Skessuhorn - 01.03.2001, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 9. tbl. 4. árg. 1. mars 2001 Kr. 250 í lausasölu
SlökkviliðsmaíSur úr Grundarfirði við slökkvistörf að Búðmn í síðustu viku. Sjá bls. 9
Ungur uppfinningamaður
Á þriðjudaginn var gekk
Vírnet-Garðastál hf. frá
samningi við Hákon Garðar
Þorvaldsson, ungan hugvits-
mann í Andakílsskóla á
Hvanneyri. Hákon skilaði
inn hugmynd sinni að Rok-
bana í Nýsköpunarkeppni
grunnskólanna á síðasta ári,
en Rokbaninn er skjól fyrir
hesta og önnur húsdýr þegar
hvasst er í veðri. Hákon
Garðar fékk fyrstu verðlaun í
keppninni, þó ekki fyrir
Rokbanann heldur fýrir
formhönnun á túnhliði með
strekkjara. Það er því ljóst að
Hákon á framtíðina fýrir sér
í nýsköpun af ýmsu tagi en
hann er aðeins 12 ára gamall.
Hann er sjálfur úr sveit eins
og verkefnin bera kannski
með sér, er frá Innri Skelja-
brekku, sonur Þorvaldar
Hákon Garðar skrifar uiidir samninginn við Vímet-
Garðastál hf. Stefán Logijýlgist með.
Jónssonar og Dagnýjar Sig-
urðardóttur. Hákon segist
hafa mjög gaman af því að
skapa hluti en Elísabet Har-
aldsdóttir hefur kennt honum
nýsköpun í á annað ár. Hann
segist þó ekki viss um hvort
hann ædi að verða uppfinn-
ingamaður. “Eg æda að hugsa
málið. Núna er ég spenntur
að sjá hvort verður eitthvað
úr hugmynd minni hjá Vír-
neti hf. Þeir ætla að vinna á-
fram að þróun og hönnun
hennar.” Það er ekki ólíklegt
að sá draumur Hákons geti
orðið að raunveruleika því að
sögn Stefáns Loga Haralds-
sonar, framkvæmdastjóra
Vírnets-Garðastáls hf. er það
eindreginn ásetningur fýrir-
tækisins að reyna að sjá til
þess.
SÓK
Fær FEBAN Langasand?
Á síðasta bæjarráðsfundi Akraness
fóru ffam viðræður við fulltrúa Fé-
lags eldri borgara Akraness og ná-
grennis (FEBAN) og samþykkt var
að kanna í samvinnu við FEBAN
hvort húsnæðið að Garðabraut 2 gæti
hentað sem félagsaðstaða fýrir eldri
borgara. Húsið hýsti sem kunnugt er
veitinga- og skemmtistaðinn Langa-
sand um árabil og nú síðast skemmti-
staðinn Grandrokk, en þáð er nú í
eigu Ferðamálasjóðs. Að sögn Gísla
Gíslasonar bæjarstjóra Akraness hef-
ur mikið verið rætt um hvaða mögu-
leikar væru á auknu félagsrými fyrir
eldri borgara á Akranesi. “Komið
hefur til tals að stækka félagsaðstöð-
una á Höfða en það er alveg ljóst að
við ráðum ekki við það í bili vegna
stækkunar grunnskólanna. Að fá hús-
næðið að Garðabraut 2 væri því
nokkurs konar millileikur. Það eru
bæði kostir og gallar við húsið en við
eigum eftir að ræða betur saman.”
Hafiia Dalafjalli
Dalamenn eru óhressir með nýtt
nafii á þjóðbrautinni yfir Bröttu-
brekku sem Vegagerðin kallar Dala-
fjall. Hreppsnefnd Dalabyggðar
samþykkti á síðasta fundi sínum að
beina því til samgönguyfirvalda og
Vegagerðarinnar að endurskoða
nafngiftina Dalafjall á hinni fjölförnu
leið milli Borgarfjarðarhéraðs og
Breiðafjarðardala, sem gengið hefur
undir nafninu Brattabrekka frá
aldaöðli. “Við mótmælum harðlega
þeim starfsaðferðum að breyta nafhi
á alþekktum þjóðleiðum fýrirvara-
laust með þessum hætti, þó að nú-
tíma vegagerð þræði ekki nákvæm-
lega þá götuslóða sem farið var eftir
öldum saman,” segir í bókuninni.
í greinagerð með bókuninni segir
meðal annars: Þorsteinn Þorsteins-
son, sýslumaður Dalamanna frá
1920 til 1955, oft nefhdur hinn
sögufróði, skrifaði um Dalasýslu í
árbók Ferðafélags Islands 1947.
Þar fjallar hann um þjóðleiðir til og
frá Dalahéraði. Á bls. 23 er fýrir-
sögnin Brattabrekkuvegur. Þar
segir m.a.: „Frá landnámstíð hefur
meginvegurinn milli Miðdala og
Borgarfjarðar legið um Bröttu-
brekku og Bjarnardal.,, Og síðar í
sömu grein; „Fjallhryggur þessi
milli Bjamardalsár og Suðurár heit-
ir Brattabrekka og skiptir sýslum.“
GE
Þjónustuver
Samgönguráðuneytið, Vega-
gerðin, Flugmálastjórn Islands,
Siglingastofnun Islands og Snæfells-
bær undirrituðu síðastliðinn þriðju-
dag, samning um rekstur þjónustu-
vers samgöngumála í Snæfellsbæ
fyrir Snæfellsbæ og Snæfellsnes.
Tilgangur samstarfs þessa er að þróa
starfsaðferðir til að bæta þjónustu
samningsaðila á svæðinu, samnýta
tækjakost og starfskrafta eins og
unnt er og tryggja öryggi þjónust-
unnar. Staðsetning starfseminnar
verður í húsnæði Vegagerðarinnar í
Olafsvík og verður þjónustuverið
rekið sem verkefni með sérstakri
kennitölu. Við þessa breytingu
verður til eitt nýtt starf.
A sigurbraut
Skagamenn unnu Fram í 2. um-
ferð riðlakeppninnar í Deildarbik-
arkeppninni síðastliðinn þriðjudag
en leikurinn fór fram í Reykjanes-
höllinni. Lokatölur urðu 2 -1 en
Skagamenn leiddu í hálfleik með
tveimur mörkum gegn engu.
Skagamenn yfirspiluðu Framara
í fýrri hálfleiknum og skomðu þeir
Hjörtur Hjartarson og Hálfdán
Gíslason sitt hvort markið. Munur-
inn hefði getað verið meiri því ekki
var hörgull á færunum, meðal ann-
ars komst Garðar Gunnlaugsson
einn inn fýrir vöm Framara en náði
ekki að skora.
I síðari hálfleiknum komust
Framarar meira inn í leikinn og
náðu að minnka muninn en sigur
Skagamanna var engu að síður
verðskuldaður. Næsti leikur í deild-
arbikarkeppninni er gegn Fylki
næstkomandi laugardag kl. 12.30 í
Reykjaneshöllinni.
GE