Skessuhorn - 02.08.2001, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 2. AGUST 2001
o&£SSUtlu>w
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
Skrifstofur blaðsins eru opnar kl. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ebf 431 5040
Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is
Blabamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310 sigrun@skessuhorn.is
Sigurður Mór, Snæfellsn. 865 9589 smh@skessuhorn.is
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Prófarkalestur: Sigrún Kristjónsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Fríðriksdóttir augl@skessuhorn.is
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl.
14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss
tímanlega.
Blaðiö er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Verslun-
annanna-
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Undanfarnar vikur hefur minn vinnudagur að
stærstum hluta farið í að svara fyrirspurnum um
hvað ég ædi að gera um verslunarmannahelgina.
Þótt mér þyki spurningin heimskuleg hef ég brotið
odd af oflæti mínu og gefið gáfulegt svar. Eg ætla að
gera nákvæmlega það sama og allar aðrar helgar,
þ.e.a.s. það sem ég geri hvernær sem tækifæri gefst:
Akkúrat ekki neitt!
Ég hef aldrei skilið þá gífurlegu þörf sem þorri
landsmanna virðist hafa fyrir að rjúka eitthvað út í
bláinn einmitt þessa einu helgi líkt og það varðaði
við lög að vera heima hjá sér þessa fyrstu daga í
ágústmánuði. Sjálfur myndi ég ekki einu sinni láta
það ýta mér af stað, jafnvel þótt viðurlögin væru
húðlát eða rasphúsvist.
í fyrsta lagi þykir mér umrætt atferli um þessa
helgi vanvirðing við þá sem hún er kennd við,
þ.e.a.s. verslunarmenn. Eg veit svo sem ekki hvað
verslunarmenn hafa unnið sér til ágætis til að heill
dagur eða jafnvel heil helgi sé helguð þeim sérstak-
lega. Fyrst svo er, hinsvegar, þá er það sjálfsagt og
eðlilegt að leyfa þeim að njóta þess í stað þess að
hæðast að þeim með því að gefa öllum frí, nema
verslunarmönnum.
Þetta er náttúrulega hámark lítilsvirðingarinnar.
Eitthvað yrði sagt ef sjómönnum yrði öllum sigað
út á haf á sjómannadaginn eða ef verkalýður lands-
ins væri lagður í einelti þann 1. maí á hverju ári.
Þaðan af síður dytti nokkrum manni í hug að of-
sækja Hvítasunnumenn á hvítasunnudag.
I öðru lagi á ég mjög erfitt með að skilja þá áráttu
allra íslendinga, að mér undanskildum, til að hrúg-
ast á sama blettinn þessa tilteknu helgi.
Ef þetta er það sem menn vilja þá get ég svo sem
ekkert amast við því. Ég óska hinum tvöhundruð-
áttatíuogtvöþúsundáttahundruðfjörutíuogfjórum
Islendingum sem ætla að vera á ferðinni um næstu
helgi góðrar ferðar. Hagið ykkur almennilega þótt
ég sé ekki þarna til að fylgjast með ykkur.
Gtsli Einarsson, aleinn heima
Stuðmenn eru meðal hljómsveita semfram koma á Eldborg 2001
Búist við mikilli umferð á Vesturlandi um helgina
Þrjár skipulagðar
útihátíðir í héraðinu
Búast má við mikilli umferð á
Vesturlandi um verslunarmanna-
helgina þar sem skipulagðar sam-
komur verða óvenju umfangsmikl-
ar í kjördæminu samanborið við
síðustu ár. Hæst ber hátíðina Eld-
borg 2001 sem haldin verður á
Kaldármelum. Þar verður stans-
laus dagskrá alla helgina þar sem
fram kemur fjöldi þekktra hljóm-
sveita, m.a. Stuðmenn, Greif-
arnir, Irafár, Skítamórall og Jet
Black Joe. Síðastliðinn mánudag
var búið að selja um 3.500 miða á
Eldborgarhátíðina í forsölu. Ald-
urstakmark á hátíðinni er 16 ár.
Síðast var haldin útíhátíð um
Verslunarmannahelgina á Kaldár-
melum árið 1992 og þá munu gest-
ir hafa verið innan við fjögurþús-
und en öruggt má telja að gestir
þar verði mun fleiri nú.
Mannrækt á Hellnum
A Brekkubæ á Hellnum verður
að vanda haldið Mannræktarmót.
Að sögn Guðrúnar Bergman á
Brekkubæ er lögð áhersla á fjöl-
skylduvæna dagskrá. Meðal dag-
skrárliða eru jógaæfmgar, ratleikir
með sögulegu og þroskandi ívafi,
helgistund, friðarathafnir, kvöld-
vökur, heilun, nudd, grasaferðir o.
fl. Sérstakur gestur hátíðarinnar
verður væntanlega Roy Littlesund,
Hopi indíáni sem kynnir speki
Hopi indíánanna.
Lífsmark á Staðarfelli
Þrátt fyrir að engin starfsemi sé
á meðferðarheimilinu á Staðarfelli
í sumar verður hin árlega útihátíð
SAA á sínum stað um verslunar-
mannahelgina.
Ekki er vitað um aðrar skipu-
lagðar hátíðir í kjördæminu um
helgina en víða má búast við að
fólk safnist saman á tjaldsvæðum
og í sumarbústaðabyggðum.
^Mikill viðbúnaður vegna verslunarmannahelgarinnar
Oflug liðsveit vaskra manna
segir Björn Jónsson sem skipuleggur löggæslu á Eldborg
Bjöm Jónsson lögregluvarðstjóri
í lögreglunni á Snæfellsnesi hef-
ur yfirumsjón með skipulagn-
ingu löggæslu vegna Eldborgar-
hátíðarinnar. I samtali við
Skessuhom sagði hann að gæsla
á svæðinu yrði góð alla helgina.
Bæði yrði þar fjölmennt lög-
reglulið og einnig myndu um
eitt hundrað björgunarsveitar-
menn af Snæfellsnesi og víðar
standa vaktir á svæðinu uin helg-
ina. „Það verður héma öflug lið-
sveit vaskra manna,“ segir Bjöm.
I lögreglunni á Snæfellsnesi era
ekki nerna átta lögregluþjónar og
því þarf að kalla til liðsauka annars
staðar frá. Flestir koma úr Reykja-
vík en einnig verða á vöktum á
Kaldármelum lögregluþjónar frá
Akranesi, Keflavík og Ólafsfirði.
Eins og fram kemur hér að ofan
er sextán ára aldurstakmark á há-
tíðinni og segir Björn að grannt
verði fylgst með að því verði fram-
fylgt. Varðandi meðferð áfengis á
hátíðinni segir Björn að þar gildi
almenn lög um aldurstakmark.
Hann segir að fylgst verði með þ\ í
að fólk undir tvítugu fari ekki með
áfengi inn á svæðið og leitað verði
á fólki og í farangri ef ástæða þvk-
ir til.
Hann segir að sú viðmiðun sem
sé til staðar sé frá 1992. „Þá gekk
þetta nokkuð vel en þá náði fjöld-
inn aldrei fjórum þúsundum. Við
rennum vissulega blint í sjóinn
varðandi fjöldann í ár en ég gæti
látið mér detta í hug að þarna
yrðu milli fimm og átta þúsund
mann' Það má því fastlega búast
við að helgin verði erfið. Eg vænti
þess hinsvegar að fólk verði þarna
í þeim tilgangi að skemmta sér á
heilbrigðan og eðlilegan hátt og
láta sér líða veJ. Þá ætti allt að geta
farið vel fram,“ segir Björn.
Búist við gífurlegri umferð um Borgarfjörð
Viðbúnaður vegna
umferðar á Eldborg
Að sögn Stefáns Skarphéðins-
sonar sýslumanns í Borgamesi
verður lögreglan í hans umdæmi
með sérstakan viðbúnað vegna
mikillar umferðar sem búist er
við að verði á Eldborgarhátíðina.
„Stóra málið á okkar svæði verð-
ur þessi mildi umferðarþungi. Um-
ferðin hefur verið gífurleg í allt
sumar og segja má að hver lielgi
hafi verið eins og verslunarmanna-
helgi. Við reiknum með að uinferð-
in um umdæmið verði enn meiri
um verslunarmannahelgina og allt
öðruvísi. Þar sem fólki er stefnt á
Stefán Skarphéðinsson
Eldborg verður umferðarstrevTnið
með öðru smiði og það skapast
mikil hætta við vegamót Ólafsvík-
urvegar og Vesturlandsvegar Settar
verða upp hraðalækkanir þar til að
hægja á umferðinni. Það liggur ljóst
fyrir að umferðin þarna verður erf-
ið og þung og það geta myndast
raðir. Því verður við að biðja fólk að
taka tillit til þess og gæta ítrastu
varkárni,“ segir Stefán. Hann segir
að fleiri verði á vakt en verið hefur
áður og allt kapp verði lagt á að
tryggja að umferðin gangi eins
snuðrulaust og kostur er.