Skessuhorn - 04.04.2002, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 4. APRIL 2002
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraul 3 Sími: 431 4222
Skrifstofur blaðsins eru OPNAR KL. 9- 16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ebf 431 5040 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjóri og óbm: Gísli Einnrsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is
Blaðamenn: Hjörtur Hjortarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Sigurður Már Harðarson 865 9589 smh@skessuhorn.is
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjarlarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Prófarkalestur: Ásthildur Magnúsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir augl@skessuhorn.is
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Sðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
riftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð
í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Útþrá
Ein af þeim plágum sem herja á þjóðfélagið í dag er sú árátta
fólks að æða ítrekað út úr húsi og geta aldrei tollað heima hjá
sér. Þetta er gert undir því yfirskini að útdvist sé nauðsynleg
fyrir líkama og sál en í raun er þetta ístöðuleysi og ekkert ann-
að.
Eg óttast að ég sé orðinn einn af fáum Islendingum sem
kann að meta gildi góðrar innivistar. Það kom berlega í ljós nú
um páskana. Ég afgreiddi þessa hátíðisdaga á hefðbimdinn hátt
með minni sérhönnuðu heilögu þrenningu, drakk rauðvín, át
páskaegg og horfði á ofbeldiskvikmyndir. Ég geri yfirhöfuð
ekki meiri kröfur. A meðan ruku flestir aðrir út í veður og vind
í orðsins fyllstu merkingu.
Það hefði svosem mátt afsaka þetta ef veður hefði verið boð-
legt almenningi en staðreyndin er hinsvegar sú svo ótrúlegt
sem það er að útþráin eykst í sama hlutfalli og veðurhæðin.
Enda má segja sem svo að þegar búið er að fjárfesta í tíumillj-
ónkrónafjallajeppum þá væri það léleg nýting á fjárfestingunni
að aka þeim í blíðviðri. Síðan er fullt af björgunarsveitarmönn-
um um allt land sem væri fáránlegt að láta sitja aðgerðarlausa
heima hjá sér.
Einhver sem ekki vissi betur gætd á þessum tímapunktd hugs-
að sem svo að ég væri öfundsjúkur þar sem ég á engan háfjalla-
jeppa á ofboðslega margra tommu dekkjum. Elinsvegar er það
ekki svo þar sem ég treysti mér fullkomlega tdl að fara mér að
voða á mínum tíu ára gamla Subaru ef ég á annað borð myndi
fara í það verkefni. Mér þykir hinsvegar að á þessu sviði líkt og
ýmsum öðrum megi huga að hagræðingu í rekstri. Það er sjálf-
sagt að taka tdllit tdl þeirra sem hafa óseðjandi fíkn í kulda og
vosbúð en það er hægt að gera á mun ódýrari hátt. Meðal ann-
ars er þama komið kjörið tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila vítt
og breitt um landið að nýta aflögð frystihús. Þar gætu jeppa-
og vélsleðamenn látið loka sig inni yfir eina helgi við fjörtíu
gráður með bundið fyrir augu og þannig upplifað alveg sömu
tilfinningu og að vera grafhir í fönn uppi á jökli. Umsjónar-
mönnum ffystiklefanna yrði að sjálfsögðu treyst til að gefa ekki
uppi hverjir þar væra geymdir til að viðkomandi aðilar geti
verið sem allra týndastir. Þá geta vinir og vandamenn haft al-
vöru áhyggjur þannig að þetta verði allt sem raunverulegast.
Ef þetta fellur ekki öllum í geð og einhverjir kjósa ffekar að
týnast á víðavangi en við þartilgerðar aðstæður þá verður svo
að vera. Ég legg hinsvegar tdl að þá verði leitarstarf sldpulagt
öðruvísi og væri þá ekki úr vegi að leita í smiðju sauðfjárbænda
en fjárleitir eru yfirleitt á fyrirfram ákveðnum dögum. Það ætti
þá að verða mun auðveldara fyrir björgunarsveitarmenn að
skipuleggja allt sitt starf ef leitir eru aðeins einu sinni á ári og á
fyrirffam ákveðnum tíma. Hugsanlega mætti ná ffam samlegð-
aráhrifum með samstarfi við einstök fjallskilafélög. Þeir sem
æda sér að týnast á fjöllum verða þá bara að gæta þess að vera
þokkalega nestaðir!
Gísli Einarsson, innivistarmaður
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Borgarbyggðarlistínn
Nýtt fólk í efstu sætunum
Borgarbyggðarlistinn kynnti
framboð sitt í gærkvöldi á veitdnga-
staðnum Búðarkletti. Enginn af
núverandi bæjarfulltrúum listans er
ofar en í tíunda sæti. „Enginn af
okkur sem skipum efstu sætin hefur
beina reynslu af störfum í sveitar-
stjóm en hinsvegar er þetta fólk
með mjög breiðan bakgrunn þótt
segja megi að kennarar séu áber-
andi á efri hlutanum. Það sem
mestu skiptir er að þetta er kraft-
mikið fólk sem hefur áhuga á að
leggja sitt af mörkum til að gera
gott bæjarfélag enn betra,“ segir
Finnbogi Rögnvaldsson oddviti
listans.
Finnbogi segir að málefnavinna
listans sé að mestu eftir. „Það er
hinsvegar ljóst að áherslan verður
meðal annars á að krefjast þess að
sveitarfélög rétti sinn hlut gagnvart
ríkinu. Við munum einnig leita
leiða til að laða hingað fyrirtæki til
að auka tekjur sveitarfélagsins á en
reyna hinsvegar að halda útgjöld-
um í lágmarki,“ segir Finnbogi.
Borgarbyggðarlistinn er þannig
skipaður:
1. Finnbogi Rögnvaldsson,
Borgamesi (/arðfrœðingur)
2. Asþór Ragnarsson, Borgamesi
(sálfræðingur)
5. Sóley Sigurþórsdóttir, Tungulæk
(kennari)
4. Brynjólfur Guðmundsson,
Hlöðutúni (bóndi)
5. Guðrún Vala Elísdóttir,
Borgamesi (mannfræðingur)
6. Tryggvi Gunnarsson, Borgamesi
(rafrirkjameistari)
7. Asa Björk Stefánsdóttir, Bifröst
(kennari)
8. Einar Þorvaldur Eyjólfison,
Borgamesi (háskólan. á Bifröst)
9. Jóhanna Þ. Bjömsdóttir,
Borgamesi (verslunamtaður)
10. Öm Einarsson, Miðgarði
(bæjarfulltrúi)
11. Anna Einarsdóttir, Kárastöðum
(skrifitofumaður)
12. Ragnheiður Einarsdóttir,
Alftárósi (bóndi)
13. Kristmar Ólafison, Borgamesi
(bæjarfulltrúi)
14. Elín B. Magnúsdóttir,
Borgamesi (forstöðum. DAB)
15. Kristberg Jónsson, Langholti
(veitingamaður)
16. Guðbrandur Brynjúlfison,
Brúarlandi (þæjarfulltrúi)
17. Guðrún Jónsdóttir, Borgamesi
(forseti bæjarstjómar)
18. Sveinn G. Hálfdánarson,
Borgamesi (formaður
Verkalýðsfélags Borgamess)
Hannes hannar fyrsta
golfvöll Færeyinga
-áður leikið á bóndatúni í Hoyvikshaga
Hannes Þorsteinsson hefur hannaðfyrsta alv'öru golfvöll Færey-
inga í Þórshöfh.
Hannes Þorsteinsson, formaður
Golfklúbbsins Leynis á Akranesi, er
kunnur golfvallahönnuður á Islandi
og kylfingur sjálfur með meiru.
Hérlendis hefur hann m.a. hannað
kunnan völl á Korpúlfsstöðum, fyr-
ir Golfklúbb Reykjavíkur, og völl
ofan Garðabæjar fyrir Golfklúbb
Oddfellow. Hann var í Færeyjum á
dögunum til að gefa umsögn um
land sem nota á undir þann völl, en
hingað til hafa þeir ekki átt al-
mennilegan golfvöll. „Eg hafði á
árunum 1994-1995 unnið skipulag
að 18 holu golfvelli fyrir Þórshöfn.
Af gerð hans varð ekki sökum mik-
ils efnahagslegs samdráttar og
fólksflótta frá eyjunum. Nú er
komin betri tíð
með blóm í haga
og olía fundin inn-
an þeirra lögsögu
og ffamtíðin virð-
ist vera björt. Allt
er í vexti og mann-
líf í miklum blóma.
Landið sem ég
hannaði völlinn á
árin ‘94-’95 er nú
orðið að hluta tdl
fýsilegt byggingar-
land fyrir þær 100-
200 fjölskyldur
sem óhjákvæmi-
lega munu flytjast
til Þórshafnar í
tengslum við olíuna og stefht er að
því að hefja gatnagerð o.þ.h. á land-
inu í ár og næsta ár.“
Hannes segist því hafa farið til
Færeyja nú til að skoða aðra mögu-
leika í stöðunni. „Það var nauðsyn-
legt að endurskoða skipulag golf-
vallarins og skoða hvort mætti
hliðra honum til inn á síðra bygg-
ingarland sem er samt sem áður
skemmtilegt fyrir golfbrautir. Þá
var verkefnið einnig að skoða aðra
staðsetningu vestan Þórshafnar en
eldri staðsemingin var í austurjaðri
bæjarins, í Hoyvikshaga,“ segir
hann. Hann bætir því við að auð-
veldlega megi hliðra vellinum til á
Nýttog
glæsilegt
bókasafii
Miðvikudaginn 3. apríl var
tekið í notkun nýtt og glæsilegt
bókasafn í Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi. Það er til
húsa í 150 fermetra nýbyggingu
sem tengist samkomusal skólans.
Framkvæmdir við bygginguna
hófust sl. sumar og lauk nú 15.
mars. Flutt var í safhið í dymbil-
vikunni og allt var tdlbúið þegar
nemendur komu til skóla að
loknu páskafríi. Hafnar eru fram-
kvæmdir við endumýjun á hús-
næðinu sem áður hýstd safnið en
þar verður rúmgóð les- og
vinnuaðstaða fyrir nemendur á-
samt tölvuveri sem nemendur
hafa aðgang að til verkefnavinnu
utan hefðbundinna kennslu-
stunda. Þessi aðstaða sem tengist
nýja bókasafninu verður fullbúin
í sumar. Starfsmenn á bókasafh-
inu era tveir, þær Sæbjörg Jóns-
dóttdr og Erla Olgeirsdóttdr.
smh
Nýr skóla-
stjóri
Gengið hefttr verið frá ráðn-
ingu nýs skólastjóra við Búðar-
dalsskóla í stað Þrúðar Krist-
jánsdóttur sem lætur af störfum
í vor. f hennar stað hefur verið
ráðin Guðrún Halldórsdóttir
sem gegnt hefur starfi aðstoðar-
skólastjóra síðustu ár. GE
Stærðfiræðikeppni
grunnskóla
Góður árangur
Lýsuhólsskóla
Nemendur 10. bekkjar Lýsu-
hólsskóla gerðu góða ferð í
stærðfræðikeppni Vesturlands
sem haldin var á dögunum. Fóra
fjórir keppendur ffá skólanum í
keppnina og lentu þrír þeirra
meðal 10 efstu, en þess má geta
að alls era 7 nemendur í 10.
bekk í Lýsuhóisskóla.
Guðmundur Sigurmonsson,
skólastjóri, segir að þennan góða
árangur sé mörgum samvirkandi
þáttum að þakka. „Þessir krakk-
ar eru auðvitað alveg vandræða-
lausir og hafa lagt sig mikið
fram. Svo hafa þau notið góðrar
kennslu að sjálfsögðu,“ segir
Guðmundur skólastjóri. smh
eldra svæðinu og telur það mun
betra en það nýja.
Hannes telur útlitdð gott á því að
Færeyingar eignist fljótlega sinn
fyrsta alvöra golfvöll. „Hingað tdl
hafa golfáhugamenn í Þórshöfn
leikið golf á túnum bóndans í Hoy-
vik, þ.e. eftdr slátt á sumrin og ffam
á vor þegar grasvöxtur hefst. Þá er
gert hlé þar til eftir slátt!“
Vallargerðin verður styrkt af
bænum auk þess sem ferðamálaráð
Þórshafhar verður vonandi einnig
styrktaraðili, enda gott mál til
styrktar ferðamannaiðnaðinum,"
segir Hannes.
Hann segir að í næstu framtíð
megi því eiga von á heimsóknum
ýmissa forráðamanna golfklúbbs-
ins, bæjaryfirvalda og ferðamála-
ffömuða Þórshafhar til íslands tdl
að læra af okkur hvernig við höfum
byggt upp golfmenningu hér á
landi. smh