Skessuhorn - 12.07.2001, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 28. JUNI 2001
7
Nýverið gerðust þau afar ófrétt-
næmu tíðindi að nokkrir hreppar í
Landnámi Ingólfs sameinuðust um
rekstur fólksflutninga á svæðinu.
Mun það hafa verið kænskubragð til
að allir gætu stórhækkað fargjöld en
hver kennt öðrum um. Þegar tillit
er tekið til þess að allur almenning-
ur telur stjórnmálamenn almennt
illa gefna og að sjálfsagt sé að
klekkja á þeim með því að svíkja
undan skatti og misnota velferðar-
kerfið þá er það auðvitað bara hið
besta mál þegar þessir vesalings
menn ná að svara fyrir sig með því
að klekkja þetta skemmtilega á
heimskum almúganum.
Strætisvagnafarþegar eru í raun
hinn íslenski aðall. Helstu fjárhags-
legu byrðar okkar hinna; bensín-
hækkanir, viðgerðakostnaður, bif-
reiðagjöld, hraðasektir, dekkjaskipti,
tryggingar og önnur endalaus fjár-
pynd er þeim óviðkomandi. Eg geri
mér því nákvæmlega enga rellu út af
því að seilst sé í úttroðna vasa þessa
fólks sem ég er látinn halda uppi
með námslánum og örorkubótum
því þessi aðall þarf hvorki né nennir
að vinna.
Þetta fólk má mín vegna taka á sig
enn meiri byrðar enda bökin breið.
Hitt þykir mér verra að í leiðinni
skuli tungumáli okkar allra vera
greitt þungt högg. Hið nýja fyrir-
tæki hefur fengið nafnið Strætó bs.
Hvaða leyfi hafa aumir hrepps-
nefndarmenn á einhverjum útskerj-
um til þess að ráðast svona óþyrmi-
lega á ástkæra ylhýra málið og ata
það slíkum saur? Ekkert orð í ís-
lensku endar á O. Ekki frekar en
þau byrji á Ð eða séu með blístri og
tungusmellum í miðjunni.
A fyrri hluta síðustu aldar hélt sú
ó-náttúra innreið sína íslenskt mál
að enda flest ný orð á Ó eða búa til
styttingar á eldri orðum með því að
taka stofn þeirra, henda seinni hlut-
anum en setja Ó í staðinn.
Upp risu staðir eins og Gúttó og
Hressó en svo fór að fólk fékk nóg
og hætti að skipta við slíka staði og
eru þeir nú farnir á hausinn.
Reyndar reis Astró á rústum Hressó
en vonandi fer það líka á hausó.
Enn segja allt of margir halló í stað
þess að segja góðan dag eða sæl(l).
En það er hrikalega púkó og lummó
að segja halló. Það er beinlínis
halló.
Þegar ég var ungur voru börn
gjarnan send á róló en vegna þess
hve slæmt það er að innræta börn-
um þetta ó-tal í tíma og ó-tíma á-
kváðu yfirvöld að hætta að borga
fyrir uppbyggingu róluvalla og
beina fénu ffemur í reksmr leik-
skóla sem góðu heilli hafa ekki
fengið á sig uppnefnið skóló.
Þegar útvarpið (áður radíó) fór að
senda út í stereó úr stúdíó minnkaði
hlustun mjög því fólk var hætt að
skilja tungumálið sem barst úr við-
tækjunum. Nú berast tónar víðóma
úr hljóðstofu.
Um næstu áramót fara margir út-
lendingar að fara að nota mynt sem
þeir kalla Euró. Með hröðu falli
krónó aukast kröfur um að Islend-
ingar taki upp Euró. Góðir menn
hafa bent á að þetta sé vont nafh og
leggja til að myntin veri kölluð
Evra. Þar lögðu góðir menn illt til.
Evrópa er ill og ómöguleg sletta yfir
það sem á íslensku heitir Norður-
álfa og ættu orð sem byrja evr-
aldrei að heyrast í íslensku máli.
Legg ég til að gripið verði til hljóð-
líkingar og gjaldmiðillinn kallaður
eyrir; í fleirtölu aurar. Kæmi það
vel þeim mörgu mönnum sem hætt-
ir til að spara aurana en kasta krón-
unni. Máltæki á borð við „margur
verður af aurum api“ og „ég á ekki
eyri“ yrðu þá skiljanleg ungu fólki á
ný, en sem stendur skapa þau enga
skynjan (meika ekki sens).
Ef þeir útskerjamenn fá einhverju
ráðið verða unnendur vandaðs mál-
fars ekki spurðir álits. Þá verður
þess eins spurt hve mörg Euró kosti
að fara með strætó út á Akró. En ef
menn ætla lengra, til dæmi út á
Snæfó verða menn að taka rútó sem
keyrir gegnum Borgó og út á Vegó.
Þar skilja leiðir því sumir fara yfir
Vatnó til Stykkjó og Grundó en
aðrir yfir Fróðó til O-ó og jafnvel út
á Rifjó eða Helló. Það er líka svo
rómó undir jökló.
Bæjó, Bjarkó
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og shipasali
Nýtt á söluskrá
Gunnlaugsgata 4, Borgarnesi
Einbýlishús, 2 hæðir og ris, 103,6 ferm. Stofa parketlögð,
3 herb. parketlögð, skápar. Gangur og stigi teppalagt.
Eldhús parketlagt, ljós viðarinnr. Baðherb. með dúk á gólfi
en flísar á veggjum, ljós innrétting, kerlaug/sturta.
Gestasnyrting dúklögð. Forstofa flísalögð. Þvottahús.
Geymslur undir súð og í risi.
Verð: kr. 11.200.000
Böðvarsgata 27, Borgarnesi
Nýlegt 2. hæða parhús, 109 ferm. Forstofa með máluðu
gólfi, skápur. Þvottahús. Gestasnyrting dúklögð. Eldhús
parketlagt, ljós viðarinnr. Stofa parketlögð. Viðarstigi.
Gangur efri hæð parketlagður. Þrjú herb. með skápum, tvö
dúklögð, eitt með máluðu gólfx. Viðarstigi og viður í loftum.
Verð: kr. 13.500.000
Réttarholt 5, Borgarnesi
Einbýlishús 155 ferm. og bílgeymsla 36,6 ferm. Steypt
einingahús frá Húsasmiðjunni. Forstofa flísalögð,
gestasnyrting dúklögð, þvottahús með máluðu gólfi. Búr
og geymsla dúklagt. Stofa teppalögð, viðarloft, útgangur
út í garð. Sjónvarpsherb. parketlagt, viðarloft. Hol og
gangur parketlagt. Eldhús parketlagt, birki innrétting.
Baðherb. dúklagt, flísar á veggjum, viðarinnr. frá Brúnás,
kerlaug/sturta. Fjögur svefnherb. dúklögð, skápar í einu
herb. Geymsla í bílskúr, sjálfvirkur opnari. Stór og góður
garður, gott útsýni. Sökklar undir sólstofu, teikningar samþ.
Nýjar þakrennur.
Verð: kr. 15.500.000
,,
Freyja Bjaraadóttir, fyrrverandi
tálsímavörður í Borgamesi, verður
níræð þriðjudaginn 17. júlí n.k. Af
því tilefni verður heitt á könnunni í
samkomuhúsinu í Borgamesi þann
dag frá kl. 17.00 - 20.00.
Tökum að okkur útgáfu hvers konar
kynningarefnis
Bæklingar
Fréttabréf
Arsskýrslur
Bækur
Nafnspjöld
Bréfsefni
Auglýsingagerð
Mynabandsupptökur
og margt margt fleira
i
i
11III lial . i
11 lörnLisir^i