Skessuhorn - 04.04.2002, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002
SKgSSUHÖSM
Iisti sjálf-
stæðismanm
og óháðraí
Stykkishólmi
Rúnar Gtslason, héraðsdýralæknir,
mun leiða lista sjdlfitæðis?narma t
Stykkishólmi enflokkurinn hefur
haldið þar meirihluta síðustu ýö kjör-
tímabil.
Á fundi sjálfstæðismanna og ó-
háðra á þriðjudagskvöld var
framboðslisti sjálfstæðismanna
og óháðra, D- listinn, fyrir sveit-
arstjómarkosningarnar 25. maí
nk. samþykktur.
Rúnar Gíslason, sem mun
leiða listann líkt og fyrir síðustu
kosningar, segir að stefnt sé á að
halda meirihluta í bæjarstjóm 8.
kjörtímabiiið í röð og halda þar
með áffam styrkri stjóm á bæjar-
félaginu, en þeir hafa nú fjóra
menn kjörna í bæjarstjórn. Segir
hann að ljóst sé að ef þetta tekst
muni verða leitað efdr því við
Ola Jón Gunnarsson að hann
verði áffam bæjarstjóri.
Listi sjálfstæðismanna er ann-
ars efdrfarandi:
1. Rúnar Gtslason, dýralæknir.
2. Dagný Þórisdóttir,
skrifitofumaður.
5. Eyþár Benediktsson,
aðstoðarskólastjári.
4. Elísabet Björgvinsdóttir,
leikskólakennari.
5. Magnús I. Bænngsson,
jdvarútvegsffæðingur.
6. Sæþór Þorbergsson,
matreiðslumaður.
7. Helga Sveinsdóttir,
grunnskólakennari.
8. Hrannar Pétursson, sjómaður.
9. María Valdimarsdóttir,
skrifitofumaður.
10. Katrín Pálsdóttir,
aðstoðarmaður sjúkraþjálfara.
11. Alda Pálsdóttir, skólaritari.
12. Helgi Haraldsson, iðnnemi.
13. Magnús A. Sigurðsson,
minjavörður.
14. Ellert Kristinsson,
framkvæmdastjóri.
Oveður á Holta-
vörðuheiðinni
Lögregla og björgunarsveitir
vora kallaðar til aðstoðar á Holta-
vörðuheiði síðastliðinn mánudag til
að aðstoða ferðafólk við að komast
leiðar sinnar. Aftakaveður var á
heiðinni sérstaklega framan af degi
og gífurleg hálka. Fjórir árekstrar
urðu af þeim sökum á heiðinni en
engin sfys urðu á fólki.
Björgunarsveitarmenn ffá Borg-
arnesi, Borgarfirði, Akranesi,
Hrútafirði og Hvammstanga fylgdu
fólkinu yfir í lestum og gekk um-
ferðin áfallalítið fyrir sig að sögn
Steinars Þórs Snorrasonar lög-
regluvarðstjóra í Borgarnesi. „Þetta
gekk þokkalega miðað við hvað
umferðin var mikil. Það var reynd-
ar mikið um að fólk væri á ferðinni
á illa útbúnum bílum og jafnvel á
sumardekkjunum og það vom þeir
bílar sem helst vom til trafala. Þá
kann það ekki góðri lukku að stýra
þegar fólk er að reyna framúrakstur
þegar skyggnið er nánast ekkert.
Menn verða að hafa þolinmæðina
með þegar þeir em að ferðast við
þessar aðstæður,“ segir Steinar.
Á mánudagskvöld versnaði veðr-
ið aftur og lokaðist heiðin alveg að-
faranótt þriðjudagsins en var opnuð
á þriðjudagsmorgun.
GE
Pdskaumferðin gekk misjafnlega, jafnt á
vegum sem vegleysum eins ogfram ke?n-
ur annarsstaðar í blaðinu. Meðal annars
lenti þessi jeppabifreið í hrakningum þeg-
ar til stóð að aka henni eða sigla eftir
Norðurá. Mynd: GE
Atvmnuátaksverkefni
á Akranesi
Trésmiðja Pálmars ehf er þessa dagana að byggja tveggja íbúða raðhús við Hraunás á
Hellissandi. A Hellissandi hefur verið skortur á tbiíðarhúsnæði að undanfómu og lítið
framboð bæði afhiísnæði til leigu og sölu. A myndinni eru starfsmenn Steypustöðvar
Þorgeirs að koma með steypu í nýbygginguna í síðustu viku.
Á síðasta fundi bæjarráðs Akra-
ness var félagsmálastjóra falið að
undirbúa fjögurra til sex vikna á-
taksverkefni í atvinnumálum fyrir
fóólk á aldrinum 17-20 ára. „Þetta
hefur verið gert á hverju sumri að
undanförnu en þá fjölgar ungu
fólki verulega á atvinnuleysisskrá
um leið og skóla líkur. Hinsvegar
er þetta nýtt á þessum tíma,“ segir
Sólveig Reynisdóttir félagsmála-
stjóri Akraneskaupstaðar. „Eftir
páskana vom 19 aðilar á aldrinum
17 - 20 ára á atvinnuleysisskrá sem
er nokkuð há tala. Þarna er bæði
um að ræða fólk sem hefur hætt í
námi eða misst vinnuna. Á þenslu-
tímum er meira um að fólk taki sér
hlé frá námi því þá er nóg pláss á
vinnumarkaðnum en síðan þegar
þrengir að þá er það yngra fólkið
sem fyrst er sagt upp.“
Sólveig segir að þótt það sé
slæmt fyrir alla að vera atvinnulaust
þá sé það kannski hvað erfiðast fyr-
ir yngra fólkið. „Kannski ekki fjár-
hagslega heldur frekar andlega því
folk tapar frekar sambandi við sam-
félagið og því verður meiri hætta
búin í samfélagi þar sem hættur á
borð við vímuefni og fleira leynast
á bak við næsta horn. Þessvegna
teljum við mjög mikilvægt að
hrinda þessu verkefni af stað og í
ljósi reynslunnar eram við sann-
færð um að það skili árangri,“ segir
Sólveig.
Sólveig segir að verkefhið verði
styrkt af atvinnuleysistrygginga-
sjóði en það byggist upp á vinnu að
umhverfismálum í tengslum við 60
ára affnæli Akraneskaupstaðar og
tveggja vikna ffæðslu. Haldin verða
námskeið í tölvulæsi, íslensku, sjálf-
styrkingu og atvinnuleit.
Aðalfundur Haraldar
Böðvarssonar hf.
Sex hundruð
milljóna
tekjuaukning
Á aðalfundi útgerðarfyrir-
tækisins Haraldar Böðvars-
sonar hf. á Akranesi á dögun-
um kom ffam í máli Haraldar
Sturlaugssonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins, að brúttó-
tekjur fyrsta ársfjórðungs
væru áætlaðar um 2,3 millj-
arðar. Er það um 600 milljóna
króna tekjuaukning miðað við
sama tíma árið 2001.
I ræðu sinni gagnrýndi Har-
aldur auðlindagjald það sem
sjávarútvegsráðherra hefur
lagt fram frumvarp um á Al-
þingi. Sagði hann að fyrir
Harald Böðvarsson hf. þýddi
það um 90 milljónir króna
gjöld í ríkissjóð á ári, en sú
upphæð myndi duga til að
borga nýjast skip fyrirtækisins,
Ingunni, upp á rúmum áratug.
Hann benti ennfremur á að í
Ijósi þess að talað væri sífellt
um að efla þyrfti landsbyggð-
ina og að um 90 prósent af
aflaheimildum landsmanna
væru á landsbyggðinni, skyti
það skökku við að auka sér-
tækar skattheimtur á fyrirtæki
í útgerð.
Haraldur gerði aukinheldur
grein fyrir farsælum samrun-
um fyrirtækisins frá 1995 og
sagði þá hafa styrkt rekstur-
inn, eflt fyrirtækið og starf-
semina. Sagði hann að sjávar-
útvegsfyrirtækin á Akranesi
hafi orðið hagkvæmni sam-
runa ljós strax fyrir 11 árum
þegar þau sameinuðu krafta
sína og á eftir hafi sjávarút-
vegurinn á Akranesi staðið
sterkari en aldrei fyrr.
smh
Kvótaaf-
gangurupp
á 9.000 tonn
Þrátt fyrir afar góða veiði
loðnuskipa Haraldar Böðvars-
sonar hf. á nýyfirstaðirmi ver-
tíð vantaði um 9.000 tonn upp
á að fyrirtækið kláraði afla-
heimildir sínar.
Að sögn Sturlaugs Haralds-
sonar, sölustjóra hjá HB, varð
nokkuð snöggur endir á
loðnuvertíðinni fyrir tveimur
vikum þar sem loðnan
hrygndi nokkuð dýpra en oft
áður og því varð veiði ekki
mikil eftir hrygninguna. „-
Þetta gerði það að verkum að
heildarkvótinn í loðnu náðist
ekki að öllu leyti enda var
hann gífurlega mikill á þessari
vertíð. Þessi 9.000 tonn eru
um það bil sá viðbótarkvóti
sem HB var úthlutað í sl.
marsmánuði en til að veiða
slíkt magn hefðu Ingunn og
Víkingur þurft hvort um sig
tvær veiðiferðir til viðbótar,“
segir Sturlaugur.
smh