Skessuhorn - 19.07.2001, Blaðsíða 4
4
JaJSSSUÍtOiaJ
FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubmut 3 Simi: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 892
Blaðamenn: Sigrún Kristjónsd.. Akranesi 862
Sigurður Már, Snæfellsn. 865
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864
Prófarkalestur: Asthildur Magnúsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf
5040
4098 ritstjori@skessuhorn.is
1310 sigrun@skessuhorn.is
9589 smh@skessuhorn.is
3228 hjortur@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl.
14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss
tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og f lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt meö
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Steinní
Misjafnt hafast mennirnir að.
A meðan allir, nema ég, gera hróp að gömlum gítarleik-
ara úr Vestmannaeyjum fyrir að hafa fyrir algjöran mis-
skilning gert mistök sem leiddu af sér missögn sem síðan
leiddi í ljós misbrest á siðferði hans þá hef ég áhyggjur af
allt öðrum hlutum. Eg hef ekki sérstakar áhyggjur af því þó
einhverju hafi verið eytt af almannafé í spýtur og grjót. Eg
hef þvert á móti áhyggjur af því að það farist fyrir að eyða
almannafé.
Ég tek að vísu fram, til að forðast misskilning, að ég tel í
flestum tilfellum æskilegra að almannafé sé nýtt í þágu al-
mennings og þá geng ég út frá þeirri kenningu að almenn-
ingur sé fleirtala! A hinn bóginn ætla ég ekki að taka þátt í
því að grýta gítarleikara, hversu hörmulegir tónlistarmenn
sem þeir kunna að vera, enda er ég fyrir löngu orðinn alltof
seinn að kasta fyrsta kantsteininum.
I frétt í blaðinu í dag er fjallað um fyrirhugaðar vega-
framkvæmdir á Uxahryggjavegi. Fyrsta fjárveiting í nýjan
veg yfir Uxahryggi átti að vera til reiðu á þessu ári. F.kki
veit ég annað en að það standi ef eftir því er leitað. Nú
bregður hinsvegar þannig við að ekkert gerist. Þarna liggja
peningar undir skemmdum sem hægt væri að sólunda á
heiðarlegan hátt en þá skortir áhugann. I vegaáæltun er
gert ráð fyrir að framkvæmdir við nýjan veg hefjist í kjör-
dæmi Sunnlendinga. Þar á bæ virðast menn hinsvegar lít-
inn áhuga hafa á málinu, nema verið sé að bíða eftir að
fyrsti þingmaður kjördæmisins og formaður samgöngu-
nefndar Alþingis helluleggi fyrsta spottann með títt nefhd-
um tígulsteinum. Það helsta sem þeim Sunnlendingum
mun hafa dottið í hug að gera við aurinn er að stinga hon-
um á sig og fara með hann upp á Hellisheiði en þar stend-
ur víst til að hengja einhverja grútarlampa á prik.
Það ætti að vera sjálfsögð kurteisi Vestlendinga að leggja
þeim sunnanmönnum lið ef þeir eru í vandræðum með að
eyða peningum. Það liggur líka bemr við högginu að hefja
þessar framkvæmdir hérna megin Uxahryggjar. Hérna
megin yrði væntanlega að mestu notast við sama vegstæð-
ið en að hinumegin frá yrði að fara ótroðnar slóðir. Það
kallar á umhverfismat og allskyns vafstur og vesen. Því
myndi það fjármagn sem ætlað er í Uxahryggjaleið fyrr
skila sýnlegum árangri Borgarfjarðarmegin auk þess sem
það myndi nýtast fólkinu sem býr á þessu svæði. Eg tek
þessi síðustu orð að vísu aftur því það hefur sjaldnast verið
til að flýta fyrir að þjónsta sé bætt á landsbyggðinni ef
hætta er á að hún geti nýst heimamönnum. Þess í stað legg
ég áherslu á að þessi vegur ætti að vera kærkomin sam-
göngubót fyrir ferðamenn og þá ætti litlu að varða hvoru
megin fyrsti malbiksspottinn verður lagður. Síðast en ekki
síst er rétt að geta þess að akfær vegur myndi stytta leiðina
fyrir Vírnetsþakrennurnar á hafnarbakkann í Þorlákshöfn
um rúma sjötíu kílómetra.
Gísli Einarsson, vegamálastjóri.
Mannaskipti í Eyrarsveit
Nýr skrifstoínstjóri og
tæknifræðingur
Ráðning skrifstofnstjóra og tæknifræðings Eyrarsveitar
Friðbjörg Matthíasdóttir hefur
verið ráðinn skrifstofustjóri Eyrar-
sveitar frá og með 1. ágúst n.k. Frið-
björg er viðskiptafræðingur að
mennt, fædd árið 1969 og vann hjá
Eimskipafélagi Islands fram í júlí.
Eyþór Björnsson hefur gegnt starf-
inu undanfarin þrjú og hálft ár en
mun næstu mánuðina leysa sveitar-
stjórann, Björgu Agústsdóttur, af
þegar hún fer í fæðingarorlof í byrj-
un september.
Þá hefur Jökull Helgason verið
ráðinn tæknifræðingur Eyrarsveitar
frá 1. ágúst n.k. Jökull er fæddur árið
1973 og er menntaður byggingar-
fræðingur,
en hann
starfaði síð-
ast hjá Is-
lenskum að-
alverktök-
um hf. Eng-
inn tækni-
fræðingur
hefur starf-
að hjá Eyr-
arsveit síðan
um miðjan
maí á þessu
ári en sveitarstjóri hefur sinnt því
starfi í millibilsástandinu. smh
Björg Agiístsdóttir
Leiguíbúðir of dýrar
Nokkur skortur hefur verið á
leiguhúsnæði á Akranesi undanfarið
og bæjarráði barst nýverið bréf frá
aðila sem hefur áhuga á að kaupa í-
búðir á markaðnum sem ætlunin var
að leigja út. A síðasta bæjarráðsfundi
var hins vegar ákveðið að bæjarráð
gæti ekki orðið við erindinu.
Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari,
segir að aðilinn hefði haft áhuga á að
gera samning til langs tíma við
Akranesbæ þess efnis að bærinn
myndi leigja íbúðirnar og endur-
leigja þær til skjólstæðinga sinna.
„Hann hafði áhuga á að kaupa hvort
sem er notaðar eða nýjar íbúðir og
voru íbúðirnar fyrst og fremst hugs-
aðar til leigu fyrir þá einstaklinga
sem eru inni í félagslega kerfinu hjá
okkur. Sú leiguupphæð sem var til
umræðu var því miður of há til þess
að bærinn treysti sér til að leigja í-
búðirnar og talið var að skjólstæð-
ingar okkar heíðu ekki efni á að
borga svo háa leigu.“ Jón Pálmi seg-
ir þó að málinu hafi aðeins verið
hafnað að svo komnu máli og að vel
megi athuga málið ef lægra verð
komi til sögunnar.
SÓK
Göngunum lokað
vegna bensínleka
Loka þurfti Hvalfjarðargöngun-
um um tíma síðastliðinn föstudag
vegna bensínleka úr olíuflutninga-
bíl. Ekki var um mikið magn að
ræða en nauðsynlegt þótti að loka
göngunum í öryggisskyni á meðan
hreinsun stóð yfir. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Speli kom í ljós við
þetta atvik að boðunarkerfi lög-
reglu, slökkviliðs og sjúkraflutn-
ingamanna virkar vel. Hinsvegar
má fastlega búast við að þetta atvik
þrýsti enn frekar á að eldsneytis-
flutningar um göngin verði bundn-
ir við ákveðinn tíma sólarhrings
þegar umferðin er minnst eða þeir
bannaðir með öllu. Mikil umræða
varð um þetta mál í vetur og eftir
atvikið á föstudag hefur sú umræða
blossað upp að nýju. GE
Hafiiarfr'anikvæmdir í
Grundarfirði
Kirkjufell og Grundarjjörður. Mynd: Ragnar Th.
Nú hafa samningar tekist milli
sveitarstjórnar Eyrarsveitar og
verktakafyrirtækisins ísar um vinnu
við stækkun stóru bryggjunnar í
Grundarfirði. Munu ffamkvæmdir
fara mjög fljótlega af stað og munu
þá enn aukast þrengslin við höfn-
ina.
Bárust 11 tilboð í verkið á bilinu
frá 66,5 milljónum króna upp í 136
milljónir, en tilboð Isar var þeirra
lægst. Verkið var boðið út í júní sl.
Kostnaðaráætlunin hljóðaði upp á
81,4 milljónir, en verkið felst í
rekstri stálþils, útkeyrslu kjarnafyll-
ingar og byggingu grjótvarnar utan
um hana, steyptum kantbitum á
þilið með pollum, þybbum og stig-
um og byggingu ljósamasturs og
vatnshúss. Mun lokaáfangi vera
fyrirhugaður á næsta ári og felst í
frágangi lagna og lýsingar og að
steypt verði þekja.
smh
--y------------------
Arekstur við
Dalsmyimi
Árekstur varð við Dalsmynni í
Norðurárdal síðastliðið föstu-
dagskvöld. Slysið varð með þeim
hætti að bílstjóri bifreiðar sem
var á norðurleið taldi að bílstjóri
bifreiðarinnar sem var á undan
ætlaði að beygja inn á veginn um
Bröttubrekku og reyndi framúr-
akstur öfugumegin. Fremri bif-
reiðinni var hinsvegar beygt til
hægri, inn í útskot frá veginum
og afleiðingin varð harður á-
rekstur. Þrír menn voru í hvor-
um bíl og voru fimm þeirra flutt-
ir með sjúkrabifreiðum á sjúkra-
húsið á Akranesi.
GE
Vatnsveitu-
framkvæmd-
ir í Reykholti
Miklar vamsveituframkvæmdir
eru fyrirhugaðar í Reykholti
seinni part sumars en þar á að
reisa nýjan vamstank fyrir Reyk-
holtsstað. Að sögn Þórunnar
Gestsdótmr sveitarstjóra er ffarn-
kvæmdin fyrst og fremst hugsuð
til að tryggja nægjanlegt vam fyr-
ir brunakerfi og þá ekki síst fyrir
varaeintakasafh Landsbókasafns-
ins sem verið er að koma upp í
gamla skólahúsinu. GE
Bensíni
stolið
Brotist var inn í geymslu við
Garðavöll á Akranesi aðfaranótt
sunnudags og stolið um 40 lítrum
af bensíni. Málið er í rannsókn
hjá lögreglunni á Akranesi. GE
Sjálfstæðis-
menn vilja
byggja
slöldfristöð
Á síðasta bæjarráðsfundi var
tekin fyrir tillaga sjálfstæðis-
manna um byggingu nýrrar
slökkvistöðvar og athugun um
stofhun hlutafélags um slökkvi-
liðið, en tillögunni var vísað frá
bæjarstjórn til umtjöllunar í bæj-
arráði í lok maí síðastliðins. Á
fundinum á fimmmdag var eftír-
farandi bókun samþykkt:
,Á undanförnum mánuðum
hafa húsnæðismál slökkváliðsins
verið til umfjöllunar hjá bæjaryf-
irvöldum. Hafa verið kannaðir
möguleikar á breytingum á nú-
verandi húsnæði og einnig kaup á
nýju húsnæði. Þar sem þessar at-
huganir hafa ekki leitt til viðun-
andi niðurstöðu er inálinu vísað
til fjárhagsáætlunargerðar fyrir
árið 2002.
Jafnffamt er bæjarstjóra falið að
kanna hvort skynsamlegt geti ver-
ið að stofna byggðasamlag eða
einkahlutafélag um reksmr og
eignir slökkviliðsins í samvinnu
við nágrannasveitarfélögin. Þeim
fjármunum sem fjárhagsáætlun
fyrir árið 2001 gerði ráð fyrir í
viðhald á eldra húsnæði slökkvi-
liðsins verði varið í fraintíðarhús-
næði fyrir starfsemina." SÓK