Skessuhorn - 04.04.2002, Qupperneq 11
^^ssvnuu.
FIMMTUDAGUR 4. APRIL 2002
11
Gervigras á skólalóðir
- fyrir skólaleikfimi og knattspyrnuiðkun
Bæjarráði Akraness hefur borist
bréf ffá íþróttanefnd bæjarins þar
sem þörf á gervigrasvöllum á
grunnskólalóðir er ítrekuð.
Að sögn Ingibjargar Haralds-
dóttur, formanns íþróttanefndar
Akraneskaupstaðar, segir að það
bafa lengi verið skoðun íþrótta-
nefndar og reyndar fleiri aðila inn-
an bæjarkerfisins að setja eigi upp
velli með gervigrasi við skólana.
„Þetta mál var skoðað á sínum tíma
af íþróttafulltrúa og tækniliði bæj-
arins og lagt mat á kostnað. Við á-
kvörðun bæjarstjórnar við fram-
kvæmdir við skólana, þ.e. einsetn-
ingu beggja skólana, var ekki að svo
komnu máli tekin ákvörðun um að
fara í slíka ffamkvæmd við frágang
lóða. Eg á von á því að þessi mál
verði skoðuð að nýju þegar ný bæj-
arstjóm endurskoðar framkvæmda-
áætlanir kaupstaðarins að kosning-
um loknum, en samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum skal ný bæjarstjóm
m.a. endurskoða þriggja ára fjár-
hagsáætlun kaupstaðarins,“ segir
Ingibjörg.
Ingibjörg telur að margvíslegt
gagn mætti hafa af gervigrasvöllum
við gmnnskólalóðirnar. „Við telj-
um að svona gervigrasvellir við
báða skólana, að sjálfsögðu upphit-
aðir og upplýstir, kæmu til með að
nýtast mjög vel, bæði hvað varðar
skólaleikfimi eftir einsetningu skól-
anna og í ljósi þess að skólaárið er
að færast lengra fram á vor væri
jafnvel hægt að láta hluta af kennsl-
unni fara fram utandyra. Þá myndu
einnig opnast möguleikar fyrir
knattspyrnufélagið til æfinga fyrir
sína hópa, þar sem þeir hafa verið
að æfa úti á veturna við misjafnar
aðstæður - og auðvitað vonum við
að það muni skila okkur enn betri
árangri í boltanum.“
Víkingur
Loðnuvertíð loldð
Að sögn Einars Guðmundssonar
á hafharviktinni á Akranesi var ný
yfirstaðin loðnuvertíð óvenju góð
þó svo að aðeins minna hafi borist
á land á Akranesi en á síðasta ári. I
ár bámst á land á Akranesi
57.310.174 tonn en í fyrra vom
tonnin 58.277.542. Einar segir
skýringuna á því hvers vegna minna
hafi borist á land á Akranesi í ár
vera að hluta til þá að minni afli
hafi farið í frystingu en meiri í
bræðslu og því hafi skipin landað í
meira mæli nálægt þeim slóðum
sem veiðarnar stóðu yfir hverju
sinni. Það megi svo skýra með því
að verð á loðnu sem fer í frystingu
og í bræðslu hefur dregist saman
auk þess sem Einar segir að gæði
loðnunnar hafi augljóslega verið
lakari fyrir frystingu að þessu sinni.
smh
vikuna23. - 30. mars
Ólafsvíkurhöfh Bára 8.065 3 Net
Egill 18.089 4 Dragnót Bárður 16.880 4 Net
LeifurHalld. 5.713 1 Draanót Esjar 8.879 3 Net
Glaður 615 1 Handf. Faxaborg 30.048 2 Net
Geysir 367 1 Lína Hrólfur 11.883 3 Net
Goði 4.879 1 Lína Kristín Finn. 3.446 2 Net
Jóhanna 108 1 Lína Samtals 101.369
Katrín 3.926 1 Lína
Magnús Ing. 606 1 Lína Grundarfjarðarhöfn
Sæfinnur 1.742 2 Lína Sóley 32.609 lBotnvarpa
Ýr 381 1 Lína Ritan 2.229 2 Handf.
Þórheiður 1.874 1 Lína Asthildur 9.605: 4 Lína
BjömKristj. 11.632 6 Net Milla 689 1 Lína
Brík 671 2 Net Vísir 12.984 3 Lína
Egill Halld. 18.805 2 Net Þorleifur 1.661 1 Lína
Guðm. Jenss. 23.456 2 Net Asgeir 1.089 2 Net
GusturVE 4.888 3 Net Garpur 3.919 2 Nét
Jói á Nesi 24.372 8 Net Grundfirð. 2.531 5 Net
Katrín 4.117 . 2; Net Haukaberg 26.035 3 Net
Klettsvík 34.679 3 Net Láki 4.238 2 Net
Linni 7.289 7 Net Lárberg 2.333 2 Net
Ólafur Bj. 61.334 7 Net Sandvík 6.406 3 Net
Pémr Afi 6.345 7 Net Steini Rand. 2.260 3 : Net
Sigurbj. Þor. 1.405 2 Net Samtals 108.588
Sjöfii 70.115 4 Net
Stormur 34.327 2 Net Stykkishólmshöfn
Sverrir 5.572 3 Net María 1.361 1 Lína
Ýmir 21.791 6 Net Arnar 27.968 2 Net
Samtals 369.098 Arsæll 41.287 3 Net
Bjarni Svein 16.713 3 Net
Rifshöfh Grettir 31.539 3 Net
Hamar 11.972 lBotnvatpa Þórsnes 38.280 3 Net
Rifsnes 8.472 1 Botnvarpa Þórsnes II 31.707 3 Net
Kári II 1.724 1 Handf. Samtals 188.855
~Pc4Uiinn
Vangaveltur á vordögum
Það er laugardagur og sá síðasti
í marsmánuði - laugardagurinn
fýrir páska, þetta árið.
Við eram stödd vestur í Hauka-
dal í Dalasýslu. Vorsólin nokkuð
hátt á lofti, enda komið fram yfir
vorjafndægur. Lygnan er alger, og
reykur liðast upp úr reykháf, svo
undur hljóðlega. Þarna ríkir
kyrrðin. I þessari yndislegu ró, er
sest út í skafl, við vesturenda húss,
þar sem sólin sendir geisla sína yfir
menn og málleysingja, og vekur
upp það líf sem lagðist í dvala um
veturnætur.
Fiskifluga suðar undir húsgafli,
náttúran „er ei einhöm“ við að
leysa sig úr fjötram snjóa, með al-
veg ógnarkrafti. Þungir dynkir
heyrast af og til og snjóhengjur
bresta, og vatn vætlar úr hverri
glufu snjóþekjunnar. Lyktin úr
jarðveginum svo hrá. Áður en
dagur er að kveldi kominn, hefur
snjóþekjuna í kringum þetta hús,
að mestu leyst.
Bæjardyr standa upp á gátt og er
verið að búa sig undir móttöku
gesta.
Kveikt er á langeldi fýrir miðju
gólfi, eins og vera ber í slíku húsi,
og er matmikil kjötsúpa í potti yfir
eldi.
Húsfreyja, prýdd hinum bestu
klæðum, tekur á móti gestum sín-
um, býður þeim til sætis og ber
þeim súpu og segir þeim sögur
þaðan úr héraði.
Þær sögur era alla jafna ekki jafn
friðsamlegar og umhverfi bæjarins
Eiríksstaða er nú. Þar áttu sér
stað atburðir sem hrundu af stað
röð örlagaríkra atburða.
Ut frá þeim sögum spunnust svo
umræður um Dalahérað og alla þá
örlagavalda sem það hérað hýsti.
Ber þar hæst að nefna þá feðga
og þeirra fjölskyldu, Eirík rauða
og Leif heppna.
Þá bar þá kvensköranga Auði
djúpúðgu, Guðrúnu Osvífursdótt-
ur og Hallgerði Langbrók ekki
síður á góma - og síðast en ekki
síst Hvamms-Sturla og afkomend-
ur hans.
Ymsar spurningar leituðu á
huga gesta húsfreyju á Eiríksstöð-
um, svo sem eins og „....hvaða
nafngift hefði landið Grænland
hlotið, hefði Eiríkur rauði ekki
siglt í vestur, fundið þar land sem
greinilega bar ekki svo græna á-
sýnd, og ákveðið að gefa því þetta
hlýja nafn, til þess að laða að fleiri
landnema til þessa ný-uppgötvaða
lands?“
„....hvernig hljómaði Njála, ef
Hallgerður Langbrók hefði ekki
gifst í héruð þeirra höfðingja af
Suðurlandi ?“
Frá Eiríksstöðum
Alma Guðmundsdóttir
ferða- og atvinnumálafulltrúi
Dalabyggðar
♦
Akveðið hefur verið að
rífa hafnarhúsið í Borg-
arnesi eftir að HH ve'la-
leiga sem hejur haft
húsið á leigu síðustu ár
flytur í nýtt húsnæði á
næstunni. A hæjar-
stjómarfundi fyrir
skömmu var málinu
vísað til hæjarráðs til að
athuga hvort húsið hefði
menningarsögidegt
gildi. Bœjarráð hefur nú
komist að þeitrí niður-
stöðu að svo sé ekki og
þw' stendur fyrri
ákvörðun um að fjar-
lægja húsið.
GE