Skessuhorn - 23.08.2001, Page 16
TOYOTA salurinn
<S«p^
PÓSTURINN
Þú pantar.
Pósturinn afhendir.
Heimsending um allt land
Engjaási 2, 310 Borgarnes, sími 437 2300, fax 437 2310
Uppmælingar á
Grundarkampi
Á gamla bæjarstæði Grundfirð-
inga, Grundarkampinum, hafa ný-
verið farið fram uppmælingar á
rústum gamalla húsa. Er fram-
kvæmdin liður í átaksverkefni
Þjóðminjasafnsins og Landsvirkj-
unar sem felur í sér að merkja frið-
lýstar minjar á Islandi. Að sögn
Magnúsar A. Sigurðssonar, Minja-
varðar Vesturlands, felst verkefnið
þarna á Grundarkampinum, í að
búa til teikningar fyrir skilti og
loftmynd af svæðinu. Þann 22.
september n.k. verður menning-
arminjardagur á Islandi. Er áætlað
að þá verði búið að merkja inn á
kort hús eins og þau voru á
Grundarkampi fram til 1897, en
þá var þar hætt við kaupstaða-
myndun. Þann dag verður því
hægt að fá leiðsögn um svæðið og
hægt að glöggva sig á staðháttum á
vönduðu skilti.
Elsta byggða húsið á svæðinu er
frá 1663, Hollenska húsið svokall-
aða, en annars eru þau flest frá 18.
öld. Árið 1786 hlýtur Grundar-
fjörður kaupstaðarréttindi og árið
1792 gerir Sæmundur Hólm
skipulagsuppdrátt af svæðinu, en
það er líklega elsti skipulagsupp-
dráttur landsins.
smh
Akranes og Innri-
Akraneshreppur ekki af
byggðakortínu
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
hefur nú dregið til baka þá ákvörð-
un sína að taka Akranes og Innri-
Akraneshrepp af byggðakorti fyrir
Island og munu því sveitarfélögin
og fyrirtæki á svæðinu áfram eiga
kost á byggðastyrkjum.
Skessuhorn greindi frá því fýrir
skömmu að EFTA hefði sett fram
þá tillögu að taka Akranes og Innri-
Akraneshrepp af byggðakortinu
vegna þess að svæðið væri of þétt-
býlt og að Hvalfjarðargöngin hefðu
gert það að einu atvinnusvæði með
Reykjavík. Kristján Skarphéðins-
son, skrifstofustjóri byggðamála í
iðnaðarráðuneytinu, segir að ráðu-
neytið hafi sent EFTA bréf þar sem
tillögunni var mótmælt. „EFTA
rökstuddi tillöguna með því að
þarna væru komin göng sem gerðu
Akranes og höfuðborgarsvæðið að
einu atvinnusvæði. Þeir tóku þeim
röksemdum okkar að þetta væri alls
ekki sama atvinnusvæði enda væri
dýrt að keyra á milli, lágmarks-
kostnaður í göngin væri 880 krón-
ur. Því verður staðan óbreytt frá því
sem áður var.“
SÓK
Olsari
bjargaðist
þegar eld-
ur kom
upp í bát
Sjómaður úr Olafsvík slapp
heill á húfi þegar eldur kom
upp í trillu, Hrönn AK, sem
hann var í úti á Húnaflóa síð-
astliðinn laugardag. Báturinn er
gerður út frá Akranesi. Sjómað-
urinn hafi orðið var við eld í
bátnuin á föstudagskvöld en
slökkti hann. Á laugardag var
því enn brunalykt í bátnum sem
gerði það að verkum að hann
varð seinna var við eldinn en
ella. Maðurinn kveikti á neyð-
arbauju í björgunarbát trillunn-
ar og var bjargað skömmu síðar.
Þá var báturinn orðinn alelda,
aðeins fáum mínútum eftir að
eldurinn kviknaði.
SÓK
Vatnsmót
á Akranesi
Á heimasíðu Golfsambands
Islands kemur fram að hinn 20.
ágúst fyrir 34 árum síðan var
Vatnsmótið, fyrsta golfmót á
Akranesi, haldið. Mótið dró
nafn sitt af veðrinu þann dag.
Eins og fram kemur annars
staðar í blaðinu fór Sveita-
keppni GSI fram á Garðavelli
nú um helgina, dagana 17.-19.
ágúst. Þá endurtók sagan sig
nær nákvæmlega 34 árum síðar
þar sem úrhellisrigningu gerði
á sunnudeginum. A ýmsu gekk
og gripið var til þess ráðs að ýta
rigningarvatni út af flötum auk
þess sem þurfti að skera nýja
holu á átjándu flöt, en móts-
stjórn er heimilt að gera slíkt í
miðri umferð í holukeppni.
Góð
tílboð í
sorphirðu
Tilboð hafa verið opnuð í
sorphreinsun, uppbyggingu og
rekstur sorpflokkunarstöðvar í
Stykkishólmi. Að sögn Ola Jóns
Gunnarssonar, bæjarstjóra voru
tilboð almennt góð en tilboð
íslenska gámafélagsins hag-
stæðast og verður líklega geng-
ið til viðræðna við þá á næstu
dögum. Var tilboð þeirra 17,9
milljónir króna á ári, en kostn-
aðaráætunin hljóðaði upp á
12,9 milljónir króna á ári.
Reiknar Oli Jón með að samn-
ingur um sorphirðuna í Stykk-
ishólmi verði gerður til næstu
fjögurra ára.
smh