Skessuhorn - 18.10.2001, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 18. OKTOBER 2001
„.r.V'iiiiii,.
Fimmhundruð manna björgunaræfing á Snæfellsnesi
Rústabjörgunarmenn að störfum
I rúst. Björgunarsveitarmaður kíkir upp um gat á nístasvœöinu.
Um þrjúhundruð björgunar-
sveitarmenn af öllu landinu voru
ræstir út um fjögurleytið aðfara-
nótt síðastliðins laugardags til að
taka þátt í stærstu björgunaræfingu
landsins sem haldin var vítt og
breitt um Snæfellsnes. I æfmgunni,
sem haldin var á vegum Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar í sam-
vinnu við landhelgisgæsluna, vam-
arliðið og fleiri aðila, var reynt að
taka á sem flestum þáttum björg-
unarstarfs, leit og björgun á sjó og
landi og leitarstjórn. Utbúin voru
fjölbreytt verkefni fyrir björgunar-
sveitarmenn að leysa s.s. rústa-
björgun, sjúkraflutningar, klifur og
sig svo eitthvað sé nefnt. Auk
björgunarsveitarmannanna sem
tóku beinan þátt í æfingunni komu
um tvö hundruð manns að henni
með einhverjum hætti, bæði við
undirbúning og stjórnun og síðan
var fjöldi manns í hlutverki sjúk-
linga og fórnarlamba hinna fjöl-
breyttustu slysa sem sett vora á
svið.
Rústir
I tengslum við æfinguna var
formlega tekin í notkun ný aðstaða
til rústabjörgunaræfinga í þjálfun-
arbúðunum á Gufuskálum og er
hún sú eina sinnar tegundar á
landinu. Aður var slík aðstaða
hinsvegar til staðar í Saltvík á Kjal-
arnesi en hún hefúr ekki verið not-
uð í nokkurn tíma. Það var Sturla
Böðvarsson, samgönguráðherra,
sem opnaði formlega aðstöðuna á
Gufuskálum að viðstöddum for-
stjóra Landhelgisgæslunnar, ríkis-
lögreglustjóra, landlækni og fjölda
björgunarsveitarmanna og annarra
gesta. Að því loknu tóku björgun-
armenn frá björgunarsveitinni Ar-
sæli til óspilltra málanna við að
bjarga fólki sem var fast í þessum
tilbúnu húsarústum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnarfélaginu Landsbjörg
tókst æfingin vel enda hentar Snæ-
fellsnesið afar vel til björgunaræf-
inga þar sem landslagið býður upp
á nánast allar þær aðstæður sem
björgunarsveitarmenn þurfa að
fást við. GE
Þyrla vamarliðsbis tók þátt í æfingunni
Franska skútan L’Oca með þanin seglin.
ATVINNA
Bifreiðastjóri / sölumaður
Eðalfiskur óskar eftir að ráða bifreiðastjóra/sölumann til útkeyrslu.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Fólk í vinnslusal
Eðalfiskur óskar eftir að ráða fólk til framleiðslustarfa, í vinnslusal,
pökkun og fleira.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Eðalfisks,
Sólbakka 6, sími 437 1680
Ragnar eða Asgeir
, ,
Fjölskyldan ætlar að búa í eitt ár í bátnum
Franska skútan í
Stykldshólmshöfn
-Væsir ekki um okkur í vetur
Eins og Skessuhorn greindi frá
fyrir skömmu þá liggur frönsk
skúta bundin við bryggju í Stykkis-
hólmi. Þar hefur frönsk fjögurra
manna ijölskylda ákveðið að eyða
heilu ári og upplifa Island frá sjó og
landi.
Forsaga málsins er sú að fyrir sex
árum tóku frönsku hjónin sig upp
frá heimkynnum sínum rétt við
Bordeaux í Frakklandi og fóru í árs
leyfi frá störfúm sínum til að sigla
um norðurslóðir á skútu sinni.
Höfðu þau viðdvöl á íslandi á þess-
ari ferð sinni og heilluðust svo að
þau hétu því að koma aftur hingað
til lengri dvalar og upplifa íslensk-
an vetur. Þann 25. ágúst komu þau
svo til Stykkishólmshafnar eftir
siglingu frá Frakklandi, um
Skotland, Færeyjar, Vestmannaeyj-
ar og Reykjavík. Boris Germes,
íjölskyldufaðirinn, sigldi reyndar
með vinum sínum til Skotlands en
kona hans ásamt bömunum tveim-
ur kom til liðs við áhöfnina þar.
Boris segir að Stykkishólmur hafi
orðið fyrir valinu vegna jarðfræðiá-
huga þeirra auk þess sem hann sé
fallegur og ekki langt frá Reykjavík.
Þá sé höfhin þar góð og þau þyrftu
ekki að hafa miklar áhyggjur í vetur
þegar veður yrðu vond. Raunar
fengu þau smá reynslu af íslensku
slagviðri á dögunum, en Boris seg-
ir að ráðstafanir sem hann gerði á
skútunni, þegar hann einangraði
vistarverurnar fyrir veðurhávaða,
hafi gefið góða raun. „Það væsir
ekki um okkur í höfninni. Við höf-
um allt sem við þurfum um borð
þótt allt sé smátt í sniðum,“ segir
hann.
Munu þau ætla sér að ferðast um
ísland í vetur á bíl sem þau keyptu
sér þegar þau komu til landsins en
fara styttri ferðir á skútunni. „Við
fóram í mesta lagi í stutta fiskitúra
á skútunni og í skoðunarferðir í ná-
grenni Stykkishólms í vetur en
geymum lengri ferðir til næsta
sumars,“ segir Boris. Dóttir þeirra,
Manon, er fjögurra og hálfs árs og
er á leikskóla í Stykkishólmi en
sonur þeirra, Simon, er eins og
hálfs árs. Hjónin era námsfús, enda
bæði menntafólk sem starfar við
kennslu í Frakklandi. Þau ætla sér
því auk landkönnunar Islands að
læra íslenska tungu og vonast
einnig til að getað notið félagsskap-
ar við aðra Stykkishólmsbúa næsta
árið. smh
Frönsku hjónin segja að þráttfyrir
þröngar vistaverur í skútunni sé þar allt
til alls.