Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2000, Side 16

Skessuhorn - 30.11.2000, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 30. NOVMEMBER 2000 ^uusiinu^ Bókmmín Sæmundur Kristjánsson sagna- maður á Rifi í Snæfellsbæ er Snæ- fellingum vel kunnur fyrir þann gríðarlega áhuga sem hann hefur á sögu svæðisins. Sæmundur sem telur sig fæddan Sandara hef- ur grúskað í mörgu og lætur fátt firamhjá sér fara. Uppáhaldsrit Sæmundar er Eyrbyggja og Bárð- arsaga Snæfellsáss. Sæmundur hefur undanfarin ár boðið upp á söguferðir um sagna- slóðir á utanverðu Snæfellsnesi. I ferðum sínum fylgir Sæmundur sögustöðum og hinum fornu göt- um þar sem menn gengu til ver- stöðvanna. “Það er afskaplega vinsælt að fara niður í Dritvík. Fyrir um það bil sjö árum varð ég þess áskynja að upp frá Dritvík liggur skemmtileg gata sem var týnd. Þessa götu má kalla breið- stræti á þeirra tíma mælikvarða, þar sem mjög er lagað undir fæti, hlið- arhallinn er hlaðinn af þar sem gat- an liggur utan í hólunum. Það er merkilegt að þessi gata er hvergi vörðuð, hún hefur verið það fjöl- farin að ekki hefur þótt ástæða til að varða hana. Gatan hefur verið vel sýnileg enda snjólétt þarna á svæðinu. Svona gata í dag væri sjálfsagt kölluð heilsársvegur því að öll gatan er ofanhalt í hólunum og hraunbristunum þannig að hún hefur alltaf verið snjólaus. Svo er önnur gata sem er í miklu uppá- haldi hjá mér, það er svokölluð Jað- argata í Búðarhrauni. Þegar ég fór fyrst að velta þessu fyrir mér var mér sagt að menn hefðu farið land- ið eða með sjó. Klettsgata liggur frá Flraunlöndum yfir hraunið of- anhalt við Búðarklettinn að Búðum og þar yfir Hraunhafnarósinn og suður um fjörurnar. Síðan er Jað- argatan, þegar ekki hefur verið fært vegna sjávar í Hraunhafnarósnum, þá hafa menn farið frá Hraunlönd- um og beina stefnu á Stórhólinn í Axlarhólunum, þessi gata er að sínu leyti margfalt betri og hún er líka meira mörkuð í klöppina. Það eru engar ýkjur að slitið í klöppinni er allt upp í 12 sentimetra eftir hófa hestanna. Þessi gata er svo sýnileg og er í miklu uppáhaldi hjá mér”. Sæmundur hefur bæði boðið upp á leiðsögn fyrir gönguhópa og einnig fyrir ríðandi og segir gaman að fara þessar götur hvort sem er ríðandi eða gangandi. “Mér finnst reynd- ar ekki verjandi að fara á hestum um Jaðarsgötuna vegna þess gróð- urs sem þar er kominn. Það yrði svo mikil útlitsskemmd á landinu þegar horft er frá Axlarhólunum yfir hraunið”. En hversu oft fer Sæmundur um þessar slóðir á sumri? “Það hafa verið farnar Sæmundur með uppáhaldsbókina sína, Eyrbyggju. svona 13-15 gönguferið á sumri og svona 3-5 hestaferðir síðustu 3 árin. Veðrið hefur náttúrulega mikil áhrif á þátttökuna en flestir hafa verið eitthvað yfir 40 manns en fæstir orðið fjórir í vit- lausu veðri.” En hvað í þessum sögum þykir Sæmundi vænst um. “Mér þykir mest gaman að útlits- lýsingunni af Þorkeli skinnvefju í Bárðarsögu. Kona ein er Gróa hét var kona Skjaldar í Tröð á Hellnum. Þau voru bæði skipverjar hjá Bárði og hafði hann veitt þeim Tröð til á- búðar. Skildi er lýst sem góðum búmanni en þrátt fyrir það þótti Gróu hún vangefin Skildi og yfirgaf hann af þeim sökum. Gróa settist að í helli einum framan í Gróuhól. Eitthvað mun hún hafa lagað þenn- an skúta til svo hún gæti búið þar og bóndi hennar Skjöldur færði henni þangað mat daglega. En Gróuhóll er þar sem nú eru bílastæði ferða- manna upp af höfninni á Hellnum. Síðan deyr Skjöldur og fær þá Bárð- ur Snæfellsás einum af skipverjum sínum Gróu til forsjár. Sá var Þor- kell skinnvefja sem Bárður hafði gefið land á Dagverðará og er lýs- inginn á þeim manni í Bárðarsögu alveg mögnuð, honum svo lýst. Hann var hár maður og mjór og langt upp klofið, hann var hand- síður og liðaljótur og hafði mjóa fingur og langa. Hann var þunn- leitur og langleitur og lágu hátt kinnbeinin. Hann var tannber og tannljótur, úteygur og munnvíður, hálsinn langur og höfuðmikill, herðalítill og miðdigur, fæturnir langir og mjóir, en frár var hann og fimur við hvað eina og trúr hverjum þeim er hann þjónaði. Þannig að ekki var alvondur þó hann hafi greinilega ekki útlitið með sér”. Eg þakka Sæmundi fyrir kaffi- sopann og söguna og tek af honum loforð um að fylgja okkur seinna á einhverja söguslóð. IH Af Svörtuloftum Svörtuloft heita rnikil björg á sjófuglinum og bátunum að veiðum vesturströnd Snæfellsness. Þaðan er og þannig hefur það verið þarna út gaman að fylgjast með briminu, frá um aldir. Svo dag einn koma Gaman er að bregða upp kíki ogfylgjast með dragnótabátunum að veiðum svo stutt frá landi. Snynfstofimjenný. Lim Sýður pér að koma oa kynnast Cíarins meðferoum; Andlitsbað Analitsnuad nudd fiessí gjöffyfair anáíits- og Ciíamsmeðferðum fyá CÍarins á meðan Círgðír encCast ung hjón og sjá þörf fyrir veitinga- hús á Hellissandi og þau kaupa gamalt kaupfélag fram á bökkum. Fljótlega er svo starfsemi hafin í hinu nýja veitingahúsi og ákveðið að nefna staðinn Svörtuloft. Þetta mikla nafn gefur vissulega ákveðin fyrirheit þeirra sem komið hafa út á hin fornu Svörtuloft. En það vant- aði bara eitt, það vantaði nefnilega útsýni á borð við það sem er þar vestra. Það var hinsvegar alltaf draumur þeirra Fúsa og Sigrúnar að opna sýn til sjávar. Nú á dög- unum var nýr salur opnaður þar sem áður var pakkhús kaupfélags- ins. Þar voru settir stórir gluggar með glæsilegu útsýni til sjávar, það- an má sjá hina frægu Brekknalend- ingu og gömlu höfnina í Krossvík. Þetta stórkostlega útsýni bætir á- byggilega nokkrum stjörnum við þær einkunnir sem gestir munu gefa þessu veitingahúsi. Það var erfitt fyrir blaðamann að rífa sig frá þessum gluggum þar sem Svörtu- loftatilfinningin er algjör. Til ham- ingju með það. IH Vel sótt Fimmtudaginn 2. nóvember sl. var haldið beiðslisgreiningar- námskeið í Arbliki í Suðurdöl- um. Námskeiðið var einkum ætlað kúabændum og öðrum þeim er hag kynnu af því að hafa að vita allt um tímgun kúa. Námskeiðið var á vegum Land- búnaðarháskólans á Hvanneyri og var Þorsteinn Olafsson dýralæknir á Suðurlandi, fyrirlesari. Hann er einn helsti framámaður Islands í frjósemismálum kúa og annara jórturdýra. Námskeiðið var upp- haflega áætlað að halda á Hvann- eyri en vegna lélegrar skráningar átti að aflýsa því. Til að koma í veg fyrir það tók Nautgriparæktarfélag Dalasýslu til sinna ráða og bauðst til að útvega húsnæði og þátttak- Listviðburður Nýverið opnaði Hanna Bjart- mars Arnardóttir grafíklistakona myndlistarsýningu í Krákunni í Grundarfirði. Hanna útskrifaðist úr kennaradeild Myndlista- og handíðaskóla Islands árið 1981 og stundaði síðan nám í grafíkdeild við sama skóla 1981-1983. Hún stundaði framhaldsnám við Grafikskolan Forum í Svíþjóð 1985-1987. Hanna hefur haldið fjölda einkasýninga bæði hér heima og erlendis auk þess sem hún hefur tekið þátt í samsýning- um eins og Miniprint International De Cadaques 1989, Internationale jubelaums Grafik- Triennale Frechen 1993 og sam- sýningu Grafíkfélagsins 1994. Allar myndirnar á sýningunni eru af Kirkjufellinu frá mismunandi sjónarhornum og með fjölbreytt- um litasamsetningum. “Þessi skemmtilega sýning er sannarlega kærkomin fyrir menningarlífið hér á staðnum” sagði Halla Elin- marsdóttir í Krákunni. IH einingamámskeið endur í Dölum ef námskeiðið kæmi þangað. I sameiningu tókst þetta og mættu 13 á námskeiðið en nokkrir forfölluðust á síðustu stundu eins og gengur. Efni námskeiðsins var eins og fram hefur komið beiðslisgreining kúa. A síðustu misserum hefur gengið heldur illa á sjá á kúm hér um slóðir og þar af leiðandi að koma haldi í þær. A námskeiðinu var farið í ymsa þætti sem hafa áhrif á þessa starfsemi kýrinnar. Aðbún- aður og dagleg umhirða sem og á- hrif sólarljóss og birtu. Það er með ólíkindum að kýr skuli yfirleitt festa fang þar sem um svo marga sam- verkandi þætti er að ræða sem þurfa allir að virka á sama tímabil- inu. I hádegishléi var boðið upp á eins íslenskan mat og frekast var á kosið, skyr með rjóma, ásamt fleiru ís- lensku góðgæti framleiddu úr fyrsta flokks íslensku hráefni. Þegar fyrirlestra hluta nám- skeiðsins var lokið og menn höfðu fengið te og kaffi var haldið í fjós og menn fengu að sjá kýr beiða. Nám- skeiðinu var svo slitið og menn héldu beint heim í sín fjós að meta ástand sinna kúa. Það var mat þeirra sem mættu þennan dag að námskeiðið hafi ver- ið löngu tímabært og gefið bænd- um gleggri innsýn í þennan mikil- væga þátt kúabúskapar, því kýr án kálfs er geldkýr. Þorgrímur

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.