stæða Bjöllusveit tónlistarskólans
á Hellissandi. Kay Wiggs er
stjómandi Bjöllusveitarinnar sem
líklega er sú eina sinnar tegundar
á Islandi í dag. Eitt styður ann-
að í tónlistinni eins og annarstað-
ar og því verða þessir jólatónleik-
ar til fjáröflunar í Flygilsjóðinn.
Tónleikarnir á föstudagskvöld
hefjast kl. 20.30. III
arkjör. Aðalmenn í stjórn vora kos-
in þau Kristín Þ. Halldórsdóttir,
Guðrún Bergmann, Sigrún Hall-
dórsdóttir, Guðni Tryggvason og
Guðrún Jónsdóttir. Varamenn
vora kosnir Hrefna Sigmarsdóttir,
Ingibjörg Torfhildur Pálsdóttir, Jó-
hann Sæmundsson, Jón Allansson
og Dagný Þórisdóttir.
Þegar kom að ákvörðun um ár-
gjöld til samtakanna var ákveðið að
hafa þau óbreytt. Mikil umræða
fór ffam um umhverfismál á fund-
inum og minnti Stefán Jóhann Sig-
urðsson fundarstjóri á umræðu sem
Kristleifur á Húsafelli hóf fyrir 30
árum, er hann lagði ril að bændur
yrðu aðstoðaðir við að fjarlægja
kofaræksni og annað rasl af löndum
sínum. Einnig kom upp í þessari
umræðu hugmynd um að fara að
beita sektum fyrir umhverfisspjöll.
Lausaganga búfjár kom til umræðu
og höfðu fundarmenn áhyggjur af
þeim slysum sem henni fylgdu og
ekki síður neikvæðri umræðu um
landbúnað. Þá var rætt um nauð-
syn þess að við lagningu nýrra vega
verði hugað að því að koma fyrir
bílastæðum á góðum útsýnisstöð-
um. Fundurinn samþykkti svo
þrjár tillögur. Sú fyrsta var áskor-
un á stjórnvöld að taka með festu á
lausagöngu búfjár til að tryggja ör-
yggi á vegum. Síðan skoraði fund-
urinn á Vegagerð ríkisins að stuðla
að því að komið verði upp útsýnis-
stöðum á fjallvegum þar sem útsýni
er gott. Og loks var samþykkt til-
laga þar sem skorað er á stjórnvöld
að taka með festu á umhverfisspjöll-
um. Effir fundinn snæddu fundar-
inenn glæsilegan kvöldverð á hótel-
inu og hlýddu á söng og sögur.
Guðlaugur Bergmann sem stjóm-
aði samkvæminu var ákaflega stolt-
ur þegar hann kynnti fyrsta
skemmtikraftinn, Olínu Gunn-
laugsdóttur húsfreyju á Okram á
Hellnum. Ólína lék á gítar og
söng nokkur frumsamin lög af
væntanlegum geisladisk “sem er að
öllu leyti unninn hér heima í Snæ-
fellsbæ” eins og hann orðaði það.
Fundarmenn vora sammála um að
síst hafi Guðlaugur oflofað dásam-
legt framlag Ólínu. A eftir Ólínu
tóku þrír sagnamenn við og sögðu
sögur af ýmsum toga og hvernig
þær mætti tengja ferðaþjónustunni.
Sagnamenn kvöldsins voru Ingi
Hans Jónsson úr Grandarfirði, Sæ-
mundur Kristjánsson úr Snæfellsbæ
og Hildibrandur Bjarnason úr
Bjarnarhöfn.
IH
Ferðamálasamtök Vesturlands
héldu aðalfund sinn þann 23. nóv-
ember s.l. á Hótel Höfða í Ólafsvík.
Hrefna Sigmarsdóttir, formaður
samtakanna, setti fundinn. Effir
kosningu fundarstjóra og ritara var
gengið til dagskrár þar sem formað-
ur flutti skýrslu stjórnar. I máli
formanns kom fram að fjórir stjórn-
arfundir hefðu verið haldnir á ár-
inu. Þá sagði hún frá ferð sinni og
Guðrúnar Bergmann á fund um
málefni ferðaþjónustunnar á Isa-
firði og á Akureyri. Formaður rakti
einnig samskipti samtakanna við
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
og samstarfi við Upplýsinga- og
kynningarmiðstöð Vesturlands. I
lok ræðu sinnar óskaði Hrefiia for-
svarsmönnum Gistiheimilisins í
Brekkubæ á Hellnum til hamingju
með umhverfisverðlaun Ferða-
málaráðs. Eftir skýrslu stjórnar
lagði Sigrún Halldórsdóttir fram og
skýrði reikninga félagsins. Tals-
verðar umræður spunnust um
framlag samtakanna til Upplýsinga-
og kynningarmiðstöðvar Vestur-
lands. Eftir afgreiðslu reikninga
og skýrslu stjórnar fór fram stjórn-
Olrna Gunnlaugsdóttir frá Okrum á Hellnum flutti veislugestum nokkurfrumsamin
Ijóð og lög af væntanlegum geisladiski. Mynd IH
Hluti fundarmanna á aðalfiindi Ferðamálasamtaka Vestturlands sem haldinn var á Hótel Höfða í Ólafsvik.
MyndlH