Skessuhorn - 11.02.2004, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 2004
Brunavamaátak LSS
Einar Eniil Torfason vinningshafi fékk geislaspilara
og viðurkenningarskjal í verðlaun. Það varjó-
hannes Engilhertsson slökkviliðsstjóri á Akranesi
se?nfærði honum viðurkenninguna.
Landssamband
slökkviliðs og
sjúkraflutninga-
manna efna árlega
til Eldvarnarviku og
var hún síðast hald-
in í lok nóvember.
Slökkviliðsmenn
heimsóttu þá nær
alla grunnskóla
landsins hver á sínu
starfssvæði og
lögðu fyrir nem-
endur 3. bekkjar
sérstök verkefni á-
samt elvarnarget-
raun og ræddu um
leið við börnin um eldvarnir
og öryggismál. Samtals fengu
því um 5000 börn heimsókn
slökkviliðsmanna þessa viku.
Góð þátttaka var í eldvarnar-
getrauninni og voru nöfn 23
heppinna barna víðsvegar um
landið dregin úr réttum inn-
sendum lausnum og fengu þau
öll verðlaun. A Vesturland
kom einn vinningur en sá
heppni er Einar Emil Torfa-
son, Garðabraut 45 á Akranesi.
MM
Lísbet Hjörleifsdóttir hefur hafið störf að
nýju eftir barneignarleyfi
Starfsmenn Höfóa enn ósáttir
Mikil óánægja er meðal hluta
starfsmanna dvalarheimilisins
Höfða og hafa nú 5 starfsmenn
sagt störfum sínum lausum.
Eftir því sem Skessuhorn best
veit er m.a. um að ræða 3 starfs-
menn sem hafa starfað frá
stofnum Höfða og unnið þar í
kvartöld. Málið má rekja til
ársins 2001 þegar gert var s.k.
endurmat á launum starfs-
manna Höfða, þegar sú vinna
hófst var lögð áhersla á að end-
urmatið næði til allra starfs-
manna. I því ferli var starfs-
mönnum Höfða skipt niður í 4
hópa og þegar búið var að meta
þrjá hópa var þeim þórða kippt
út. I þeim hópi eru þeir starfs-
menn sem sjá um ræstingar,
þvott og starfsþjálfun.
Gert var samkomulag við
starfsmenn eftir viðræður
starfsmannafélagsins við bæjar-
yfirvöld en BSRB kom einnig
að því máli. Samkomulagið fól
í sér launaleiðréttingu fyrir
tímabilið 1.5.2001 - 30.10.2002
með eingreiðslu til starfs-
manna. Að sögn Gísla Gísla-
sonar bæjarstjóra telja bæjaryf-
irvöld sig hafa lokið málinu
með samkomulaginu sem var
samþykkt í bæjarráði og lagt
fyrir stjórn Höfða sem gerði
engar athugasemdir. Heimildir
Skessuhorns herma að starfs-
menn líti ekki eins á málið. Að
þeirra mati sé eingreiðslan bara
örlítil sárabót og í raun grátlegt
að bæjaryfirvöld séu ekki tilbú-
in að Ijúka þessu máli með
sæmd, því ekki sé um háar upp-
hæðir að ræða. Það er allavega
ljóst að þrátt fyrir samkomulag-
ið er hluti starfsmanna Höfða
enn óánægðir vegna hversu
mikið misræmi sé á launum
innan stofnunarinnar og að
starfsmennirnir fimm ætli ekki
að draga uppsagnir sínar til
baka. „Þetta mál hefur ekki
komið aftur á borð bæjarins en
við vitum af þessum uppsögn-
um. Það hefur komið til tals að
þrýsta á að launanefnd sveitar-
félaga ljúki starfsmatinu sem
allir bíða eftir eins fljótt og
kostur er og starfsmenn Höfða
verði teknir í starfsmat eins
fljótt og kostur er,“ sagði Gísli
að lokum.
-háp
Viðbygging Vallarsels vígð
Þeir Guðni Tryggvason og Pe'tur Óðinsson tóku við þakklætisvotti fi-á Helgu
Gunnarsdóttur forstóðumanni skóla- og menningasviðs. Gunnar Olafsson var
jjarverandi.
Endurbætur á lóðinni vekja mikla lukku hjá ungviðinu, enda fátt skemmtilegra
en að taka góða salibunu á sólríkum degi.
Viðbyggingin við Vallarsel
var formlega afhent sl. fimmtu-
dag að viðstöddu fjölmenni.
Þráinn E. Gíslason verktaki, af-
henti forseta bæjarstjórnar,
Sveini Kristinssyni lyklana.
Lilja Guðlaugsdóttir leikskóla-
stjóri fékk svo í framhaldi lykla-
völdin og rakti við það tækifæri
viðbyggingarsöguna frá bæjar-
dyrum leikskólans. Lilja var
mjög ánægð með störf verktak-
anna og fékk Þráinn bestu
þakkir fyrir gott starf. I máli
Lilju kom m.a. fram að það
hefði verið skrýtinn og
skemmtilegur kokteill þegar
byggingafyrirtæki og leikskóla-
börn voru á sömu þúfunni og
ýmsar uppákomur hefðu verið.
Til að mynda vantaði á köflum
bæði vatn og rafmagn. Allt fór
þetta þó vel og samstarfið var
með besta móti. Samvistum
leikskólabarna og verktanna er
þó ekki alveg lokið því enn er
eftir að klára síðustu deildina af
þeim þremur sem eru í við-
byggingunni. Endanleg skil eru
ráðgerð 13. mars n.k.
Atta mánuðir eru frá því að
framkvæmdir hófust en auk ný-
framkvæmda voru gerðar um-
talsverðar breytingar á eldra
húsnæði leikskólans. I dag er
Vallarsel 6 deilda leikskóli,
930,0 m2 að stærð þar sem 143
börn geta dvalið samtímis.
Þegar allar deildir leikskólans
hafa verið teknar í notkun
verða Ieikskólapláss á Akranesi
alls 288. Arkitektar að eldri
byggingu leikskólans voru
Guðmundur Kr. Guðmunds-
son og Olafur Sigurðsson og
hefur Guðmundur og arki-
tektastofan Arkþing séð um
hönnun breytinga og nýbygg-
ingar. Hönnun lóðar var í
höndum Landlína í Borgarnesi.
Framkvæmdir voru á hendi
Trésmiðju Þráins E. Gíslasonar
en nokkrir undirverktakar
komu einnig að verkinu.
Heildarkostnaður við endur-
bæturnar er áætlaður 146 mkr.
og á þessari stundu er ekki útlit
fyrir annað en að sú áætlun
standi. Bæði endurbætur á
eldra húsnæði, nýbyggingin
sem og endurnýjun á lóðinni
þykja hafa tekist mjög og er al-
menn ánægja á meðal barna,
foreldra og starfsfólks.
Við þetta tækifæri var fram-
kvæmdanefndin heiðruð en í
henni eru Gunnar Ólafsson,
Guðni Tryggvason og Pétur
Óðinsson. Óhætt er að segja
að það sé ekki í hverjum bæ
sem slíkt gengi er til en þessi
framkvæmdanefnd hefur á síð-
ustu átta árum haft umsjón
með byggingu leikskólans
Teigasels, báðar skólaviðbygg-
ingar og nú síðast viðbygging-
una við Vallarsel. Ekki er útlit
fyrir að skólahúsnæði verði
byggt í bráð á Akranesi og því
þótti við hæfi að sína þessum
heiðursmönnum smá þakklæt-
isvott fyrir vel unnin störf.