Skessuhorn - 11.02.2004, Síða 15
auiissunu^
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 2004
15
Meistaramót Badmintonfélagsins
Meistaramót Badmintonfé-
lags Akraness fyrir U17 - U19
fór fram um síðustu helgi. 31.
keppandi mætti til leiks og
komu þeir frá ÍA, TBR, Hafnar-
firði og Þorlákshöfn. Mótið var
hið skemmtilegasta og voru
mörg glæsitilþrifin sem glöddu
augað. Að vanda var okkar
fólk að gera góða hluti og má
þar nefna að Hólmsteinn Þór
Valdimarsson vann þrefalt í
flokki U19 og spilaði hann ein-
staklega vel á
þessu móti eins
og allir okkar
spilarar sem eru í
einstaklega góðu
formi þessa
dagana. Þá má
einnig geta þess
að Karitas Ósk
sem ennþá er
aðeins 16 ára
spilaði í flokki U-
19.
Birkir Guðmundsson, Róbert Pór Henn, Kristján
Aðalsteinsson og Ragnar Harðarson allir úr ÍA.
Vel heppnaðir vetrarleikar
Nú er óðum að færast meira
líf í hesthúsahverfið á Æðar-
odda. Flest allir komnir með
hrossin inn og farnir að ríða út
reglulega. Vetrarleikar KB-
banka og hestamannafélags-
ins Dreyra fóru fram s.l. laugar-
dag. Mótið tókst i alla staði vel
og aðstæður til hestaiðkunar
góðar þrátt fyrir að kalt hafi
verið í veðri. Mikið var um að
vera á svæði Dreyramanna við
Æðarodda þennan dag, en að
móti loknu var boðið uppá kaffi
og vörukynningu frá búðinni
Hestar og menn. Veitt voru
verðlaun til efstu keppenda á
vetrarleikunum og við þetta
tækifæri veitti Jón Sólmundar-
son, formaður Dreyra, Karen
Líndal Marteins-
dóttur bikar þar
sem hún varð efst
í kjöri íþrótta-
manns ársins hjá
Dreyra. Karen
varð Islands-
meistari í fjór-
gangi 1. flokks.
Keppti með
landsliðinu í
hestaíþróttum á
Heimsmeistara-
mótinu í Herning í Danmörku
þar sem hún hafnaði í 4. sæti.
Úrslit Vetrarieikanna urðu
þessi:
Barnaftokkur
1. Daniela Hafsteinsdóttir og Topp-
ur
Unglingaflokkur
I.Guðbjartur Stefánsson og Breki
Kvennaflokkur
1. Sigurveig Stefánsdóttir og Frigg
Karlaflokkur
1. Haukur Þorvaldasson og Þóra
Kolbrún Ýr og Gunnar
Smári stóðu sig vel
Um síðustu helga fór fram
sterkt danskt mót í Lyngby.
Kolbrún og Gunnar tóku þátt í
mótinu ásamt átta sundmönn-
um út ÍRB (Reykjanesbæ). Ár-
angurinn lét ekki á sér standa
þrátt fyrir mikla þreytu í
kroppnum eftir harðar æfingar
undanfarnar vikur. Gunnar
Smári bætti sinn besta árangur
í fjórum af sex greinum og
komst í úrslit í 50m skriðsundi
þar sem hann endaði í sjötta
sæti. Kolbrún Ýr stóð sig
einnig vel, vann 100m skrið-
sund, náði öðru sæti í 50m
skriðsundi. Á sunnudeginum
fór svo fram SUPER-
CHALLANCE í 50m flugsundi.
Sextán bestu einstaklingarnir í
50m flugsundi komust áfram í
útsláttarkeppni þar sem fjórir
sundmenn synda alltaf saman
og tveir bestu komust áfram í
næstu umferð. Kolbrún synti
mjög vel í þessu og komst alla
leið í 4 manna úrslit, þar endaði
hún í þriðja sæti. Kolbrún fékk
1.000 dk að launum, auk þess
sem hún vann sér inn 500 dk í
vöruúttekt í sundbúð mótsins
fyrir árangurinn sinn í skrið-
sundsgreinunum.
Þetta mót var fyrsta mót Kol-
brúnar í undirbúningi hennar
fyrir Evrópumeistaramótið í
sundi sem fer fram í Madrid á
Spáni í maí. Framundan eru
harðar æfingar og nokkur æf-
ingamót.
Heimasíða: www.biohollin.is
Netfang: biohollin@biohollin.is
Vesturgötu 27 - Akranesi
Símsvari: 431 1100 • Skrifst.: 431 2808 - 896 9908
UNDAN:
BEN AFFLECK AARON ECKHART UMA THÚRMAN
FRO-I THE DtRECTOR CF Mfl'Z ANO FACEjTDFF Æ
ano the AirmuFi who BROUGHTYOU MINURiTY REPDRT ano E3LADE RUNNER
Sunnudaginn
15. febrúar kl. 20
Mánudaginn
16. febrúar kl. 20
Fimmtudaginn
12. f ebrúar kl. 20
Miðaverð aðeins 650 kr.
allur ágóði fer til styrktar
3. flokks karla í knattspyrnu
I
<n< ■ m m.m ■
Nýtt uppistand með Þorsteini Guðmundssyni 4. mars
Kardimommubærínn sýndur í mars
Fegurðarsamkeppni Vesturlands 20. mars