Skessuhorn - 15.04.2003, Síða 15
jb£33U1U>.
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 2003
15
Molar
Ágúst Örlaugur Magnússon
hefur verið valinn í u-19 ára
landslið l'slands sem mætir
Skotum í tveimur æfingaleikj-
um í Skotlandi þann 22. og 24.
apríl. Ágúst Örlaugur er eini
Skagamaðurinn í hópnum.
Skagamenn mæta Aftureld-
ingu í Fífunni íkvöld í næstsíð-
ustu umferð deildarbikarsins.
Til að komast áfram í átta liða
úrslit keppninnar verða
Skagamenn að sigra í kvöld
sem og í síðasta leik sínum
gegn Fram sem háður verður
viku síðar.
Ólafur Þórðarson kom inná í
tveimur leikjanna í mótinu á
Spáni í síðustu viku. Ólafi
vantar nú 19 leiki í 400 leikja
múrinn en fremur ólíklegt
verður að teljast að Ólafur nái
þeim leikjafjölda úr þessu.
Skallagrímur lék gegn Magna
frá Grenivík í deildarbikar-
keppninni í knattspyrnu um
síðustu helgi. Liðin skildu jöfn
2 -2 og skoruðu þeir Guðjón
Fjeldsted Ólafsson og Ágúst
Valsson mörk Skallanna. Þess
má geta að Almar Viðarsson
fékk að líta rauða spjaldið í
leiknum en það er hið fjórða í
þeim lit sem Borgnesingum er
látið í té í síðustu þremur leikj-
um.
Eins og fram kemur hér á
síðunni er íslandsmótið í
hreysti um næstu helgi þar
sem Borgnesingurinn Sigur-
björn Guðmundsson freistar
þess að verja titilinn. Þrír aðrir
vestlendingar taka þátt í mót-
inu að þessu sinni, þeir Garð-
ar Sigvaldason og Jóhann
Pétur Hilmarsson frá Akranesi
og Sigurður Örn Sigurðsson
úr Borgarnesi.
Fyrirtæki í
Borgarnesi styðja
hreystikappa
Sigurbjörn Guðmundsson íslands- og
bikarmeistari í hreysti.
að fá þennan stuðning," segir
Nokkur fyrirtæki í
Borgarbyggð hafa tekið
sig saman um að styðja
myndarlega við bakið á
Borgnesingnum Sigur-
birni Guðmundsyni, Is-
lands og bikarmeistara í
hreysti (fitness) en hann
kemur til með að verja
íslandsmeistaratitilinn
nú um páskana. „Það
sem knýr okkur til að
setja saman styrktar-
pakka fyrir Sigurbjörn er
að hann hefur náð af-
burðaárangri í sinni í-
þrótt og við viljum
hvetja hann til áfram-
haldandi góðra verka,“
segir Stefán Logi Har-
aldsson framkvæmda-
stjóri Vírnets-Garða-
stáls. Önnur fyrirtæki
sem styðja hreystikappann
eru Búnaðarbankinn í Borgar-
nesi, Sparisjóður Mýrasýslu,
Kaupfélag Borgfirðinga,
Loftorka, Sólfell, Borgarverk,
Sjóvá Almennar, TM og V(s.
„Við erum stoltir af því að eiga
fremsta afreksmann landsins í
þessari vaxandi íþrótt og það
má líka segja að það sé vel
við hæfi með tilliti til sögunnar
þar sem Egill heitinn Skalla-
grímsson var einn af fyrstu
„Fitnessköppunum," segir
Stefán.
„Það er gífurleg lyftistöng
Sigurbjörn. „Það er mikil
vinna og kostnaður sem ligg-
ur á bak við árangur í þessari
íþrótt. Þessi stuðningur hefur
því mikið að segja og ég er
afar þakklátur öllum sem hafa
stutt mig fyrir komandi átök.“
Sigurbjörn býr sig undir að
verja titilinn eins og fyrr segir
og er bara nokkuð bjartsýnn.
„Stefnan er sett á að verja tit-
ilinn og ég bíð í ofvæni eftir
keppninni. Formið hefur aldrei
verið betra og ég get ekki
annað sagt en að þetta legg-
ist vel í mig.“ GE
Héraðsþing HSH
Héraðsþing Héraðssam-
bands Snæfellsness og
Hnappadalssýslu var haldið í
Lindartungu í Kolbeinsstaðar-
hrepp laugardaginn 5. apríl sl. í
boði UMF-Eldborgar og
hreppsnefndar Kolbeinsstað-
arhrepps.
Gestir þingsins voru Stefán
Konráðsson, framkvæmdar-
stjóri ÍSÍ, Ásdís Helga Bjarna-
dóttir, ritari UMFÍ og Þáll Guð-
mundsson, starfsmaður UMFI.
Á þinginu voru fjórir félagar
heiðraðir og voru það Garðar
Svansson ,UMFG og Ríkharð-
ur Hrafnkelsson, GMS, sem
fengu silfurmerki ÍSÍ og Hjör-
leifur Kr. Hjörleifsson, Snæfelli,
og Gunnar Svanlaugsson,
Snæfelli, sem fengu starfs-
merki UMFÍ.
Fjöldi af tillaga lá fyrir á þing-
inu og þær helstu voru að:
* Stjórn HSH fagnar ákvörð-
un Menntamálaráðuneytisns
um að stofnaður verði fram-
haldsskóli á Snæfellsnesi.
* Samþykkt var að taka upp
þátttökugjöld á héraðsmótum
HSH í sundi, frjálsum íþróttum
og knattspyrnu.
* Þingið samþykkti að skipa
þriggja manna milliþinganefnd
sem á að yfirfara reglugerðir
HSH um skiptingu Lottótekna
sambandsins.
* Samþykkt var að hvetja
aðildarfélögin til að fjölmenna
á 6. ULM sem haldið verður á
ísafirði verslunarmannahelgina
2003.
Stjórn HSH skipa Guð-
mundur M. Sigurðsson for-
maður, Garðar Svansson vara-
formaður, Sigríður Elísabet El-
isdóttir, Margrét Þórðardóttir
ritari og nýr meðstjórnandi er
Kristján Magnússon sem tekur
við af V. Lilju Stefánsdóttur
sem gaf ekki kost á sér aftur í
stjórn. Framkvæmdarstjóri
HSH er Alda Pálsdóttir.
í lok þings þakkaði formaður
HSH V. Lilju Stefánsdóttur fyrir
margra ára vel unnin störf í
Mfl. ÍA á Spáni
Einn sigur
og tvö töp
Ólafur Þórðarson „messar“ yfir sinum mönnum í leikhléi gegn Fylki.
Mfl. ÍA kom heim á laugar-
dagskvöldið eftir vel heppn-
aða æfingaferð til Canela á
Spáni. Skagamenn léku þrjá
leiki í mótinu, unnu einn en
töpuðu tveimur. Fyrsti leikur-
inn í mótinu var gegn Aftureld-
ingu. Sá leikur
vannst nokkuð
örugglega 4-2
en Mosfellingar
leiddu 1-0 í hálf-
leik. Skaga-
menn svöruðu
með fjórum
mörkum í upp-
hafi síðari hálf-
leiks (Guðjón
Sveinsson 2,
Hjörtur Hjartar-
son og Garðar
Gunnlaugsson)
áður en fyrrum leikmaður ÍA,
Sturla Guðlaugsson, minnkaði
muninn rétt í blálokin.
Næsti leikur Skagamanna
var gegn Fylki tveimur dögum
seinna og skyldi sá leikur ráða
úrslitum um hvort liðið léki til
úrslita á mótinu. Þrátt fyrir að
vera sterkari aðilinn allan fyrri
hálfleikinn voru Skagamönn-
um mislagðir fætur upp við
mark Fylkis og ein þrjú mjög
góð færi fóru í súginn. Staðan
í hálfleik, 0-0. Heldur dró af
Skagamönnum í síðari hálf-
leik. Fylkismenn gengu á lag-
ið, náðu yfirhöndinni og
tryggðu sér sigur með tveimur
mörkum gegn engu.
Á föstudaginn léku Skaga-
menn um þriðja sætið við
Grindvíkinga. Jafnræði var
með liðunum í fyrri hálfleik og
lítið um marktækifæri. Það var
ekki fyrr en tuttugu mínútum
fyrir leikslok að fyrsta markið
kom. Það skoruðu Grindvík-
ingar. Eftir markið lögðu
Skagamenn
meiri áherslu á
sóknarleikinn
með þeim afleið-
ingum að vörnin
opnaðist tvisvar
illa á síðustu tíu
mínútum leiks-
ins. Þessi mistök
færðu Grindvík-
ingar sér í nyt og
tryggðu sér ör-
uggan sigur, 3-0.
Þrátt fyrir ár-
angur Skaga-
manna á mótinu hafi valdið
nokkrum vonbrigðum var Ó-
lafur Þórðarson heilt yfir á-
nægður með æfingaferðina.
Liðið æfði að jafnaði tvisvar á
dag við úrvals aðstæður og
það er mikilvægt á þessum
tíma árs. Skagamenn verða
varla dæmdir af úrslitum leikj-
anna á mótinu þar sem að
meðaltáli vantaði 5-6 leik-
menn í hvern einasta leik í
mótinu, ýmist vegna meiðsla
eða annara forfalla. Engu að
síður er það áhyggjuefni ef Ó-
lafi Þórðarsyni gefast fá tæki-
færi til að stilla upp sínu
sterkasta liði í einhverjum æf-
ingaleikjum fyrir íslandsmótið
sem hefst eftir rétt rúman
mánuð.
Guðjón H. Sveinsson var
markahæstur Skagamanna
á mótinu með tvö mörk.
Kjötsúpureið Faxa
Föstudaginn langa er ætlunin að fjölmenna ríðandi í Brún í
Bæjarsveit. Þar verður seld kjötsúpa (500,- kr) og léttar veitingar frá
kl 14-15.
Hestamannafélagið Faxi