Skessuhorn - 17.12.2003, Qupperneq 55
fntssunu^
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
55
1. deild karla í körfuknattleik
Ósigraðir frá
september
Skallagrímur-Fjölnir 90-82
Jón Oddur íþrótta-
maður ársins
Jón Oddur
Halldórsson,
frjálsíþrótta-
maðurinn knái
úr Snæfells-
bæ var, ásamt
Kristínu Rós
Hákonardótt-
ur, valinn í-
þróttamaður
ársins úr röð-
um fatlaðra en
valið var kynnt
þann 10. des.
sl. Jón Oddur
hefur staðið
sig sérlega vel
á árinu og
sigraði m.a. í
100 og 200
metra hlaupi
bæði á Evr-
ópumeistara-
móti fatlaðra í frjálsum
íþróttum og opna breska
meistaramótinu. Þá sigraði
hann í öllum hlaupagreinum
Jón Oddur Haltdórsson íþróttamaður
fatlaðra 2003
á íslandsmóti ÍF innanhúss í
vetur. Það er því óhætt að
segja að þessi efnilegi og
hógværi íþróttamaður sé vel
að þessum heiðri kominn.
Skallagrímur er á beinu
brautinni þessa dagana í 1.
deild karla í körfuknattleik, en
liðið hefur ekki tapað leik í
deildinni síðan í 1. umferðinni
þegar toppliðið, Valur bar sig-
urorð af Borgnesingunum.
Skallarnir tóku á móti Fjölni á
föstudag en Fjölnismenn voru
fyrir leikinn á toppnum ásamt
Val og Skallagrím en öll liðin
höfðu þá 12 stig.
Skallarnir áttu í
nokkrum erfið-
leikum með
Fjölnismenn og
var jafnt á öllum
tölum þartil í blá-
lokin er Skallarnir
sigldu framúr á
seglum reynsl-
unnar.
„Ef við vinnum Stjörnuna í
kvöld (þriðjudag) erum við í á-
gætum málum á miðju móti
og getum farið tiltölulega ró-
legir í jólafrí," segir Valur Ingi-
mundarson þjálfari. Skallarnir
leita nú að nýjum leikmanni til
að styrkja liðið fyrir lokabar-
áttuna en liðið stefnir að því
leynt og Ijóst að endurheimta
sætið í úrvalsdeildinni.
Tölurnar - Skallagrfmur
Nr Nafn Mín HF STOSTIG
4 Egill Ö Egilsson 23 2 0 9
6 Ari Gunnarsson 30 4 5 3
7 Pálmi Þ Sævarsson 27 8 0 4
9 Steven Howard 38 4 7 31
11 Óskráður leikmaður 10 0 1 2
12 Davíð Asgrímsson 19 2 3 8
14 Valur S Ingimundarson 23 1 3 16
15 Sigmar P Egilsson 30 1 2 5
Snæfellingar
áfram
Um helgina fóru fram leikir
' 16 liða úrslitum bikarkeppni
karla í körfuknattleik. Tvö lið
af Vesturlandi komust í 16
•iöa úrslitin, Grundarfjörð-
ur/Reynir og Snæfell. Snæ-
fellingar mættu KR-b á úti-
velli og sigruðu nokkuð auð-
veldlega 89 - 95. Grundfirð-
ingar og Sandarar fengu
hins vegar stærri bita því þeir
fengu Tindastól í heimsókn í
Iþróttahús Snæfellsbæjar í
Ólafsvík og töpuðu 70-124
enda leika Stólarnir í úrvals-
deild sem kunnugt er en
Grundafirðingar og Reynis-
menn leika í 2. deild.
Snæfellingar aftur komnir á skrið
Haukar - Snæfell 70-81
Snæfellingar náðu sér aftur
á strik í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik eftir Ijótan skell
gegn Njarðvík í síðustu viku.
Þeir sóttu Hauka heim að Ás-
völlum á fimmtudag en Hauk-
arnir voru aðeins tveimur stig-
um á eftir Snæfellingum fyrir
leikinn. Snæfellingar byrjuðu
af miklum krafti og höfðu tíu
stiga forystu eftir fyrsta leik-
hluta og létu hana aldrei af
hendi í öllum leiknum. Staðan
í leikhléi ver 27 - 38 og eftir
þriðja leikhluta 47 - 59. Loka-
tölur urðu síðan 70-81. Með
sigrinum náðu Hólmarar áð
tryggja stöðu sína í efri hluta
deildarinnar og eru þeir nú í 3
- 4 sæti ásamt Keflvíkingum.
Flestir leik-
menn Snæfell-
inga áttu góðan
leik en Banda-
ríkjamennirnir
Dickerson og
Whitmore voru
atkvæðamestir í
framlinunni en
þeir hafa ekki
verið að skila neinum stór-
kostlegum tölum það sem af
er vetri. Þeir Hafþór og Sig-
urður léku einnig vel og voru
traustir að vanda.
Tölurnar - Nr Nafn Snæfell Mín HF STOSTIG
4 Hlynur E Bæringsson 34 11 3 5
5 Andrés M Heiðarsson 17 7 1 0
6 Corey Dickerson 35 2 7 23
9 Hafþór 1 Gunnarsson 27 2 6 10
11 Sigurður Á Þorvaldss 29 5 1 10
12 Lýður Vignisson 18 1 4 3
15 Dondrell Whitmore 40 7 2 30
Snæfellingar með jafn mörg stig í jólafrí og allt árið í fyrra?
Gengið framar vonum
segir Bárður Eyþórsson þjálfari Snæfells
Úrvaldeildarlið Snæfells í
körfuknattleik hefur vakið
verðskuldaða athygli i deild-
inni í vetur og er í toppbarátt-
unni sem stendur ásamt Suð-
urnesjaliðunum alræmdu. Lið-
ið hefur aldrei byrjað betur í
deildinni að sögn þjálfarans,
Bárðar Eyþórssonar og ef lið-
ið sigrar KFÍ í Hólminum á
fimmtudag fer það í jólafrí
með jafn mörg stig og það
fékk allan síðasta vetur.
„Við erum alveg þokkalega
sáttir enda hefur þetta gengið
framar vonum,“ segir Bárður
þjálfari. „Upp á síðkastið höf-
um við verið að vinna leiki án
þess að spila okkar besta leik
og það sýnir ákveðinn styrk-
leika. Það sem af er höfum við
aðeins tapað fyrir Suðurnesja-
liðunum og höfum átt býsna
góða leiki inn á milli.“
Sterkir leikmenn
Bárður segir hópinn hafa
styrkst mikið fyrir tímabilið og
það geri gæfumuninn um
stöðuna í dag. „Við fengum þá
Sigurð Þorvaldsson og Haf-
þór Inga Gunnarsson inn fyrir
veturinn og þeir eru geysilega
sterkir. Jón Þór kom síðan líka
en hann varð reyndar að
hætta vegna meiðsla. Síðan
erum við með tvo sterka út-
lendinga en það hefur að
mínu mati breytt mestu að fá
þá Hafþór og Sigurð enda eru
þetta geysi sterkir leikmenn.
Það sem háir okkur reyndar
eins og alltaf
er að við
höfum fá-
mennan æf-
ingahóp. Við
erum ekki
nema 10-12
á æfingum
sem þýðir að
það má helst
enginn meið-
ast. Hafþór
er meiddur í
dag og það
veikir liðið
fyrir næsta
leik sem er
jafnframt sá
síðasti fyrir
jól. Við eig-
um samt að
geta unnið
KFÍ á heima-
velli og þá gætum við farið
mjög sáttir í jólafrí."
Bárður segir liðið geta stát-
að af tveimur af bestu íslend-
ingunum í deildinni í vetur,
þeim Sigurði og Hlyni Bær-
ingssyni og að framhaldið
velti töluvert mikið á þeim.
„Við settum okkur það mark-
mið í upphafi að komast í úr-
slitakeppnina og það hefur
ekki breyst. Okkur var spáð 6.
sætinu fyrir mót og við ætlum
allavega að reyna að halda
því. Framhaldið veltur hins-
vegar á leikmönnunum sjálf-
um og ekki síst á þeim Sigurði
og Hlyni því þeir eru gríðar-
lega mikilvægir fyrir þetta lið.
Ef þeir verða áfram í þessu
formi er útlitið ekki slæmt;“
Suðurnesja-
liðin erfið
Bárður segist aðspurður
búast við að Suðurnesjaliðin
eigi eftir að bítast um titilinn.
Grindvíkingar hafa byrjað vel
en þeir eru alls ekki afger-
andi. Það sem þeir og hin
Suðurnesjaliðin hafa hins-
vegar er að þeir eru að
byggja á sama hóp og síðast.
Við þurfum hins vegar að
byrja á að byggja upp nýtt lið
á hverju hausti. Við eigum
hins vegar að geta strítt
þessum liðum, við höfum al-
veg mannskap í það. Það
spillir heldur ekki fyrir að
stemningin er góð, bæði í
leikmannahópnum og líka hér
í bænum. Þetta hjálpast allt
að,“ segir Bárður.
Staðan í úrvals-
deildkarla í
körfuknattleik
Félag L U T Stig
1. UMFG 1010 0 897:827 20
2. UMFN 10 8 2 944:841 16
3. Keflavík 10 7 3 986:849 14
4. Snæfell 10 7 3 813:783 14
5. KR 10 6 4 935:891 12
6. Tindast. 10 5 5 957:908 10
7. Hamar 10 5 5 821:855 10
8. Haukar 10 5 5 781:799 10
9. KFÍ 10 2 8929:1008 4
10. Br.blik 10 2 8 830:904 4
11. ÞórÞ. 10 2 8 849:972 4
12. ÍR 10 1 9 849:954 2
Staðan í 1.
deild karla í
körfuknattleik
Félag L U T Stig
1. Valur 9 8 1 786:728 16
2. Skallagr. 8 7 1 766:642 14
3. Fjölnir 9 7 2 802:666 14
4. Stjarnan 7 4 3 561:569 8
5. ÍS 8 4 4 666:662 8
6. ÞórAk. 9 4 5 749:800 8
7. ÍG 9 3 6 754:807 6
8. Árm./Þr. 8 3 5 657:648 6
9. Höttur 8 1 7 569:680 2
10. Selfoss 9 1 8 736:844 2