Skessuhorn - 23.10.2002, Síða 11
SIÖÍSSKíiíöBM
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2002
11
ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR -
Úrvalsdeildin í körfuknattleik
Spenna í Ðorgarnesi
allt til enda
Skallagrímur - Snæfell: 63-65
Það var þétt setinn bekkurinn
og gríðarleg stemmning í í-
þróttahúsinu í Borgarnesi síð-
astliðið sunnudagskvöld þegar
Skallagrímur fékk Snæfellinga í
heimsókn í alvöru grannaslag í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Leikir þessara liða hafa undan-
tekningalítið verið fjörugir og
spennandi í gegnum tíðina og
ekkert gefið eftir. Það klikkaði
heldur ekki á sunnudaginn og
þótt þessi tvö lið séu á pappír-
unum talin meðal hinna minni
spámanna í deildinni þá ættu
þau bæði að geta velgt flestum
liðum undir uggum. Leikurinn
var hraður og skemmtilegur allt
frá upphafi og gríðarlega spenn-
andi í lokin.
Snæfellingar byrjuðu mun
betur og leiddu mest allan fyrri
hálfleikinn. Þeir komust meðal
annars í 12 - 2 og eftir fyrsta
leikhluta var staðan 20-11 fyrir
Hólmarana. Skallagrímsmenn
virtust frekar ráðvilltir og stirðir í
upphafi og allt leit út fyrir að
Snæfellingar ætluðu að ná í sín
fyrstu stig í deildinni á frekar
auðveldan hátt. Reyndin varð
hinsvegar önnur og Borgnesing-
ar bitu frá sér þegar leið á ann-
an leikhlutann og fór þar fremst-
ur í flokki Pétur Sigurðsson sem
sýndi feikna baráttu og skoraði
grimmt úr þriggja stiga skotum.
í hálfleik voru Borgnesingar
búnir að minnka muninn í þrjú
stig, 37 - 40. Eftir þetta var jafn-
ræði með liðunum og í lok þriðja
leikhluta var staðan 50 - 50. í
upphafi síðasta leikhlutans
skutust heimamenn fram úr og
náðu afgerandi forystu sem virt-
ist ætla að duga þeim til sigurs.
Það gekk hinsvegar ekki eftir því
þá tók hinn feiknasterki leik-
maður Snæfellinga, Lýður Vign-
isson til sinna ráða og tryggði
sínum mönnum stigin úr leikn-
um með þriggja stiga körfu á
síðustu sekúndunum. Úrslitin
urðu því 63 - 65 og vonbrigði á-
hagenda Skallagríms sem troð-
fylltu húsið leindu sér ekki.
Bæði liðin léku mjög vel á
köflum sem fyrr segir en þó svo-
lítið gloppótt inn á milli. Nokkuð
var um tapaða bolta og hreinan
klaufaskap sem að hluta til hef-
ur kannski skapast af þeirri
spennu sem einkennir leiki
þessara liða. Greinilegt er þó að
þegar liðin eiga eftir að slípast
betur saman þá eru þau til alls
líkleg.
[ liði Snæfells var Clifton Bush
besti maðurinn og er hann án
efa einn af bestu erlendu leik-
mönnunum í deildinni. Hann var
yfirvegaður í öllum sínum að-
gerðum og öflugur undir körf-
unni. Lýður átti einnig stórgóðan
leik sem fyrr segir og sýndi
feikna baráttu. Þá var Jón Ólaur
Jónson mjög öflugur. Hlynur
Bæringsson komst hinsvegar
ekki mikið áfram gegn sínum
gömlu félögum og lét það fara í
skapið á sér þannig að hann var
heppinn að vera ekki fyrir löngu
búinn að fá sína fimmtu villu
þegar flautað var til leiksloka.
í liði Skallagríms var Pétur
Sigurðsson bestur. Sigmar Eg-
ilsson átti einnig mjög góðan
leik og einnig áttu þeir Finnur
Jónsson og Hafþór Ingi Gunn-
arsson ágæta spretti. Erlendur
Ottesen sýndi einnig að hann er
efnilegur undir körfunni en svo
stór og sterkur leikmaður ætti
að nýtast mun betur með auknu
sjálfstrausti og meiri grimmd. Þá
átti Isak Hawkins ágætan leik
þegar á leið en var seinn í gang
og lék hörmulega í fyrri hálfleik
svo ekki sé meira sagt. Það er
greinilegt að þessi leikmaður
getur gert verulegan usla ef
hann beitir sér og ætti að geta
unnið leiki upp á eigin spýtur en
hugarfarið þarf þá að vera í
samræmi við hæfileikana.
GE
Körfuknattleikur 2. deild
ÍA byrjar vel
Lið (A í körfuknattleik byrjar
tímabilið í 2. deildinni með ágæt-
um og er sem stendur í efsta sæti
í sínum riðli með 4 stig eftir tvær
umferðir. ÍA sigraði Ármann/Þrótt
58 - 42 í fyrstu umferðinni þann
12. október síðastliðinn. Hilmar
Ö. Arnórsson var stigahæstur
Skagamanna í leiknum með 10
stig, Trausti F. Jónsson skoraði 9,
Halldór B. Jóhannesson skoraði
8 og Róbert Á. Jörgensen 7. Síð-
astliðinn föstudag sigruðu Akur-
nesingar síðan Fjölni C með mikl-
um yfirburðum, 115 - 64 á Akra-
nesi. Magnús Þ. Helgason var
stigahæstur með 21 stig. Jó-
hannes Helgason skoraði 17 og
þeir Halldór B. Jóhannesson,
Hilmar Ö. Arnórsson, Róbert Á.
Jörgensen og Svanur D. Svans-
son skoruðu 12 stig hvor.
Næsti leikur ÍA er gegn Deigl-
unni í Austurbergi næstkomandi
laugardag.
GE
Kjörísbikar karla
Vesturlandsliðin úr leik
Bæði úrvalsdeildarliðin af
Vesturlandi eru úr leik eftir fyrstu
umferð kjörísbikarkeppninnar í
körfuknattleik. Liðin töpuðu
bæði heimaleikjum sínum eins
og fram kom í síðasta blaði og í
seinni umferðinni var það sama
upp i á teningnum.
Snæfellingar sóttu Tindastól
heim og skemmst er frá því að
segja að Stólarnir lögðu Snæ-
fellinga í þriðja sinn á rúmri viku,
í þetta sinn naumlega reyndar,
85- 82.
Skallagrímsmenn sóttu Grind-
víkinga heim og steinlágu í ann-
að sinn, 82 - 66.
GE
Tölurnar - Skallagrímur
Nr Nafn Mín HF STO STIG I
4 Finnur Jónsson 29 2 5 6
5 Hafþór 1. Gunnarsson 14 1 2 2
6 Ari Gunnarsson 18 2 2 3
7 Pálmi Þ. Sævarsson 16 1 0 0
8 Egill Ö. Egilsson 4 0 0 0
9 Erlendur Þ. Ottesen 19 2 1 0 i
10 Pétur M. Sigurösson 29 5 2 22
14 Isaac Hawkins 40 9 3 18
15 Sigmar P. Egilsson 31 4 3 12 1
Tölurnar - Snæfell
Nr Nafn STIG
7 Jón Ó. Jónsson 10
8 Helgi R: Guömundsson 6
9 Hlynur E. Bæringsson 11
10 Sigurbjörn 1. Þóröarson 4
11 Clifton Bush 19
12 Lýöur Vignisson 15
Mynd: Svanur Ste
____________
arsson i
Sundmót Ægis
Aþena setti Akranesmet í 400m skriðsundi meyja
13 sundmenn frá S.A. tóku þátt
í Sundmóti Ægis sem var haldið
um helgina. Mótið var tekið sem
æfing þar sem allir eru í fullri þjálf-
un fyrir Bikarkeppnina sem fer
fram í enda nóvember. Það var
nokkuð Ijóst að sundfólkið var
mjög þreytt eftir mjög harða æf-
ingaviku og þar af leiðandi ekki
mikið um góða tíma. í heild sinni
mjög ásættanlegur árangur mið-
að við hvar við erum stödd í æf-
ingakerfinu og sýnir kannski best
hvað sundfólkið hefur lagt hart að
sér síðustu vikur.
Liðsmenn Keilufélags Akraness
stóðu sig frábærlega á Meist-
aramóti ungmenna sem fram fór
á dögunum. Alls tóku 50 krakkar
þátt í mótinu þar af voru 18 frá
Akranesi og spiluðu þau í 5 flokk-
um af 10. Hópurinn gerði sér lítið
fyrir og kom heim með 3 gull og 2
silfur. f 3.flokki drengja sigraði
Sigurður Þ. Guðmundsson, í 2.
flokki stúlkna voru Skagastelpur í
tveimur efstu sætunum, Elísabet
Rut Heimisdóttir sem sigraði og
Hrafnhildur Harðardóttir, í 1.
flokki stúlkna var síðan Álfheiður
Ágústsdóttir í öðru sæti. Stærsta
sigur mótsins vann þó Birgitta
Þura Birgisdóttir í 3. flokki
stúlkna. Birgitta var heilum 103
stigum á undan stúlkunni sem
Aþena Ragna Júlíusdóttir synti
vel á laugardaginn og setti Akra-
nesmet í 400m skriðsundi meyja.
Gamla metið átti Kolbrún Ýr og
var það 5:03,35, nýja metið er
4:57,06. Til gamans má geta að
metið hennar Kolbrúnar var
einmitt sett á sama móti árið
1995.
Ágúst Júlíusson stóð sig einnig
vel þegar hann náði lágmarki í
200m baksundi fyrir íslands-
meistaramótið sem fer fram í
mars 2003. Tími Ágústar 2:36,81,
lágmarkið er 2:37,00.
Birgitta Þura Birgisdóttir keiludrottn-
ing á Akranesi.
lenti í öðru sæti og var aðeins 12
stigum frá íslandsmetinu. Birgitta
endaði með 483 stig úr þremur
leikjum en íslandsmetið er 495
Aþena Ragna Júlíusdóttir.
Staöan í
úrvaldsdeildinni í
körfuknattleik
Félag L U T Mörk Stig
1. UMFG 2 2 0 220:145 4
2. Haukar 2 2 0 175:144 4
3. KR 2 2 0 186:161 4
4. UMFN 2 1 1 148:165 2
5. Keflavík 2 1 1 173:161 2
6. Tindastóll 2 1 1 164:176 2
7. Breiðablik 2 1 1 204:190 2
8. ÍR 2 1 1 171:191 2
9. Snæfell 2 1 1 149:149 2
10. Skallagr. 2 0 2 144:151 0
11. Hamar 2 0 2 194:221 0
12. Valur 2 0 2 126:200 0
Staöan í A riöli 2.
deildar í
körfuknattleik
Félag L U T Mörk Stig
1. ÍA 2 2 0 173:109 4
2. HK 2 2 0 146:112 4
3. Br.blik B 1 1 0 86:66 2
4. Keflav. B 0 0 0 0:0 0
5. Valur C 1 0 1 66:77 0
6. Árm./Þr. C 1 0 1 45:58 0
7. Deiglan 1 0 1 46:69 0
8. Fjölnir C 2 0 2 130:201 0
Meistaramót í keilu
ungmenna
-Birgitta 12 stigum frá íslandsmeti