Skessuhorn - 17.12.2003, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
jn£id9LtU/iw
Gnðrún Jóna
Efætlarðu að svívirða saklaman mann
Dalirnir hafa heldur betur komist á
spjald sögunnar síðustu mánuði
vegna sverðaglamurs í sveitarstjórn
og nú vita allir landsmenn hvar Búð-
ardalur er! I ljósi þeirrar umfjöllun-
ar sem hefur verið að undanförnu, tel
ég rétt að varpa mínu ljósi á atburði
síðustu mánaða.
L listi samtöðu, breytinga og fram-
fara vann sigur í síðustu sveitar-
stjórnarkosningum. Leiðarsljós L
listans var samstaða, gegnsæ stjórn-
sýsla og uppbygging í sveitarfélaginu
með lýðræði að leiðarsljósi. Verkefni
L listans voru erfið og á brattann að
sækja enda fjárhagsleg staða sveitar-
félagsins slæm.
Að koma á breytingum er erfitt
hlutverk sem kallar á mikla skipu-
lagningu, samheldni, kjark og þolin-
mæði, ekki síst í umhverfi sem ein-
kennist af valdahroka þar sem gamlir
höfðingjar syrgja forna frægð og
sporna gegn breytingum með öllum
tiltækum ráðum. Því var það eitt af
lykilatriðum í störfum L listans að
vinna þétt saman, öll sem eitt, leysa
ágreining og finna sameiginlegar
lausnir á þeim vandamálum sem upp
geta komið við innleiðingu breyt-
inga. L listinn lagði höfðuáherslu á
samvinnu og samráð með reglulegum
fundum þar sem öll mál voru rædd og
niðurstaða fengin sem allir gátu sætt
sig við, án teljandi áverka eða
íjaðrafoks.
En fljótt skipast veður í lofti og
síðastliðið vor dró til mikilla tíðinda í
samstarfi kjörins meirhluta. Menn-
irnir þurfa, rétt eins og páíúglinn, að
fá að njóta sín og fór svo að 2 efstu
menn listans höfðu skyndileg ham-
skipti og snyrtu sínar fjaðrir.
Væntnalega orðnir þreyttir og dasað-
ir á því að fá vindinn upp í fangið sem
fer illa með fjaðrir og veitti ekki af að
bæta við nokkrum skrautfjöðrum.
Eins og þeir voru fiðraðir til, tóku
þeir upp forn vinnubrögð gömlu
lærimeistaranna á S lista. Það getur
verið erfitt fyrir illa íleyga að keifa á-
fram um klungur og klif í þokunni og
komast ekki á loft en allt er hægt ef
viljinn er fyrir hendi og stuðningur
vís. Með miklum jötunmóð var
maður að baki konu, kosinn oddviti,
án meirihluta samþykkis félaga sinna.
Páfuglarnir yfirgáfu hreiðrið og stát-
gjarn tókst hann á við sitt drauma-
embætti undir pilsfaldi freyju og tók-
ust þau á loft, fleyg með nýjar fjaðrir.
Áfram var flogið og næsta afrek var
friðarsáttmáli við höfðingja S listans
um sölu Hitaveitu Dalabyggðar sem
nú er loks í höfn eftir sverðaglamur í
sveitarstjórn í rúmt ár. Nú fjöðrum
fækkar eftir því sem flugið er lengra
og brattara og þegar kom að því að
fiðrið var orðið rytjulegt, var rétt að
styrkja stöðu sína. Ekki mátti láta
tækifærið renna sér úr greipum
heppilegt að leggja fram vantrausts-
tillögu á varaoddvita sem grunaður
var um að hafa brotið lög um per-
sónuvernd í starfi sínu. Þar sem ekki
var hægt að víkja honum úr sveitar-
stjórn var það skárra en ekkert, að
víkja honum út úr ráðum og nefnd-
um og skilja hann fjaðralausan eftir!
Ekki það að öll erum við, jú, misvel
fiðruð en nú sem fyrr, var ekkert
samráð haft við gömlu félagana á L
lista enda búið að byndast nýjum
tryggðarböndum.
„Friðardúfurnar" hafa leitað upp-
runans, ratað heim og fundið fjör-
gjafaljósið sem tendrar hin nýju
heimkynni og kærleikur mun vænt-
anlega svífa yfir vötnum á sveitar-
stjórnarfundum í framtíðinni og er
það vel.
Margt hefur komið upp í huga
minn síðustu vikur og eitt af því sem
situr eftir er eftirfarandi kveðskapur
Páls J. Ardals sem mér finnst eiga vel
við, þegar litið er yfir farinn veg.
Efætlarðu að svívirða saklausan mann,
þá segðu aldrei ákveðnar skammir um
hann,
en láttu það svona í veðri vaka
þií vitir, að hann hafi unnið til saka.
En biðjirþig einhver að sannaþá sök,
þá segðu, að til séu nægjanleg rök,
en nánungans bresti þú helst viljir hylja,
þá hljóti hver sannkristinn maður að
skilja.
Oggakktu nú svonafrá manni til
manns,
uns mannorðin drepið og virðingin hans,
og hann er í lyginnar helgreipar seldur
og hrakinn og vinlaus í ógæfii felldur.
Þegar svo hann allir elta og smá
og margt með ánægju þ.ú getur dregið
þigfrá,
og láttu þá helst eins og vetja þú viljir,
að þú vitir hans bresti og sökina skiljir.
og segðu: „hann brotlegur samilega er,
en syndugir aumingja ?nenn erum vér
því umburðarlyndið við seka oft sæmir.
En sektþessa vesalings faðrinn dæmir‘\
Svo leggðu með andakt að hjartanu hönd.
Með hangandi munnvikjum varpaðu önd,
og skotraðu augum að upp himinsranni,
serti æskirþú vægðar þei?n brotlega manni
Já, hafirþú öllþessi happsælu ráð.
Ég held þínum vilja þúfáir nu náð
og maðurinn sýkn verði meiddur og
smáður.
En máske, þti hafir kunnað þau áðm:
Dalirnir bjóða upp á margt fleira
en sverðaglamur í sveitarstjórn og
baráttu um titla og völd. Hér er mik-
il fegurð og mannauður og ótal tæki-
færi til framfara. Eg tel mun fýsilegri
kost að beina athyglinni að þeim
hliðum Dalanna sem heilla og hvet
íbúa Dalabyggðar að rækta kærleik
fyrir náunga sínum, ekki síst nú á að-
ventunni, tíma ljóss og friðar. Og eru
ekki jólaveinarnir á leið til byggða
með eitthvað óvænt og gleðilegt í
skóinn?
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir.
ljósbrons, dökkbrons og ljós-
bronsað Eyedust upp við augn-
beinið og við augnkróka.
Augnblýanturinn var dökk-
brúnn. Glossið sem Birna er
með er líka frá Clarins og heitir
Ruby og er nr. 6. og í lokin setti
ég örlítinn kinnalit á hana.
Ef þið eruð ekki vissar urn
hvaða augnskuggi hentar ykkur
þá getið þið litið á þennan lista
en það er ekki þar með sagt að
þið megið ekki nota neitt ann-
að. Það er um að gera að vera
nógu duglegur að prufa sig
áfram með liti því ekki vantar
úrvalið.
Blá augu: Grár, lillablár,
ljósfjólublár dökkblár, mrkis-
grænn, silfurlitaður.
Græn augu: brúnn, plómu,
dökkgrænn, gylltur, ljósfjólu-
blár, fjólublár, limegrænn,
aprikósu.
Brún augu: kopar, brons,
ljósbleikur, kóngablár, vel bleik-
ur, hermannagrænn, brúnn,
drappaður, ljósbleikur.“
Kveðja
Anna Sigga
_____________Förðunarfræðingiir
Breytt útlit
Að þessu sinni fær Birna Júl-
íusdóttir að njóta ráðlegginga
Onnu Siggu en Birna er gift, 4
barna móðir og starfar í Norð-
uráls.
„Birna litar aldrei á sér auga-
brúnirnar né plokkar þær. En
það ætti hún einmitt að gera
því að það breytir svo miklu að
vera með vel litaðar og mótað-
ar augabrúnir, augnumgjörðin
verður skarpari og miklu fal-
legri enda segja augun meira en
þústmd orð.
Þannig að ég byrjaði á því að
lita augabrúnirnar með dökk-
brúnum lit og síðan plokkaði
ég þær. Áður en ég setti meik-
ið á hana bar ég krem sem heit-
ir Beauty Flash Balm og er ffá
Clarins en það gerir húðina
sléttari, stinnari og andlitsfarð-
inn fær fallegan ljóma og helst
betur. Eg ákvað að hafa hana í
mildum litum. Eg notaði
kökumeik frá Clarins sem heit-
ir Teint Fondant nr.3. púðraði
svo yfir allt með litlausu púðri.
Það ætti helst alltaf að púðra
sig eftir að búið er að meika sig
því þá helst farðinn lengur og
augnskuggarnir tolla miklu
betur. Eg notaði hvítan
augnskugga í grunninn, svo
Draugurinn
í Stapabotni
Jafnskjótt og fer að hilla
undir jákvæðar aðgerðir í
samgöngumálum í Stapa-
botni og nágrenni hans brýst
fram á sjónarsviðið draugur
sá sem upp var vakinn fýrir
allmörgum árum af einhverj-
um innan bæjarfélagsins sem
berjast gegn tryggum vegi
og betri vitund af einhverj-
um annarlegum hvötum.
Nauðsynlegt er að þessi
draugur komi fram í dags-
ljósið svo saklausir þurfi ekki
að gjalda fýrir með æru
sinni.
Nú er enginn Latínu-
Bjarni til að koma óvættin-
um fýrir í einhverju dýinu í
Stapabotni, svo fátt er til
ráða. Bæjarstjórnarmenn
hafa eitthvað verið að krukka
í kauða en ekki haft erindi
sem erfiði í þeim efnum.
Þessi síðasta tillaga
draugsins, að setja upp snjó-
flóðavarnir í hlíðinni eru
með slíkum endemum að
ekki er á það hlustandi, þegar
við blasir vegarstæði sem
tryggir greiða leið allt árið.
Það verður að segjast
grínlaust, að þetta mál er
komið langt út í móa og
flokkast undir bull og
kjaftæði. Hvaða yfirvald
verður fýrst til að stöðva
þessa vitleysu? Það verður
fróðlegt að fýlgjast með því.
Kristinn í Bárðarbúð.