Skessuhorn - 28.05.2003, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 28. MAI 2003
^>usunu>.
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Bjarnarbraut 8 Sími: 437 1677
Fax: 437 1678
Akranesi: Kirkjubraut 3 Simi: 431 3677
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf 437 1677 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 899 4098 ritstjori@skessuhorn.is
Blaðamaður: Hjörtur J. Hjurtarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjurtarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir gudrun@skessuhorn.is
Prentun: Prentmet ebf.
Skessuhom kemur út alla miðvi
þriðjudögum. Auglýsendum er
Skilafrestur smáauglýsinga er t
rudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
>ent a að panta auglýsingaplass timanlega.
" 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
437 1677
Spenningur
Eitt af því sem ekki er nógu góð stjórn á í þessum heimi
er dreifíng stórviðburða. Því kemur það annað veifið fyr-
ir að álagið verður of mikið fyrir viðkvæmar sálir eins og
mig. I marga mánuði hafði ég markvisst byggt upp spennu
fyrir Júróvísnasamkeppnina margrómuðu og var fyrir vik-
ið vansvefta loksins þegar stóra stundin rann upp. Fram-
an af mánuðinum fylgdist ég óþreyjufullur með með veð-
bankavísitölunni og saup hveljur við hverja gengisfellu en
margfaldaði þjóðarstoltið um leið og fréttir bárust af því
að Evrópskir blaðamenn hefðu frekar viljað tala við hina
húsvísku snót en rússneskar lespíur.
A meðan ég sannfærði sjálfan mig jafnt og þétt um yfir-
gfnæfandi sigurlíkur Birgittu notaði ég hverja dauða stund
til að fletta í ættfræðibókum og annaálum í leit að ein-
hverri tengingu Júróvísnastjörnunnar þingeysku við Vest-
urland. Eg komst því miður ekki lengra en svo að mér
tókst að grafa upp fyrrverandi enskukennara söngdísar-
innar sem nú býr í Borgarfirði. Vissulega betra en ekkert,
allt þangað til hin annars geðþekka sprund þurfti endilega
að gaspra með það í viðtali úti í Lettlandi að hún hefði alla
tíð verið illa talandi á enska tungu. Þar með var það ónýtt.
Eg áttaði mig líka á því seint í síðustu viku, að það hefði
hvort sem er ekki verið tímabært að opinbera hugsanleg
tengsl við stjörnuna á svo viðkvæmu stigi. Þá var ég stadd-
ur í Grímsey og þarlendir flana ekki að neinu. Þeir höfðu
fyrir löngu fundið það út að títtnefnd Birgitta væri
Grímseyingur og ekkert annað, þetta sögðu þeir mér í
trúnaði. Þeir höfðu hinsvegar ekki hugsað sér að gera
málið opinbert fyrr en hún væri komin með sigurlaunin í
hendurnar.
Það kom síðan í ljós að Grímseyingar eru skynsamari en
flesta hafði grunað. Ekki það að frammistaða stúlkunnar
var til fyrirmyndar og svo vel hélt hún athygli okkar sem
aldrei komum til með að viðurkenna snefil af áhuga á
Júróvísnakeppninni að það er á mörkunum um að við vit-
um enn hverjir eru ráðherrar í endurunninni ríkisstjórn.
Það var varla að maður tæki einu sinni eftir því þótt síma-
reikningurinn hækkaði um 150 milljónir króna og orðið
ungur athafaamaður fengi nýja og víðtækari merkingu.
Gísli Einarsson, í sjöunda himni
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Laxveiðitíminn að hefjast
Líkur á vatnsleysi í ánum
segir Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur
Laxveiðitímabilið hefst að
vanda næstkomandi laugardag
með opnun Norðurár í Borgar-
firði. Þverá opnar þann 7. júní,
nokkrum dögum síðar en und-
anfarin ár en flestar aðrar lax-
veiðiár á Vesturlandi opna um
eða uppúr miðjum júní.
„Við höldum að þetta geti
orðið svipað og á síðasta sumri,“
segir Sigurður Már Einarsson
hjá veiðimálastofaun í Borgar-
nesi. „Smálaxagengdin virðist
ætla að verða góð en hún hefur
farið vaxandi undanfarin ár og
heldur uppi veiðinni. Góð skil-
yrði í sjónum gefa fögur fyrir-
heit hvað smálaxinn varðar en
það eru svosem engin merki um
bata hjá stórlaxinum.“
Sigurður Már kveðst hafa
mestar áhyggjur af vatninu í
ánum og telur að það kunni að
verða naumt skammtað í sumar.
„Það er lítill sem enginn forði í
fjöllum og nú þegar eru margar
ár mjög vatnslitlar. Laxinn ætti
að koma samt sem áður en
veiðiskilyrðin gætu orðið erfið.“
GE
Haraldur hættir í Heiðarskóla
Haraldur Haraldsson sem
verið hefur skólastjóri Heiðar-
skóla í Leirár og Melasveit síð-
ustu fimm árin hættir störfum
þar nú í vor. Að sögn Haraldar
eru það fjölskylduhagir sem
valda því að hann tók þessa
ákvörðun. „Við vildum fara nær
þeim skólum sem börnin hafa
valið að stunda og nær stórfjöl-
skyldunni getum við sagt. Það
tekur hinsvegar til hjartans að
fara úr Heiðarskóla. Hér er gott
skólalíf og yndislegt fólk. Her er
unnið gott starf og hér er vax-
andi barnaumhverfi. Síðan ég
flutti hefur mikið verið byggt
hér í nágrenninu og fyrsjáanleg
enn meiri fjölgun. Það er því
Haraldur Haraldsson
með söknuði sem ég fer héðan,“
segir Haraldur en hann tekur við
nýju starfi sem skólastjóri Lækj-
arskóla í Hafaarfirði í haust.
Fimmtudaginn 22. maí heimsótti A llsh erjarn eþid fœreyska lögþingsins Borgar-
byggð. Farið var í heimsókn í Viðskiptaháskólami á Bifröst og einnig var He'r-
aðsdómur Vesturlands heimsóttur, en tilgangurinn með heimsókn nefndarinnar
til Islands var jyrst ogjremst að kynna sér starfsemi dómstóla og málefni sveit-
arfélaga á Islandi.
Húsvemdunarsjóður
Akraness úthlutar styrkjum
Mátiahraut 21.
Bæjarstjórn Akraness sam-
þykkti á fundi sínum nýverið að
styrkur að fjárhæð 1 milljón
krónur skyldi veittur úr Hús-
verndunarsjóði Akraness til
Vesturgata 45.
húseigenda eignanna að Mána-
braut 21 og Vesturgötu 45.
Skiptist styrkurinn jafnt á milli
eigenda húsanna. Alls bárust
átta umsóknir um styrki. HJH
Unnið
við
Leifssafii
Framkvæmdir eru að hefj-
ast við endurbætur gamla
kaupfélagshússins í Búðardal
sem í ffamtíðinni mun hýsa
Leifssafa í minningu Leifs
Eiríkssonar. Að sögn Harald-
ar Líndal sveitarstjóra Dala-
byggðar verður firamkvæmt
fyrir um 7 milljónir króna í ár
en heildarkostnaður við end-
urbæturnar er talinn nema
um 100 milljónum króna. Að
þessu sinni verður skipt um
utanhússklæðningu og er það
Burkni ehf sem annast ffam-
kvæmdina. GE
Þrír land-
verðir
Þrír landverðir hafa verið
ráðnir til vinnu í sumar í
Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.
Þau eru Þórunn Sigþórs-
dóttir úr Stykkishólmi, sem
einnig starfaði í þjóðgarðin-
um sl. sumar, Marta Birgis-
dóttir ffá Olafsvík og Emst
Kettler sem kemur frá
Reykjavík. Einnig mun
Þröstur Olafsson, sem býr á
Akranesi, leggja ffam krafta
sína. Þau era öll með land-
varðaréttindi. Landverðir
vinna við ffæðslu, upplýs-
ingagjöf, effirlit og umhirðu í
þjóðgörðum landsins og á
ffiðlýstum svæðum.
Almenn dagskrá hefst við
sumarsólstöður, þann 21.
júní. Um miðjan júm' koma
sjálfboðaliðar á vegum
bresku samtakanna BTCV í
þjóðgarðinn líkt og í fyrra
sumar. Þau dvelja í eina viku
og sinna ákveðnum verkefa-
um s.s. við uppbyggingu og
viðhald gönguleiða.
Atvinnumál-
inræddí
Hólminum
Um síðustu helgi var
haldið íbúaþing um atvinnu-
mál í Stykkishólmi og var
það vel sótt og gagnlegt að
sögn Óla Jóns Gunnarsson-
ar bæjarstjóra. „Þingið var á-
gætlega sótt og frjóar og
gagnlegar umræður. Þetta
var einn liður í undirbúningi
íbúaþings sem ætlunin er að
halda 1. nóvember og við
bindum miklar vonir við,“
segir Oli Jón.
GE