Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2003, Side 14

Skessuhorn - 15.04.2003, Side 14
14 ÞRIÐTUDAGUR 15. APRIL 2003 jBtssunu,.. Reykdælingar breyta um vaxtarlag Þor~valdur Jónsson tekur á í tækjunum á Kleppjámsreykjum. A innfeldti myndinni má sjá háðfuglinn Bjartmar Hannes- son œfa áreynslusvipinn. Myndir: GE Hópur áhugamanna um heil- brigt og gott útlit (svo vitnað sé í límmiða á maltflöskum) kom saman í íþróttahúsinu á Klepp- sjárnsreykjum í Reykholtsdal síðastliðið fimmtudagskvöld og tók formlega í notkun alhliða líkamsræktartæki sem keypt eru að frumkvæði nokkurra einstaklinga úr sveitinni sem kalla sig „Áhugafólk um lík- amsrækt“, skammstafað Afl. Tækin eru keypt af íþróttamið- stöðinni í Borgarbyggð og hafa þjónað þar í nokkurra ára bil en eru í góðu standi, að sögn Irisar Grönfeldt, íþróttaþjálfara. „Sveitarstjórn Borgarfjarð- Stúlkumar úr Skallagrími léku gegn Keflavíkurstúlkum í undanúrslitum Islandsmótsins í tíunda flokki síðastliðinn laugardag. Keflavíkurstúlkur unnu reyndar leikinn með 31 stigi gegn 1S en samt verður árangur Borgar- nesmeyja að teljast býsna góður. Skallagrímsstúlkumar stóðu líka vel í stall- systrum sínum af Suðumesjunum ífytri hálfleik og var staðan í leikhléi 12 -10, Keflavík í vil. Efri röðfrá vinstri: Pálmi Þór Sœvarsson (þjálfari íforfóllum Finns Jóns- sonar), Hólmfríður Valdís Sævarsdóttir, Guðrúm Selma Steinarsdóttir, Júlí- ana Þóra Hálfdánardóttir, Gunnfríður Ólafsdóttir, Iris Dögg Jónsdóttir. Neðri röðfrá vinstri: Guðrún Ósk Amundadóttir, Ama Hrönn Amunda- dóttir (stendurfyrir framan Guðrúmi), Sign'm Sjöfn Amundadótttí, lris Gunnarsdóttir, Gunnhildur Lind Hansdóttir og Rósa Kristín Indriðadótttí Sundfélag Akraness Aðalfundur Aðalfundur Sundfélags Akraness verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl nk. kl. 20:00 í Iþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Onnur mál. arsveitar gaf frá sér að kaupa tækin og þá tók sig saman hóp- ur manna um að ná þessu hing- að. Við gerðum síðan samning við sveitarfélagið um að fá að fjármagna þetta að hluta til með sölu aðgangskorta en sveitarfélagið sem er rekstrar- aðili íþróttahússins fær að- gangseyri að stökum tímum“, segir Þorvaldur Jónsson, einn hinna verðandi vaxtarræktar- trölla í Reykholtsdal. „Það var mikill áhugi fyrir þessu hér í sveitinni og við gerum ráð fyrir að hér verði umtalsverðar út- litsbreytingar á komandi vikum enda lítum við á þetta sem á- kveðið framlag í átakinu „Feg- urri sveitir", segir Þorvaldur. GE Páskar undir Jökli Snæfellsjökull gnæfir jafnan tignarlegur og fagur við sjón- deildarhring Reykvíkinga og eftír tílkomu Hvalfjarðarganga er Jök- ullinn nú í aðeins rúmlega tveggja tíma akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Frá skírdegi og fram á annan í páskum bjóða ferðaþjónustufyr- irtæki undir Jökli upp á ýmsa af- þreyingu bæði á Jöklinum og svæðinu í kringum hann. Snjófell á Arnarstapa rekur skíðalyftu í Jöklinum sem verður opin alla dagana ffá kl. 11-17 svo framar- lega sem veður leyfir og einnig verður hægt að fá jöklaferðir, bæði á snjósleðum og snjótroður- um. Nauðsynlegt er að panta á sleðana eða í troðarann, en ferðir verða farnar á tveggja tíma ffesti ffá kl. 11 og ffam tíl kl. 17, þegar síðasta ferð er farin. Snjófell verður með ýmsa afslættí í boði um páskana, þar er hægt að fá gistíngu og jafnffamt verður veit- ingastaðurinn opinn alla daga. Á Hellnum verður Gistiheim- ilið Brekkubær með 2ja nátta gis- titilboð með hálfu fæði, þ.e. morgunverði og kvöldverði, sem nýta má hvenær sem er yfir pásk- ana. Sérstakur páskamatseðill verður í boði. Hægt er að fá lesið í stjörnumerki, lestur í spáspil og heilunartíma á Brekkubæ. Á fimmtudeginum og laugardegin- um kl. 13:30 verður boðið upp á söguferð um Hellnar þar sem fléttað verður saman sögu svæðis- ins fyrr og nú og gengið um orkulínur og álfabyggðir. Hið rómaða kaffihús, Fjöru- húsið á Hellnum, opnar um pásk- ana og verður með sérstakt páskatilboð á kaffiveitíngum alla daga. Stutt er í Þjóðgarðinn Snæ- fellsjökul ffá Stapa og Hellnum og þar eru ótal gönguleiðir og at- hyglisverðir staðir til að skoða. Úr mörgu að velja og margs að njóta undir Jökli. Hægt er að skoða www.hellnar.is og www.snjofell.is til að fá nánari upplýsingar um svæðið. Fréttatilkynning * Agœtu íbúar Borgarbyggðar! Stjórnin. Bæjarstjórn Borgarbyggð- ar ákvað að selja 50% eignar- hlut sinn í jörðinni Hvíts- staðir - Arbær í Borgarbyggð. Við undirrituð höfðum á- huga á að kaupa eignarhlut- ann, byggja íbúðarhús og setjast þar að og reka jafn- framt fyrirtæki í Borgarnesi. Draumurinn var að koma okkur fyrir á jörðinni og að nokkram árum liðnum hefja lítilsháttar búskap. Þessi draumur virðist ekki eiga eft- ir að rætast. Við gerðum kauptilboð í samræmi við óskir bæjarstjórnar og voram bjartsýn með framhaldið. Við bjuggumst við svari fljótlega eins og okkur var lofað en bæjarstjórn óskaði hins vegar eftir fresti til að íliuga annað kauptilboð sem henni hafði borist. Við veittum umbeð- inn frest. Samkvæmt okkar upplýsingum var hitt kauptil- boðið kr. 20.000.- hærra. Okkur fannst skrítið að stjórnin þyrfti frest til að skoða örlítið hærra kauptil- boð. Enn kom ekkert svar nema það að ekki væri hægt að taka ákvörðun að svo stöddu. Með fögram fyrir- heitum bæjarstjórnar var okkur LOFAÐ gagntilboði en það hefur ekki enn borist. Verið var að draga okkur á asnaeyrunum því bæjar- stjórnin var að bíða eftir þriðja tilboðinu. Seint þann 2. apríl sl. kom það ffam og strax daginn eftír gekk bæjar- stjórnin að því tdlboði sem var 7 milljónum króna hærra en okkar. Bæjarstjórnin taldi sig hvorki þurfa að efna lof- orð sitt um að gera okkur gagntilboð né tilkynna okkur að jörðin hefði verið seld öðrum. Okkur finnst þessi vinnu- brögð véra fyrir neðan allar hellur þar sem bæjarstjóri Borgarbyggðar hafði áður talið okkur trú um að jörðin yrði ekki seld hverjum sem er. Með því að ganga að okk- ar tilboði eða gera okkur gagntilboð upp á hærra kaup- verð hefði Borgarbyggð fengið ungt og duglegt fólk sem ábúendur á jörðinni og allar tekjur okkar runnið til bæjarins. Þess í stað selur Borgarbyggð jörðina aðila sem ekki er líklegur til að hefja búskap á jörðinni. Við teljum að með þessu hafi bæjarstjórnin gengið þvert á vilja jarðanefndar og fólksins í Borgarbyggð. Hvað finnst íbúum Borgarbyggð- Svanhildur Valdimarsd. Dagbjartur Ariliusson

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.