Skessuhorn - 10.05.2001, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 10. MAI 2001
13
úit£99Unuúr]
s
Utskríítartón-
leikar í Borgar-
nesldrkju
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
útskrifar að þessu sinni tvo nem-
endur með 8. stig. Það era þau
Viðar Guðmundsson, sem lauk
prófi í píanóleik, og Halldóra
Björk Friðjónsdóttir, sem lauk
prófi í söng.
Viðar hóf nám í píanóleik við
Tónlistarskóla Borgarfjarðar árið
1991 ög hefur verið nemándi
Jaceks Tosik-Warszawiak frá
hausti 1994. Halldóra stundaði
söngnám við Söngskólann í
Reykjavík, en heíúr verið nem- ]
andi Dagrúnar Hjartardóttur við
Tónlistarsköla Borgarfjarðar frá
árinu 1996. Meðleikari Halldóra
er Zsuzsanna Budai.
Útskriftartónleikar Viðars og
Halldóru verða í Borgameskirkju
sunnudaginn 13. maí næstkom-
andi og hefjast kl. 17:00. Tón-
leikarnir eru öllum opnir.
(Tréttatilkynning)
„í hverjum
dropa“
Laugardaginn 12. maí, frá kl.
15-17, verður opnuð myndlíst-
arsýning Bjarna Þórs í Lista-
safni Borgarness sem ber yfir-
skriftina: „I hverjmn dropa“. Þar
sýnir listamaðurinn jdir þrjátíu,
nýjar vatnslitamyndir sem hafa
ekíd verið sýndar áður.
Bjarni Þór Bjarnason er fædd-
ur 1948 og er búsettur á Akra-
nesi. Hann á að baki nám frá ár-
unum 1974-1980, í ýmsum
deilduin Myndlistarskóla
Reykjavíkur og í kennaradeijd
Myndlista- og; handíðaskóla Is-
lands, og starfar nú sem mynd-
og handmenntakennari á Akra-
nesi. Bjarni Þór hefur haldið
íjölda sýninga og eru mörg verk
eftir hann í eigu opinberra aðila,
þ.á.rn. er útilistaverkið Brákin
sem var reist árið 1997 í Borgar-
nesi.
Frekari upplýsingar og mynd-
ir af verkum listamannsins er að
finna á heimasíðunni hans:
http://www.aknet.is/bjarnib/.
Bjarni Þór sýnir nú í fýrsta skipti
vatnslitamyndir í Listasafni
Borgarness en hann hefúr áður
haldið þar sýningu á olíumál-
verkum árið 1997.
Listasafn Borgarness er til
húsa í Safnahúsi Borgarfjarðar,
Bjarnarbraut 4-6 Borganesi, og
verður sýningin opin á opnunar-
tíma þess, alla virka daga frá kl.
13-18 og þriðjudags- og
fimmtudagskvöld til kl. 20. Sýn-
ingin stendur til 8. júní.
Óska eftir bamgóðri stelpu í
sumar
Vantar stelpu, ekki yngri en 13-14
ára, til að passa 1 árs gamlan strák í
sumar. Upplýsingar í síma 431 1554
eða 847 2392
ATVINNA OSKAST
Vantar þig pössun í sumar
Hæ hæ, við erum tvær 13 ára
stelpur sem viljum passa börn í
sumar. Höfum lokið námskeiði hjá
RKI erum vanar. Símar 437 1655
Sara Dögg og 691 6550 Alma eftir
kl 15.
Er að flytja á Akranes
3 3 ára gömul kona óskar eftir
atvinnu frá 1. júlí n.k. Þrælvön
skrifstofustörfúm -Siðustu 4 ár
unnið á SFS fjárhagsbókhald og
Hlaun áður á Opus alt og Tok. Góð
meðmæli! Áhugasamir vins. sendið
nafn og uppl. í pósthólf 164 -300
Akranes merkt ATVINNA
BILAR / VAGNAR / KERRUR
VW Passat
Til sölu VW Passat árg. '98, ek. 77
þús., sumar/vetrardekk, álfelgur,
bílalán afb. 22 þús á mán.
Upplýsingar í síma 431 4428 eða
699 1828
Til sölu Subaru Legacy
Til sölu Subaru Legacy 1800,
station, árgerð 1991, hvítur, ekinn
244.000 km. Verð kr. 230 þúsund.
Upplýsingar í síma 431 3173 eða
864 0746
Tjaldvagn til sölu
Til sölu hjá félagasamtökum,
Combi camp tjaldvagn, árgerð
1997. Upplýsingar gefur Valgeir í
síma 694 2691 og 437 1791, vs. 437
1320
Combi camp tjaldvagn
Til sölu Combi Camp tjaldvagn
með fortjaldi, árgerð '82.
Upplýsingar í síma 438 1510
Vantar fjórhjól
Allt nema Kawasaki kemur til
greina. Upplýsingar í síma 865 5742
Gullmoli
Til sölu glæsilegur Volvo Amason,
árg 1966. Allur ný uppgerður.
Króm felgur og stuðarar, rauður á
lit. Ný skoðaður. I toppstandi.
Ahugasamir hafi samband í síma
695 3888. Verð 700 þús
Saab 90, árgerð „86 til sölu
Til sölu er beinskiptur eðalvagn
með skoðun 01. Sumardekk og auka
felgur. Kr. 70.000. Hafið samband í
síma 899 6172
Fjórhjól
Vantar fjórhjól, tek allt til greina.
Upplýsingar í síma 557 8533
MMC L200
Til sölu ársgamall MMC L200
double cab. Ekinn 41 þús. km,
sjálfskiptur, mjög góður bíll.
Upplýsingar í s. 894 8998
DÝRAHALD
Hvolpur óskast
Óska eftir hvolpi, helst svörtum
labrador. Má vera blandaður.
Upplýsingar í síma 869 1997
HÚSBÚN. / HEIMISLIST.
Eldhúsborð og bekkur
Til sölu stórt eldhúsborð og bekkur,
Siemens uppþvottavél (4ra ára) og
þurrkari. Úpplýsingar í síma 433
8970
Óskum eftir heitum potti!
Óskum eftir heitum potti í
sumarbústaðinn, má vera notaður.
Upplýsingar í síma 431 3173 eða
864 0746
Herbergishúsgögn
Skólastelpu vantar eitthvað í
herbergið. Hillur eða eitthvað slíkt,
gefins eða mjög ódýrt. Sími 899
8894
LEIGUMARKAÐUR
3ja herbergja íbúð til leigu!
Til leigu 3ja herbergja íbúð á kr.
55.000- á mánuði. íbúðin er
nýstandsett og gullfalleg.
Upplýsingar í síma 896 2451
Borgames
Til leigu í Borgarnesi c.a. 42
fermetra stúdióíbúð á mjög góðum
stað í bænum. Einstaklingur er
æskilegastur og reglusemi verður
ekkert vandamál. Laus fljótlega.
Upplýsingar í síma 437 1587 Birna
Ibúð óskast
Ungt par óskar eftir 2ja herbergja
íbúð í Borgarnesi. Upplýsingar í
síma 865 4214
Okkur bráðvantar
Okkur bráðvantar 4ra herbergja
íbúð, eða lítið einbýlishús á
Akranesi. Leigutími ca. eitt ár.
Upplýsingar í símum 899 6502
Reynir eða 865 7534 Ásgerður
3ja herbergja íbúð óskast!
Okkur vantar 3ja herb. eða stærri
íbúð frá maí til langframa. Við erum
reglusöm og skilvís hjón (32 & 39
ára) með 2 börn (11 & 12 ára).
Upplýsingar í síma 868 6007
Hlynur
Hús/íbúð í Borgamesi
Okkur vantar íbúð eða hús í
Borgarnesi til kaups eða leigu frá 1.
júlí, 3ja herbergja algjört lágmark.
Ymislegt kemur til greina. S. 861
8321, Hrafnhildur og Bragi
Borgames!
Ungur maður óskar eftir íbúð á
leigu í Borgarnesi, er snyrtilegur og
get lofað skilvísum greiðslum.
Upplýsingar í síma 847 5898 eftir
15:30
ÓSKAST KEYPT
Sólarorka
Óska eftir að kaupa sólarorku fyrir
sumarbústað. Upplýsingar í síma
431 2644 eða 897 5104
TIL SOLU
Ford Bronco II
Argerð '88, ekinn 137 þús. km, ný
yfirfarinn. Sumar- og vetrardekk
fylgja, 31 tomma.Verð 150.000 stgr.
Upplýsingar í síma 866 2799 og 431
4665
Bílskúrssala
Laugardaginn 12. maí kl. 13:00-
17:00 verður bflskúrssala að
Þorsteinsgötu 8. Húsgögn og fullt
aj smádóti. Dagný og Birna.
Ymislegt til sölu
Til sölu uppgerðar saumavélar,
rafmagnsgrasklippur (Gardena 16)
Allt nýtt. Einnig á sama stað,
hurðarpumpa. Upplýsingar í síma
431 1329
Næturhitunarkútur
Til sölu næturhitunarkútur, 6800
lítrar með hita spíral og 5 stk. 6 kW.
rafmagnshitatúpum, mælar og
höfuðrofar. Upplýsingar í síma 431
1025 eftir kl. 19 á kvöldin, Ólafur
Svalavagn til sölu
Rúmgóður, fjólublár svalavagn til
sölu Surðarrúm getur fylgt með,
uppl. í síma 861 6204
Góðar heyrúllur til sölu!
Góðar heyrúllur til sölu, 1.500 kr.
stk. Upplýsingar í síma 431 2568 á
kvöldin, Gunnar Gunnarsson
Notaðar saumavélar
Til sölu notaðar, uppgerðar
saumavélar. Upplýsingar í síma 431
1329.
Heyrúllur
Góðar heyrúllur til sölu.
Upplýsingar í síma 435 1339 á
kvöldin
Hjól til sölu
Til sölu tvö 24“, 15 gíra stelpuhjól.
Vel meðfarin. Upplýsingar í símum
896 6678 og 892 5678.
Dekk og álfelgur til sölu
Góð 13“ 185/70, sumardekk á
glæsilegum álfelgum undan 'Ioyotu
Turing & 14“ 185/65 sumardekktil
sölu. Upplýsingar í síma 897 5171
Felgur og dekk á ótrúlegu verði
Til sölu 205/55/16“ dekk og
álfelgur undir Ford eða Peugeot, á
aðeins 50.000.- Tvö dekk glæný.
Upplýsingar í síma 586 2999 eða
690 6674 Fyrstur kemur fyrstur fær!
ÝMISLEGT
Til sölu
Til sölu 4 stk. af 33“ dekkjum á sex
gata felgum, einnig mikið magn af
videospólum á góðu verði.
Upplýsingar í síma 695 5740 eða
437 1552 á kvöldin
Yantar þig vísu?
Eg tek að mér að yrkja kvæði og
dægurlagatexta fyrir öll tækifæri.
Elín Finnbogadóttir. Sími 438 1426
og 851 1426
Rauðmagi og grásleppa
Til sölu reyktur rauðmagi og sigin
grásleppa. Upplýsingar í síma 431
2974
Akranesi: Föstudaginn 11. maí
Diskórokktekið & plötusnúðurinn DJ. Skuggabaldur kl. 23:00 á H-Barn-
um Akranesi
Reykur, þoka, ljósadýrð og skemmtilegasta tónlistin frá síðustu 50 árum.
ABBA til RAMMSTEIN
Snæfellsnes: Laugardaginn 12. maí
Vortónleikar Tónlistarskóla Ólafsvíkur kl. 14:00 í Félagsheimilinu á Klifi
í Ólafsvík
Allir nemendur skólans spila. Foreldra- og styrktarfélag skólans verður
með sína árlegu kaffisölu.
Borgarfjörður: Laugardaginn 12. maí
Samkór Selfoss og Kveldúlfskórinn kl 16:00 í Reykholtskirkju
Fjölbreytt efnisskrá. Stjórnandi Samkórs Selfoss er Edit Molnar og und-
irleikari er Miklós Dalmay. Stjórnandi Kveldúlfskórsins er Ewa Tosik
Warzawiak.
Snœfettsnes: Sunnudaginn 13. maí
Tónleikar Tónlistarskóla Hellissands kl. 17 í grunnskólanum á Hell-
issandi.
Nemendur tónlistarskolans halda vt rtónleika
Akranes: Sunnudaginn 13. maí
Messa og altarisganga kl. 14 í Akraneskirkju tileinkuð 50 ára fermingar-
börnum safnaðarins.
Snæfellsnes: Sunnudaginn 13. maí
Vortónleikar Tónlistarskóla Neshrepps kl 14:00 í Grunnskóla Hell-
issands.
Snœfellsnes: Sunnudaginn 13. maí
Einsöngstónleikar kl. 20:30 í Stykkishólmskirkju
Ildikó Varga mezzo-sópran og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, píanó, flytja ljóð
frá ýmsum löndum og óperuaríur.
Borgarfiörður: Mánudaginn 14. maí
OA -fundur kl. 21 á Borgarbraut 49, kjallara
Overeaters Anonymous eru samtök fólks sem á við sameiginlegan vanda
að glíma; hömlulaust ofát. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er vilji til að hætta
ofáti. Engar meðlimaskrár, engin félagsgjöld, engar viktanir.
Snæfellsnes: Mánudaginn 14. maí
Vortónleikar kl 18:00 í sal Tónlistarskóla Stykkishólms
fram koma hljóðfæranemendur á ýmsum stigum námsins.
Snæfellsnes: Þriðjudaginn 15. maí
Göngugarpar í Snæfellsbæ kl. 20:00 í Olafsvík
Gengið á Gerðuberg. Lagt af stað frá Hótel Höfða í Olafsvík og safnast í
bíla þegar það þarf. ATH. Takið með nesti þegar farið er í lengri ferðir.
Upplýsingar hjá Valdísi í síma 436 1057/861 9657 og Eygló í síma 436
1650. Mætum öll - Holl líkamsrækt fyrir sál og líkama.
Snæfellsnes: Þriðjudaginn 15. maí
Vortónleikar kl. 18:00 í sal Tónlistarskóla Stykkishólms
Nemendur skólans leika á gítar, píanó, blásturshljóðfæri, harmoniku og
blokkflautu.
Akranes: Miðvikudaginn 16. maí
Kórtónleikar kl. 20:30 í Safnaðarheimilinu Vinaminni
Tónleikar kvennakórsins Ymur.
Snæfellsnes: Miðvikudaginn 16. maí
Vortónleikar kl. 20:00 í Stykkishólmskirkju
Nemendur söngdeildar flytja ljóð, aríur og dúetta.
Akranes: Fimmtudaginn 17. maí
Vortónleikar 4 kl. 18 á sal Tónlistarskólans á Akranesi
Nemendur forskóladeildar og yngri nemendur Tónlistarskólans á Akffi-
nesi efna til tónleika á sal skólans. Fjölbreytt efnisskrá. Allir velkomnir.
Snæfellsnes: Fimmtudaginn 17. maí
Lokatónleikar og skólaslit kl. 20:00 í Stykkishólmskirkju Jk
Lokatónleikar vetrarins við Tónlistarskóla Stykkishólms og skólaslit. M-
hending stigsprófsskírteina.
Akranes: Fimmtudaginn 17. maí
Knattspyrna kl. 20 á Akranesvelli. Meistaraflokkur karla IA mætir FH.
Nýfæddir Vestlendingar eru f
boðnir velkomnir í heiminn um 4
leið og nýbökuðum foreldrum eru
færðar hamingjuóskir
30. apríl kl 20:14-Meybarn-Þyngd:
4245-Le?igd: 34 cm. Foreldrar: Guðrún
Guðbjarnadóttir og Sigþór
Hreggviðsson, Akrat/esi. Ljósmóðir:
Lára Dóra Oddsdóttir.
4. maí kl 04:3S-Sveinbam-Þyngd:
2230-Lengd: 47 cm. Foreldra?-: Guðrún
5. Gísladóttir og Guðmundur S.
Jónsson, Akranesi. Ljósmóðir: Lára
Dóra Oddsdóttir.