Skessuhorn - 15.04.2003, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐTUDAGUR 15. APRIL 2003
jntjsunu...
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Bjarnarbraut 8 Sími: 437 1677
Fax: 437 1678
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 3677
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Ritstjóri og ábm:
Blaðamaður:
Auglýsingar:
Umbrot:
Prentun:
Skessuhorn ehf 137
Gisli Einarsson 899
Hjörtur J. Hjartarson 864
Hjörtur J. Hjartarson 864
Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentmet ehf.
1677 skessuhorn@skessuhorn.is
4098 ritstjori@ske$suhorn.is
3228 hjortur@skessuhorn.is
3228 hjortur@skessuhorn.i$
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
437 1677
Senn
Þrátt fyrir að enn séu tvöhundruðfimmtíuogfjórir dagar til
jóla er ekki laust við að ég sé kominn í jólaskap. Það ætti svo-
sem engan að undra þar sem það minnir svo ótal margt á jólin
eins og stendur í kvæðinu.
Fyrir það fyrsta er það jólahreingerningin. Einn af helstu
kostunum við jólin er nefhilega jólahreingerningin. Ef ektí
væru jól væri sennilega engin jólahreingerning og án jólahrein-
gerningar myndi hlaðast upp hverskyns rasl og drasl og ýmis-
konar úrgangsefni þar til ekki væri lengur rúm fyrir heimilisfólk
í viðkomandi húsakynnum.
Fyrir jólin hef ég það fyrir venju að skúra á bak við græna
sófann, uppfæra aðalskipulagið í kústaskápnum og þurrka af
gamla transitortækinu á ganginum. Eg læt það hinsvegar ekki
nægja, ég fer með tómar bjórflöskur í endurvinnsluna, hendi
því sem er óendurvinnanlegt og ef ég hef tíma skila ég bókinni
sem Stína systir lánaði mér febrúar og ég fann á bak við stofu-
skápinn þegar jólahreingerningin stóð sem hæst.
Fyrir jólin hef ég það líka fyrir sið að fara í bað og skipta um
föt og myndi eflaust laga hárgreiðsluna ef hún væri til staðar.
A jólunum hef ég það aukinheldur fyrir reglu að gefa gjafir,
jafhvel þótt ég tími því helst ekki. Eg geng meira að segja svo
langt að ég reyni að gefa hverjum og einum það sem ég held að
hann langi í.
Enn af helstu kostunum við kosningar er kosningahreingern-
ingin. Ef ekki væra kosningar á fjögurra ára fresti myndu hlað-
ast upp óklipptir borðar, óúthlutaðir styrkir og óveitt embætti
og ýmislegt annað sem á endanum myndi fylla öll ráðuneyti.
Fyrir kosningar hafa Jrambjóðendur það nefnilega fyrir venju
að klippa á hvern þann borða sem á vegi þeirra verður og
gleymst höfðu niðri í kassa inni í geymslu með hinu kosninga-
skrautinu. Þá nota menn líka tækifærið og fara með innantómu
kosningaloforðin í Endurvinnsluna og henda þeim sem ekki era
endurvinnaleg. Þá kemur líka í ljós, á bak við sófa eða inni í
skáp, einn og einn milljarður sem farist hafði fyrir að skila til
kjósenda.
Fyrir kosningar hafa ffambjóðendur það einnig fyrir sið að
skipta um föt og útlit og fas. Þá gleyma þeir ekki að gefa gjafir
og að sjálfsögðu er þess vandleg aðgætt að hver og einn haldi að
hann fái það sem hann langar í.
Gleðilegjól
Gísli Einarsson íjólaskapi
Sameigiiilegt eft-
irlit um páskana
Lögreglustjórar og yfirlög-
regluþjónar á Vesturlandi komu
saman til fundar í Búðardal fyrr í
mánuðinum til að ræða sameig-
inlega löggæslu um páskahátíð-
ina. Niðurstaða fundarins var sú
að embætti lögreglustjóranna í
Búðardal, á Snæfellsnesi, í Borg-
arnesi, á iAkranesi, í Reykjavík og
embætti ríkislögreglustjórans
munu standa að sameiginlegu
löggæsluverkefni um páskana á
Vesturlandi.
Ein lögreglubifreið sem ríkis-
lögreglustjóri leggur til verður á
ferðinni um allt Vesmrland og
sinnir ýmsum verkefnum, aðal-
lega tengdum umferðareftirliti.
Bifreiðin verður mönnuð lög-
reglumönnum frá embætmnum á
Vesmrlandi. „I tilkynningu frá
sýslumannsembættinu í Búðardal
um málið segir m.a. „Búast má
við mikilli umferð á Vesturlandi
og talsverðum mannsöfnuði í
sumarbústaðahverfum og víðar.
Er því full ástæða til að halda úti
auknu eftírliti og hafa yfir aukn-
um mannafla og tækjabúnaði að
ráða ef eitthvað bregður út af.
Skorað er á þá sem verða á ferð
um páskana að sýna tillitssemi og
þolinmæði í umferðinni sem og í
umgengni við aðra.“
GE
Mildð spurt um
lóðir á Hagamel
Mikið hefur verið spurt um
lausar byggingalóðir á Hagamel í
Skilmannahreppi að sögn Helga
Þorsteinssonar oddvita. Tvö hús
era í byggingu í þéttbýliskjarn-
anum og búið er að sækja um
lóðir undir tvö parhús. Fyrir eru
23 hús á Hagamel að sögn Helga
og er eldra hverfið fullbyggt en í
nýrri hlutanuin eru skipulagðar
lóðir fyrir sama fjölda en þar af
er fimm lóðum ráðstafað. „Það
hefur óvenju mildð verið spurt
um lóðir að undanförnu", segir
Helgi. „Ugglaust spilar fyrir-
huguð stækkun álversins á
Grundartanga þar inn í að ein-
hverju leyti en mér heyrist líka á
þeim sem hringja að ástæðan sé
einnig sú að margir sem eru að
flytja utan af landi og vilja eltki
fara alla leið í þéttbýlið. Kostírn-
ir sem menn sjá við að fara hing-
að er að þetta er í sveit en samt
stutt í alla þjónustu.“
GE
Heilsuefling
eldriborgara
Heilsugæslan í Snæfellsbæ hef-
ur kynnt bæjarstjóm hugmyndir
að samstarfsverkefhi sem felur í
sér svokallaðar heilsueflandi
heimsóknir til aldraðra. Verkefnið
byggir á að hjúkrunarfræðingur
heimsæki aldraða borgara í svitar-
félaginu og kanni aðstæður þeirra
og grípi til viðeigandi ráðstafana
ef þörf er á. Tilgangur verkefnis-
ins mun vera að tryggja að aldrað-
ir íbúar sveitarfélagisins njóti þess
besta aðbúnaðar sem möguleiJd er
á. Bæjarstjórn hefur tekið vel í
hugmyndir heilsugæslunnar var
samþyJikt á síðasta fundi bæjar-
stjórnar að fela bæjarritara og bæj-
arstjóra að útfæra verkefnið nánar
í samvinnu við öldrunarnefnd og
aðila frá heilsugæslunni. GE
Miklar framkvæmdir standa mí yfir vitj vegamót Vesturlandsvegar og Snæfells-
nesvegar í Borgamesi. Þar lætur vegagerðin byggja hringtorg sem verður tilbú-
ið í sumar en einnig standa nú sem hæst framkvæmdir við stórhýsi sem Kaupfe'-
lag Borgfirðinga lætur byggja yfir byggingavöniverslun. Aætlað er að taka hús-
ið í notkun íjúní nk. Mynd: GE
Rarmsóknir
á Hvanneyri
I stefnumörkun fyrir naut-
griparækt á Islandi næstu 10
árin hefur verið samþykkt að
stefnt skuli að einni yfirstjórn
í kennslu- og rannsóknarað-
stöðu í nautgriparækt. Að-
staðan skal vera á Hvann-
eyri, en nú fara þessar rann-
sóknir fram í Eyjafirði, á
Suðurlandi og Hvanneyri.
(Hvanneyri.is)
Leikskóla-
stækkun
að Ijúka
Stækkun leikskólans Kríla-
kots í Olafsvík er að verða
lokið og stefnt er að því að
taka viðbygginguna í notkun
um næstu mánaðarmót. Þeg-
ar viðbyggingin verður tekin
í notkun bætast 18 pláss við
þau 42 sem fyrir eru. GE
Fram-
kvæmdir
við Vallar-
sel senn
boðnar út
Áædað er að fullnaðar-
teikningum vegna stækkun-
ar leikskólans Vallarsels á
Akranesi verði lokið um
næstu mánaðarmót og í kjöl-
farið verði verkið boðið út.
Þremur deildum verður bætt
við þær þrjár sem fyrir eru
og þar með fjölgar plássum
um sjötíu. Þar með ætti öll-
um biðlistum að verða eytt
sé miðað við stöðuna eins og
hún er í dag. A meðan fram-
kvæmdunum stendur er ljóst
að nokkur röskun verður á
starfsemi stofnunarinnar og
möguleikum hennar á að
taka inn börn á leikskólann.
Af þessum sökum samþykkti
bæjarráð á fundi sínum ný-
verið að skoða þá möguleika
hvort mögulegt sé að leysa
þennan vanda með því að
hýsa eina leikskóladeild í
húsnæði Grundaskóla. Þá
vill bæjarráð að skoðað verði
hvort mögulegt sé að
samnýta lóð leikskólans
Garðarsels þann tíma sem
þetta ástand varir. Vonast er
til að nýju deildirnar á Vall-
arseli verði teknar í notkun
snemma á næsta ári.
HJH