Skessuhorn - 17.12.2003, Page 9
aui^isunui..
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
9
Auldð samstarf og samvinna Borgfirðinga
Það var mikil samvinnuhugur
í sveitarstjórnarmönnum s.l.
föstudag þegar Akraneskaup-
staður, Borgarbyggð og Borgar-
fjarðarsveit undirrituðu sam-
komulag um að auka eins og
kostur er samstarf og samvinnu.
Um útvíkkum á eldra samkomu-
lagi er að ræða sem að mati for-
svarsmanna sveitarfélaganna
gekk mjög vel. Bættar samgöng-
ur eru forgangsmál í samkomu-
laginu og eiga þær framkvæmdir
að vera grundvöllur að enn
frekara samstarfi og eflingu
byggðanna. Sveitarfélögin eru
sammála um að vinna að fram-
gangi þessara mála eins og kost-
ur er. Þau samgöngumál sem
sveitarfélögin ætla sér að gera
sameignlega tillögu til sam-
gönguráðuneytisins eru; að brúa
Grunnafjörð, lagningu Sunda-
brautar verði hraðað og að ríkið
stuðli með beinum hætti að því
að gjaldtaka af umferð um Hval-
fjarðargöng verði lækkuð.
Auk þess felur samkomulagið í
sér effirfarandi atriði:
* Unnið verði að stækkun og
eflingu sveitarfélaga í Borgar-
fjarðarhéraði.
* Sveitarfélögin beiti sér fyrir
að starfsemi Landbúnaðarhá-
skólans á Hvanneyri, Viðskipta-
háskólans að Bifföst og Fjöl-
brautaskóla Vesturlands verði
efld.
* Samstarf safha verði aukið
og þrýst verði á ríkið um gerð
menningarsamnings við sveitar-
félögin á Vesturlandi. Einnig að
staðinn verði vörður um upp-
byggingu menningarstarfsemi í
Reykholti og uppbyggingu
Snorrastofu.
* Unnið verði áfram sameigin-
lega að vímuvarnarmálum, skoð-
að hvort hagkvæmt sé að reka
sameiginlega tækniþjónustu og
þjónustu á sviði félagsmála.
Kanna á hvort sameiginleg út-
boð geti verið hagkvæmur kost-
ur í einstökum tilvikum og
einnig frekara samstarf varðandi
úrbætur í holræsamálum, og
auka samstarf á sviði skólamála.
Þá er ætlunin að kanna frekara
samstarf varðandi endurmennt-
un starfsmanna, vinna áffam að
samstarfi á sviði íþrótta- og
æskulýðsmála, standa saman að
uppbyggingu á Grundartanga-
svæðinu í samvinnu við aðra
sameignaraðila að Grundar-
tangahöfh og stuðla að ffekari
þátttöku Orkuveitu Reykjavíkur
í verkefnum í héraðinu.
* Sveitarfélögin eru sammála
um að bjóða íbúum sveitarfélag-
anna upp á þjónustu á sviði dag-
vistarmála, heimilishjálpar,
vinnu Vinnuskóla og þjónustu
tónlistarskóla án tillits til þess í
hvaða sveitarfélagi viðkomandi
aðilar eiga lögheimili.
Sveinn Kristinsson sagðist í
samtali við Skessuhorn vera
mjög ánægður með samkomu-
lagið. „Bættar samgöngur eru
lykilþátturinn í að bjóða uppá
enn betri þjónustu og munar
miklu ef við styttum leiðina milli
Páll Btynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar, Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi og Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri
Borgarfjarðarsveitar staðfestu samkomulagið.
Akraness og hinna sveitarfélag-
anna um 7 km. Við viljum gera
sveitarfélögin hér á Vesturlandi
sem annan möguleika við
Reykjavík, svæðið verði nokkurs
konar útvörður landsbyggðar-
innar í jaðri höfuðborgarinnar.“
Aðspurður hvort þetta væri
fyrsta skrefið í að sameina þessi
sveitarfélög sagðist Sveinn hafa
lengi verið þeirrar skoðunar að
Borgarfjarðar- og Mýrasýsla
verði eitt sveitarfélag. „Málið
snýst um að horfa á hvernig
hagsmunum þessa svæðis verði
best borgið sem heild en ekki
hvað hvert sveitarfélag er að fá í
sinn hlut. Sveitarfélagamörk eru
Veitingahúsið Krákan á
Grundarfirði á 10 ára afinæli
Föstudaginn 12. desember sl.
héldu hjónin Halla Elimars-
dóttir og Friðfinnur Friðfinns-
son upp á að þá voru nákvæm-
lega liðin 10 ár ffá því þau opn-
uðu Veitingahúsið Krákuna á
Grundarfirði. Af því tilefni
buðu þau Grundfirðingum að
samgleðjast með sér yfir kaffi
og tertum ffá kl. 16 til 19 og var
fullt út úr dyrum á þeim tíma
og þeim færðar fjöldi gjafa.
Þegar þau opnuðu Krákuna
þann 12. desember 1993 voru
margir sem voru svartsýnir á
það að tækist að reka metnaðar-
fullt veitingahús á Grundarfirði
allt árið um kring. Reyndin var
sú að bæjarbúar tóku Krákunni
vel og í dag er hún opin alla
daga vikunnar. Viðskiptavinir
yfir veturinn eru einkum
Grundfirðingar og reyndar fólk
alls staðar af Nesinu. A sumrin
sækir staðinn hins vegar rnikið
af ferðafólki, bæði innlendu og
erlendu, ekki síst Þjóðverjar.
Á myndinni má sjá eigendur Krákunnar, hjónin Höllu Elimarsdóttir og
Friðfinn Friðfinnsson á afineelisdaginn 12. des. sl.
Krákan býður upp á mat all-
an daginn, en sömuleiðis kaffi
og meðlæti síðdegis. A daginn
er Krákan kaffihús, sem breytist
í veitingastað og bar á kvöldin,
en staðurinn er með fullt vín-
veitingaleyfi. Boðið er upp á
fjölbreyttan mat og er ferskleik-
inn í fyrirrúmi. Á matseðlinum
eru til dæmis lambasteikur og
ferskur fiskur báta ffá Grundar-
firði. Oft er boðið upp á lifandi
tónlist á Krákunni og má þar til
dæmis nefna Dixielandsveit
Grandarfjarðar og sönghópinn
Sex í sveit.
að breytast og til að reka alvöra
sveitarfélag sem er samkeppnis-
fært um þjónustu til íbúa þarf að
hugsa í stærri einingum. Þetta
samkomulag er fyrst og ffemst
hugsað til að styrkja þessi þrjú
sveitarfélög. Við kjósum að
ganga ákveðin til verks í stað
þess að bíða með hendur í
skauti“ sagði Sveinn að lokum.
I kjölfar undirritunar sam-
komulagsins staðfesti Akranes-
kaupstaður samkomulag við
Snorrastofu og Byggðsafnið að
Görðum um að styðja rekstur
Snorrastofu með fjárffamlagi að
upphæð 1,5 mkr. sem greiðist á
næstu þremur árum. Snorrastofa
og Byggðasafnið að Görðum
munu á þeim tíma leita leiða til
að auka samstarf sitt. Má segja
að þessi styrkur sé staðfestingar-
vottur Skagamanna að hugur
fylgi máli og vísbending um að
samkomulagið muni skila sér í
áþreifanlegum mun til íbúanna.
Skipumgsstafnun
Útnesvegur (nr. 574)
Gröf-Arnarstapi í Snæfellsbæ
Mat á umhverfisáhrifum
- athugun Skipulagsstofnunar
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar
Skipulagsstofnunar matsskýrslu um lagningu
Útnesvegar frá Gröf að Arnarstapa í Snæfellsbæ.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um
mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til
kynningar frá 12. desember 2003 til 23. janúar 2004
á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Snæfellsbæjar á
Hellissandi, bókasafni Snæfellsbæjar í Olafsvík,
Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðum
Vegagerðarinnar : www. vegagerdin.is og VSÓ
ráðgjöf: www.vso.is.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og
leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera
skriflegar og berast eigi síðar en 23. janúar 2004 til
Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum,
nr. 106/2000.
Skipulagsstofnun