Skessuhorn - 19.07.2001, Page 7
j&£ssunu>.
FIMMTUDAGUR 19. JULI 2001
7
Eg er alveg að farast úr hamingju
þessa dagana, ég er komin í sumar-
frí. Ekki það að mér leiðist í vinn-
tmni, en oft hefur það reynst þraut-
in þyngri að púsla saman vinnudegi
og heimili með þremur börnum sem
þarf stöðugt að vera að sækja og
senda. Síðustu vikuna fyrir frí gekk
ég um húsið og tilkynnti börnunum
mínum hvernig fyrstu dögum sum-
arfrísins míns yrði háttað.
Börnin andvörpuðu, þetta frí mitt
var orðið á allra vitorði. Vinir,
vandamenn og jafnvel nágrannar
biðu í ofvæni eftir að þetta tímabil í
mannkynssögunni rynni upp þ.e. að
ég tæki sumarfrí. Off heyrðust
setningar frá mér á borð við, Grím-
ur minn ég geri við buxurnar þínar í
ffíinu, láttu þær bara inn í herbergi,
Agla ég kaupi sokka á þig um leið og
ég er komin í frí. Eg tilkynnti ná-
grannanum ánægð að við ætluðum
að mála húsið í fríinu, slá garðinn og
bóna bílinn. Já og ekki má gleyma
ferðalagi þölskyldunnar. Eg var
fyrir mín eigin orð og loforð orðin
algjör „súperkona“.
Líf fjölskyldunnar var sett á bið
fram að sumarfríi. Innanhúss varð
rykið allsráðandi og skyndifæði í
boði upp á hvern einasta dag. En ég
gerði mér miklar væntingar um
batnandi tíð í komandi fríi. Þá
skyldu nú börnin vel girt og þrifin
og útbelgd af heimabökuðum snúð-
um. Heimilið yrði aldrei hreinna og
garðurinn aldrei eins vel hirtur.
Svo rann upp þessi líka fíni dagur.
Nú var ég komin í þetta langþráða
frí og það liði vika þar til eiginmað-
urinn kæmist í sitt. Þetta yrði sann-
kallað húsmæðraorlof. Veðrið var
eins og ég hefði pantað það erlendis
ffá. Eg drattaðist út fyrir húsið og
skellti mér þar á bekk með kaffibolla
og Moggann og sleikti sólina.
Börnin vöknuðu eitt af öðru og
komu út. Eigum við ekki að fá okk-
ur morgunmat mamma? I hvaða föt
á ég að fara? Ætlum við ekki að
gera eitthvað skemmtilegt í dag?
Ætlarðu ekki að gera eitthvað
mamma? Ætlarðu bara að liggja
hérna? Eg reis upp forviða. Hvað
gekk eiginlega að börnunum? Ég
var ekki fyrr komin í ffí en börnin
fóru að gera þessar líka rosalegu
kröfur á mig sem móður. Höfðu
þau ekki bara klætt sig þegjandi og
hljóðalaust og fengið sér sjálf rnorg-
unmat og farið út að leika meðan ég
var í vinnunni.
Ég stundi og ákvað að sólin yrði
að bíða eftir betra tækifæri til að fá
að brenna jökulhvítt hörund mitt
enda væru sólböð hvort sem er stór-
hættuleg og ekkert jafnaðist nú á við
að leita á vit formæðra minna og
skella sér í Hagkaupssloppinn,
vopnast ryksugu og afþurrkunar-
klúti. Nú yrði ég að sanna orð í
verki og efna loforðin.
Seinna um daginn kom eiginmað-
urinn heim og spurði mig hvort ég
væri farin að hugsa út í hvert og
hvenær við ætluðum að leggja í
ferðalag. Guð minn góður, átti ég að
hafa áhyggjur af öllu. Hvers vegna
var ég yfir höfuð að taka mér frí.
Ég varð öskuvond og hreytti út úr
mér hvort við ætluðum við ekki
saman í þetta ferðalag? Eiginmað-
urinn varð eins og hræddur hundur
og tilkynnti mér hlýðinn að hann
færi hvert á land sem er með mér, en
yfirleitt væri nú bara svo að mér fær-
ist betur úr hendi undirbúningur og
skipulag slíkrar ferðar. Auðvitað átti
ég núna, enn eina ferðina, að taka á
mig þá áhættu að velja stað og stund
og ef við yrðum ekki heppin með
veður gæti hann nuddað mér upp úr
því allan næsta vetur, að hann hefði
nú ffemur valið annan landshluta.
Ég fengi að heyra að þessi frekja
mín og stífni yrði alltaf til þess að ár
eftir ár hírðumst við köld og hrakin
í tjaldi maulandi blautar samlokur
og kalt kaffi. Svo kæmum við hálf
lasin heim og börnin með hor í nös.
En nú hafði ég krók á móti
bragði. Ég tilkynnti fjölskyldunni
að nú yrði ekki lagt í hann fyrr en
við værum komin með langtíma
veðurspá frá Veðurstofu Islands sem
yrði algjörlega á ábyrgð veðurstofu-
stjóra. Svo myndi ég hafa sam-
band við gamlingjana í Dalbæ fyrir
norðan, þeir gætu áreiðanlega veitt
okkur haldgóðar upplýsingar um
hvar sumarið væri að finna á sker-
inu og með þessar upplýsingar í
farteskinu yrði stefnan tekin. Ég
yrði rétt kona á réttum stað á rétt-
um tíma. En þá spurði dóttir mín:
En mamma hvað gerum við ef þeir
segja að það verði besta veðrið hér
heima? Það stóð ekki á svari hjá
mér. Þá tjöldum við náttúrulega
bara úti í garði.
Stykkishólmsbær óskar eftir tilboðum
í sorphreinsun, uppbyggingu og rekstur
sorpflokkunarstöðvar í Stykkishólmi.
Byrjað verður að afhenda gögn á
skrifstofu Stykkishólmsbæjar
fimmtudaginn 19. júlí næstkomandi.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn
14. ágúst 2001 kl. 14.00 á skrifstofu
Stykkishólmsbœjar í Ráðhúsinu,
Hafnargötu 3 í Stykkishólmi.
Bæjarstjórinn í Stykkishólmi
Auglýsing
um breytingu á svæðisskipulagi norðan
Skarðsheiðar 1997-2017
Sveitarstjóm Borgarfjarðarsveitar auglýsir skv. 2.
mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997
tillögu að breytingu á svæðisskipulagi norðan
Skarðsheiðar 1997-2017. Gerð er tillaga um
breytingu vegna frístundabyggðar í Birkihlíð
(Reykholtsdal) en deiliskipulag af því svæði var birt
til gildistöku í B-deild Stjómartíðinda í júlí 2000.
Sveitarstjóm bætir það tjón sem einstakir aðilar
verða fyrir við breytinguna. Tillagan verður send
} Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til
j umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu.
! Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna geta
snúið sér til sveitarstjórnarskrifstofu
Borgarfjarðarsveitar, Litla Hvammi, Reykholtsdal.
Sveitarstjóri Borgarjjarðarsveitar
Þórunn Gestsdóttir
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
INGI TRYGG VASON hdl. simi:
Fax: 437-1017
lögg. fasteigna- og skipasali
Nýtt á söluskrá
Kveldúlfsgata 10, Borgarnesi.
íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi, 128 ferm. Forstofa flísalögð. Eldhús parketlagt, viðarinnr.
Stofa, hol og gangur parketlagt. Fjögur svefnherb., þrjú parketlögð og skápar, eitt teppalagt.
Baðherb. flísalagt, kerlaug/sturta, viðarinnr. Gestasnyrting flísalögð. Þvottahús og búr.
Sameiginl. geymsla.
Verð: kr. 10.200.000.
2
%
1 Brekkuhvammur 10, Búðardal.
s Einbýlishús á 2 hæðum ásamt innb. bílgeymslu, 225 ferm. Á efri hæð eru 4 herbergi,
þvottahús og búr. Eldhús parketlagt og eikarinnr. Stofa parketlögð og panelklædd, arinn.
Forstofa flísalögð. Gestasnyrting og baðherb. flísalagt. Á neðri hæð eru 2 rúmgóð herb.,
geymsla og baðherb. Nýleg sólstofa. Sólpallur.
Verð: kr. Tilboð.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.