Skessuhorn


Skessuhorn - 28.05.2003, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 28.05.2003, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 21. tbl. 6. árg. 28 maí 2003 Kr. 250 í lausasölu Mildð magn fíkniefiia fannst á Akranesi Lögreglan á Akranesi hef- ur að undanförnu rannsakað mál þar sem ákveðnir aðilar hafa verið grunaðir um dreifingu fíknieíha í bænum. I síðustu viku var látið til skarar skríða og voru tveir menn handteknir þar sem þeir voru að stíga út úr bif- reið í bænum. Við Ieit á öðr- um þeirra fundust um 40 grömm af hassi. Einnig ráðist í húsleit, að undangengnum úrskurði héraðsdóms Vesturlands £ íbúð í bænum og voru tveir til viðbótar handteknir þar. Við húsleitina fundust um 250 grömm af hassi, of- skynjunarsveppir og neyslu- áhöld. Þá var gerð önnur húsleit síðar um daginn og fannst þá dálítið af amfetamíni auk neysluáhalda Lögreglan í Reykjavík sendi leitarhund og tvo lögreglumenn til að- stoðar við leitina. Attu hundurinn Barthes og þjálf- ari hans hvað stærstan þátt í að efnin fundust. Málið er enn í rannsókn. Um helgina var einnig lagt hald á töluvert magn fíkniefna í Borgarnesi. Sjá nánar á bls 2. HJH Sparisjóðshúsið að ráðhúsi? Sparisjóður Mýrasýslu hefur boðið Borgarbyggð að kaupa húsnæði Sparisjóðsins að Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Að sögn Sigurðar Más Einars- sonar stjórnarformanns SPM er áhugi íyrir því að byggja nýtt húsnæði íyrir starfsemi sjóðsins nær þjóðvegi eitt. „Miðbærinn hefur færst að þjóðveginum og við höfum á- huga á að færa okkur líka og vera þannig sýnilegri þannig að vegfarendur verði meira varir við okkur. Markmiðið er þá einnig að byggja fýrir þarfir framtíðarinnar. Ef af þessu verður mun afgreiðslan í Hyrnutorgi væntanlega verða lögð niður og öll starfsemin undir einu þaki á nýjan leik.“ Sigurður segir þó að áform um byggingu nýs húsnæðis velti á því að hægt sé að selja núver- andi húsnæði. „Ef við náum samningum við Borgarbyggð gæti farið svo að byggt yrði á næsta ári,“ segir Sigurður. Páll Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar segir að bæjráð Borgarbyggðar hafi áhuga á að skoða þann möguleika að kaupa húsnæði SPM. „Það er ljóst að það er orðið þröngt um bæjarskrifstofurnar á núver- andi stað og aðgeng er ekki nógu gott, sér í lagi ekki fýrir fatlaða. Það hefur verið gerð tillaga um hvernig breyta megi núverandi húsnæði til að bæta aðgengið og ljóst að kostnaður við það yrði verulegur. Við vilj- um því kanna hvort það sé jafnvel hagkvæmari kostur að flytja yfir götuna og hvað myndi kosta að breyta spari- sjóðshúsinu í ráðhús.“ Páll segir að það geri þann kost ekki síst spennandi að stjórn- endur sparisjóðsins hafi ljáð máls á makaskiptum og séu til- búnir að taka núverandi bæjar- skrifstofur sem hluta af kaup- verði Borgarbrautar 14. Ymsar hugmyndir hafa þegar heyrst um framtíðarnýtingu núver- andi bæjarskrifstofu ef af makaskiptunum yrði, m.a. að þar yrðu atvinnu- eða þróunar- garðar sem hugmyndir hafa verið uppi um að koma á fót í Borgarnesi. GE Góð fótbolta- helgi Oll Vesturlandsliðin sem taka þátt í Islandsmótinu í knattspyrnu sigruðu í sín- um leikjum um helgina. Skagamenn eru þar með komnir með fjögur stig eft- ir tvær umferðir í úrvals- deildinni en Skallagrímur og Víkingur Olafsvík unnu bæði sína fyrstu leiki í þriðju deildinni. Ljóst er að það er spennandi fótbolta- sumar framundan á Vesturlandi. Sjá bls 11 ;: : : Félagar i Vesturlandsdeild ferða- khíbbsins 4 x 4 á buðu vistmönnum af sambjlum fatlaSra á Akranesi, Borgamesi og Snæfellsnesi ífjallferð ájeppum sínum síðastliðimi laugar- dag. Farið var inn Lundarreykjadal og línuvegyfir í Skorradal. Þaðan var farið yfir Dragháls og endað á Þórisstöðum í Svínadal þar sem sleg- ið var upp grillveislu í boði Verslunar Einars Olafssonar og Harðarbakarís en starfsmannafélag lslenska Járn- bletidifélagsins lagði til aðstöðuna á Þórisstöðum endurgjaldslaust. Þetta er í þriðja skiptið semjeppa- menn á Vesturlandi bjóða fótluðum í jjallaferð. Hafa þessarferðir mælst mjög veljýrir og verða sífellt vinsælli en að þessu sitmi taldi hópurinn, fyr- ir utan ökumenn, 65 manns með að- stoðaifólki. Farið var á 25 jeppum og vöktu farartœkin mikla ánœgju ferðalanganna ekki síður enferðin sjálf A myndinni má sjá hluta hópsins við fjárhúsin á Þórisstöðum. Mynd: Bragi Tilboð Verð áður Folaldabuff (úr kjötborði)........999 kg. 1.498 kg. Folaldalundir (úr kjötborði)....1.149 kg. 1.698 kg. Folaldafíle (úr kjötborði)......1.149 kg. 1.598 kg. Folaldagúllas (úr kjötborði)......889 kg. 1.268 kg. Villikryddað læri 1/2 stykki .30% afsláttur 1.430 kg. Rauðvínsl.grísakótilettur...30% afsláttur 1.395 kg. Kartöflusalat 500 gr. KEA Piparsósa....... KEA Hvítlaukssósa.. Pepsi 2 ltr......... Doritos snakk 4 teg.. Opið fimmtudagiim 29. maí uppstigningardag, kl. 10-18 9- 19 virkadaga 10- 19 laugardaga 12-19 sunnudaga —————— hmhhnk 'wmm« Æmmmwmwamssmm. ■m Timoðin hefjasflfimmtadagmn 30. maí og gildci meðan hirgcm endai

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.