Skessuhorn - 15.04.2003, Blaðsíða 6
ÞRIÐTUDAGUR 15. APRTL 2003
jataauniii..
Nú þegar rétt um mánuður er til
kosninga er vel við hæfi að frambjóð-
andi sé jjestur Skráargatsins þessa
vikuna. A næstu vikum munu síðan
oddvitar flokkanna hver á eftir öðr-
um gefa lesendum Skessuhoms kost
á að líta inn um skráargatið hjá sér.
Dregið var um í hvaða röð frambjóð-
endurnir kæmu og kom nafn Magn-
úsar Stefánssonar fyrst upp úr hattin-
um. Magnús er í efsta sæti á lista Framsóknarmanna.
Nafii: Magmis Stefánsson
Fæðingadagnr og ár: 1. október 1960.
Starf: Alþingismaður
Fjölskylduhagir: Kvæntur, tveggja bamafaðir.
Fívemig bíl áttu: Isuzu Trooper 2002
Uppáhalds matur: Ný línuýsa lir Breiðafirði.
Uppáhalds drykkur: Islenska vatnið.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Fréttir og fréttatengt efni.
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Logi Bergmann Eiðsson
Uppáhalds leikari innlendur: Sigurður Sigmjónsson
Uppáhalds leikari erlendur: Bruce Willis
Besta bíómyndin: Gladiator
Uppáhalds íþróttamaður: Michael Jordan
Uppáhalds íþróttafélag: Víkingur Olafsvík
Uppáhalds stjórnmálamaður: Halldór Asgrímsson
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Stefán Hilmarsson
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Paul McCartney
Uppáhalds rithöfundur: Einar Már Guðmundsson
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni? Hlynntur
Hvað meturðu mest ífari annarra? Heiðarleika og traust.
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra? Hræstii og
óstundvísi
Hver þinn helsti kostur? Traust og ábyrgð.
Hver er þinn helsti ókostur? Of hlédrægur á stundum.
Nefndu mikilvægasta baráttumál ykkar fyrir kjórdæniið?
Efla atvinnulíf bæta samgöngur, blómlegar byggðir.
Markmiðið fyrir kosningamar í maí? Þijá menn kjörna af
lista Framsóknar í kjördæminu.
Eitthvað að lokum? Úska þess að úrslit Alþingiskosninganna
verði til heilla fýrir þjóðina.
Brynja Harðardóttir
Borgnesingum kunn fyrir
góða matargerð. Hún hóf
nýverið rekstur veitingar-
staðarins Vivaldi í Borgarnesi.
Brynja er kokkur Eldhús-
króksins að þessu sinni.
Kjötkássa að
hætti Brynju
1 til 11/2 kg. kartöflur
1/2 stór bvítkálshaus
6-1 góðir bitar súpukjöt
1 1/2 glas vatn
salt
pipar
Flysjið kartöflurnar og
skerið þær í þunnar sneiðar.
Kálið skorið í smátt. Síðan er
allt sett í pott og látið malla í
ca. 2 klst. við lágan hita. Ath.
að rétturinn þarf töluvert af
salti og pipar
Eftirréttur - ís í ofiii
2 ltr. Vanilluís
2-3 eggjahvítur
100 gr. sykur
Hitið bakaraofninn í 200-
250 gráður. Þeytið saman
eggjahvíturnar og sykurinn.
Hyljið síðan ísinn vel með
eggjahrærunni og setjið í
heitann ofninn þar til hann er
orðinn fallega millibrúnn.
Berið fram með t.d.
coctailávöxtum og ískexi.
Þvottavél óskast!
Heiðrún Helga Bjarnadóttir skrifar ffá Guatemala
Fyrir skömrnu birtum við út-
drátt úr fréttabréfi Heiðrúnar
Helgu Bjamadóttur til vina og
ættingja heima á Islandi en
Heiðrún er tvítug stúlka úr
Borgamesi sem dvelur sem
skiptinemi í Guatemala. Við
leyfum lesendum Skessuhoms
nú á ný að skyggnast inn í líf
Islendings í framandi landi.
Guatemala
11. nóvember 2002
Eg fór í Indíana-útskriftar-
veislu um helgina og það var æði!!
Veislan byrjaði kl. 5 um morgun-
inn og var ekki búin fyrr en kl. 3
um nóttina! Við Arnór mættum
samt ekki fyrr en kl. 2 og fórum
kl. 7. Við fórum með Chicken bus
í 30 mínútur til að komast þang-
að. Eg man ekki hvort ég var búin
að segja ykkur það, en það var
mjög þröngt og mikil læti. Eg sat
í tveggja manna sæti með tveimur
körlum. Það var ógeðslega heitt
og það var einhver með mat með
skrýtinni lykt og ég var alveg að
kafha. Þegar við komum í bæinn,
fórum við beint í veisluna. Við
vorum þau einu hvítu og fyrir
slysni vorum við bæði í rauðu svo
við vorum mjög áberandi. Það
gláptu allir á okkur þegar við
komum en samt voru allir mjög
vingjarnlegir. Veislan var í ein-
hverskonar bakgarði sem búið var
að tjalda yfir og þarna voru 70
manns. Ekta gamlar indíánakell-
ur, tannlausar í ofnum fötum,
með síðar fléttur og þær hlógu og
hlógu. Þær og karlarnir sátu og
drukku vín en konurnar þurftu að
elda og vaska upp. Við fengum
kjúkling í matinn og svo sátum
við bara og skoðuðum liðið. Svo
kl. 5 byrjaði ball.Það kom kúreka-
hljómsveit og það var sett upp
rosahljóðkerfi og svið. Fyrstu
dansarnir voru skipulagðir, strák-
urinn þurfti að dansa við mömm-
una og ömmuna o.s.fr.v. Það
gerðist eitt vandræðalegt í fyrsta
dansinum. Afinn kom blindfullur,
hann var búinn að koma fram fyrr
um daginn en þá gáfu þau honum
bara meira vín og vonuðust til
þess að hann myndi sofna aftur.
Þarna var hann semsagt vaknaður
og ráfaði fram og ég og Arnór
trylltumst úr hlátri. Þetta var svo
vandræðalegt, reyndu að ímynda
þér ca. 90 ára indíána, tannlausan,
sköllóttan og hálfblindan. Hann
gat varla labbað og klesstd á allt,
ruddist inn á dandsgólfið og fór
að dansa salza!! Eg hef aldrei séð
eins fyndna sjón. Því miður náð-
um við Nori ekki að dansa neitt
því við þurftum að ná síðasta
strætisvagninum. Aracely (kenn-
arinn minn) fylgdi okkur á rútu-
stöðina til að ná síðasta vagninum
en hann var þá farinn. Ég hélt að
ég myndi deyja. En við redduð-
um okkur með því að fara aftan á
pallbíl, þar voru svo margir að við
þurftum að standa og það var ís-
kalt. Þetta er mjög algeng aðferð
við að ferðast á milli staða hér í
Guatemala en er svo sannarlega
ekki örugg. Við komust allavega
heim heilu og höldnu, með hárið
útí allar áttir af rokinu og þar fór
ég beint í fermingarveislu hjá
„sysmrinni“ það var líka fínt en
þýsku stelpurnar fóru með henni
í kirkjuna til að sjá athöfhina og
önnur var rænd. ! Inní í kirkju!!
Svo hún er búin að vera í geð-
veiku veseni í gær og í dag með að
kæra til löggunnar og svo fram-
vegis.
2. desember 2002
Þegar ég kom hingað, ákvað ég
að fara að hætti forfeðra minna
og þvo þvottinn minn á laugar-
dögum! Þvottahús eru nú bara
fyrir aumingja og ég hélt nú að ég
gæti gert þetta í höndunum! Eg
hef oft séð mömmuna gera þetta
og piff...þetta er nú ekkert mál.
Bara að setja fötin í vaskinn,
bleyta svolítið og strá þvottaefhi
yfir. Taka svo þartilgerðan þvotta-
bursta, nudda fötin af öllum lífs
og sálarkröftum í ca 5 mín, skola
vandlega og hengja svo upp!
Þetta virðist ekki mikið mál, er
það?
Jæja, ég vaknaði á laugardaginn
full af eldmóði og ákvað að í dag
yrðu OLL fötin þvegin! Hafði
gert helvíti billeg kaup á þvotta-
efni deginum áður og hélt mig
færa í flestan sjó!
Eg byrjaði að þvo og fyrsta flík-
in sem varð fyrir valinu var hvítur
bolur. Eg byrjaði að bursta og sá
þá að pabbinn var nýbúin að þvo
skóna sína með burstanum!...
Bolurinn er nú brúnskellóttur!
Eg lét það nú ekki stoppa mig og
þvoði sem óð væri....komst þó
fljótlega að því að fyrir utan það
að vera helmingi stærri en
mamman er ég Iíklega um það bil
helmingi sterkari því eftir að hafa
hamast á fötunum í svolitla stund
sá ég að það var ekki alveg að
virka! Gallabuxurnar mínar eru
nær hvítar af miklum (og góðum)
þvotti, ég nuddaði gat á einn bol,
setti of mikið af þvottaefni á hvíta
bolinn minn svo nú er hann blár.
Ég var blaut frá toppi til táar,
gólfið líka og það aðeins farið að
síga í mig! Þessi litla þvottaathöfn
vakti mikla lukku á heimilinu og
stóð öll fjölskyldan í hóp og
horfði á vitlausa Islendinginn
eyðileggja hverja flíkina á fætur
annarri! Ég lét sem ekkert væri
og næsta skref var að hengja
þvottinn upp! Það getur nú ekki
vafist fyrir neinum eruð þið lík-
lega að hugsa...ég hélt líka að
vandræði mín væru yfirstaðin!
Þau nota auðvitað engar
þvottaklemmur því það er aldrei
rok, þannig að þau leggja fötin
bara ofan á snúruna. Þegar ég var
búin að setja ca þrjár flíkur upp,
hleypti pabbinn hönunum sínum
út og rykið þyrlaðist á fötin! Ég
hugsaði með mér að ég gæti nú
bara burstað þau þegar þau voru
orðin þurr (enginn hefur drepist
af smá hanalykt af fötunum sín-
um) Þannig að ég hélt áffam að
hengja upp í góðum félagsskap
hananna..en þá kom mamman
með reykelsisbauk og dreyfði
lyktinni um allt...það var víst eitt-
hvað vegna jólanna og þurfti að
gera akkúrat þarna, akkúrat á
þessum tíma! Ég var næstum
búin að hengja allt upp svo ég
hélt bara áfram! (vonaði að reyk-
elsislyktin myndi þá eyða ein-
hverju af hanalyktinni) Þegar ég
var búin að leggja öll fötin mín
upp á snúruna þurfti að setja prik
undir hana svo þvotturinn héngi
hærra. Það var mikið átak og end-
aði með því að prikið datt og all-
ur þvotturinn af snúrunni og
ofan í drulluna og rykið og han-
ana og enn hló fjölskyldan og ég
fann að glaðværðin sem hafði ver-
ið innra með mér þegar ég vakn-
aði var með öllu horfin. Þetta var
þremur klukkutímum eftír að ég
byrjaði að þvo... ég krumpaði
blautu, skítugu fötin saman í poka
og lagði mig.!! Ferr svo bara með
þau í þvottahús í dag eins og hin-
ir aumingjamirLþað er samt ekki
mikið skárra því þau í þvottahús-
inu þvo með svo heitu vatni að
það sem ekki eyðileggst minnkar
allavega um helming.
..Svo þið skiljið að mig vantar
þvottavél í jólagjöf, takk.
Við Nori í indianaleik