Skessuhorn - 11.02.2004, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 2004
.aivcsaunuiw
Glímukonur Dal-
anna á toppnum
Iþróttahátíð
UMSB 2004
Iþróttamaður HSH árið 2003
er Rögnvaldur Ólafsson
Rögnvaldur er líka kylfingur
ársis en hann er félagi f Golf-
klúbbnum Jökli í Ólafsvík.
Hann er klúbbmeistari Jök-
uls, vann HSH mótið og stóð
sig vel á Toyota mótaröð GSÍ,
endaði þar í 22. sæti, en hann
tók þátt í 4 af 5 mótum. Bætti
ca. 10 ára gamalt vallarmet á
Fróðárvelli um 2 högg, en
hann lék á 63 höggum. Rögn-
valdur er forgjafarlægsti
kylfingur innan HSH með 1,8
í forgjöf.
[þróttamaður fatlaðra hjá
HSH 2003 er Jón Oddur Hall-
dórsson UMF Reyni. Jón
Oddur hefur á árinu 2003
sýnt hvað í honum býr, hann
hefur með góðri ástundun
náð í fremstu röð meðal
frjálsíþróttamanna í heimin-
um í sínum flokki meðal fatl-
aðra.
Jón Oddur sigraði í 100 og
200 m hlaupi á Evrópumeist-
aramóti fatlaðra í frjálsum í-
þróttum þar sem hann sigr-
aði meðal annars heims- og
ólympíumótsmeistarann Ll-
oyd Upsedell, sem einnig á
heimsmetið í báðum þessum
greinum. Á opna breska
meistaramótinu sem fram fór
í Birmingham gerði Jón Odd-
ur sér lítið fyrir og vann enn
og aftur heimsmeistarann og
heimsmethafann Lloyd Up-
sedell frá Bretalandi bæði í
100 m og 200 m hlaupi og
sýndi að sigur hans yfir Up-
sedell á Evrópumeistaramót-
inu í júlí sl. var engin tilviljun.
í 100 m hlaupinu sigraði Jón
Oddur á tímanum 13.93 sek
þar sem hann hljóp á 14.18
sek og hafnaði í öðru sæti og
( 200 m sigraði á tímanum
28,35 sek og var tæpri sek. á
undan Upsedell. Glæsilegur
árangur hjá Jóni og gott
veganesti fyrir lokaundirbún-
inginn fyrir Ólympíumót fatl-
aðra á næsta ári.
Jón Oddur var einnig út-
nefndur íþróttamaður fatl-
aðra árið 2003.
Frjálsíþróttamaður HSH
2003 er Hilmar Sigurjónsson.
Hestamaður HSH 2003 er
Lárus Ástmar Hannesson
Snæfellingi.
Knattspyrnumaður HSH
2003 er Hermann Geir Þórs-
son UMF Víking.
Körfuknattleiksmaður HSH
2003 er Hlynur Elías Bær-
ingsson Snæfelli.
Sundmaður HSH 2003 er
María Alma Valdimarsdóttir
Snæfelli.
Bridgelandslið kvenna hefur
verið valið en næsta keppni er
Evrópumótið í Malmö í Sví-
þjóð í júní n.k. Alda Guðna-
dóttir úr Borgarnesi er meðal
landsliðskvenna en hún var
fyrst valin í liðið á síðasta ári.
Íþróttahátíð UMSB var hald-
in laugardaginn 7. febrúar.
Keppendur voru hátt í 200 og
voru á aldrinum 5-16 ára.
Keppt var í sundi og frjálsum í-
þróttum. Mjög góður árangur
náðist í mörgum greinum bæði
í sundi og frjálsum íþróttum þó
árangur ungs Hvanneyrings
bæri hæst. Arnar Hrafn
Snorrason setti UMSBmet í
hástökki í strákaflokki 11-12
ára þegar hann stökk 1,45 m.
Eldra metið átti Andri Emol-
inskij 1,40 m en það var sett
árið 1993. íþróttahátiðin hófst
á keppni í sundi. Næst fór
fram kynning á júdó. Það er
hefð fyrir því að á Íþróttahátíð
UMSB er kynnt einhver íþrótta-
grein sem ekki er stunduð í
Borgarnesí. Að þessu sinnu
voru það félagar frá júdófélagi
Reykjavíkur sem sáu um sýn-
inguna. Eftir afhendingu sér-
verðlauna og krýningu íþrótta-
manns ársins tók frjálsíþrótta-
keppnin við. Eins og fyrr segir
tókst hátíðin mjög vel og mikil
stemning var á pöllunum.
Hlynur
íþrótta-
maður
Snæfells
Hlynur Bæringsson, fyrir-
liði úrvalsdeildarliðs Snæ-
fells í körfuknattleik, hefur
verið útnefndur íþrótta-
maður Snæfells árið 2003.
Valið var tilkynnt þegar
Snæfellingar tóku á móti
Kefivíkingum í Úrvals-
deildinni í síðustu viku og
unnu góðan sigur eins og
sagt hefur verið frá í
Skessuhorni.
Hlynur hefur verið að leika
afar vel með Snæfelli í vet-
ur og undantekningalítið
verið einn besti maður vall-
arins. Ekki þarf að tíunda
frekar árangur Snæfells en
sem stendur er liðið í 1.
sæti úrvaisdeildarinnar.
Þetta er annað keppnis-
tímabil Hlyns með Snæfell-
ingum en áður lék hann
með Skallagrími í Borgar-
nesi.
Úrslitin í íslandsmótinu í
glímu, Leppinmótaröðinni,
ráðast á laugardaginn, 14.
febrúar, í íþróttahúsi Haga-
skóla en þá fer fram þriðja og
síðast umferðin í íslandsmót-
inu í glímu.
Búast má við jafnri og
spennandi keppni í flestum
flokkum en allt besta glímu-
fólk landsins er skráð til leiks.
Þátttaka á mótið er mjög góð
en 25 glímumenn frá 6 félög-
um eru skráðir í keppni. Þar
af eru þrjár öflugar glímukon-
ur úr Dölunum, systurnar
Svana Jóhannsdóttir.
Svana Hrönn og Sólveig Rós
Jóhannsdætur og Eva Lind
Lýðsdóttir en þær eru í topp-
sætunum, bæði opnum flokki
og kvennaflokki + 65 kg fyrir
keppnina á laugardag.
í opnum flokki er Svana
Hrönn í efsta sæti með 11
stig, Sólveig Rós í öðru með
9 stig, í þriðja sæti er Inga
Gerða Pétursdóttir frá HSÞ
með 8,5 stig en Eva Lind er í
því fjórða með 7 stig og á
möguleika á að ná bronsinu.
í kvennaflokki + 65 kg er
Svana einnig í 1. sæti með 11
stig, Inga Gerða frá HSÞ er í
2. með 10 stig, Sólveig í 3.
með 9 stig og Eva Lind í 4.
með 6 stig.
í stigakeppni félaga er
Glímufélag Dalamanna
langefst í kvennaflokki með
53 stig, HSK í öðru með 30,5
stig og HSÞ í þriðja með 18,5
stig.
Af fþróttastarfi
á Snæfellsnesi
Mikið hefur verið um að vera í
íþróttastarfi HSH í vetur.
Haldin hafa verið nokkur mót
m.a. knattspyrnumót, frjálsí-
þróttamót og Æskusundmót
en keppendur í sundinu eru
frá HSH, USHV,UMSB og eru
keppnirnar haldnar að hausti
á stöðunum til skiptis.
Mótið heppnaðist vel og fóru
keppendur og velunnarar
þess glaðir af móti að sögn
Öldu Pálsdóttur fram-
kvæmdastjóra HSH.
Ný afstaðið er knattspyrnu-
mót sem haldið var hér í
Hólminum og gekk vel þrátt
fyrir að hafa hitt inn á Þorra-
blótshelgi hjá Grundfirðingum
og Hólmurum.
Foreldrar af Nesinu eru dug-
legir að koma með börnum
sínum og hafa gaman af svo
að alltaf er fjör í stúkunni þar
sem pabbarnir verða strákar
aftur er þeir lifa sig inn í bolta-
leikinn og og mömmurnar
verða að klappstýrum með í-
myndaða dúska!
Framundan er Knattspyrnu-
mót sem verður haldið f
Ólafsvík en Héraðsmótin í
knattspyrnu eru þrískipt þ.e.
haldin í Stykkishólmi, Grund-
arfirði og Ólafsvík og eru því
mótshelgar knattspyrnunnar
þrjár yfir veturinn og þrjár yfir
sumarið. Þá verður haldið
Héraðsmót í frjálsum íþróttum
f Stykkishólmi 27. feb.