Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2003, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 17.12.2003, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 jiaaainuiw. £sso Til sölu á Akranesi Gleðileg jól. Lítíð eitt um jólakortin Margir hlakka til að setjast niður á aðfangadagskvöld, vel- mettir eftir jólamáltíðina og sælir yfir jólagjöfum og lesa jólakortin frá vinum og ætt- ingjum. Kortin eru jafn mis- jöfn og þau eru mörg og oft hægt að greina hversu upptek- inn sendandinn hefur verið í desember. Sum eru heima- gerð, bera með sér að mikil natni hefur verið lögð í verkið en önnur ekki nema einföld undirskrift. Oll bera jólakortin þó með sér minningar um liðn- ar samverustundir og óskir um góða framtíð. Að senda jóla- kort er þó ekki svo gamall sið- ur og ekki nema rétt öld frá því að Islendingar hófu jólakorta- sendingar. Kort í stað bréfa Fyrsta jólakortið varð til fyr- ir hálfgerða slysni. I desember, árið 1843, áttaði mikilsmetinn Lundúnabúi, sig á að hann hafði gleymt að skrifa bréf með jólakveðjum til vina og ætt- ingja. Honum hraus hugur við því að þurfa að skrifa öll þessi bréf á svona stuttum tíma og þess vegna bað hann vin sinn, listamanninn John Callot Horsley, að hanna fyrir sig kort með staðlaðri kveðju. Innan fárra daga var fyrsta jólakort sögunnar tilbúið. Það voru að- eins prentuð 1000 stk. Það var afar látlaust í útliti, með mynd af fólki við gleðskap og alveg án trúarlegs ívafs. Kveðjan var einföld „Gleðileg jól og gæfu- ríkt nýtt ár“. Horsley var einn af uppáhalds listamönnum Viktoríu drottningar og varð hún yfir sig hrifin af kortinu. Að hennar áeggjan lagði hann fyrir sig að gera fleiri kort og keypti drottningin hundruð þeirra til að senda fjölskyldu sinni og vinum. íslensk jólakort Fyrstu jólakortin komu á markað á Islandi kringum 1890 og voru dönsk eða þýsk. Nokkru eftir aldamót var byrj- að að gefa út íslensk jóla- og nýárskort. I fyrstu prýddu kortin einkum myndir af lands- lagi eða einstökum kaupstöð- um en einnig komu teiknuð kort að á framhlið þeirra eru oft ljóð eða sálmar. Oft má finna mismunandi sálm í sömu umgjörð. Nýárskortin voru aldrei eins vinsæl og jólakort og hefur sá siður að senda sér- stakar nýárskveðjur nánast aflagst með árunum. A gömlu nýárskortunum má einnig finna tilvitnanir í skáldskap, líkt og á jólakortum en þó var léttleikinn frekar í fyrirrúmi og kortin voru yfirleitt full að gleði og góðum óskum. Gleðileg jól Það er ýmislegt sem bendir til þess að sá siður að senda jólakort eigi undir högg að sækja. Tölvupóstur og SMS jólakveðjur verða nú sífellt al- gengari og eflaust mun fram- tíðin bjóða uppá enn fleiri tæknilausnir, rétt eins og þegar hin stöðluðu kort leystu bréfin af hólmi. Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá en vonandi helst sá siður sem lengst að við sendum hvert öðru hlýjar kveðjur á jólahátíð- inni. Það er því við hæfi að enda þetta yfirlit með góðum jólakveðjum til Vestlendinga allra, megi þið eiga gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár. Árið er liðið; — dropi’ í íithaf alda er að falla meðan klukkan slœr. Yngisár, sem brijzl ntí beint lil valda, berðu’ oss alla spölkorn sólu nœr. Jak. Thor. kort til sögunnar. Á Byggða- safni Akraness og nærsveita má finna nokkuð af gömlu jóla- kortum og hægt að sjá hvernig þau hafa þróast. Það er nokkuð einkennandi fyrir íslensk jóla- Til sölu er fasteignin Breiðagata 1a. Fasteignamatsnúmer er 210-2496 Húsið er upphaflega 96 m2 byggt árið 1957 en er með 192 m2 steyptri viðbyggingu frá 1982. Byggingin stendur á lóð við hafnarsvæðið. Ýmsir möguleikar eru á rekstri í þessari byggingu tengt hafnasvæðinu. Þeim sem hafa áhuga á að skoða fasteignina er bent á að hafa samband við Kristján Sveinsson í síma 6603286. Óskað er eftir tilboðum og skulu þau berast Guðmundi Tryggva Sigurðssyni hjá Olíufélaginu ehf. Sími 560 3300. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.