Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2003, Page 2

Skessuhorn - 17.12.2003, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 unMaunu.- Til mirmis Jólin sem haldin eru hátíðleg á öllu Vesturlandi og mun víðar. Þau hefj- ast formlega kl. 18.00 þann 24. des- ember og standa til 6. janúar á næsta ári. Njótið þeirra og allra þeirra viðburða sem þeim fylgja og eru margir kynntir í dálkinum „Á döfinni11 í Skessuhorni og á www.skessuhorn.is. Gleðileg jól! Wmmm VeJwhorfnr Það verður kalt á þá sem eftir eiga að hlaupa búð úr búð og leita að jólagjöfum á síðustu stundu. Um helgina er búist við að verði úr- komulaust að mestu, fyrir utan smá ofankomu á laugardag. Hiti við frost- mark en fer þó þrettán gráður und- ir frostmark aðfaranótt sunnudags. Verða þetta karlamannleg jól Já hjá þeim sem ekki láta undan kven- mennskunni. Hættan felst í þessari al- mennu værð sem svífur á menn. Menn Gunnar Gunnarsson em famir að Hörkutol s , verða of klökkir og beygja af við minnsta til- efni. Menn verða að taka á sig rögg. Gunnar er formaður Hörkutólafélags- ins í Stykkishólmi sem heldur á lofti merki karlmennskunnar. Jólafastan eru tími uppskeru hjá Hörkutólunum en þá gera þeir sér far um að bræða meyjarhjörtun eins og smjör á árlegri jólagleði Hörkutólanna. SpMrnimj viknnnar Spurning vikunnar var: „Hvað kem- urðu til með að eyða í jólagjafir um þessi jól. Meira en 200.000 svöruðu 6,4%, 200.000 sögðu 2,6%, 100.000 sögðu 14,1%, 75.000 sögðu 17,9%, 50.000 sögðu 10,3%, 40.000, 10,3%, 30.000,11,5%, 20.000 sögðu 7,7%, 10.000 sögðu 3,8% og 9% sögðust ekki gefa jólagjafir. Enginn vildi hins- vegar meina að hann gerði allar sín- ar jólagjafir með eigin hendi. Næst er spurt: Hefur árið 2003 verið Vestlendingum gott? Takið afstöðu á skessuhorn.is Vestlendinji/Vr vikivnnar Er Jón Oddur Halldórsson frjálsíþrótta- kappi í Snæ- fellsbæ sem fyrir nokkrum dögum var út- n e f n d u r íþróttamaður fatlaðra árið 2003 ásamt Kristínu Rós Hákonar- dóttur. Glæsilegur árangur hjá þess- um frækna frjálsíþróttamanni. Kjartan formaður skólanefiidar Frá undirskrift í Ráðhúsi Stykkishólms. Byggingarnefiid ásamt verktökum. Skólanfnd hefur verið skipuð fyrir hinn nýja Fjölbrautaskóla Snæfellinga sem verður settur í fyrsta sinn næsta haust. I skóla- nefndinni eru Kjartan Páll Ein- arsson úr Stykkishólmi, formað- ur, Sigríður Finsen, Grundar- firði og Sveinn Þór Elínbergs- son úr Snæfellsbæ sem skipuð eru án tilnefningar. Þá eru í nefndinni tilnefnd af sveitarfé- lögunum Björg Agústsdóttir í Grundarfirði og Eyþór Bene- diktsson úr Stykkishólmi. Síðastliðinn fimmtudag var gengið frá samningum í Stykkis- hólmi um fyrstu framkvæmdirn- ar við nýtt skólahúsnæði sem reist verður í Grundarfirði. Stofnað hefur verið eignarhalds- félagið Jeratún ehf. sem sveitar- félögin á Snæfellsnesi standa að og mun það byggja skólahúsið og leigja til skólans. Fyrsti á- fanginn sem boðinn er út vegna byggingarinnar er jarðvegsskipti á lóðinni og var tekið sameigin- legu tilboði verktaka í Stykkis- hólmi og nágrenni. Þeir eru: BB og synir, EB vélar, Palli Sig ehf, Stefán Björgvinsson og Velverk. Kosmaðaráætlun hljóðar upp á 15 milljónir króna, en tilboð verktaka var um níu milljónir króna. Verklok eru áætluð í jan- úar en skólahúsnæðið á að vera tilbúið í haust. Maður bjargaðist á Breiðafirði Gestur Hólm Kristinsson. Mannbjörg varð er Hólmar- inn SH-114, sex tonna trilla frá Stykkishólmi sökk síðdegis á mánudag á Breiðafirði. Eigandi bátsins, Gestur Hólm Kristins- son var einn um borð þegar Hólmarinn sökk suður af Stagley á Breiðafirði. Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjarg- ar mátti ekki miklu muna að hann kæmist um borð í björg- unarbátinn. Hins vegar leið ekki nema um klukkutími frá því Gesmr fór frá borði þar til honum var bjargað um borð í Ársæl SH 88 frá Stykkishólmi. Gesmr ýtti á neyðarhnapp um borð í Hólmaranum um leið og hann sá hvers kyns var og fóru þá boð í sjálfvirka Tilkynninga- skyldukerfið í Gufunesi. „Þetta er í fyrsta sinn sem við sjáum fyrir alvöru hversu miklu máli þetta kerfi skiptir,“ segir Valgeir Elíasson upplýsingafulltrúi Landsbjargar. „Arsæll var í sex til sjó mílna fjarlægð og þar brugðust menn skjótt við og ár- angurinn varð giftusamleg björgun.“ Þótt ekki hafi liðið langur tími þá er ljóst að hann mátti ekki vera miklu lengri, þar sem Gestur var orðinn kaldur eftir að hafa verið í sjónum í klukku- smnd að sögn björgunarmanna. Þá voru aðstæður slæmar og má kalla mildi að honum skyldi takast að komast um borð í björgunarbátinn eins og fyrr segir. Plægt yfir Borgarfjörð Starfsmenn Rarik plægja báspennustrenginn íjörófrá Hvanneyn aö Einarsnesi. Síðasliðinn miðvikudag mátti sjá óvenjulega sjón á Borgar- firðinum en þar voru á ferðinni jarðýtur og fleiri stórvirkar vinnuvélar sem sjaldnast eru notaðar til sjóferða. Sjór var að vísu í lágmarki enda háfjara og þá var tækifærið notað til að plægja niður í sjávarbotninn nýjan háspennustreng Rarik frá Hvanneyri að Einarsnesi. Þessi nýi strengur skapar ákveðin tímamót fyrir rafinagnsnotend- ur í Borgarnesi, því frá árinu 1949 hafa þeir fengið sinn straum frá Andakílsárvirkjun en þegar nýi strengurinn hefur verið tengdur, í byrjun næsta árs, kernur rafmagn Borgnes- inga frá spennistöðinni á Vatns- hömrum. „Með þessari breytingu verður línan ffá varnshömrum í Borgar- nes kornin í jörð og um leið verður einnig aflögð loftlína frá varnshömmm í Borgarnes," seg- ir Jakob Skúlason hjá Rarik í Borgarnesi. „Oryggi kemur til með að aukast til muna og sjálf- sagt verða einhverjir fegnir að losna við loftlínuna," segir Jakob. Upplýst vegamót Þessa dagana er unnið að uppsetningu á ljósastaumm við vegamót Borgarfjarðar- brautar og Þjóðvegar 1 við Borgarfjarðarbrú á vegum Vegagerðarinnar í Borgar- nesi. Fyrir nokkmm misser- um var sett upp sambærileg lýsing við Hagamel og hefur það að sögn mælst vel fyrir. Féllúr körfiibíl Starfsmaður Rarik slasaðist er hann féll úr körfubíl við Hyrnuna í Borgarnesi, þar sem hann var að skipta um ljósahausa á götuljósum síð- astliðinn fimmtudag. Maður- inn féll úr körfunni og féll á gangstétt með þeim afleið- ingum að hann handleggs- brotnaði og lærbrotnaði. Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík þar sein gert var að meislum hans. Margföld aðsókn Udit er fyrir að heildarað- sókn að Bíóhöllinni á Akra- nesi verði um 25.000 gestir í ár. Um er að ræða saman- lagðan gestafjölda á bíósýn- ingar og aðra viðbm'ði. Segja má að hver Skagamaður hafi þá farið tæplega fimm sinn- um í Bíóhöllina á árinu en til samanburðar var gestafjöldi í fyrra rúmlega 13.000 gestir en árið 2001 um 5.700. Það er því óhætt að segja að að- sókn hafi margfaldast á tveimur árum. Tveir stórir viðburðir eru eftír á þessu ári en á laugar- dag verður Oskar Pétursson, Alftagerðisbróðir með meiru með tónleika og á annan í jól- um verður stórmyndin Lord of the rings frumsýnd á Akra- nesi um leið og í Reykjavík. Ný verslun Sumarliði Asgeirsson og Þorgrímur Vilbergsson hafa opnað nýja verslun í Stykkis- hólmi þar sem þeir versla með tölvuvörur hverskonar. Verslunin er í Vís húsinu við Aðalgötu. Sumarliði og Þor- grímur verða umboðsaðilar Símans í Hólminum og ann- ast alla almenna þjónustu fyr- ir fyrirtækið. Þá bjóða þeir upp á tölvuviðgerðir.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.