Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2003, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 15.04.2003, Blaðsíða 11
úKiisisunu^ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 2003 11 7^e/i/u/i/i~*^ Verkalýðsmál á Vesturlandi Verkalýðsfélög hér á Vest- urlandi þurfa að mínu mati endurskipulagningar við. Það hefur víst ekki farið framhjá neinum að mikill á- greiningur hefur verið innan Verkalýðsfélags Akraness. En nú þegar ætla mætti að öldur hafi iægt ætti að gefast ráðrúm til að huga að þeim málum. Skipan verkalýðsmála á Vesturlandi er ævagömul, eða frá þeim tíma þegar bílar voru ekki almenningseign, og því síður tölvur og sími. Hlutverk og starfshættir verkalýðsfélaganna hafa einnig breyst svo um munar. Umfang félaganna hefur aukist og sífellt eru gerðar meiri kröfur til þeirra. Fé- lögin starfa í gjöróiíku um- hverfi, heldur en var þegar þau voru stofnuð. Við þurfum að velta fýrir okkur þeirri spurningu hvort félögin standist tímans tönn? Hafa félögin þróast í takt við tímann? Ennfremur er vert að hafa það í huga að allt bendir til þess að eftir því sem félögin eru stærri því betri þjónustu geti þau veitt. Þar má nefna öflugri endurmenntun og ekki síður betri og meiri slagkraft í kjarabaráttunni. Eitt af því sem við þurfum að hugleiða er hvort ekki sé kominn tími til að sameina verkalýðsfélögin. Og hversu langt ætlum við þá að ganga í þeim efnum? Eg er þeirrar skoðunar að skoða eigi alla möguleika, með það að leiðarljósi að fé- lagarnir hagnist sem mest á þeim breytingum sem gerðar verða. Eg vil nefna nokkrar lausnir, sem ég tel að ætti að skoða. 1) Verkalýðsfélögin á Akra- nesi sameinist. Og þá er ég að tala um STAK, Sveinafélag málmiðnaðar- manna og Verkalýðsfélag Akraness. 2) Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélagið Hörður og Verkalýðsfélag Borgar- ness sameinist í eitt félag. Margt mælir með slíkri sameiningu, eins og sömu vinnustaðir félaganna og samskonar starfsgreinar. 3) Oll verkalýðsfélögin á Vesturlandi sameinist í eitt félag. Með eina aðal- skrifstofu og útibú á nokkrum stöðum. Þessi sameining ætti ekki að þurfa að vera erfið í fram- kvæmd, með allri þeirri tækni sem nú er notuð í samskiptum manna á meðal. 4) Sá möguleiki er vissulega íyrir hendi að Verkalýðs- félag Akraness snúi sér suður á bóginn og gæti bæði sameinast Hlíf og eða Eflingu. Spurningin væri bara hvort væri hag- stæðara. En svo er það Sigurður H. Einarsson ekki útilokað að Efling og Hlíf sameinist. Þannig að það væri saina hvorum megin hryggjar við lent- um. Hlíf hefur innan sinna vébanda gríðalega reynslu af samningum í stóriðju sem gæti komið okkur til góða. 5) Obreytt ástand. Það er á- kveðin lausn, en við þurf- um að velta því fyrir okk- ur hvort óbreytt ástand sé það sem við viljum. 6) (Verslunarmenn eru farnir suður og koma líklega aldrei aftur). Lokaorð Hvort sem við veljum óbreytt ástand eður ei, þá er það hollt fyrir okkur öll að velta fyrir okkur þeim mögu- leikum sem í boði eru, og spyrja okkur þeirrar spurn- ingar hvort við séum á réttri leið. Hvað sem öllu líður þá tel ég að tími sé til kominn að um þessi mál fari fram al- mennar og opnar umræður. Og að við skoðum þá mögu- leika sem til eru í stöðunni með hagsmuni launafólks að leiðarljósi. Ennfremur tel ég að það ætti að athuga hvort ekki væri rétt að stofna Al- þýðusamband Norðvestur- kjördæmis. Er ekki kominn tími til að launafólk á þessu svæði tali saman? Að lokum legg ég það til að Verkalýðsfélögin á Vest- urlandi haldi ráðstefnu um framtíðarskipulagningu verkalýðsfélaganna á Vestur- landi, þar sem velt yrði upp þeirri spurningu hvort ekki sé breytinga þörf. Sigurður H. Einarsson Formaður Stóriðjudeildar Verkalýðsfélags Akraness. T^e/l/U/l/l^V: Til umhugsunar Það er grár vetrarmorg- unn og skólabarn vaknar til að hefja sinn vinnudag í skólanum rétt eins og allir aðrir. Það sem er frábrugðið við þetta barn er að það byrjar á því að leita að fötum sem ekki eru áberandi eða verða til þess að það skeri sig úr á nokkurn hátt. Það hefur ekki lyst á morgunmat vegna hnútsins í maganum og fmnst nestið sem útbúið var frekar ólystugt. Barnið tekur skólatöskuna sína og fjar- lægir endurskinsmerkið sem mamma setti á töskuna kvöldið áður, því það vekur of mikla athygli þar sem það hangir niður undan tösk- unni. Barnið leggur af stað í átt að skólabílnum. Nokkrir krakkar á sama reki standa þar en sem betur fer er eng- inn sem segir neitt við okkar barn, það fær frið þar til það er sest í sæti framarlega í bílnum. Þá gengur framhjá annað barn sem rífur húfuna af okkar barni og hendir henni aftur í bílinn. Okkar barn ákveður að það sé betra að gera ekkert í þessu heldur bíða átekta. Það sér útundan sér að krakkarnir eru farnir að kasta húfunni á milli sín en ályktar sem svo að það hafi ekki séns í að reyna að ná henni aftur. Þegar það gengur að skólanum labbar upp að því krakki og segir „djöfull ertu í ljótri úlpu“. Þegar inn í skólann er kom- ið áræðir okkar barn að spjalla við nokkra aðra og fær í staðinn háðsglósur og einn hrópar „þegiðu helvítis auminginn þinn - þú þykist alltaf vita allt, djöfulsins fæðingarhálvitinn þinn, hoppaðu upp í rassgatið á þér“. Okkar barn ákveður að leggja ekki frekar orð í belg þennan daginn, heldur reyna að láta sem minnst á sér bera. Samt sem áður er það lokað inni í ræstikompu um miðjan morgun og þarf að gefa 500 kall, sem það hafði sem betur fer fengið hjá ömmu sinni daginn áður, til að fá krakkana til að opna fyrir sér. Þegar að heimferð er komið finnur barnið úlpuna sína eftir mikla leit ofan í ruslatunnu í annarri deild, en annan skóinn sinn finnur það ekki fyrr en gangavörður kemur því til hjálpar og í sameiningu finna þau skóinn inni á kló- setti. Fegnast er barnið okk- ar þegar það kemst heim og getur verið í friði. Lýsingin á lífi þessa barns er lýsing á lífi fjölda barna í samfélagi okkar. Lýsing á Iífi barna sem allan liðlangan daginn, alla daga vikunnar, allan ársins hring þurfa að búa í skugga þess að verða fyrir sífelldri stríðni og of- beldi. Þess sem í dægurum- ræðunni hefur fengið nafnið einelti. Enginn gerir sér grein fyrir því hvað þetta barn er í raun að ganga í gegnum. Ekki foreldrar þess, ekki kennarar og starfsmenn skólans. Ein- hvern grunar eitthvað og búið að tala um það við bekkinn í einhver skipti en hversu alvarlegt ástand barnsins er hefur ekki enn komið fram. Það ber harm sinn í hljóði þar til einn dag- inn að það getur ekki meir og brestur. Segir frá þessu viðurstyggilega ofbeldi sem það er beitt alla daga, en grátbiður um leið um að ekkert verði gert af hræðslu við að hótunum í þess garð verði fylgt eftir. Veit ekki að þegar svona er komið munu foreldrar og skóli gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bæta það sem hægt er. En það er ekki hægt að bæta all- an þann skaða sem barnið hefur orðið fyrir. Þennan kross ber það alla ævi. Eftir standa gerendur. AJltof lengi hefur verið bor- ið blak af þeim krökkum sem taka þátt í slíku ofbeldi. Af- sakanir á afsakanir ofan, skuld skellt á aðra vegna þess hvernig komið er og fleira í þessum dúr hefur verið við- kvæðið. Meira að segja er þolandum kennt um, sagt að hann bjóði nú upp á þetta, það sé ekki við öðru að búast eins og hann sé nú. Þetta er álíka og þegar stúlku er nauðgað og sagt eftir á „hún bauð upp á þetta, hún var í svo eggjandi klæðnaði“. Þetta er rangt. Gerendur í svona málum hafa ekkert sér til málsbóta. Þeir eru að beita ofbeldi. Foreldrar og aðstandendur slíkra barna eru ekki í öfundsverðri stöðu að þurfa að taka á slíkum málum. Ekki frekar en for- eldrar þolenda. Varnarleysið er algert. En ábyrgðin liggur engu að síður hjá þeim. For- eldrar eiga börnin og bera ábyrgð á þeim, ekki kennar- ar eða aðrir í samfélaginu. Eg er orðin langþreytt á því að umgangast börn og ung- linga þar sem orðbragð þeirra í garð hvers annars er forkastanlegt. Virðingar- leysið gagnvart hvert öðru er algert og enginn þorir að hafa öðruvísi skoðanir eða klæða sig á annan hátt en viðtekið er vegna hræðslu við árásir. Það þarf enginn að segja mér að foreldrar og aðrir viti ekki af þessu, viti ekki og heyri ekki einhvern tíma til krakkanna. En við gerum alltof lítið af því að skipta okkur af og leiðbeina. Asa Björk Stefánsdóttir. Höfimdur er kennari og móðir þriggja drengja.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.