Skessuhorn - 04.04.2002, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 4. APRIL 2002
15
Guðmundur Ingimarsson:
„Já það er greinilega vor í
lofti, gróandinn kominn áfullt
ogfuglamir að m<eta. “
íil
Wk
Herdís Jónasdóttir:
„Já það finnst mér enda
sumardagurinn fyrsti á næsta
leyti. “
; 4" '1
\
Oddrún Elísabetardóttir:
„Jáég heldþað, samtfinnst
mér rigningin ekkert góð. “
: "4
-V Í ;
'
■■
V”
III
Berta Guðsteinsdóttir:
„Mér heyristþað áfuglunum
að vorið sé á næsta leyti. “
Gréta S. Einarsdóttir:
„Já ömgglega, bara það væn
ekki svona mikil rigning.“ ; . ■ j
Sigurborg Jónsdóttir:
„Já svrna næstum því, það er
alla veganna nokkuð hlýtt úti.* l 2 3 4 5 6 7 8 9'
] ÍfSllftHtJtfJ
Það er
spurnmg
i-\ /
Er vor 1
Miill
(Spurt í Borgamesi)
*
ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR -
Nú er Faxabúð
flekkur
Halifax fallið úr neðstu deild
Réttur tugur fót- og farlama
Faxa laut um helgina í kal fyrir
fullskipuðu liði Kærleiksbjarn-
anna (Darlington) er þeir stein-
lágu með engu marki gegn fimm.
Þar með er Ijóst að Faxar eru
fallnir úr neðstu deild þótt þrír
leikir séu enn eftir, því 10 stig
skilja nú milli feigs og ófeigs. Nú
er grátur og gnístran tanna í Hali-
faxhreppi og m.a. heyrðist þetta
kveðið á einni knæpunni:
Halanna farsældar fax
og fótboltans bláhvíta stjarna
hvar er þín fornaldar frægö,
fimin og knatttæknin best?
Faxið er sexí og smart
og sígrænir bændanna akrar,
fögur er Halifax hlíð
hagar og engi og tún.
Fremst á engjunum út
þar sem ennþá kartöflur vaxa
á grænni og flóðlýstri flöt
feðranna leikvöllur stóð.
Allt er í fótbolta fallvalt
og frægðarljós horfinna daga
lýsir svo skínandi skært
í skímu af liðinni öld.
Þá komu vígamenn vænir
og vítateigshetjurnar góðu
enda var fúlgum of fjár
fórnað í leikmannakaup.
Reistu þá bæjarins búar
í brjálæðiskasti stúku
aukast tók íþrótt og frægð
undu menn glaðir við sitt.
Á Kaldadals *1) íðgrænu kinn
hvar kappar á Skeiðvelli(*2) léku
þar er ein fagurgræn flöt
þar Faxarnir sigruðu oft.
Þá lék hann Lárus(3*) í marki
og Liljuson4*) stjórnaði liði
þar voru Mikjáll*5) og Miðskel*6)
Matthefur(*7), Þórgnýr(*8) og Páll*(9)
Þá runnu kappar fram kanta
og kollspyrnur enduðu í marki
fögnuðu fylgismenn dátt
færandi stigin í hús.
Það er svo lummó að liggja kyrr
og leikmenn þeir hlaupa
annað hvort aftur í vörn
ellegar beint inn í teig.
Hvert er þá Faxanna framlag
í fimmhundruð leikjum?
Höfum við sólað til sigurs
eða sjálfa oss skóm vorum úr?
Faxið er sexí og smart
og sígrænir bændanna akrar
fögur er Halifax hlíð
hagar og engi og tún.
En fremst á engjunum út
þar sem ennþá kartöflur vaxa
á grænni og flóðlýstri flöt
fótbolti er leikinn ei meir.
Nú er hún Faxabúð flekkur
og flagið i markteiknum helga
gróflega af fíflum gulnar
geitum og sauðfé að leik
Ó þér Faxverjafjöld
og Frónversku aðdáendur
svona er Faxanna frægð
fallin í gleymsku og dá!
Orðskýringar:
1) Héraðið Calderdaleskíri
2) The Shay, heimavöllur Faxa
3) Lárus Bryti (Lee Butler), markvörður
4) Mark Lillis, brottrekinn þjálfari
5) Mikjáll Málgi (Michael Ord), vara-
maður
6) Grámann Miðskel (Graham
Mitchell), miðherji
7) Matthefur Klöruson (Matthew Clar-
ke), ófríður framherji
8) Þórgnýr Kyrri (Tony Parks), gamall
jaxl
9) Páll Berg (Paul Stoneman), frægur
tuddi
BMK
Körfubolti
Tveir flokkar
af Akranesi
í úrslit
8. og 9. flokkur hjá ÍA tryggðu sér
sæti í úrslitum íslandsmótsins fyrir
skemmstu. 8. flokkur leikur í úrslita-
turneringunni núna um næstu helgi
en 9. flokkur leikur undanúrslitaleik-
inn 20.apríl og daginn eftir er úr-
slitaleikurinn ef þeir komast áfram.
8. flokkur vann örugglega sinn riðil
um þarsíðustu helgi og leikur því í
a-úrslitum um næstu helgi eins og
áðursegir. Skagamenn sigruðu alla
fjóra leiki sína og flesta með miklum
yfirburðum. í úrslitunum verða and-
stæðingar þeirra Fjölnir, KR, Kefla-
vík og Njarðvík. Vissulega stórveldi
í körfuboltanum í dag en Skaga-
strákarnir hafa sýnt það í vetur að
þeim eru allir vegir færir.
9. flokkur lék í a-riðli í annað sinn í
vetur helgina fyrir páska og lenti
þar í öðru sæti sem tryggði þeim
sæti í undanúrslitum. í undanúrslit-
um mæta þeir Fjölnismönnum úr
Grafarvogi og má telja möguleika
þeirra á sigri þar ágæta. Liðin
mættust f síðustu turneringu og
höfðu Fjölnismenn þar nauman
þriggja stiga sigur. Ef Skagastrák-
arnir komast yfir hindrunina í
undanúrslitum mæta þeir annað-
hvort Þór eða KR daginn eftir. ÍA
lék við bæði þessi lið í áðurnefndri
turneringu. 14 stiga sigur á móti
Þór en tveggja stiga tap gegn KR
urðu úrslitin íþað skiptið.
Af ofangreindu másjá að möguleik-
ar ÍA að eignast íslandsmeistara í
fyrsta skipti í sögu félagsins verða
teljast góðir. En hvernig sem fer
mega Skagamenn vera stoltir af
því að geta státað af tveimur flokk-
um sem eiga möguleika á íslands-
meistaratitli fyrir síðustu umferðina.
Þess má að lokum geta að 10.
flokkur ÍA leikur í c-úrslitum um
næstu helgi og fara úrslitin fram f í-
þróttahúsinu við Vesturgötu á Akra-
nesi. Fyrsti leikurinn er á föstudag-
inn gegn Breiðablik og hefst hann
kl.13. HJH
Sigurbjörn
í þriðja
sæti
Sigurbjörn Ingi Guðmundsson
íþróttamaður úr Borgarnesi náði
frábærum árangri á íslands-
meistaramótinu í Fitness sem
fram fór á Akureyri um síðustu
helgi. Sigurbjörn sem æfir í
íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi
hafnaði í þriðja sæti í saman-
lögðu en þetta er hans besti ár-
angur til þessa. *
GE
Molar
íslandsmeistarar ÍA leika að nýju í
deildarbikarnum á laugardaginn
eftir páskahlé. Skagamenn eru
sem stendur í fimmta sæti í riðlin-
um en fjögur lið fara áfram. And-
stæðingurinn á laugardaginn er
Breiðablik en þeir eru einmitt í
fjórða sæti. Á þriðjudaginn í næstu
viku mæta Skagamenn síðan Vík-
ingum og fimm dögum seinna Ijúka
þeir síðan leik sínum í ríðlakeppn-
inni þegar þeir mæta Stjörnunni.
Nóg verður að gera hjá meistara-
flokki ÍA íapríl. Frá 6.apríl til 30.apr-
íl leika Skagamenn samtals 10 leiki
ef við gefum okkur að þeir komist
upp úr sínum riðli. Liðið leikur þá
fimm leiki í deildarbikarnum, þrjá í
æfingaferð út á Spáni og að lokum
tvo leiki í Færeyjum. A þessu 25
daga tímabili munu Skagamenn
því að meðaltali leika knattspyrnu-
leik á 60 klukkustunda fresti.
Boltafélagið Bruni hefur opnaö
nýja og glæsilega heimasfðu. Þar
má nú þegar finna helstu upplýs-
ingar um félagið, sögu Bruna,
spjallsíðu og nýjustu fréttir og úrslit
liðsins. í vinnslu er síðan mynda-
síða og helstu upplýsingar um leik-
menn liðsins. Slóðin á heimasíð-
una er http://www.here.is/bruni. Þer
greint frá því að liðið mun taka þátt
í sex liða móti sem spilað verður á
næstu sex vikum. Auk Bruna eru
liðin Árborg, Grótta, ÍH, Úlfarnir og
Ægir skráð til leiks. Öll þessi lið eru
ekki í deildarbikarnum og ætti þetta
mót því að koma liðunum að góðu
gagni fyrir lokaundirbúning íslands-
mótsins.
Tvær stulkur frá Akranesi hafa
verið boðaðar í úrtaksæfingar ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu
skipuðu leikmönnum 17 ára og
yngri. Þetta eru þær Birgitta D.
Þrastardóttir og Helga S. Jóhann-
esdóttir. Úrtaksæfingar eru þær
síðustu fyrir Norðurlandamótið sem
fram fer á íslandi í sumar.
Þá má geta þess að Borgnesingur-
inn knái, Elín Anna Steinarsdóttir,
hefur verið valin í 20 manna æfinga-
hóp fyrir vináttuleik gegn Svíum
sem verður í næsta mánuði. Elín
lék með Val á síðasta ári en skipti
yfir í Breiðablik í upphafi árs.
HJH
®)Aðalfundur
knattspyrnudeildar
verður haldinn
4. apríl næstkomandi
kl. 20:00
j Venjuleg aðalfundarstörf
Q
*
2
Stjórnin
FIRMAKEPPNI
MFL. íA
verður haldin laugardaginn 13. apríl,
kl. 13:00 í íþróttahúsínu við Vesturgötu
Spilað verður á lítil mörk með
fimm leikmenn í hvoru líði.
Vegleg verðlaun.
Pizzaveisla fyrir átta, auk þess verður óvæntur
aukaglaðningur.
VERÐkr. 12.000 per lið (8 í liði). tf
Frekari upplýsingar veita:
Lúlli: 8629911 - lulli@brekkubaejarskoli.is
Hjálmur: 8643213 - aldenhoff@hotmail.com